Morgunblaðið - 25.02.1918, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 25.02.1918, Blaðsíða 2
MOBGUNBLAÐIÐ kúlna, fallbyssa og flugvéla færi stöð- ugt vaxandi. Robertson formaður yfirherstjórn- arráðs Breta hefir farið frá og tekið við þýð*ingarmikilli stöðu við her- stjórn heima fyrir. Henry Wilson hershöfðingi hefir tekið við af hon- um. Rawlinson hershöfðingi hefir verið gerður að fulltrúa í yfirher- stjórnarráði bandamanna í Versailles. Skýrslan um kafbátahernaðinn fyrir vikuna sem endaði 16. febr. sýnir það, að 2322 skip hafa komið til brezkra hafna, en 2393 farið. Sökt var 12 brezkum skipum, sem báru meira en 1600 smál. og 3 minni, og 1 fiskiskipi. A átta skip var ráðist árangurslaust. Jellicoe sagði i ræðu, sem hann hélt í London 20. febr., að tundur- spillarnir væru kafbátunum mjög skeinuhættir og hefði sennilega verið sökt helming þýzku kafbátanna. Símað er frá Washington, að Hoover, ríkisbryti Bandarikjanna hafi sagt, að matvæli þau, sem farið hefðu i sjóinn á árinu 1917 væru að eins 7 °/0 af því, sem flutt hefði verið og kafbátahernaðurinn hefði þvi mis- hepnast. Frá Petrograd er simað 22. febr., að Þjóðverjar hafi sótt fram á ýms- um stöðum á austurvigstöðvunum. Maximalistar hafa gefið út ávarp til þjóðarinnar og skorað á hana að verja landið til siðustu stundar, að búa til skotgrafir og ónýta járnbraut- ir og allan forða á undanhaldinu. Floti Rússa er frosinn inni i Hel- singfors. Berum hver annars byrði Eins og marga mun reka minni til hér i bænum, varð járnbrautar- slys hér við hafnargerðina hinn 12. júni í sumar, sem leið. Einn af verkamönnunum féll af einum grjót- vagninum, komst ekki nógu fljótt undan og var% undir vagnalestinni. Maður þessi var þegar fluttur á siúkrahúsið og þarl voru teknir af honum báðir fæturnir nálægt knján- um. Eins og gefur að skilja lá hann alt sumaiið á sjúkrahúsinu, komst heim til sín með haustnóttum. ■ En hann kom heim sem farlama maður, eins og hjálparlaust barn, sem enga eða litla getur björg sér veitt. Er það sorgleg sjón, að sjá þenna stóra og sterklega mann liggja sem visið kalstrá á legubekknum stofunni sinni, hjálparvana hvers sem hann þarf. Fyrir skynugum mönnun mnn ekki þurfa að lýsa þvi, hrernig heimilisástæðurnar og1 efnahagurinn muni vera, þar sem slíkir erfiðleikar bera að höndum. Tímarair þykja, og ern, erfiðir þeim, sem heikn: hafa hendnr og fætur og óskerta alla líkamskrafta. Það er hú hér sem oftar, að ekki tjáir að saknst rnn orðinn hlut. Hitt er war, a« reyna að bæta úr slysÍM eftlr fÖBgnwr, hefir mönnum því komið í hug að reyna að útvega þessnm manni tilbúna fætur frá Danmörku; þar er félag manna, sem starfar í þá átt, að bæta þeim mönnum missi sinn, sem verða fyrir þvi að missa hendur eða fætur. Dönsk kona, sem búsett er hér í bænum, hefir gerst milligöngumað- ur og ritað um þetta félagi einu í Kaupmannahöfn. Eru allar horfur til þess, að maðuriun geti fengið fæt- urna, og þeir verði gefnir honum að einhverju leyti. En — hann verður að koma til £aupmanna*Íiaínar; og þá kemur það til, sem erfiðast er, og það er ferða- rostnaðurinn. Ef nú Danir vilja sýna þá mann elsku og göfuglyndi, að gefa manni þessum að einhverju leyti nýja fæt- ur og gera honum dvölina i Khöfn ódýra, getum og viljum við Reyk- víkjngar þá ekki skildingað saman í ferðakosaaðinn f Af þvi að maður þessi er alveg farlama, og getur enga björg sér veitt, mállaus, þegar þangað