Morgunblaðið - 05.08.1919, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ
I Vatnaskógi.
Það voru ekki margir trúaðir á
það, að verzlunarmannafélagið
Merkúr mundi fá gott veður í skóg-
arförinni 2. ágúst — og líklega
hefir enginn treyst því nema fé-
lagið sjálft. Og von þess verð sér
ekki til skammar.
í glaða sólskini lagði flotinn á
stað út úr Reykjavíkurhöfn.
„Skjöldur“ fyrstur, þá „Úlfur“,
þá „Skaftfellingur“. Úti fyrir
var vaggandi kvika og var því lík-
ast sem maður sæti í ruggustól.
Skipin veltu sér mjúklega og var
sem þau stigu hægan vikivaka eftir
hljóðfalli hornanna, er þeytt voru
á stjórnpalli „Skjaldar“. Léttur
blær lék um vanga manna og svefn-
stúrin augu þeirra, sem morgun-
svæfir eru, urðu tendruð af lífs-
gleði.
Það er ekki langt upp í Vatna-
skóg. Miklu skemra en flestir
hyggja ,er þangað hafa aldrei kom-
ið. Meginþorri Reykvíkinga hefir
ekki hugmynd um það hvílík nátt-
úrufegurð er til skamt frá höfuð-
borginni, þar sem er Hvalfjörður
og Vatnaskógur. „Fátt hef eg prúð-
ara litið“ kveður Þorsteinn Er-
lingson um Hvalfjörð. Og undir
það geta víst allir tekið, þeir er
fjörðinn hafa séð. og VatOaskóg og
Svínadalur! Hvar er fegurri sveit?
f strjálfylkingu gekk ferðafólk-
ið yfir hálsinn milli Hvalfjarðar-
strandar og Svínadals. Hinum meg-
in við þann háls er Vatnaskógur.
En aumingja Reykvíkingarnir, sem
sjaldan eða aldrei hafa séð annað
en melana umhverfis höfuðstaðinn
og hina uppblásnu og holdsveiku
Mosfellssveit, urðu svo hrifnir er
þeir hittu fyrir fyrsta skógarkjarr-
ið, að þeir fóru ekki lengra. Þeim
fanst þeir hafa himin höndum tek-
ið, er þeir gátu setið undir laufg-
uðu kjarri og andað að sér skógar-
ilminum. Fæstir sáu Vatnaskóg í
allri dýrð sinni. Það var ekki nema
einstaka maður sem hætti sér svo
langt. Þetta minnir mann á söguna
um Garða-Óla og Garða-Stínu, sem
voru ánægð er þau höfðu heyrt
eina sögu og vildu ekki heyra
fleiri. Reykvíkingar voru ánægðir
er þeir komust í kjarrið. Skóginn
kærðu þeir sig ekki um að sjá. Þeir
héldu að þeir væru komnir í skóg.
Frá rjóðri nokkru í skóginum
berast dillandi hljómbylgjur yfir
allan skóginn. Þar þeytir „Harpa“
hornin, en á regnvota grasinu stíg-
ur æskulýðurinn fjörugan dans.
Um allan skóginn bergmálar hlát-
ur og raddkliður, þrunginn lífs-
gleði. En golan þýtur í laufinu og
það er eins og kræklóttar hríslurn-
ar séu að hvíslast á, ósköp hljótt,
og spyrja hver aðra hvað sé, á seyði
— hvort heimurinn sé að farast
Þrestir fljúga hræddir og hissa
grein af grein, velta vöngum og
eru svo fotviða á öllum þessum
gauragangi höfuðborgarlýðsins, að
þeir«hafa mist söngröddina. En um
þétta runnana dansa ljóslitir blóm-
álfar, fullir af keskni og hrekkj-
um, eins og sjálfur Amor. Og hver
veit nema þeir hafi sumir hverjir
lagt ör á streng og hæft hjörtu
sveina og svanna. Hver veit?
