Morgunblaðið - 08.08.1918, Qupperneq 2
2
FOKGUNBLAÐIÐ
Fyrsta flokks bifreiðar
ávalt til leign.
St. Einarsson. Gr. Sigurðsson.
Simi 127. Sími 581.
Nú er komið aftur
Fernis
Kítti
Blackíernis
Tjara
og allskonar LitaPduft
Daniel Halldórsson Kolasundi.
Frá Eyjafirði.
Akureyri í gær.
Stöðugt bexta veður, logn og hiti.
Sterkur hiti um hádaginn undanfarið.
Síjdveiðaskipin segja mjög litið af
sild úti fyrir, eða hún »liggi svo
djúpt* að ekki náist til hennar. Síð-
ostu dagana hefir® verið gersamlega
aflalaust, en skipin eru öll, bæði
smærri og stærri, úti að leita.
J. V. Havsteen etatzráð varð 75
ára í dag og var flaggað um allan
bæinn i tilefni af þvi.
»Sterling liggur við Svalbarðseyri
og er að taka fóðursíld, sem legið
hefir þar siðan í fyrra, og flytur
hana til Reykjavikur. Lokið mun
að skipa síldinni út i nótt.
Haraldur Níelsson prófessor hefir
verið hér undanfarið og flutt nokkra
fyrirJestra íleikhúsinu, ávalt fyrir troð-
fullu húsi áheyrenda.
Brezka stjðrnin
og brezkir verkamenn.
Nokkru eftir að ófriöurinn hófst
gerðu brezkir stjórnmálaflokkar
»vopnahlé* sín í milli. Var það
gert til þess að innanlandsdeilur
skyldu eigi draga úr samheldni þjóð-
arinnar út á við í stríðinu. »Vopna-
hlé* þetta var gert til ákveðins tíma
fyrst í stað, en síðan hefir það hvað
eftir annað verið framlengt, þangað
til nú, að verkamenn hafa skorist
úr leik.
A ráðstefnu verkamanna og jafn-
aðarmanna sem haldin var í London
í júnímánuði, kom fram tillaga um
það, frá sambandsstjórninni, að segja
upp »vopnahlénu». Var hún sam-
þykt með 1.704.000 atkvæðum gegn
951.000.
Er jafnvel búisUvið því, að þetta
leiði til þess að fulltrúar verkamanna
gangi úf stjórniuni, en hitt er eigi
tilgangurinn að fara að hefja inuan-
landsbaráttu, því að vegna stríðsins
yrði samvinnan að sitja fyrir öll a
örðu. Sambandsstjórnin tók það
fram, að með því að segja upp
»vopnahlénu« vildi hún að eins fá
óbundnar hendur gagnvart stjórninui,
meðal annars til þess að taka upp
kosningabaráttu, þar sem þingsæti
losuar.
Engiand - Indland.
Ný samgönguleið.
Hersveitir bandamanna eru komn-
ar til Murmansstraudar og Finnar,
Rússar og Þjóðverjar búast til þess
að taka þar á móti þeim. Er flesí-
um lítt skiljanlegt, hver tilgangur
bandamanna muni vera með því að
ráðast norður í þessi köldu eyðihér-
uð Rússlands, en þýzka blaðið
»Norddeutsche Allgemeine Zeitung*
þykist hafa fundið ráðninguna á gát-
unni.
Blaðið segir fyrst, að hin ákveðnu
ummæli friðarsamninganna i Brest
Litovsk um Persíu og Afganistan sé
Englendingum allmikill þyrnir í aug-
um, því að ef ófriðurinn fari svo,
að Bretar verði undir, þá væru með
þessu settar svo ramar skorður við
yfirgangi þeirra í Mið-Asíu, að stöðv-
uð væri samgönguleið sú við Ind-
land, er Bretar hafa verið að tryggja
sér síðasta mannsaldurinn. Þess
vegna neyðist þeir nú til þess að
koma í veg fyrir þetta,
Þegar á miðju ári 1917 gaus upp
kvittur um það, að Bretar væru að
ná undir sig einhverjum réttindum
í Alexandrovsk-höfninni, við Murman-
brautina og i Arkangels. Það var
þá sagt, að Englendingar væru komn-
ir þangað með her og létu eins og
þeir ættu þennan hluta Rússlands.
