Morgunblaðið - 18.05.1919, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 18.05.1919, Blaðsíða 1
Sunnudag 18 maí 1919 ■0R6DNBLABID 6. árgangut 184 tölublað liitstjórnarsími nr. 500 Ritstjóri: Vilhjálmur Finsen || ísafoldarprentsmiðja Afgreiðslusími nr. 500 Páfl Isóffsson endurtekur kirkjuhljómleik sinn — breytt program — í Dóm- kirkjunni kvöld (19. þ. m.) kl. 9. / síðasfa sinn. Aðgöngumiðar verða seldir í dag í Goodtemplarahúsinu frá kl. 2—9 og kosta 3 kr. NB. Við inngangin verða hvorki seldir aðgöngumiðar né prógröm. Leikfélag Reykjavikur. Æfintýri á gönguför verður leikið sunnudag 18. maí kl_8 síðd. í Iðnó. Aðgöngum. seldir í dag frá kl. 10—12 og eftir 2. Iunilegt þakklæti fyrir auðsýnda hluttekningu við fráfall og jarðaiför tengdamóður og móður okkar, húsfrá Guðrúnar fasons- dóttur frá Hnausum, Ólafía Lirusdóttir. Bjöin Magnússoa Engey. Fisktorg Fisktorgið vestan við geymsluhús Eimskipafélagsins *er nú hráðum horfið úr sögunni. Verða fisksal- arnir að hröklast þaðan í burtu vegna húsbyggingar félagsins. Bæj- arstjórn mun hafa ákveðið þeim annan samastað, austur á hafnar- bakkanum, svo að cigi verður bær- inn fisktorgslaus, enda væri það al- veg ófært. Fisktorg þarf hér að vera, þar sem bæjarbúar geta verið vissir um að fá keyptan fisk, ef hanri er til á amiað borð. En 1)6 þarf að verða breyting á því, frá því sem vcrið hefir. Gamla fisktorgið var ófær sölu- staður, þótt við það hafi verið not- ast all-lengi. Verður því nú, er nýtt fisksölutorg verður gert, að bæta úr þeim annmörkum, er voru á því gamla. Fyrst og fremst þarf torgið að vera steinsteypt, þar þarf að vera nóg vatn og gott afrensli. Verður heppilegast, þegar torgið er flutt austur, að hafa afrensli frá því í lækinn. Hitt verður of kostn- aðarsamt, að hafa afrenslið fram í sjó, því að þegar farið verður að fylla þar upp, lengist afrenslisræsið að mjklum mun. Og svo þarf að vera þak yfir torginu og þannig frá því gengið, að setja megi við það hliðar og gafla, þegar kólna tekur í veðri og gera þar úr skála. Er það ófært, að fiskverslunin skuli þurfa að fara fram undir berum hinnii, hvernig sem veður er, eins og verið hefir. Ennfremuí þarf að leggja þangað síma, svo að bæjar- menn þurfi ekki annað en hringja þangað til þess að vita hvort fiskur fyriir nokkrar stúlkur, um lengri eða skemmri tíma, hjá Sigriði Porsteinsdöttur, Nýlendugötu 11. er fáanlegur. Mundi það spara mörgum hlaup og mikið ómak. Menn munu líú segja að það sé afar auðvelt að halda því fram, að þannig þurfi fisktörgið að vera, en aldrei komi fisksalarnir því í fram- kvæmd. Þar til er því að svara, að fisksalarnir eiga ekki að leggja 1 þennan kostnað. Það á bærinn sjálfnr að gera. Hann á að koma upp fisktorgi, er sé viðunandi, og leigja síðan fisksölunum afnotarétt þess og taka fyrir það gjald, sem hæfilegt er. Það er ölltun fyrir beztu. Svo getur lögreglustjóri bannað, að fiskur sé seldur ann- ars staðar í bænum, til þess að tryggja fisksölunúm það, að órétt- iát samkepni spiiii eigi markaði þeirra. Það er vonandi, að bæjarstjórn taki þetta til athugunar og eftir- breytni hið allra