Það líður að kvöldi. Enginn hef-
ir tekið eftir því, að dagurinn hefir
þrammað sinn venjulega seina
gang út í hafsauga. Menn finna það
fyrst er þeir eiga að hverfa heim
aftur, hvað þetta hefir verið óum-
ræðilega stutt stund. Hún hefir
þotið hjá eins og elding. En það eru
allir einum gleðidegi auðgari eftir
en áður.
Það er eftirtektarvert, að í þess-
ari för voru flestir hinir sömu, sem
voru í Vatnaskógsförinni í fyrra.
Hvers vegna? Jú, það sýnir að eins
að þeir sem einu sinni hafa farið
þangað upp eftir vilja fara þangað
aftur. En hví eru þá eigi farnar
fleiri slíkar ferðir á hverju sumri?
Það verður ef til vill gert er „Eim-
skipafélag Suðurlands“ fer að
halda uppi samgöngum hér um fló-
ann. Það ætti að senda skip á hverj-
um sumar sunnudegi upp í Hval-
fjörð. Nógir munu fást farþegar.
Órækja.
-----o---
Alþingi.
Pingfundir í gær.
Neðri deild:
Fyrsta mál á dagskrá af 15, sem
þar voru, var frv. um um breyting-
ar á 1. gr. tolllaganna. Frv. hafði
orðið fyrir breytingum í e. d. og var
til einnar umræðu. Einar Árnason
hafði orðið fyrir fjárhagsnefnd og
talaði með frumvarpinu í þeirri
mynd, sem það kom í frá Efri deild
Björn Stefánsson talaði á móti
hækkun tóbakstollsins, en ^ildi
leggja 40 aura toll á fíkjur döðlur
og ávexti. Hafði breytingartillaga
hans verið nokkuð á annan veg en
kom fram í þessari mynd á fundin-
■um. Sá hafði orðið endir „koges“-
málsins í Efri deild að 2 kr. tollur-
var settur á hvern lítra. Jón Magn-
ússon, Gísli Sveinson og Jörund-
ur töluðu á móti tollinum og kváðu
hann koma hart niður á efna litlu
fólki. Gísli kvaðst koma fram með
br.til. um afnám tolls á suðuspritti
og lækkun á ilmvötnum úr 4 kr.
niður í tvær. Framsögumaður taldi
mjög varhugavert að gera breyt-
ingar á frv., kvað það geta orðið
til þess að E. d. sálgaði frv. Gísli
Sveinsson andmælti því að Efri
deild væru gerðar slíkar getsakir.
Magnús Pétursson hélt fram suðu-
sprittstollinum, kvað ranglátt að
tolla þaun óinengaða en láta hinn
vera tollfrjálsan. Fann hann að því
að menn væru að koma fram með
tillögur í málum fram á síðustu
stundu. Hefðh nú þingfundir eigi
verið haldnir í tvo daga, svo vor-
kunnarlaust hefði mátt vera að
koma fram með tillögur. Matthías
andmælti því að slóðaskap væri til
að dreifa. Manaði hann Efri deild
til að fella frumvarpið ef því væri
vísað aftur og gerðist mælskur. Sig.
Eggerz réð mjög frá að gera nokkr-
ar breytingar á frumvarpinu.
Bjarni frá Vogi kvað það á allra
vitorði að suðuspritt væri nær ein-
göngu notað til drykkjar. Primus-
arnir fengju ekkert nema steinolíu,
væru hafðir með í ferðinni og kend-
ir allir klækirnir. Gísli Sveinsson
talaði aftur, aðallega um að ástæð-
urnar til að afbrigði væru veitt.
Enn talaði Magnús Pétursson og
andmælti því að prímusar fengju
stærri skamta af suðuspitti, en
menn af ómenguðu spritti í lyfjum
nfl. eina matskeið þrisvar á dag.