Þjóðverjar veittu þessu þá eigi svo
mikla athygli og héldu að Bretar
hygðu á að hjálpa Rússum. En i.
raun og veru ætluðu Bretar sér að
tryggja sér nýja leið til Indlanas.
Svo sem kunnugt er, er Alex-
androvsk islaus allan ársins hring.
Til þess að tryggja sér aðflutninga
frá Vesturrikjunum höfðu Rússar þá
unnið af kappi að því að leggja
þangað járnbraut og tengja hana við
járnbrautarnet Rússlands. En nú
virðist svo sem Bretar hafi fullkom-
ið vald á þessari járnbraut. í blöð-
um frá Moskva var þess getið 13.
apríl, að Bretar hefðu með leyfi
rússnesku stjórnarinnar sett 6000
hermenn á land á Murmanströnd.
Þarna hafa Bretar þvi fundið nýja
leið til Indlands — segir blaðið —
og fara í kringum Mið-Evrópu. Þetta
er langstyzta leiðin þangað og ef
vinfengi helzt framvegis með Rúss-
um og Bretum, hafa hinir síðarnefndu
fullkomið vald á öllum járnbrautum
Rússlands.
Utanríkisstjóru Breta hefir því eigi
látið neins ófreistað til þess að tryggja
sér upphafsstað þessarar nýju sam-
gönguleiðar, og hún hefir líka kapp-
kostað að tryggja sér seinasta áfang-
ann. Frá Orenburg liggur leiðin í
gegnum Turkestan til Taschkent og
Kokand, eða heim að dyrum Ind-
lands. Um þennan hluta Heirder-
Kusch hefðu þegar fyrir löngu verið
lagðar járnbrautir ef Bretar hefðu
viljað leyfa það. En meðan Rúss-
land var stórveldi var ekki við það
komandi. Nú er öðru máli að gegna.
Bretar róa að því öllum árum að í
þessu héraði verði hver höndin upp
á móti annaii og hinar hræðilegu
blóðsúthellingar, sem urðu þar í
febrúar 1918, þar sem Bolchewikkar
og Múhamedsmenn börðust, er sagt
aðséafleiðingin af starfsemi Breta. En
milli þess sem gerist nú í Alex-
androvsk og blóðsúthellinganna í
Turkestan, er miklu nánara samband
heldur en flesta grunar.
Blaðið heldur nú lengra áfram og
segir að miklar líkur séu til þess, að
þessar fyrirætlanir Breta um að ná
samgönguleið til Indlands yfir Rúss-
land, muni hepnast. Rússar séu svo
háðir Bretum og Bandaríkjunum, að
þeir geti eigi reist rönd við fyrir-
ætlaninni. Og i þessu liggur fólgin
talsverð hætta fyrir Miðríkin, því að
Bretar eru vanir því, að gerast ein-
ráðir yfir samgönguleiðum þeim, er
þeir hafa náð valdi á, það er að segja,
að Bretar ná vanalega tangarhaldi á
þeim löndum, sem hafa leyft þeim
að leggja járnbraut hjá sér. Þess
vegna geta orðið erfiðleikar á um
samgöngur Miðrikjanna til Austur-
Asíu, því að rússnesk-brezka járn-
brautin mundi liggja þvert yfir sam-
gönguleiðina þangað. Þetta er lik-
lega einnig xt\an Breta. Með sam-
gönguleiðinni til Indlands ætla þeir
sér að girða fyrir það, að Miðrikin
nái járnbrautarsambandi við Kína og
Austur-Asíu.
