Morgunblaðið - 08.08.1918, Qupperneq 1
8.
iag
ágúst 1918
271.
tðlablað
ísa
afoídsm ení-Jtrilii?
AfsíreiðslHsími nr. 500
Rixstjórnaisimi nr. 500
Rits'jón: Vilhjiimtir Fins
Rdssar þeir, sem sitja hér á skóbbokkjunum eiga enga framiíðarvon
eins og börnin, sem áður sátu þaina. Þeir eiga allir að deyja — þá
skal skjóta. Og svo mikil og margvisleg eru þau bermdarverk sem þeir
hafa framið, að ef nokkur maður á það skibð að vera drepinn, þá eru
það þeir sem eiga það skilið. Hundrnð manna hafa þeir myrt og hús
hafa þeir brerit og r.-ent í Uieáborg í Fmnlandi, þar sem þeir voru. —
Enda eiga víst fáar aðrar borgir í Finniandi siíka raunasögu að segja iir
borgarastyijöldinni eins og Uieáborg og var þó ástandið viða eigi gott. —
Þegar hvíta hersveitin tók Uleáborg og náði hermannaskálanum þar,
fann hún þessar veslings finsku konur, sem sýndar eru hér á neðri
myndinni, lokaðar inni þar, meðal 800 rússneskra hermanna. Voru þær
al'ar allsnaktar og er óþarfi að minnast á hvernig meðferðin á þeim
muni hafa verið.
Erl. simfregnir
(Fri fréttaritar* Morgunbl.).
Khöfn 6. ágúst.
Kirchbach greifi er orðinn eftir-
maður Eichhorns, hershöfðingja, sem
drepinn var í Kiew.
Frakkar eru komnit að Avre fyrir
norðin Montdidier, milli Brrches og
Moreuil.
Khöfn 6. ágúst síðd.
Maximaiistar hafa birt málskrafs-
mikið en raunamætt ávarp til verka-
maana bandaþjóðanna, um að berj-
asl ekki gegn byltingamönnunum
rússnesku, en hjálpa þeim heldur til
að þeir fái reist rönd við ofbeldi
yfirstéttanna.
Frá Rotterdam er símað að Bret-
ar og Bandarikin hafi boðið bætur
fyrir gufuskipin hollensku, sem tek-
in bafa verið í þjónustu banda-
manna.
Spítalaskipinu Waralda hefir verið
sökt
Skothríðin á Paris með langdrægu
fallbyssunum, hefir verið hafin á ný.
Það er búist við því, að Þjóðverj-
ar muni halda undan frá Chemin-
des Dame og flytja á bart með sér
allar matvælabirgðir og uppskeruna
af ökrunum(?)
Nationaltidende hafa það eftir
þýska blaðinu Locdanzeiger að rúss-
neska stjórnin sé flutt til Prauna(?)
°8 að að því muni reka, að Rússar
Fjóðverjar verði að ganga í
bandalag.
Frá Lugano er símað, að Wilson
forseti og nokknr þingmeQn úr öld-
ungadeild Bandaríkjaþingsins muni
bráðlega koma til vígstöðvanna í
Norðurálfunni,
Professor Camiilus Nyrop er lit-
•inn.
Bresk blöö og samn-
ipgarnír.
Svohljöðandi símskeyti befir Við-
skiftafélagið fengið frá Central News.
London í fyrradag.
Biöðin hafa öll, netna T 1 m e s,
birt ágrip af dansk-íslerzku smin-
ingunum, en ekkert þeirra hefir látið
n Ijós skoðun sína á máiinu.
Hsyskaparhorfur.
Alstaðar að er að frétta grasbrest.
Einar Helgason garðyikjumaður er
nýkominn heim úr ferð um Norð-
urland. Hann var með í brúðarfór-
inni una Sprengisand fyrri hluta júli-
mánaðar.
í Suður-Þingeyjarsýslu voru horf-
urnar mjög slæmar; túnin kalin til
stórskemda og harðveliisengjar sömu-
leiðis, t. d. grundirnar í Bárðard.il.