fyrsta. Guðm. Jónsson. Samskotin. Síra Bjarni Jónsson hef- ir tekið á móti þessum gjöfum til Sig- ríðar Elíasdóttur: Ónefnd kona 5.00, Ónefnd kona 5.00, Þ. Á. B. 12.00, N. N. 50.00, Z. 50.00, Lovísa Féldsteð 100.00, N. N. 5.00, Sh. Bj. 15.00. — Samtals kr. 242.00. Jóhannes Jósefsson Hann kom lieim aftur í fvrra- kvöld vcstan frá Ameríku, eftir langa dvöl erlendis. í árslok 1908 lagði hann út í heiminn, á braut sem enginn íslendingur hefir fetað á undan lionum. Hann ætlaði að gera það að starfi sínu, að sýna íþróttir í öðrum löndum, og það sem meira var: íslenzka íþrótt. Menn spáðu góðu og illu fyrir honurn. Þett^ var svo nýtt í augum ísleudinga, að menn héldu, að það yrði ókleift í framkvæmdinni , þó að allir vissu um atorkuJóhannesar. og frækni. En einn var það, sem ekki var í neinum efa, og ])að var. Jóhannes sjálfur. Hann hefir aldrei verið hikandi í rásinni og ]>að hefir komið honum að góðu haldi, ekki síður en kraftar hans og fimi. JÓhannes byrjar sýningar sínar á enskum Icikhúsum og voru þá þegar með lionum nokkrir ungir Islejidingar, eins og' ætíð síðan. Sýndi hann sjálfsvörn þá, cr hann hafði luiið til á grundvelli íslenzku glímUnnar, varnarbrögð v,ið óvæntum árásum. Sýningar lians vöktu þegar í stað mikla at- hygli og ensku blöðin fluttu mjög ítarlegar frásagnir af þeim, m. a. voru þrír dálkar í heimsblaðinu „Times“ helgaðir glímu Jóhannes- ar, og má það lieita einsdæmi að slík blöð geti svo ítarlega um í- þróttasýningar f jölleikahúsanna. Næstu árin fór hann víðsvegar um Evrópu, en snemma á árinu 1913 fer hann vestur um haf og síðan hefir hann verið í Ameríku. Morgunblaðið náði tali af Jó- ‘ hannesi í gær og leitaði frétia hjá víðförlasta íslendingnum í heimin- um. Máske dettur einhverjum í hug, að hann sé orðinn fullorðins- legur í iitliti, með djúpar rákir í andlitinu og ef til vill gullspanga- gleraugu, ummyndaður af Ame- ríkuloftinu, eins og sumir landar verða fljótt. En það, er Öðru nær. Þótt liðið sé hálft ellefta ár síðan Jóhannes fór að heiman, þá hefir liann bókstaflega ekkert elzt. Það er elcki hægt að biðja Jó- hannes um að segja ferðasögu sína, því hún mundi fylla 100 Morgun- blöð. Þessi 10 ára fjarvera hans hefir í raun og' veru verið ein stór langferð, úr einum stað í annan. Þau hjónin þekkja Helsingfors og Lissabon* betur en flestir Reykvík- ingar Hafnarfjörð og Keflavík. \\ ien, Krakau, Berlín, Petrograd, París, London, Stokkhólmur og New York — alt eru þetta gamlir samastaðir. y ér komumst að ]>eirri niður- staðu, að það sé langtum hyggilegra að spyrja Jóhannes hvar hann hafi e k k i komið, heldur en um hitt, livar hann hafi komið. — Yið höfum aldrei verið á Bal- kanskaga. En í öðrum ríkjum Ev- rópu höfum við verið, held eg. Einna lengst í Rússlandi; þangað ýórum við 8 ferðir. Á sumrin voruin við með ýmsum eirkusum, Cinicelli, Buseh o. fl. — 1 ið fórum frá Frakklandi til Ameríku í marz 1913. Eg var ráð- inn þar til tveggja ára hjá cirkus- firmanu Barnums & Bailey, en síð- ustu 4 suiiiurin hefi eg verið hjá Ringling Bros. Þessi tvö firmu eru

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.