Morgunblaðið - 21.09.1919, Side 1

Morgunblaðið - 21.09.1919, Side 1
MmGUHBUBD 6. árgangur, 296. tðlublað Sunnudag 21. september 1919 Isaioldarprentsmiðja GAMLA BIO Orgef-Honcerf fjeídur Pdíí ísóffsson i Dómkirkjunni sunnudagskvöldið 21. þ. m. kl. 9. — Kirkjan opnuð kl. Aðgöngumiðar, á 3 kr., verða seldir i Goodtemplarahúsinu í dag fri kl. 2—9. sýnir ennþá i dag bina ágætu mynd Ást og hefnd Aðalhlutv. leikin af Clara Wieth og Olaf Fönss Feiknar aðsðkn hefir verið að þessari mynd undinfarna viku; þó vitnm vér að margir bæjar búar eiga eftir að sjá hana. Komið þessvegna i dag. Mynd in verður sýnd 3var, kl. 6, 7Y2 og kl. 9. 0Uum ber saman um að betri mynd hefir ekki sézt hér lengi. Erl. símfregnir. Khöfn, 19. sept. Uppvöðslusemi d’Annunzi^’s. Frá Londou er símað, að ítölsku stjórninni veitist erfitt að taka fram fyrir keudurnar á d’Annunzio vegna skoðanamunar inuan her- ötjórnarinnar. ítalir hafa nákvæmt éftirlit með ö'llum fréttaskeytum. Rússlandsmálin. Frá London er 'símað, að enskú blöðin krefjist skýringar á fregn- inni um það, að Bolsevikum skúli gefinn laus taumurinn í Rússlandi, °g þykjast vera ókunnug mála- ■vöxtum. FrönSk og ameríksk blöð hafa borið fregnina til baka. Þjóðverjar vægja. Frá Wehnar er símað, að utan- ríkisnefnd Þjóðþingsins hafi felt úr grundvallarlögunum greinina nm aðgangsrétt Þjóðverja í Austur- ríki að þinginu þýzka, eins og Uandamenn höfðu krafist. Jugoslavar hafa gefið út skipun um að taka d ’Annunzio fastan, eftir því sem Segir í skeytum frá Berlín. Spartakista-óeirðir. Frá Berlín er símað, að Sparta- kistar hafi enn liafið óeirðir í Ber- llin og eigl setuliðið fúlt í fangi úieð að yfirbuga þá. Mannerheim 0g Bolsevikar. í Stokkhólmi ‘ gerðu ung-sósíal- ls>tar uppþot nýlega, í tilefni af því aÖ Mannerlieim, fyrverandi ríkis- stjóri í Finnlandi, kom við í borg- löni á leið til París. Bandaríkjamenn verzla. jjDagens Nyheder“ segja, að. ^andaríkjamenn hafi tekið að sér ahan kolainnflutning til Svíþjóðar. ^ga þeir að sjá Svíum fyrir 5 mil- ^hum tonna-af kolum á ári, nema ef vera kynni að eitthvað verði fll'tt frá Bretlandi. Friðun Rússlands- »Aftonbladet“ segir, að fulltrú- ei? Landamanna eigi í samningum finsku stjórnina. Hafa Finnar Veðið að hafna friðarboðum °lsevika. Þ » ra Helsingfors er símað, að her- 4fasendinefnd frá Frökkum sé ríin tij Revei í tilefni af friðar- , Einars H. Kvaran 11 ^Jddendal gefið ut. Síðustu símfregnir Khöfn, 20. sept. Lloyd George og Bolsevikar. „Daily News“ birtir, eftir heim- ildum frá Washington, útdrátt úr skýrslu, sem Bolsevika-agentinn Dullitz hefir gefið utanríkisnefnd öldungadeildarinnar. Samkvæmt skýrslu þessari hefir L/loyd George sjálfur átt í skriflegum samning- um við Bolsevika fyrir milligöngu Dullitz. Lloyd George liefir þver- neitað þessu, bæði opinberlega og í parlamentinu. Friður Búlgara. Símað er frá París, að friðar- samningar Búlgara hafi nú verið afhentir þeim. Yerður þeim að eins leyft að hafa 20 þús. manna lög- regluher og í hernaðarskaðabætur eiga þeir að greiða 2250 mi'ljónir franka. Bolsevikar og friðurinn. Frá Helsingfors er símað, að pndirbúningssamningar um frið séu byrjaðir í Gskov (Pskov?). Lithauar eru ófúsir á að semja frið. Fréttastofa Letta símar, að ekkert af Eystrasaltslöndunum muni ganga að friðarboðum Boi'sevika. Frá Berlín er síinað, að breyting á ráðuneyt- inu sé í aðsigi og niuni „demokrat- ar“ ganga inu í það aftur. Verkfall þafnarverkamanua heldur áfram. ■ v j, 0 ■ c » Jökulganga Svianna. Morgunblaðið hefir nú