Morgunblaðið - 06.07.1919, Síða 4
4
HOXtUWBLJLÐI*
C E M E N T. m
Framhald af .l. síðu.
lieynivöllum, séra Einar Thorlacius
í Saurbæ, séra Einar í Reykholti,
*éra Eiríkur Albertsson á Hesti,
péra Asgeir í Stykkishólmi, séra
Tryggvi H. Kvaran á Mælifelli, og
í>éra Björn í Laufási; ennfremur há-
skólakennararnir: séra Sig. P. Si-
vertsen og séra Magnús Jónsson og
séra Friðrik Friðriksson; uppgjafa-
prestarnir séra Skúli próf. Skúla-
*on, séra Sigurður próf. Gunnars-
son, séra Jón O. Magnússon frá
Bjarnarhöfn, séra Jóh. L. L. Jó-
hannesson og kandídat Signrbj. A.
tiíslason. Þá sóttu og fundina tveir
prestar frá Danmörku : Arne Möller
og Haukur Gíslason og nutu fulls
málfrelsis, kandídatarnir Lárus
Arnórsson, Sig. O. Lárusson og
Sveinn Sigurðsson og guðfræðis-
nemendurnir: Arni Sigurðsson,
Björn Oddsson, Hálfdán Helgason,
Halldór Kolbeinsson, Magnús Guð-
mundsson og Stanley Guðmunds-
son. Sóttu prestastefnuna' þannig
alls 40 prestvígðir menn auk bisk-
ups og mun hún því hafa verið ein
liin fjölsóttasta þrestastefna, sem
hþr hefir verið haldin.
• Fundarskrifarar voru þeir séra
Friðrjk J. Rafnar frá Utskálum og
séra Sig. Sigurðsson frá Hlíð.
Kl. 2 síðd. setti hiskup fundiun í
fundarsal K. F. U. M. með stuttu á-
varpi til fundarmanna. Gaf því
uæst yfirlit yfir helztu viðburði árs-
ins og mintist látinna presta, séra
Péturs Þorsteinssonar í Eydölum
og uppgjafaprestanna séra Jakobs
Björnssonar í Saurbæ og séra Lár-
usar S. Halldórssonar á Breiðabóls-
stað, svo og séra Jónasar kennara
Jónassonar, og ]>riggja prestsekkna
frú Elinborgar Friðriksdóttur, frú
Guðrúnar S. Thorsteinsdóttur og
frú Sigríðar Ó. Thordersen, eu
séra Haukur Gíslason frá Khöfn
flutti kveðju frá hinni dansk-ísl.
kirkjunefnd og skýrði frá starfi
sínu meðal landa vorra í Khöfn.
Kl. 5 síðd. var aftur settur fund-
ur. Fór þá fram hin venjulega út-
hlutun styrktarfjár til uppgjafa-
presta og prestaekkna (komu alls
6390.00 kr. til úthlutunar). Skýrði
okknasjóðs (eign hans í árslok var
hiskup að því loknu frá hag Prests-
kr. 35964.11) og gjöfum til hans á
liðnu ári (alls kr. 410.03), jafn-
framt því sem hann hvatti presta
til að minnast hans með ríflegum
tillögum eftirleiðis. Enn fremur
skýrði hann frá samskotum til
Hallgrímskirkjunnar. Með því, sem
afhent var á prestastefnunni sjálfri,
höfðu alls gefist kr. 3757.15 (aðal-
lega úr 6 prófaátsdæmum).
Þá flutti sr. Gísli Skúlason er-
indi um launakjör presta og benti
á gallana, er væru á prestslauna-
lögunum frá 1907, svo algerlega úr-
elt sem þau væru nú orðin, sér-
staklega þar sem allar lífsnauð-
synjar hefðu hækkað svo gífurlega
í verði. Eftir nokkrar umræður Var
nefnd kosin til að konia fram með
tillögur í máli þessu, og hlutu kosn-
ingu þeir séra Gísli Skiilason og
prófastarnir Eggert Pálsson og
Guðm. Einarsson.
Kl. 8Y2 flutti sr. Friðrik Frið-
riksson fyrirlestur í Dómkirkj-
unni: „Hin fullkomna hugsjón lífs-
ins“.
