Morgunblaðið - 07.09.1917, Side 2

Morgunblaðið - 07.09.1917, Side 2
2 MORGUNBLAÐIÐ Dr.P.J.OIafson EydtkutinfiT " W- ! • l 'fts^8oyen ™ bíyiau^rl; TV‘'^ohannis6urg^^^Wií'; < •;. 6Mrsiwt*\w»V (ir.ífe.Orinik/'eva.V'. . J- 0 . J&h VGarwolin^tukow . - f towJVaria, U / Radin\ «/{ x-í.- BadonuN^»^a"3l)Iíd^r^/'lofle'vá\ \t'ALochnUk'a 7Í U-Uz- 4 '^’Otsctino íTÁlptjndrijNoKunx^tiuþartOW | <5/1 \ J J •- -s . / CSarny j \ /' Kon&'e45‘ld0WÍZ n° ) X •Kieli$4trdS?z \ 'fa&pkr-. -i/ / f ° » „ V - r£ ChjjSin tpKW*! . jSwrilBSj /Grlib“f fflly,15ky K.lom/.ir .- \\ Riga. er fyrst um sinn að hitta i Kvennaskólanum við Frikirkjuveg kl. io—n og 2—3 á virkum dögum. Hœkkun burðarqjalds. Fjárhagsnefnd Ed. fer svo feldum o.'ðum um frumvarp um bráðabirgða- hækkun á burðargjaldi. Nefndin fellst eindregið á tilgang frumvarpsins, að auka tekjur lands- sjóðs; telur þess brýna þörf og álit- ur einnig, að hér sé um talsverðan tekjustofn að ræða. En þar sem ákveðinn er ioo#/0 eða helmingshækkun á burðargjaldi og ábyrgðargjaldi íyrir bréf og bögla með póstum og póstskipum innan- iands, telur nefndin hvorki rétt né sanngjarnt, að blöð og tímarit séu að öllu undanþegin þessari hækkun. Gerir nefndin því þá breytingar* till, að í stað þess að blöð og tíma- rit séu undanþegin hækkuninni, eins og Nd. hafði samþ., komi að hækk- un fyrir því nemi aðeins 25°/0. Framsögumaður Guðmundur Ó-* lafsson. Vélpurkun á kjöti. Landbdnaðarnefnd Nd. flytur svo litandi frv. um einkaleyfi til að þurka kjöt með vélaafli á íslandi. 1. gr. Landstjórninui veitist heimild til að veita Þorkeli Þ. Clem- entz, vélfræðingi í Reykjavik, einka- rétt um is ár til þess að þurka kjöt á íslandi með vélum. 2. gr. Einkaleyfið er framselj- anlegt, með leyfi landstjórnarinnar. 3. gr. Geti leyfishafi ekki innan 3 ára sýnt, að tftraunir allar og undir- búningur séu svo langt komið, að fyrirtækið geti tekið til starfa á þvi ári, fellur einkaleyfið úr gildi. 4. gr. Einkaleyfishafi greiði, ef krafist verður, alt að 10 kr. í lands- sjóð af hverri smál. af þurkuðu kjöti sem út er flutt, þó ekki af fyrsta árs framleiðslu. 5. gr. Eigi má Ieggja annað eða metra gjald á þá vöru, er leyfishafi framleiðir, en getur um i 4. gr. 6. gr. Þegar 10 ár eru liðin eða meira frá því er leyfishafi tók að flytja út þurkað kjöt, hefir lands- stjórnin rétt til að taka í sinar hend- nr einkaleyfið og allar vélar, hús og áhöld fyrir það verð, er dómkvaddir menn meta. Sem greinargerð fyrir frv. fylgja tvö meðmælabréf, annað frá Búnað- arfélagi íslands, en hitt frá þeim Hannesi Thorarensen, Birni i Grafar- holti, Hallgrími Ktistinssyni, Pétri á Gautlöndum og Boga Þórðarsyni frá Lágafelli. Búnaðarfélagið tekur það fram m. a., að það gangi »að því vísu, að landsstjórnin veiti ekki leyfið nema því að eins, að hún hafi tryggingu fyrir þvi, að fé verði lagt til fram- kvæmda, svo að ekki fari um þetta einkaleyfi eins og ýms önnur einka- leyfi, sem veitt hafa verið á síðustu árum«. Riga er höfuðborgin í Liflandi. Stendur hún báðum megin árinnar Vínu (Dwina) um 11 kílómetra frá ósi hennar. Er Riga mest verzlunar- borg Rússa við Eystrasalt önnur en Petrograd. Og járnbrautir liggja það- an inn i landið í allar áttir. Borg- arhlutarnir eru tengöir saman með stórum brúm yfir Vínu. Annars skiftir áin ekki borginni, heldur skift- ist hún i eldri og r.