Enn töluðu ýmsir menn um prím-
usa, þingsköp og „koges“. Voru alls
haldnar 20 ræður um þetta merka
mál og þar við bættist athugasemd
frá fjármálaráðherra að alt þetta
suðusprittsstand væri leikur. Þetta
var það viturlegasta sem sagt var
í málinu. — Tillaga kom fram um
að taka málið út af dagskrá en var
feld og eigi náðist atkvæðamagn
til að leyfa afbrigði frá þingsköp-
um svo að tillaga Gísla um tollfrelsi
söðuvökvans gæti komið undir at-
ívæði. Tillaga Björns Stefánsson-
ar var feld með miklum meiri hluta
atkvæða og frv. samþ. óbreytt eins
og efri deild hafði gegnið frá því,
með 13 samhljóða atkvæðum.
Um önnur mál urðu litlar um-
ræður. Frv um gjald af innlendri
vindlager,ð o. fl. fór til E. d. og
sömuleiðis þingsál.till. um atvinnu-
löggjöf. Frv. um landamerki, breyt-
ing á lögum um lögreglusamþykt-
ir, stækkun verzlunarlóðar á Sauð-
árkróki, löggilding verzlunarlóðar
í Grunnavík gengu til 3. umræðu
möglunar og mótþróalaust. — Um
sölu prestsetursins Hvanneyri til
Siglufjarðar kaupstaðar urðu
nokkrar umræður. Vildi Einar Arn-
órsson láta vísa málinu til stjórn
arinnar en það var felt með 13 :6,
og málinu hleypt til annarar um-
ræðu og allsherjarnefndar. — Frv.
um breyting á bifreiðarlögunum
sem komið er frá efri deild var vís-
að til 2. umr. með 17 samhljóða at-
kvæðum.
Sex mál voru tekin út af dagskrá
Dagskrár i dag.
í neðri deild:
1. Frv. til fjáraukalaga 1918 og
1919; 3. umr.
2. Frv. um skoðun á síld; 3. umr.
3. Tillaga til þingál. um mat á
•fóðurbæti; hvernig ræða skuli.
4. Forsætisráðherra svarar fyrir-
spurn til landsstjórnarinnar um
rekstur sýslumannsembættisins í
Árnessýslu.
5. Frv. um breyting á lögum um
aðflutningsbann á áfengi; 1. umr.
í efri deild:
Enginn þingfundur.
Bandaríkjaþing
og Wilson.
Ley nisamningnr Þjóð rei ja
og Japana.
„Svartasta blaðið í sögu
þjóðanna".
Hinn 16. júlí varð hörð rimma í
öldungaráði Bandaríkjaþings út af
þingsályktuiiartillögu, er Lodge
bar frám og fór í þá átt að kref jast
jess, að forsetinn gæfi upplýsingar
um leynisamning er Þjóðverjar og
Japanar hefði gert með sér. Spanst
ýmislegt út af þeim umræðum.
Meðal annars mintist lýðveldis-
maðurinn Norris á Shantung og
gat þess, að ef þjóðabandalagið yrði
endanlega stofnað án þess að greitt
væri fram úr Shantung-málinu, þá
væri það svartasta blaðið í sögu
jjóðanna.
Málinu lauk svo, að þingsálykt-
unartillaga Lodge var samþykt og
er það talinn einn af ósigrum Wil-
sons í þinginu. Hefir honum áður
jorrið þar fylgi nú upp á síðkastið.
Veðrið í gær:
Reykjavík: S.V. gola, hiti 9,1.
: :safjörður: V. kaldi, hiti 7,5.
Akureyri:. S.S.V. kul, hiti 12.0.
Seyðisfjörður: S. kul, hiti 13,1.
Grímsstaðir: S.V. st. gola, hiti 10,0.
Vestma-nnaeyjar: N.V. kul, hiti 8,9.
Þörshöfn, Færeyjar: S.V. kul, hiti 10.5
„Skjöldur' ‘ kom úr Borgarnesi í gær
með fjölda farþega. Mun allur þorri
jeirra hafa komið til þess að horfa á
viðureign hinna dönsku og íslenzku
knattspyrumanna.