Þar í sveit er mikil hjálp að grá-
víðilaufi. Þar eru slegnar stórar sam-
feldar laufbreiður hér og þ.'tr í heiða-
löndunum.
Bóndinn í Svartárkoti var búinn
að fá 40 hesta af laufheyi 11. júli
og átti úti annað eiQS 0g hélt áfram
að slá laufið.
í Eyjafirði er sprettan betri en
annarsstaðar á Notðurlandi. Einar
á Stokkahlöðum segir að þar utn
rniðbik héraðsins muni töðurnar verða
V,—V4 tninrii en i meðnlári,
Skagfirðiogar sögðu töðuna þriðj-
ungi minni.
I Húnavatnssýsíunoi er grasvöxt-
urinn mjög líkur og í Borgarfirði.
Bændur gizkuðu áað töðurnar mundu
verða helmingi roinni en í meðal-
ári. —
I Vestur-Húnavatnssýslu voru
bændur að heyja brakflóa uppi á
heiðum. A Stað í Hrútafirði var
verið að reiða heim útheyið i vik-
unni sem leið. Siegið i foraiflóum,
setn ekki hafa verið slegnir fyr,
vegna þess að ekki hefir venð fært
um þá. En nú má fara með hesta
um þessa flóa þvera og end langa,
því að ekki eru nema 9 þumlungar
niðut á klaka.
Áveituengin spretta þolanlega, þau
aulcast alt af nokkuð árlega, þó hægt
gangi.
Nýi bóndinn á Lækj.imóti í Húna
vatnssýslu, Jikob Lindal, hefii veitt
vatni á mýraflóa too di sáttnr á
stærð heima við túnið. Þtr er nú
komin góð slægja.
Á Hólum i Iljaltadal hefir skóla-
stjórinn aukið vatnsveitur að miklum
mun, bæði á engjar og bithaga og
hygst hann nú að græða upp mel-
ana norðan við túnið með áveitu.
Hann hefir í sumar veitt vatni á
alla rófn?.garðan3, látið það seitla
ineðfram hverri rófnaröð. Kemur
það sér vel í þessum þurkum sem
gengið hafa.
Matjurtagarðarnir á Hólum eru á
4. dagsláttu.
Eltimör.
Hlutafélagið »Svöiður« var stofn-
að hér i bænum i vetnr í þeim til-
gangi, að láta taka upp mó einhver-
staðar á heppilegum stað hér í grend-
inni. Eru i stjórn bess þeir Magnús
Einarsott dýralæknir, Carl Olsen
stórkaupmaður og Bogi Þórðarson
frá Lágafelli, en Þorkell Clementz
hefir haft á hendi alla umsjón með
mótekjunni, útvegað allar vélar og
áhöld.
í Álfsneslandi^við Leirvogana hefir
verið unnið af kappi i sumar og
hafa þar verið teknar upp um 500
smálestir af mó. Um ®/B hlutar
hans er eltimór, sem gerður hefir
verið með sérstakri vél. Um 30
manns hafa unnið þar uppfrá þegar
flest var, og geta menn séð á því,
hve mikið hefir verið tekið upp, að
þar hefir eigi síður verið haldið
áfram af kappi heldur en í Kringln-
mýrinni.
Eitthvað af mó þessum mnn koma
á markaðinn^ síðar og gefst mönn-
um þá tækifæri til þess að reyna
eltirnó, gerðan eins og siður er er-
lendis, þar sem mótekja er í stór-
nm stil.
Vafalaust færir »Svörðfir« út
kviarnar næsta ár og tekur þá enn
meiri mó upp, ef vel gengur að
þessu sinni.
Frá Hafnarfirði.
Mikil vinna er hér núna, Fisk-
ur rnjög mikill, sem verið er að
að þurka og mikið af honum þeg-
ar komið í hús.
Afii er ágætur alt af þegar á
sjó er farið. Þilskipin tvö eru
komin inn, þau Acorn, með tæp
30 þús. af fiski að sögn, og Sur-
prise, með um 23 þúsund.
Mótekja hefir verið mikil. Flest-
ir munu nota mó í vetur að mestu
leyti.
-------■» 1 #■ -----