ýrri hlutann. í e'ldri hlutmum standa húsin þétt og eru þar þröngar götur. En umhverfis eru breið torg og garðar sem gerð hafa verið úr hinum fornu víggirð- ingum borgarinnar. Þar fyrir utan kemur svo nýrri borgarhlutinn. Af opinberum stórhýsum má nefna höllina, sem smíðuð var á árunum 1494—1515 og áður var aðseturstað- ur stórmeistara »þýzku riddaranna* i Liflandi. Nú hefir landstjóri Rússa þar aðsetur. Kirkjur eru þar um 30 og eru mestar Alexan3er Nevskij kirkjan, kirkja Péturs og Páls (grísk- kaþólskai), dómkirkjan, sem fyrst var reist á árunurn 1215—26, en hefir verið endurreist síðan, Péturskirkjan og fakobskitkjan, sem báðar eru mörg hundruð ára gamlar. íbúar í Riga eru um 300—350 þúsundir. Var þar iðnaður mikíll áður en striðið hófst — um 400 verksmiðjur, er veittu nær 50 þús. manna atvinnu. Þangað voru og siglingar miklar. Aðalhöfnin er við ósa árinnar hjá Bolderá og Duna- mundevígið, en flest skip sigldu þó alla leið upp eftir ánni til borgar- innar. Margir bankar eru í borginni og skólar. Þar eru 4 bókasöfn og 8 spítalar. Borgin var áður ramlega viggirt, en vigin voru lögð niður árið 1856. Þar hefir þó alt'af verið að- setur eins hers Rússa (armé corps). — Um Riga hehr oft verið btrist. Árið IS97 varð hún að gefast upp fyrir Sigismundi Pólverjakonungi og árið 1561 afsalaði hinn síðasti stór- meistari þýzku riddaranna henni fyrir íult og alt. Arið 1581 tók Stefán konungur Báthari borgina; Gustav Adolf tók hana árið 1621. Arið 1656 sátu Rússar um hana en fengu eigi náð henni og á sömu leið fór fyrir Söxum árið 1700. En árið 1710 varð hún að gefast upp fyrir Rússum og hefir verið rússnesk síðan, enda þótt mestur hluti íbúanna sé þýzkur. Þjóðvetjar gerðu tilraun til þess i fyrra að ná Riga og sóttu að henni bæði á sjó og landi. En svo fóru þá leikar, að þeir urðu frá að hverfa eftir að hafa beðið talsvert tjón á flota sínum. En flota Rússa, sem var þar fyrir til varnar, lokuðu þeir inni í Rigaflóa og er eigi kunnugt, að hann hafi komist þaðan út aftur. Hafa Þjóðverjar því senniléga náð þeim skipum á sitt vald nú er þeir tóku borgina herskildi. Það má nú glöggast sjá það hvað Rússum hefir hrakað stórkostlega að Þjóðverjar taka Riga um leið og þeir hefja sókn þar. Viðnám Rússa verður ekkert að marki. Þá var munur á viðtökunum, sem þeir veittu Þjóð- verjum i fyrra, enda lögðu þeir þá fullkomið kapp á að íá varið borg- ina. Þótti þeim þá, sem allar norð- urvígstöðvarnar væru i hættu ef Þjóð- verjar fengju tekið borgina, og