„Hans“ kom einnig að vestan í gær
hlaðinn kolum, sem Ólafur G. Eyjólfs-
son á og hefir látið vinna þar vestur
á SkarðstrÖnd. Kolin eru mjög falleg
að sjá.
„Agathe“ fór fyrir skömmu til Nor-
egs að sækja kolafarm fyrir landstjóm-
ina.
„Patrekur“ fór í gær til ísafjarðar
og Sigluf jarðar með tunnur.
Atvinnumálaráðherrann brá sér til
Þingvalla annan ágúst.
Þar sem sagt var frá því er flutninga-
bifreið Nathan & Olsen rendi á fólks-
flutningsbifreið og braut hana, láðist
að geta þess, að það var ekki bifreið-
arstjóri firmans, sem bifreiðinni stýrði
heldur maður sem var að taka bifreið-
arstjórapróf! Varð óhapp þetta til
þess að hann fékk ekki skírteini, enda
má fyr rota en dauðrota.
„Gullfoss“ kom í gærkveldi kl. 8.
Var hann alskrýddur flöggum er hann
rann inn höfnina og var afarmikill
mannfjöldi samankominn á hafnar-
bakkanum er skipið lagði að. Meðal
farþega voru gestir I. S. I. dönsku
knattspyrnumennirnir: Helge Scharff,
Aage Nyeborg, Brit Graa, Leo Frede-
riksen, Erik Boas, Gunnar Haby, Ed-
win Hansen, Harry Bendixsen, St.
Kierulff, Chr. Bonde, Svan Rosborg
og Elgaard. Enn fremur Kvikmynda-
leikararnir frá Nordisk Film: Gunnar
Sommerfeldt og frú hans og dóttir, frk.
Spangsfeldt, frú E. Jaeobsen, Fr.
Jacobsen, Ove Kijhl, Louis Larsen
myndtökumaður og Fribert ráðsmaður
þeirra, Gunnar Gunnarsson skáld,
Guðm. Torsteinsson listamálari, Axel
Tulenius og frú, frú Nielsen fram-
kvæmdarstjóra, ungfrú Lilja Petersen
Thurwald, frú Inga Newman og tvö
börn hennar, frú Sigrún Bjarnason, Jón
Sivertsen skólastj. Ólafur Proppé
kaupm. Páll Skúlason stud. mag.,
Stefán Stefánsson kennari, Óskar
Lárusson kaum. Oskar Clausen kaupm.
A. Obenhaupt stórkaupm., Pétur M.
Bjarnason, stórkaupm.Kr.Ó. Skagfjörð
frú M. Grönvold, ungfrú Dóra Helga-
son, ungfrú Ágústa Erlendsdóttir, Jón
Guðmundsson frá Gufudal, Jón Féld-
sted klæðskeri, Þórður Jónsson kaupm.
Óli Ásmundsson múrari, Júlíus Guð-
mundsson, A. Möller cand pharm. o. fl.
Meulenberg prestur í Landakoti, sem
hér dvaldi lengi, er væntanlegur hingað
líklega með Botniu næst. Hann mun
ætla að starfa hér framvegis.
Markaðsverð á ánamaðki. Hann er
nú seldur laxveiðimönnum á 5 aura
hver — sama verð og væn ýsa kostaði
fyrir 5—8 árum. — Hvað skyldi skip-
pundið í maðkinum þá kosta?
Kjötverðið. Fyrir nokkrum dögum
var slátrað dilkum í sláturhúsinu.
Kiloið af kjötinu var selt á — 6 kr.!—
Björn í Grafarholti átti dýrin.
