Morgunblaðið - 29.12.1918, Page 1
Sumiudag
2J>
des 1918
6. argangr
47.
tðlublað
ht í ol d.i rprer) t'miðja
Afpreiðsi.t*sims ar. S00
R t:«TÍórriarsimi nr. s-’°
Rit tjóri: Vilhjáimur Finsen
HELGI ZOEGA
CO
H
Símnefni: Zoðgaco
Reykjavik
Nýiendugötu 10.
LivorpooL
15 Pitt Street
Ú t v e g a
Koí, Salt, Veiðarfæri, Matvörur og fieira.
Kaupa islenzkar afurðir.
Er1. simfregnir
(Frá fréttaritara Morgunblaðsins)
Gagnbiiting í Bf*rlin
Liebknecht gerður að forseta?
Kaupmannahöfn, 27. des.
Þrátt fyrir það, þótt fregnir frá
Berlín komi mjög seint og séu ó-
áreiðanlegar vegna eftirlits, ber
þeim þó saman um það, að 24. des-
ember hafi Spartaeus-ílokkurinn
gert tilraun til þess að ná keisara-
höllinni, þar sem yfirherstjórn
horgarinnar hafði aðsetur. Foringi
verðliðsins varðist þeim vel fyrst í
stað, en svo hlupu menn. hans und-
an merkjum. Náðu uppreistar-
menn þá hermálaráðuneytinu á sitt
vald og skipuðu nýjan hershöfð-
ingja í Berlín. Fylgdi Liebknecht
þeim að málum og höfðu þeir styrk
rússneskra Bolzhewikka.
Hinn 26. deseinber tilkynti Lieb-
knecht að stjórn þeirra Bberts og
Haase væri steypt.
Síðustu lausafregnir segja, að
lögregluliðið hafi skipað sér undir
merki uppreistarmanna og að
Liebkneeht hafi verið gerður að
forseta Þýzkalands. Hvað sem í
bessu er hæft, þá er þó hitt víst,
Ebert-stjórnin stendur mjög
völtum fótum. Spartacus-flokkinn
æsingamenn og ofstopar og
sníða þeir stefnuskrá sína eftir
fyrirmynd Bolzliewikka.
Utan Berlínar virðist friður í
Þýzkalandi og þrátt fyrir þetta er
samgöngnnum við Danmörk bald-
ið uppi eins og áður.
Frá Sviss kemur sú fregn, að
bandamenn muni styðja að því, að
Hindenburg fari með herliði til
Berlínar til þess að ná borginni úr
höndum uppreistarmanna.
Tyrkland gjaldþrota.
Það er sagt að Tyrkland hafi
gefið sig upp sem gjaldþrota og
jafnframt slitið viðskiftasambandi
við Þýzkaland.
tJr loftinu
London, 27. des.
í dag áttu þeir merkilegan sam-
ræðufund Wilson forseti og stjórn-
málamenn Breta. Forsætisráðherra
og utanríkisráðherra sátu á tali við
Wilson allan fyrri hluta dagsins í
Buckingham höll. Svo var snædd-
ur miðdegisverður heima hjá for-
sætisráðherra og að honum loknum
var ráðstefnunni haldið áfram
þangað til klukkan að ganga fimm.
Múgur og margmenni hylti enn
Wilson forseta, er hann fór frá
Buekingham höll og kom þangað
aftur.
Belgiskir ráðherrar í London.
Forsætisráðherra Belga og ný-
lenduráðherra ern komnir til Lon-
don.
é
Belgakonungur í Dinant.
Hinn 26. desember heimsótti
Belgakonnngur borgina Dinant,
sem varð fyrir einna verstum bú-
sifjum af Þjóðverjum, því að árið
1914 myrtu þeir þar 650 borgara,
þar af 80 konur og 18 börn. Komst
konungur mjög við, er ættingjar
þessara manna voru leiddir fyrir
hann.
Heimsending hermanna.
Síðan vopnahléð hófst og fram
að jólum hafa 5931 brezkir liðs-
foringjar og 105,717 óbreyttir her-
menn verið leystir úr herþjónustu
og auk þess 4235 verkamenn.
Kosningar í Bretlandi.
Úrslit þingkosninganna í Bret-
landi munu verða gerð kunn á
morgun, hinn 28. desember.
Þurfalingar í Englandi.
Hin árlega skýrsla um þurfa-
linga í Englandi og Wales sýnir
það, að þeim hefir fækkað nm
45,026 árið sem leið og 213,800 síð-
an í árslok 1914. Flestir af þeim,
sem enn eru á ómagaskrá, eru fatl-
aðir, annaðkvort líkamlega eða
andlega, eða þá gamalmenni og
börn, sem hið opinbera hlýtur að
sjá fyrir.
London, 28. des.
Wilson.
Það er sagt, að á hinni þýðingar-
miklu ráðstefnu í gær milli Wil-
sons, Lloyd Georges og Balfours
hafi aðallega verið rætt um hin 14
friðarskilyrði forsetans. Honum
var og skýrt nákvæmlega frá frið-
arskilyrðum Breta, er stjórnin
hafði fullsamið fyrir fáum dögum.
Er sagt að þar sé rækilega haldið
fram hinni gömln skoðun Breta á
frelsi hafanna og teknar strangar
ákvarðanir um það, að tryggja al-
þjóðasambandið með alþjóðalög-
gjöf í framtíðinni. Það er opinber-
lega tilkynt, að samræðurnar hafi
verið hinar vinsamlegustu og borið
mikinn árangur.
f gærkvöldi héldu konungshjón-
in Wilson veizlu. í dag ætla for-
setalijónin að skoða borgina og í
kvöld situr forsetinn veizlu hjá
forsætisráðherra og verða þar líka
meðlimir úr alríkisráðinu. Að því
loknu fer Wilson til Carlisle.
Maimtjón Frakka.
Því var lýst yfir í neðri deild
franska þingsins á fimtudaginn,
að fram til nóvember hafi Frakkar
alls mist 42,600 liðsforingja og