Föstudag kl. 9 árd. hófst fundur
að nýju með stuttri bænagerð.
Biskup lagði fram skýrslu um
messugjörðir og altarisgöngur á
liðnu ári. Höfðu messur orðið
nokkru frerri eu árið áður vegna
hins mikla frostakafla á öndyerðu
ári og spönsku veikinnar um haust-
ið. Aftur hafði tala altarisgesta
aukist nokkuð frá' árinu áður.
Þá skýrði biskup frá hreyfing
þeirri, sem vakist hefði til efling-
ar og samviunu og samúðar með
þjóðkirkjum Norðurlanda og frá
kveðjusendingum, sem farið hefði
milli Norðurlandakirknanna og
liinnar íslenzku. Gat hann þar á-
formaðrar sendingar sendinefnd-
ar frá Svíþjóð til að flytja íslenzku
kirkjiuini heillaóskir sænsku syst-
urkirkjunnar í tilefni af fullvéldi
íslands, sem þó hefði orðið að fresta
til næsta sumars (1920) og las upp
afar hlýlegt ávarp til íslenzku
jkirkjunnar frá erkibiskupi Svía.
En sérstaklega skýrði hann frá
hinni dönsku nefndarsetningu til
eflingar samvinnu og frekari við-
kynningú með donsku og íslenzku
kirkjunni. Gerði biskup grein þess
starfs, sem sú nefnd hefði int af
hendí, sérstaklega þó aðalforgöngu-
maður þess, séra Þórðirr Tómassou
í Horsens, og las upp fagurt kvæði
eftir hann til íslenzku kirkjunnar.
Þá flutti séra Arne Möller rælti-
legt erindi, er hneig að samá efni,
jafnframt því sem hann sérstaklega
gerði grein fyrir starfsemi Dansk-
íslenzka félagsins og tilgangi þess:
að efla lifandi samúðarband með
Islendíngum og Dönum,- \'ar ræðu-
manni þakkað hið skðrulega og
einkarhlýlega erindi hans og spunn-
ust út af því fjörugar uuiræður,
sem þó einkum hnigu að fram-
kvæmanleik hinnar kirkjulegu sam-
bands-hugsjónar. Voru allir á eitt
sáttir um hve gagnlegt það gæti
orðið íslenzkri kristni, ef takast
mætti að koma hinni fögru hug-
sjón í framkvæmd, en drógu hins
vegar ekki dul J\ erfiðleika þá, er
hér væri við að stríða. Sérstaklega
var til nefndur efnaskortur ís-
lenzkra presta. Þar gaf einkanlega
séra Brynjólfur Magnússon úr
Grindavík átakanlega lýsingu á
])eirri efnalegu kreppu, sem ýmsir
íslenakir prestar ættu við að stríða
og sýndi fram á hversu hún yrði
til að drepa allar göfugar hugsjón-
ir margra þeirra jafnskjótt og
kæmi út í prestskapinn og — bar-
áttuna fyrir fátæklegri tilveru
]»eirra.
Að endingu var sam]»j?kt að
senda séra Þórði Tómasson í Hor-
sens svohljóðandi skeyti:
„Hin íslenzlca prestastefna,
samankomin í Reykjavík, seiulir
yður og um yðar hendur hinni
dansk-íslenzkn kirkjunefnd inni-
lega kveðju og alúðarþökk fyrir
starf yðar og nefndarinnar til
eflingar samvinnu og samúðar-
þels með hinni dönsku og ís-
lenzku kirkju. Guð láti það starf
bera góðan árangur.“
Kl. 414 síðdegis var fundur sett-
ur að jiýju og var þá til umræðu
endanleg stofnun hins íslenzka
prestafélags. Var ieftir allmiklar
umræður samþykt með fáum breyt-
ingum frumvarp það til laga fyrir
telagið, sem bráðabirgðastjórnin
hafði samið og sent út um land á
næstliðnum vetri, því næst gerð
grein fyrir störfum félagsins, lagð-
ir fram reikningar þess fvrir liðið
ár, og.síðan kosin stjórn þess. Hlutu
kosningu þeir:
præp. hon. sr. Skúli Skúlason,
docent Magnús Jónsson,
prófastur Arni Björnsson,
prófessor SigurðurP.Sivertsen og
annar prestur við dómk.sr.Bjarni
Jónsson.
