Morgunblaðið - 27.07.1917, Side 1

Morgunblaðið - 27.07.1917, Side 1
Föstudag 27. júlí 1917 fflORGONBLASIS 4. árgaugr 262. tölubiað RitstjfSrnarsimi nr. 500 R'tstjóri: Vilhjslmur Finsen íssfoldarprentsmiója tAfgreiðslusimi nr. 500 3I0| |SIÖ Reykjavtknr Biograph-Theater Talslmi 475 Gullkvðrnm Ahrifamikill sjónleikur i 4 þáttum. Leikinn af ágætum dönskum leikurum. Mynd þessi sýnir glöggar en nokkur önnnr, hyernig hið þráða gul' getnr Iorðið til gagns og gleði, en nm leið hvernig það annarstaðar geinr orðið mönnnm til stórrar óhamingjn, eins og hér sézt á harðneskju föðursins gagnvart dóttnrinni. Far með bifreið tvö sæti, óskast austur að Ægis- síðu í dag eða á morgun. Jóhannes hjá Duus. Erl. símfregnir. Frá fréttaritara ísafoldar og Morgunbl. ■ I Kaupm.höfn 25. jiilí. í»jóðverjar segja að þelr sæki fram á 250 kílómetra herlínu í Galiciu. Áköf stórskotaliðsorusta, í Fiandern. Rússar haía yfirgeflð Stanizlau. Utan af landi. Akureyri í gær. Stephan G. Stephansson kemur hingað á morgun landveg frá Eski- firði. Verður hann ferjaður yfir fjörðinn til kaupstaðarins. Hér hefir verið kjörin móttökunefnd og ætlar hún að halda honum samsæti á »Hotel Akureyri*. Verða þar flutt ar ræður og kvæði. Síra Matthlas Jochumsson yrkir aðalkvæðið og heldur aðalræðuna svo sem vera ber. Síldaraflinn þykfr litill á Siglufirði og hér við fjörðinn. Ýmir er hæstur. Kom hann inn í gærkvöldi með 400 tunnur bg hefir þá fengið X400. Næstur er Eggert Ólafsson. Hann kom inn í nótt með 600 tunnur og hefir þá alls fengið 1200. Afli væri hér nógur, ef ekki skorti beitu og olíu. Saltleysi hamlar mönnum og mjög frá því að stunda sjó. Frá aiþingi. Nýungar. 1. Abyreí fyrir að °eja saman hjón, er standa í sveitarskuld. í Ed. flytja þeir Eggert Pálsson og Jóhannes Jóhannesson svolátandi frv. um ábyrgð fyrir að gefa saman hjón, er standa í skuld fyrir þeginn sveitarstyrk: »1. gr. Nii gefur þjóðkirkju- prestur eða annar þar til löggiltar maður hjón saman, er annaðhvort eða bæði standa i skuld fyrir þeg- inn sveitarstyrk, eoda hafi eigi verið sýnd skilriki fyrir skuldleysi þeirra í því efni, og má þá dæma hann til að endurgreiða fram- færslusveit þeirri, er hlut á að máli, alla skuldina. 2. gr. Sá er hjón gefur saman án þess, að hann hafi fengið skil- rfki fyrir J>vf, að hvorugt þeirra standi í skuld fyrir þeginn sve t- arstyrk, skal þar að auki, ef ann- aðhvort þeirra eða bæði standa i slíkri skuld, sæta sektum til lands- sjóðs, fyrsta sinn, er brot er framið 50—100 krónum, og ef brot er ítrekað 100—500 krónum, nema þyngri refsing liggi við að !ögum«. Niigildandi lagaákvæðum um þetta efni er svo beitt, a'ð prestar hafa verið dæmdir til að framfæra af- sprengi bjóna, sem þeir hafa gefið saman án þess að skilríki væru fyrir hendi um að þau væru skuldiaus við framfærslusveitina, eða skuld þeirra annars hvors eða beggja er ekki greidd á giftingardegi, en ef skuldin er þá greidd, er prestum vítalaust að framkvæma athöfnina. í sam- ræmi við þetta vilja flm. losa prest- inn við frekari skaðabætur en þær, að greiða sveitarskuldina, en vilja hins vegar bæta við sektarákvæði, til þess að prestarnir gæti fullrar var- kárni i þessum efnum. 2. tíey- og lýsisjorðabúr. Bjarni frá Vogi ber fram (í neðri deild) frv. um heyforðabúr og lýsis forðabúr. Til varnar skepnufelli og fóður- skorti skal stofna forðabúr handa kvikfénaði i hverri sveit á landinu. Hver skepnueigandi á að leggja forðabúrinu á hverju sumri: x heyhest á hverjar 20 sauðkindur og geitur. 