Morgunblaðið - 03.01.1919, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ
3
«—Bamla BÍ6
I Maciste
í hernaði
■ Feikna sketntileg mynd í
þáttum
Um leiklist
Sjónleikir eru mjög algeng
skemtun erlendis. Hér á landi eru
þeir óvíða iðkaðir svo nokkru neini.
Leiklistin er gönnrl, fögur og
gagnleg list. Margir menn misskilja
leiklistina. Þeir álíta sjónleiki ein-
ungis ætlaða til aðhláturs í bili.
Og vilja því hafa þá auðuga að
vitlausu gamni. Persónurnar vjlja
þeir ekki liafa mönnum líkar hvað
fas og búninga snertir, helzt tóma
hálfvita eða skrípi. Bn leiklistin
hefir æðra takmark en að skemta
mönnum nokkur augnablik. Hún
sýnir ýmsar sannar myndir af
mannlífinu. Kennir hvað menn
eiga að gera og hvað að varast.
Sjónleikir eru þýðingarmikið
menningartæki og eru taldir að
geta haft ínest áhrif allra bólt-
menta. Leiklistin byrjaði þannig,
að menn hermdu eftir einkennilega
siði, eða framkomu visSra manna,
einkum hlægileg atriði. Var þetta
fyrst mjög ófullkomið, mest ein-
töl. En þegar tímar liðu fullkomn-
uðu menn list þessa svo að hún er
nú ein sú aðdáanlegasta list sem
menn iðka. En leikritin eru ekki
Öll um skemtileg efni og full með
gaman. Fjölda mörg þeirra eru al-
varleg og í þeim lýst átakanlegri
sorg og sýnt hvernig líf manna
mistekst. Þau sýna lífið frá öllum
hliðum. Þau sýna ýmist lífið eins
og það var fyr á tímum, eins og
það er nú, eða eins og það ætti
að vera og gæti verið. Leikritin eru
spegilmynd af mannlífinu. Og
vegna þess að þau hvert um sig
taka að eins einstök atriði eða við-
burði til að sýna, verða þau áhrifa-
meii-i en sögur. Skáldin vefja öll
ógagnsærri slæðn yfir menu og
málefni í leikritunum, svo menn
þekkja ekki sjálfa sig- eða pei'són-
ur þær, sem leikurinn sýnir, en
skilja þó, livernig rétt er að koma
fram undir þeim kringumstæðum,
sem pei'sónurnar komast í. Þetta er
gert til þess að ganga ekki of nærri
einstaklingunum. — Oss íslendinga
vantar fleiri handhæg leikrit, lesin
út úr íslenzku þjóðlífi. Og vér eig-
um að iðka þessa list meira en vér
höfum gert. Eg veit að skilyrði til
þess eru sumstaðar ekki góð. En
það er þó aðallega viljinn, sem
vantar. Það kostar auðvitað all-
mikla fyrirhöfn að leika, og menu
sem geta leikið nenna margir ekki
hð eyða tíma til þess. Það er líka
‘dgengt að menn hér á landi fái
óhróður fyrir að beita sér fyrir að
koma upp leikjum eða öðrum
skemtunum. Það er sagt, að það sé
alt gert í gróðaskyni, þó að það
beri sig ekki. Og merkilegt má það
heita, live vel lítt æfðum og óæfð-
um mönnum tekst að leika lier á
landi, þá sjaldan að leikið er. Það
sýnir, hve mikið listamannsblóð er
í sumum og ættgengt liér. En deyfð-
in og virðingarleysið á listunum
er alt of mikið og alment. Hér er
engin list í heiðri höfð, nema sú
sem getur gefið peninga strax og'
„borgar sig'“. Og hér er enginn
markaður fyrir listir og' listamenn.
Listirnar eru í kaldakoli. Mér er
ekki kunnugt um ,að nokkur ís-
lendingur, karl eða kona, hafi gert
leiklist að æfistarfi sínu. En fjöldi
manna lifir erlendis eingöngu á því
að leika. Og sumir beztu leikarar
heimsins hafa undanfarin ár haft
1—2 miljónir króna í árslaun
(Chaplin, Psilander o. fl.) , og
margir svo tugum þúsunda skiftir.