Rausn. Þá höfðingjalund sýndi Ól-
afur G. Eyjólfsson stórkaupmaður, að
gefa verzlunarmannafélaginu „Merk-
úr“ för „Úlfs“ til Saurbæjar á laug-
ardaginn. Gerir hann það ekki enda-
slept, að sýna verzlunarmönnum vin-
áttu sína. Fjöldi félagsmanna eru
gamlir nemendur hans, frá því er hann
hafði stjórn verzunarskólans á hendi
og þeir vita allir að slíkur höfðing-
skapur og vináttubragð er Ólafi líkt.
Bíll
ter til Þingvalla í dag kl.
12. Nokkrir menn geta fengið far.
Afgreiðsla hjá R. P. Levi.
Kaupakona óskast
strax á gott sveitaheimili nálægt
Reykjavík, má hafa barn með sér.
Uppl. á Laufásvegi 31. Sími 319.
TE G6FÓD0R
fjölbreyttasta úrval á landinu,
er i Kolasundi hjá
Daníel Halldörssyni.
Ves^gfóóur
janelpappi, maskinupappi og strig'
fæst á Spitalastig 9, hjá
Agústi Markússyni,
Simi 675.
Kaupakonu
vantar mig nú strax i 4—5 vikur.
c1 ©3. Ædtursson.
— Simi 125 —
Jarðarför konunnar minnar, Signýjai Ó!afsdóttur Hansen, á
Jófríðarstöðum, fer fram næstkonmidi laugardag 9. ágúA og hef t
með húskveðju kl. 12 á hádegi.
Jófiiðarstððum í HafDarfirði, 4 ágúit 1919
Hinrik A. Hansen.
Kartöflur
fást í verzl. Elíasar S. Lyngdal
Njálsgötu 23. Simi 664.
Fasteignafél. Reykjavikur
hefir fyrst nm sinn skritstofa hjá
Gaðm, Gamalíelssyni, Lækjargötn 6
Askoranalisti tii undirskrifta um afnám húsaleigulaganna hið fyrsta að
auðið er liggur þar frammi.
Skorað er á húseigendur og aðra að snúa sér þangað í dag, vegua
þess að það er seinasti dagurinn, sem listinn liggur
trammi.
Skrifstofan er opin frá kl. 9 f. m. til 9 e. m.
Stjðrnin.
Landakotsskólinn
byrjar 1. sept. næstk. kl. f. h. Þeir scm ætla að stunda nám i Landa-
kotsskóla að vetri, bæði eldri nemendur og aðrir, eru vinsamlega beðnir
um að snúa sér sem fyrst til undiiritaðs eða St. Jósefssystranna i Landakoti.
Skóla- og eldsneytisgjald verður sama og siðastliðinn vetur. Skóla-
gjald greiðist minaðarlega fyrirfram.
<3. Scrvaas,
Hittist venjulega 11—1 og 6—8. Sími 42.
0 c t a g o n-þvottasápan.
Bezta þvottasápan i bænum er hin fræga C o 1 g a t e s Octagon-
þvottasápan. Reynið hana! Gæði og hreinsunargildi óviðjafnanlegt.
Stórsala. Smásala.
Verzlunin Gullfoss
Sími 569. Hafnarstrœti 15.
Vaktarastaða
við Slippfálacjié er taus. ^UmsoRnir
íepgist á sRrifstofu féíagsins Jyrir £ ág,
Slippfélagið.
Café Isíand
verður lokað i kvöfd.
— í. s. í. — Kaupamaður
Drpnoír duglegur, góður að stjórna fólki,
VI Gll&ll 1 einnig kaupakona, óskast strax.
IP sem yilja selja aðgöngu- H á 11 k a u p 1 Upplýsingar í kvöld kl. 7—8 á
miða að knattspyrnnleikj- Grettisgötu 10, uppi. !
nm A B., komi til Sigur- gísla Gnðnasonar hjá Zim- Góður reiðhestur
sen sem fyrst í dag. til sölu með tækifærisverði. Uppl.
Heimboðsnefndin. gefur Björgvin Ó. Jónsson, Laugav. 26