kemur, og öllum ókunnugur, þá er helzt í ráði, að maður fari með honum, til að annast um hann á allri ferðinni. — Æskilegast er, að geta sent mann- inn til Khafnar í næsta mánuði, svo að hann geti, ef alt gengur vel, haft eitthvert gagn af næsta sumri. Eg leyfi mér nú að beina þeim tilmælum til góðra manna hér í bænum, að skjóta saman fé handa manni þessum til framangreindrar farar. Ef margir leggjast á eitt, þá þarf þetta ekki að verða hverjum einstökum manni tilfinnanlegt. Gjöfum er eg fús að veita viðtöku, og mun skýisla um það birt á sín- um tíma. Dagblöðin, Morgunblaðið og Vísir, hafa heitið máli þessu mikilsverðum stuðningi sínum, og eins að veita samskotum viðtöku. Rvik, 23. febr. 1918. Olajur Olajsson, fríkirkjuprestur. „John Glayde“. Svo heitir mynd sú sem sýnd hefir verið í »Nýja Bíó«, undanfarin kvöld- það er meistaraleg lýsing á hjóna- bandi. J?ví hjónabandi, sem miljónir karla og kvönna lifa, án þeBS þó að gera sér grein fyrir. Hann heitir John Glayd, og er einn af mestu auðkýfingum Ameríku, enda ber hann nafnið »Járnkonungur- inn«. Alt líf hans er helgað auðvaldinu. Sál hans er þrungin óstöðvandi vilja þreki og þrá eftir hinu setta marki. því marki að vinna sigur á öllum keppinaotum sínum, og verða síðan einvaldur í öllu* viðskiftalífi álfunnar. £n sál hans á lfka annað æðra og fullkomnara. þetta yfirnáttúrlega afl, kærleikann, sem öllum er gefinn, en sem svo fáir gera sér grein fyrir, né þekkja til fulls. Bn þetta afl kemst ekki að. það verður að víkja fyrir daglegu störfunum. Bu það Iifir þó f Bál hans og þroskast, þar til það aö síðustu fær tilefni til að brjótast út, en þá ar það orðið um sejnan. Konan hans heitir Marriel. Hún er það sem maður geturkallað: jaið- engill. því hjá henni er kærleikur- inn á sínu fullkomnunarstigi. Alt líf hennar er þrungið óatöðvandi ástarþrá. Brá hjarta hennar streymir hinn lifandi kærleiki í stríðum straumi. En hann fellur eins og dropi í hafið. þetta mikla haf áhyggjanna, sem innibyrgir ástina, er býr í sálu mannB hennar. Og hin angurblíða leit hennar að hjarta hans, strandar á öllu því gulli og gimsteinum, sem umkringja hana. Hvað eftir annað leitar hún að ást manns síns. Hún þráir svo heitt að sjá ávöxt kærleikans. Að finna til þeirrar sælu, er ást tveggja aálna veitir. En allar tilraunir henn- ar eru unnar fyrir gíg. Maður henn- ar hefir engan tíma til ástaratlota fyrir hinni þungu ábyrgð, sem hvllir á honum í viðskiftalífinu. þess vegna, verðnr Marriel altaf að vera ein. Og ást hennar reikar um geiminn en finnur enga höfn. Bnga hvíld á hinu óendanlega flugi sínu. Lífið verður henni þungbært og gleðisnautt. Hans líf er það líka, en hann finnur ekki til þess fyrir áhyggjum. þau eiga ekki samleið, því þau akilja ekki hvort annars þrá. Nú er Marriel boðið í skemtiferð til Norðurálfunnar, til París. En hún óskar í hjarta sínu, að maður henn ar leyfi henni ekki að fara. það mundi hún telja ofurlítinn vott þess, að hann elskaði hana, og gæti ekki verið án hennar. En hann hugsar öðru vísi. Hann telur einmitt, að kona sín hafi gott af að létta sér upp, og hvetur hana þess vegna til að fara. Hún fer, en maður hennar hefir ekki tíma til að kveðja hana. Annir hans eru svo miklar. Hann sendir henni að eins blómvönd. En vöndurinn nægir henni ekki. jpess vegna leysir hún hann upp, og læt- ur blómin eitt og eitt falla í sjóinn. Ekkert megnar að lækna hjarta henn- ar, annað en hýrt