Það virðist því vel ómaksins vert
að verða góður leikari. Leikhúsin
keppast við að fá þá beztu. Og'
mikils þarf með. Tökum t. d. Kaup-
mannahöfn. Þar er leikið á hverju
kvöldi í 10—12 leikhúsum frá því í
september þangað til í maí, júní
eða júlí. I öllum stórborgum og'
stærri bæjum hins mentaða heims
eru mörg' leikhús og skemtistofn-
anir. lírvals leikarar fara oft land
tir landi og leika meiri háttar hlut-
vei'k í góðum leikjum og fá fé fyr-
ir. Leikhúsin æfinlega full þegar
frægir leikarar leika. Er líf þeirra
mjög glæsilegt, er mikilli leikfrægð
ná. Skáldkonungur Norðmanna,
Björnstjerne Björnson, sagði um
Jóhönnu Dybvad, fræga leikkonu
norska, að hún væri leikkona af
guðs náð. Mér finst það sama mega
segja um vora fáu landfrægu leik-
ara. Því að tæki eru hér léleg og
leiklistinni svo lítill sómi sýndur,
að einungis úrvals-hæfileikar njóta
sín verulega. En sú aðferð, að láta
menn ganga sjálfala í heimi list-
anna og rétta engum hjálparhönd
fyr en hann getur sannað ágæti
sitt, er varhugavert. Með því lagi
er hætt við að fáir komist áfram
af þeim, sem það gætu, ef öðruvísi
væri fyrir séð. Vér þurfum að fá
gott þjóðleikhús í Reykjavík. Ilér
eru til góðir leikarar og má útvega
og æfa fleiri. Svo eiga þeir að
kenna einstaka leikurum eða leik-
araefnum utan af landi, sem svo út-
breiða þekkingu á leiklistinni og
vinna fyrir það málefni. Þeir menn
og konur verða að fá styrk. Og
hann þarf ekki meiri en það, að
oss drégur hann ekki. Og mun
margborga sig, ef að er gætt. Vér
getum ekki sóma vors vegna haft
listirnar eins mikið út undan t-ftir-
leiðis, þar sem alt er á framfara-
leið og þjóðarmetnaðurinn og sjálf-
st.eðið er aukið. — Alþýða manna
hér á landi hefir áreiðanlega gam-
an af sjónleikjum, og eg þykist
viss uin, að hún mundi fljótlega
kunna að meta gildi þeirra og' hlú
H. f > imskipMfélag- íslands.
Aðalfundur.
Aðalfundur Hlutsféiagsins Eimskipafélag íslands verður haldinn í
Iðnaðarmannahúsinu í Reykjavik, laugardaginn 28. júni 1919, og hefst
kl 1 eftir hádegi.
agskrá:
1. Stjórn félagsins skyrir frá hag þess'og framkvæmdum á liðnu starfs-
ári, og frá starfstilhöguninni á yfirstandandi ári og ástæðum fyrir
henni, og 'leggur fram til úrskurðar endurskoðaða rekstursreikninga
til 31. dtsember 1918 og efnahagsreikning með athugasemdum
endurskoðenda, svörum stjórnarinnar og tiliögum til úrskurðar frá
endurskoðendum.
2. Tekin ákvörðun um tillögur stjórnarinnar um skiftingu ársarðsins.
'3-S LLTillögar um lagabreytingar.
4. Kosning 4 manna i stjórn félagsins i stað þeirra, sem úr ganga sam-
kvæmt félagslögunum;
5. Kosinn endurskoðandi í stað þess er frá fer, og einn varaendurskoðandi.
6. Umræður og atkvæðagreiðsla um frumvarp til reglugerðar fyrir eft-
irlaunrsjóð h.f. Eimskipafélags íslands.
7. Umræður og atkvæðagreiðsla um önnur má), sem upp kunna að
verð borÍD.
Þeir einir geta sótt fundinn, sem hafa aðgöngumiða. Aðgöngumið-
ar að fundinum veiða afhentir hluthöfum og umboðsmönnum hluthafa
á skrifstofu félagsins í Reykjavik eða öðrnm stað, sem auglýstur verður
síðar, dagana 24.—26. júni, að báðum dögum meðtöldum. Menn geta.
fengiðj eyðublöð til að fyrir umboð sækja fundinn hjá hlutafjárösfnurunum um
altland og afgreiðslumönnum félagsics, svo og á aðalskrifstofu félagsins
Reykjavik.
Reykjavík* 30. desember 1918.
EStjórn h.f. Eimskipafélags Islands.
5 króna
seðill fundinn á gangstétt i bænuro.
Vitjist á Laugaveg 43.
Tlqmjólk
fæst allan daginn i bakarii Sveins
Hjartarsonar.
^ íJunéió §§
Svört svunta fnndin á nýársdag.
Vitjist til Ól. Jónssonar lögregluþjóns.
að þeim, þegar farið væri að sýna
þeim þann sóma, að leika alment
og vanda sýningarnar.
Jóh. Sch. Jóh.
£aiga
Einhleyp stúlka óskar eftir her-
bergi til leigu. A. v. á.
cTCsrfíergi ésfiasí
vel búið með húsgögnum, skrif-
horði og helzt síma til afnota, —
til 2—3 mánaða. — Tilboð, merkt
„Herbergi“, leggist. inn á af-
greiðslu Morgunblaðsins.
Kartöflur
og Laukur
fæst hjá
01.s Amundasyni.
Laugaveg 22 A. Simi 14^