jafn vel sjálf Petrograd, höfuðborgin. Hafa Rússar alls eigi dregið neina dul á það, að Þjóðverjar mundu halda áfram til Petrograd ef þeir næðu að kom- ast norður yfir Vinu. Það hefir Ke- rensky óttast mest. íslenzkt réttlæti. í sumar var eg ráðinn skipstjórí ' á seglskipinu »Huginnc ex. »01ivette« sem h.f. Kveldúlfur keypti í Ameríku. Hefi eg siðan siglt þessu skipi milli hafna hér innanlands og flutt vörur. En siðan átti að senda skipið með farm til útlanda. Þegar að því kom var mér tilkynt, að eg hefði ei'gi rétt til að sigla skip- inu milli landa, vegna þess að eg hafi eigi hið meira skipstjórapróf. Mér kom þetta mjög á óvart, bæði vegna þess að lögin gera eigi ráð fyrir roinni verzlunarskipum í sigl- ingum landa á milli en 300 smál., en þetta skip er 281 smál. Þeir sem hafa hið minna skipstjórapróf hafa rétt t l þess að fara með fiskjskip, sem eru minni en 300 smál., milli landa. Og þar sem þetta skip er smíðað til fiskiveiða og er eigi annað en fiskiskip, þá þótti mér hart að fá eigi að ujóta þeirra réttinda, sem lögin heimila og það því fremur, sem öðrum mönnum með sama prófi hefir leyfst að sigla skipum milli landa. 1 surnar hafa mörg þilskip verið send héðan til Noregs, Danmerkur og Englands, og mér vitanlega hefir enginn skipstjóranna á þeim hið meira prófið, eða réttindi til þess að sigla veizlunarskipum milli landa. Þó munu flest þessara skipa flytja vörur að minsta kosti aðra leið. Nú langar mig til þess að spyrja eftir hvaða reglum þeir fari, sem lag- - anna eiga að gæta. Legg eg það á vald almennings að dæma um það hvaða réttlæti mér er sýnt í þessu máli, að mér einum skuli bannað að sigla fiskiskipi milli landa. Því að »Huginnc er fiskiskip, enda þótt það hafi eigi stundað fiskveiðar enn hér við land, vegna þess hvernig ástand- ið er nú í heiminum, og sé þess vegna notað — eins og fleiri fiski- skip — til flutninga. Sé nú ástæðan sú, að yfirvöldin álíti að »Huginnc sé verzlunarskip, þá gera lögin ekki ráð fyrir þvi — eins og áður er sagt — að svo litil verzlunarskip sigli milli landa. En þau segja skýrum orðum að til þess að sigla stærra verzlunarskipi en joo smálesta milli landa, þurfi skipstjóri að hafa hið meira prófið. Það virð- ist þvi liggja í augum uppi, að skip- stjóri á minna skipi þurfi eigi að hafa hið meira prófið — enda hefir þann- ig verið litið á lögin þangað til nú. Til dæmis um það réttlæti sem látið er koma fram við íslenzka sjó- menn skal eg geta þess, að tvítugur piltur, sem hafði verið 2. stýrimaður í 9—10 mánuði, fékk undanpáqu í vor til þess að vera skipstjóri. En eg sem hefi verið stýriraaður í 4xj% ár og skipstjóri í 13 ár og aldrei hlekst neitt á, fæ eigi að Djóta sömu réttinda og aðrir stéttarbræður mínir sem nú eru í siglingum milli landa og hafa þó eigi jafn langa skipstjóra- reynslu.----------- Að lokum vil eg beina þeirri fyr-~

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.