Blaðið lýkur greininni með því að
minna á það, að friðarsamningarnir
í Brest Litovsk tryggi Þjóðverjum að
vísu fijils viðskifti í Rússlandi, en
þessum fyrirætlunum Breta megi
þeir þó eigi gleyma.
M DAQBOK
Safnahúsið væri ekki vanþörf á
að 'dubba upp« bráðlega að utan.
f>að er Ijótt orðið og þyrfti að hvltta
það á ný.
Nýjar kartöflur frá Syðri Reykj-
um í MosfellBsveit eru dú nýkomnar
á markaðinn hér í bænum. Á Syðri-
Reykjum býr nú Jóel skipstjóri Jóns-
son og hefir hann mikla garðrækfc
þar í sumar, einkum kartöflurækfc,
Vafalaust eru Syðri Reykir einhver
allra heppilegasti staðurinn hór í ná-
grenni til mikillar og góðrar kartöfiu-
ræktunar.
Rúmlega 130 laxa veiddi Guðm.
prófeBsor Magnússon á flugu í Ellíða-
ánum í júlímánuði. Ennfremur fékk
hann nokkra laxa á maðk.
Laxveiði hefir yfirleitt verið ágæt
í Elliðaáuum í eumar.
Stjóriiarráðshúsið er nú verið að
gera við að utan og mála það.
Grjót er nú verið að taka i bruna-
rústunum við Austurstræti. Verður
það notað í nýtt hús, sem frú
Margrét Zoega er að láta reisa við
Laufásveg neðanverðan.
Hellirigning gerði í gærmorgun
um kl. 9, og stóð skúrin að eins
nokkrar mínútur, en vöknaði þó svo
vel, að ekkert ryk var á götunum f
gærdag.
Gjöf til Saniverjans. Morgun-
blaðinu voru í gær færðar 15 krón-
ur að gjöf frá afmælisbarni til Sam-
verjans, og það beðið að koma þeim
til skila.
Fredericia, leiguskip Steinolíu-
félagsine, mun vera væntanlegt hingað
um 12. þ. m. Eigi vifca menn hvort
skipið hefir nokkurt bensín með-
ferðis, en á því er nú orðinn mikill
skortur í bænum.
Guðin. prófessor Hannesson er
nýkominn heim úr ferð um Húna--
vafcnssýslu. Segír grasbresfc töluverð-
an nyrðra, en þó eé ver Bprotfcið
fyrir sunnan Höltavörðuheiði.
íþróttamótið á Hvítárbakka fór
mjög vel fram. Var þar saman-
komið nokkuð á annað huudrað
manns, sem skemtu sér við ræðu-
höld, íþróttir, sund og söng. Meðal
annars fór þar fram kappsláttur,
fyrsia sinni á þessu landi. Varð
hlutskarpastur Guðm. Tómassou á
Haugum. Sló hann 625 fermetra
bletfc á 29 minútum og 5 sekúndum.
Hlaut hann að verðlaunum 100 kr.,
sem Halldór Vilhjálmsson skólastjóri
hafði gefið, og útBkorinn hlut eftir
Stefán Eiríksson, sem Ungmenna-
félögin höfðu gefið.
Herdísar-lóðina svokallaða við
Austurstræti hefir frú Margrót Zoega
selt nýlega. Er eagt að þrír menu
séu um kaupin og ætli í sameiningU
að reisa þar verzlunarhús, að ófriðn-
nm loknum. En þ&ð eru þeir Lúðvíg
Lárusson (Skóverzlun Lárusar G-
Lúðvígssonar), Halldór SigurðssoO
úrsmiður og Pétur Gunnarsson kaup'
maður.
Kaupirðu góðan hlut JmurníngsoHa s Cylínder- «& Lager- og 0xuífeitl Hafnarstræti 0
PA mundu hvar þu fekst hann. erc áreiðanlega ódýrastai og beztar hjá Slgurjöni Simi 137.