Morgunblaðið - 05.12.1918, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 05.12.1918, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ 1 t Það tilkynnist hér með að faðir minn, Stefm Stefánsson, andaðist að heimili síöu, Jörfa í Kolbeinsstaðahreppi, 27. nóv. 1918. Fyrir hönd móður minnnr, barna og tengdabarna. Runólfur Stefáosson, Litlaholti, Reykjavík. Innilegt þakklæti fyrir auðsýnda samúð og hluttekningu við fiáfall og jarðarför Jóhannesar Sveinssonar frá Hvylft. Fyrir hönd móður og systkinr. Biæður hins látna. Jarðaiför okkar elskulega sonar, Gríms sáluga Þórðarsonar frá Hvíta- nesi í Kjós, fer fram laugardagiun 7. des. kl. 2 síðdegis frá Dómkirkj- unni. Þorbjörg Jónsdóttir. Þórður Guðmundsson. Hérmeð tilkynnist vinum og vandamönnum að jarðarför, húsfrú Astu Þ. Th. Bjarnadóttur Blomsterberg, fer fram frá Dómkirkjunni, föstudaginn 6. J>. m. kl. 10 f. hád. Ingibjörg Guðmundsdóttir. Hans Blomsterberg. Jón Bjarnason. Hér með tilkynnist vinum og vandamönnum að jarðarför Sveins Sveinssonar trésmíðameistara, sem andaðist 22. f. m. fer fram laugardag. inn 7. þ. m. Húskveðjan hefst kl. 11 árd. á heimili hans, Bankastræti 14. Hanna og Jón Zoega. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og kærleiksríka hluttekningu við fráfall og jarðarför minnar ástkæru konu, móður okkar, dóttur og systur, Önnu Ktistínar Sigurðardóttur. Jón Helgason og börnin. Sigurður Þorvarðarson. Jón Sigurðsson. Timbur svo sem: gólfborð og óhefluð borð af öllum tegundum og allskonar plankar og tré, fæst hjá Nic. Bjarnason. Bureau Verifas. Hér með tilkynnist að eg hefi vcrið skipaður »Snrvevor« fyrir ■H» Gamlg Bió *mmmm Reiði. Afarspennandi og efnisríkur sjónleikur í 3 þáttum, snildar- lega vel leikinn af hinum ágætu amerisku leikurum hjá World Films Corp., New York. Þvi furðulegri er þessi yfirlýsing, sem læknarnir i raun og veru eru sár-óánægðir með sína venjulegu inflúenzu-Iækning; þess heldur ættu þeir að taka vel nýjum lækninga- aðíerðum, og reyna þær, eða að minsta kosti láta þann lækni óáreitt- an, sem hefir hug og htigkvæmd til nýrra tilrauna. Þórður Sveinsson getur að vísu ekki lagt fram fullgilda sönnun fyr- ir ágæti sinnar aðferðar. En lækn- arnir, sem yfirlýsinguna birta, hafa heldur ekki gögn i hendi til að sanna, að þeirra meðferð á sjúkling um sé betri en lækning Þ. Sv. Til þess mundi þurfa nákvæma »journala« um alt ástand sjúkling- anna, en þá hefir hvorugur málsað- ilja í höndum. Hvor um sig verð- ur þvi i þessu efni að styðjast við sioa persónulegu reynslu og skoðun. Óneitanlega virðist nær að ætla, að Þ. Sv. hafi réttari hugmynd um lækninga-aðferð sína, heldur en þeir læknar, sem aldrei hafa reynt hana. Án þess að eg hafi reynzlu i þessu efni, get eg vel fallist á þá hugsun, sem liggut til grundvallar fyrir meðferð Þ. Sv., að gera tilraun til að skola burtu með svita og þvagi sjúklinganna eiturefnum (toxín- um), sem gerlarnir mynda i líkam- anum; er þetta geit með inngjöf á heitu eða volgu, soðnu vatni. Om langan aldur hafa læknar einmitt notað þessa lækningu við blóðeitr anir; en inflúenzan hagar sér nú í mörgum tilfellum einmitt sem eins konar eitrun; á það bendir gangur sjúkdómsins, og þær tegundir gerla, sem fundist