Endurskoðunarmenn voru kosnir
þeir sr. Friðrik Jónasson Rafnar og
præp. hon. sr. Sig. Gunnarsson.
Kl. 8% flutti prófessor Sig. P. Si-
vertsen erindi í dómkirkjunni um
i annsókn trúarlífsins.
Laugardagsmorgun kL 9 var aft-
ur settur fundur að aflokinni
stuttri bænargerð. Flutti þá biskup
erindi: F y 11 i n g g u ð 1 e g r a r
opinberunar. Því næst talaði
sr. Bjarni Jónsson um helgi-
dagavinnu og v e r k a l ý ð-
i n n, með hliðsjón á bréfi, sem hón-
um hafði borist um það efni frá.
einum verkamanni hér í bæ. Eftir
allmiklar umræður var samþykt
svohljóðandi tillaga u
„Prestastefnan lýsir gleði sinni
yfir því, að áhugi er vaknaður
hjá verkamönnum fyrir því, að
helgidagarnir séu betur friðaðir
en nú er raun á og telur kirkjan
sér ljúft að styðja að ]>essu máli
með* verkalýðnum og kýs í því
skyni þrjá fulltrúa til að ræða
mál þetta við hann.“
Til fulltrúa voru kosnir þeir dr.
Jón Ilelgason biskup, sr. Bjarni
Jónsson og sr. Fr. Friðriksson.
Loks flutti prófastur Guðm. Ein-
arsson sem málshefjandi tölu um
s t o f n u n barnauppeldis-
li e i m i 1 a. Eftir nokkrar umræð-
ur samþykti prestastefnan svo-
/hljóðandi tillögu:
„Prestastéfnan telur mjög
nauðsynlegt, að komið sé hið'
bráðasta á fót barnauppeldis-
heimilum fyrir kaupstaði og sjáv-
arþorp og leyfir sér því að lieið-
ast þess, að hið háa alþingi veiti
á næstu fjárlögum hæfilegan
styrk karli eða lconu, ér fari ut-
an til þess að kýnna sér slík upp-
eldishæli á Norðurlöndum og
komi síðan fram með tillögur
um, hvernig þeim skuli hagað hér
lijá oss.“
Kl. 4^/2 var settur síðasti fundur
prestastefnunnar að þessu sinni.
Aðal-umræðuefni fundarins voru
launakjör presta. Nefnd sú, er kos-
in hafði verið til að athuga það
mál, kom fram með álit sitt og bar
upp. nokkrar breytingartillögur við
fæst 1 flestnm Yerslunnm.
launafrumvarp stjórnarinnar, ogr
voru ]iær allar samþyktar.
Síðan mintist biskup á 200 ára
dánarminning Jóns biskups Yída—
líns á næsta ári og mæltist til þess
að prestar gengjust fýrir samskot-
um í söfnuðum sínum til þess að
heiðra minningu hans og reisa hon-
um minningarstyttu við dómkirkj-
ima. Var þeirri málaleitun mjög
vel tekið.
Enn fremur óskaði biskup með-
mæla prestastefnunnar með fram-
kominni beiðni til alþingis frá
Hólssöfnuði í Bolungarvík um að
gera Bolungarvík að sérstöku'
prestakalli. Samþyktu fundarmenn
að mælt yrði sem bezt með því.
Að lolcum talaði biskup nokkur
kveðjuorð til fundarmanna, þakk-
aði þeim fyrir góða fundarsókn og
óskaði þeim góðrar lieimkomu. Var '
]>á flutt bæn og sálmur sunginn og
því næst fundi slitið.
/
O A G B O K
Alþingi. Fundur í sameinuðu þingr
hefst kl. í) í fyrramálið. Verða lfklega
margir fundir í deildunum þann dag.
Fiskiþing stendur ýfir hér í hamuin
þessa dagaua. Eru inættir margir full-
trúar utan af landi.
,,Two Gabies Gigareltur“
ciu ounai ni ur breinu Virginia looaKi, cuuk i «tnaldi ouuui, sem pær pekkja. Keynió pxr«.
Fást hjá LEVjí og víðnr.