1--------á hvern fullorðinn naut- 1------------ hver 4 hross (þar af 7b af töðu, ef forða- gæzlunefnd krefst þess). og ennfremur til iýsiskaupa 3 ánra í peningum á hverjar 10 kindut og geitur, hvern nautgrip og hver 4 hross. Birgðir forðabúrsins á að auka með tillögum þessum upp í 30 kapla af heyi fyrir hverjar 20 kindur, hvern nautgrip og hver 4 hrors í sveitinni. En lýsisforðinn á að vera sem svarar 200 pottum á hverj i 300 heyhesta. . Forðagæzlunefnd, 2 menn eða fleiii í hverjum hreppi, skipa sýslu- menn að tillögum sveitarstjórna, að minsta kosti til 10 ára. Sú nefnd hefir á hendi alla stjórn forðabús- ins. Sveitarstjórn kemur á fóðurforða- búrum á heDtugum stöðum, 1 eða 2 hjá góðum heyjabændum. Mönnum er skylt að taka við fo ðabúrinu gegn endurgjaldi. Heyfyrningar þess á að yngja upp á hverju ári. Hlöð- ur undir forðabúr kostar sveitasjóð- ur, en þriðjung kostnaðar leggur landssjóður fram, og annan þriðjung fær sveitin að láni til 13 ára úr bjargráðasjóði gegn 5 °/o ársvöxtum. Forðabúrið hjálpar þeim, sem hey- lausir verða meðan tilvinst. Gjáida skal i nýju heyi næsta sumar, 1 kapal úr stáli með 2 af teig. Lýsi selur sveitastjórn forðabúrinu að skað- lausu. Verði almennur fóðurskortur, skal hver maður hjálpþurfi fá fóður úr forðabúrinu að réttri tiltölu við F]ármergð. Forðagæzlumenn taka þóknun úr sveitarsjóði. »Nú þrjósfeast maður við forða- gæzlunefnd eða vill eigi láta fram eða gjfida sem honum er skylt eft- ir lögum þessum og skal hann þá útlægur 30—200 kr.« Lögunutn er ætlað að öðiast gildi marz 1918 og forðahlöður skal reisa sumarið eftir. Astæð ur: Aldrei hefir verið jafnrik þörf sem nú að vekja meun til umhugsunar og framkvæmda i þessu efni, því að horfellishættan er margföld nú, með- an ófriðurinn stendur. 3. Vilstjóraskólar. Álit er komið frá sjávarútvegs- nefnd neðri deildar um frv. Matth, Ölafssonar um vélstjóraskóla í kaup- stöðum landsins. Nefndin viðurkennir nauðsyn slíkra skóla, og ræður til að frv. verði samþykt með nokkrum breytingum, og þeim víðauka, að lögin komi ekki til framkvæmda fyr en »svo fljótt sem verða má, að lokinni heimsstyrjöldinni*, en þangað tii vill nefndin veita Fiskifélagi íslands 2000 kr. á ári til þess að fjölga námsskeiðum þess um hirðingu og og meðferð mótora, og til að fnll- komna þáu. Flutningsmaður verður framsögu- maður. 4. Hjúskaparmálið. Einar Arnórsson flytur breytingar- tillögu við þingsályktuuartillögí^ sina og G. Sv. um að skora á stjórnina að undirbúa frv. um hjúskaparslit og afstöðu foreldra til barna. 774/777 BÍÓ Hálfsystur. Sjónleikur í 3 þáttum, leikinn af Nordisk Films Co. Aðalhlutverkin leika: C. Lauritzen, Rob. Schmidt, I. Beithelsen, A. Hinding. Tölusett sæti. Konráð R. Konráðsson læknir Þingholtsstræti 21. Sími 375. Heima 10—12 og 6—7. Pela ■ flöskur ' eru keyptar hi°veði 1 Sanítas Smiðjustig 11 Breytingin fer í þá átt, að stjórn- in iáti frv. einnig taka til stofnunar hjúskapar, og mun flm. því vilja svæfa hjónabands frv. þeirra G. Sv. og Jóns á Hvanná. 3. Ný kjdrdamaskipun. Svoiátandi þingsályktunartillögu flytur Jör. Br.: »Neðri deild Alþingis ályktar að skora á landsstjórnina að undir- búa og leggja fyrir næsta reglu- legt Alþingi frv. til laga um rétt- láta kjördæmaskipun, sem bygð sé á þeim grundvélli, að kjósenda- 9 tala hvers kjördæmis verði sem jöfnust* 6. Fáttekralaga breyting. Aðra þingsályktunartillögu ber sami maðui fram um breyting á fátækralögunum svo látandi: »Með þvi að fátækralögin frá 10. nóv. 1905 eru i ýmsum mikilvægum atriðum ófullkomin og harðneskjuleg i garð fátæk- linga, og .yfir höfuð ósamboðin þjóðinni, þá ályktar neðri deild Alþingis að skora á landsstjórnina að undirbúa eða láta undirbúa tafarlaust frv. til nýrra fátækralaga, er bæti úr göllum þeim, sem eru á gildandi fátækralögum og leggi frumvarpið fyrir næsta reglulegt Alþingi.« 7. Friðun hreindýra. , Jón á Hvanná og Sigurður ráðu- nautur flytja (í Nd.) frv, um að fram- lengja friðunartíma hreindýra, sem útrunninn var um jsíðustu áramót, til 1. janúar 1926. Teija þeir nauðsyn á að framlengja friðartímann, þvi að ella sé hætt við, að hreindýrin verði drepin og jafnvel alvel útrýmt á skömmum tíma, meðan þau séu ekki fleiri en nú.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.