hafa. Þ. Sv. hefir ótrú á þvi, að sjúklingum verði gott af mat, meðan hitinn er i þeim, og þess vegna lætur hann þd lifa á vatn- inu einu. Lífeðlisfræðingar hafa sannað, að mjög litið er um mynd- un meltingarsafa, ef fæðunnar er ekki neytt með lyst; þar af leiðandi eru meiri líkindi fyrir rotnun fæðunnar. Ungbörn með maga- og garnabólgu lifa stundum eingöngu á vatni í vikutíma. Heppi- legt hefði auðvitað verið, ef 1 regl- um þeim, sem birtust í »Tímanum«, hefði verið tiltekið með meiri ná- kvæmni, hve marga daga sjúklingur mætti fá vatnið eingöngu, og sömu- leiðis að brýnt hefði verið fyrir fólki að langvarandi hiti inflúenzu- sjúklinga gæti stafað af öðrum sjúk- dómum, t. d. berklaveiki. En fyrir- mælin munu aðallega hafa verið «tluð sjúklingum fyrstu daga veikinn- ar, áður en næst til læknis. Eg skal leiða hjá mér að leggja Til selu nokkur hundruð pund af T Ó L G Uppl. hjá verzlun Helga Zoéga, AÐALSTRÆTI 10. Stúlka óskast nú þegar til nýárs á Óðinsgötu 8 nokkurn dóm á hvoit lækning Þ. Sv. sé betri en sú lækning, sem hinir læknarnir hafa notað; til þess vantar mig þekking og reynslu, en það skortir lika þá 10 lækna, sem vara við Þórði Sveinssyni. Læknarnir eru seinir á sér; því vöruðu þeir ekki við Þ. Sv. þegar í upphafi? í stað þess lögðu þeir sjúklingana inn í Barnaskólann, undir læknishönd hans. Þeir reyndu ekki að telja honum hughvarf; þeir kröfð- ust þess ekki, að hjúkrunarnefndin skipaði annan lækni, en héldu áfram að leggja svo marga sjúklinga sem unt var að' veita viðtöku inn i Barnaskólann, til þess að þeir gætu notið »skaðlegrar« lækningar Þ. Sv. Lækna greinir iðulega á um með- ferð á sjúklingum. Einn vill nota skurðlækning við sjúkdómi, sem annar vill lækna með meðulum og sérstöku matarræöi. Einn iæknir vill nota geislalækning við sjúkling, sem öðrum virðist réttara að skera upp. Auðvitað eru læknar á ýmsu máli um meðferð sjúklinga og vantar sizt deilur um slikt i læknaritum og á málfundum. En hér er annað og meira á ferð- inni. Læknarnir neita Þ. Sv. um rétt til þess að nota lækningu, sem hann telur heppilega og að engu lejrti kemur i bág við læknislega hugsun. Þeir vara opinberlega við lækningum hans. Hvar á þetta að lenda ? Halda læknarnir að alþýða manna eigi auðvelt með að átta sig, þegar staðhæfing stendur staðhæfing móti. Timenningarnir eru áreiðan- lega ósammála sfn á ’milli um ýmis- legt, viðvikjandi meðferð sjúklinga. Ætla þeir þá lika að vara hvor við öðrum i blöðunum, þegar þeim ber á milli? Eg skil vel, að læknarnir vildu gera það kunnugt, að allur sá mikli fjöldi inflúenzu sjúklinga, sem þeir hafa haft undir hendi hafi verið læknaður með þeirri lækningu, sem þeir telja bezta. Þeir hefðu getað bætt þvi við, að þeir vildu ráðleggja sjúklingum og læknum út um land að fylgja þessari sömu aðferð, en lækningu Þ. Sv. vildu þeir ekki mæla með, vegna þess að þeir hefðu ekki reynt hana. Lengra gátu þeir ekki farið. Þeir hafa engan rétt til þess að stimpla Þórð Sveinsson lækni sem skaðlegan mann innan læknastéttarinnar. Gunnlauqur Claessen. ...... Bureau Veritas í Reykjavik. & Rothe h.f., Tjarnargötu nr. 33. Skrifstofan- er eins og áður hjá Trolle Tfj. Tfjosfrup.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.