augnatillit eða koss frá þeim sem hún elskar. í París kynnist hún málara, sem þegar verður ástfanginn af henni. í fyrsta sinni á æfinni finnur hin ást- tærða sál það meðal, sem getur lækn- að. En hún reynir að forðast þetta meðal. Hún álítur, að það sé að eins Glayde maðúr hennar, sem hafi rétt að lækna hjarta hennar. En hið mikla Atlanzhaf skilur þau að. Hann situr hinum megin við hafið, og hefir enn ekki tíma til að Bkrifa konu sinni. En Marriel, hún hefir elskað mann sinn alt til þessa, þrátt fyri^. -alla örðugleikana. Og nú frétt ir hún ekkert til hans og fær ekkert l^bréf. Astin er viðkvæm og þolir ekkert tómlæti. En stundum verður þó tóm- lætið til að örva hana. Og mótstaða Marriel varð til að örva ást málar- ans. Hin Bterka nýfædda ást æsku- mannsins hlaut að vinna sigur á því hjarta, sem altaf hafði leitað að ást, en aldrei fundið. Og hvernig átti hin margvonsvikna ást hinnar ungu konu að standast það afl, sem ást málarans hafði að geyma? Marriel sem alt sitt líf hafði þráð ástarsælu. |>ráð að meiga njóta ávaxta kærleikans, sem alt Iíf henn ar var helgað. því skyldi hún hafna þessari sælu nú, einmitt þegar hún blasti framundan? Nei, vissule8ft gat hún það ekki. Landflótta ástar- þrá, hennar hafði nú loksins fundið heimili. Fengið hvíld og frið. Hún elskaði og var elskuð. J?að var hin sanna ástarsæla. Nú víkur sögunni til John Glayde. Þ®gar hann kemst að því, hvernig komið er, þá vaknar ást hans. Fanginn, sem um margra ára skeið hafði verið reyrður fjötrum hins þurra harðúðga viðskiftalífs. — Og hvílíkt kærleiksflóð, sem nú streymir frá hinu stóra hjarta hins mikla mannB! — Nú finuur hann fyrst hvað hann elskar Marriel aína heitt, og, að hann getur ekki lifað án henn- ar. En öll viðleitni hans til að vinna ást konu sinnar, verður að engu. Hún er töpuð að eilífu. — Og ástin hans leið þetta óguriega skipbrot jafnskjótt sem hún fæddist. En örsökin var í fyrsta Iagi sú, að hann hafði ekki þekt hina undra- verðu kend, sem bjó í sjálfum hon- um. Og í öðru lagi, að þegar boð- beri kærleikans barði að dyrum, þú hafði hann ekki tíma til að veita honum áheyrn. Jpessi mynd er þess sannarlega verð, að verða sýnd mörgum sinnum oftar, en þegar hefir verið gert. |>ví að hún á erindi til allra. Og þér giftu menn og konur! Eg vil fastlega ráða yður tH að fara einu sinni og sjá þessa mynd, því að hún er mjög lærdómsrík. Munduð þór þá ekki leggja fyrir sjálfa yður slíkar spurningar: Er ekkert það f sambuð okkar hjónanna, sem gætí farið "betur en það fer? Gæti eg ekki Iétt áhyggur mannsins míns að einhverju Ieyti, beinlínis eða óbein- línis? Gætí eg ekki miðlað konu minni ofurlítið meira af ást? Og gæti eg ekkl gefið mér tíma til að njóta hinnar sameiginlegu ástarsælu? A. K. Siðustu símfregnir Framsókn Þjóðverja,' Kböfn 23. febr. Þjóðverjar sækja enn fram á aust- urvigstöðvunum. Eistlendingar og Ukrainistar hafa gengið í lið með þeirn. Seidler hefir lýst yfir því, að Austurrikismenn muni ekki taka þátt í ófriðnum gegn Rússum. Friðarsamningarnir. Khöfn 23. febr. Aðalnefnd þýzka ríkisþingsins hefif fallist á friðarsamningana við Ukra- me. Vopnahlé er aftur komið á á víg' stöðvum Rúmena. Kuhlmann, Czernin og Búlgataf segja að fyrst verði að semja frí* við Rúmena, áður en saminn verði friður við Rússa. Jeriko fallin. Khöfn, 23. febr. Bretar hafa tekið borgina Jeriko i Gyðingalandi,

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.