fengið nokkru nánari fregnir af liinni merkilegu för náttúrufræðinganna Wadells og Ygbergs. Báðum vér þá um nánari frásögn af ferðalag- inu, er vér fengum skeyti þeirra fyrir hálfum mánuði síðan, en þeir höfðu þá farið út í Öræfi og gátu því ekki svarað fyr en nú- Hér fer á eftir skýrsla Wadells, er vér höfum fengið símleiðis frá Hólum í Hornafirði: „Við lögðum upp frá Kálfafelli í Fljótshverfi þann 27. ágúst, kl. 9 árdegis, með 7 hesta, og fylgdar- mann. Héldum við fyrst norður Djúpárdal og komum að jökul- hrúninni beint norður af Kálfafelli kl. 1. Þar skiidi fylgdarmaðurinn við okkur og hélt aftur til bygða, en við cand. Ygberg héldum áfram með 3 he'sta og sleða og stéfndum beint til norðurs. Var jökullinn mjög ósléttur og öskuhrannir á lionum hér og livar. Daginn eftir, 28. ágúst, sáum við að ókleift mundi verða að komast áfram norður á bóginn, því allúr hájökullinn, fyrir vestan beiua stefnu í norður af Grænafjalli, var þakinn 12 til 15 centimetra þykku öskulagi úr Kötlu. Breyttum við því stefuu og héldum tii suðausturs, til Græna- f jalls, sem er mestmegnis úr hrafn- tinnu, og reidduln farangur okkar austur í Hágöngur. Milli Hágangna og Grænafjalls er kriuglótt lægð í jöklinum, og er þar seunilega gamall eldgígur undir ísnum. Hinn 29. ágýst sóttum við sleðann og fór- um með hann lausan yfir öskuna austur í Hágöugui‘. 30. ágúst héld- um við norður á jökuliun, fyrir austan Hágöngur. Var, þar fall- inn snjór ofan á öskulagið og því ágætt sleðafæri. Fyrir norðan Ilá- göngur er lítill hnúkur og hvass tindur upp úr honum. 31. ágú'st héldum við b;eint í austur. Var sleðafærið ágætt. Jökullinn smá- hækkaði og fórum við upp þrjár brúnlr kverja eftir aðra. Kl. 12 á hádegi sáum við hnúka fram und- an okkur og stéfndum þangað. Komumst við að þeim kl. 3.1 hnúk- um þesSum eru hverir, sem gjósa 1—2 metra. Þar var dálíti'll mosa- gróður. Norðan undir hnúknum er 120 metra djúpur eldgígur — Svía- gígur. Suðurlilið gígsins er lóðrétt standberg, bæði jökulberg, mógrjót og hraungrýti. 1. september mæld- um við gíginn og gerðum kort af honum og rannsökuðum hann að aúStanverðu. Heitt stöðuvatn er í gígnum og fellur skriðjökull 120 feta hár ofan f.það og bráðnar jafn- harðan. Vatnið er djúpt í miðjunni og voru þar ísjakar á floti. Vatnið er heitast að sunnanverðu, en skrið- jökullinn fellur ofan í það að norð- anverðu. Gígurinn er inni á hájökl- inum í norð-norðaustur af Skeið- arárjökli. Frá Skeiðarárjökli geng- ur dalur til austurs fyrir norðan Hvannadalshnúk. Þessi dalur beyg- ir síðan til norðurs inn að Svía- gíg. — 2. september, á hádegi, lögð- um við upp frá Svíagíg og 'stefnd- um á hnúk í norðaustri. Kl. 3 skall á þoka og fórum við þá eftir átta- vita. 3. september fengum við byl og þunga færð. Beittum við þá tveimur hestum fyrir sleðaun og héldum til suðausturs. Sujóaði þangað til uudir kveld, en þá létti dimmviðriuu. 4. septem'ber sáum við fjall í suðri og stefndum suð- ur á bóginn og' komum á Heina- bergsjökul um nón. 5. september fórum við 'suður af jöklinum og var það erfitt, því jökullinn var mjög sprunginu. — Við liöfum gert mikilsvarðandi veðráttuathuganir. Wadell.“ Vandvirkni löggjafanna Þeir, sem mest hafa völdin hafa mesta ábyrgðina. Þeir, sem kjörnir eru fulltrúar þjóðarinnar og fara með mál hennar verða að vita betur og vanda betur til verka sinna en aðrir menn. Því er það eigi nema sjálfsagt að gera meiri kröfur til þingmanna en annara. Þeim liefir verið trúað fyrir miklu valdi, en með því fylgja skyldur, sem þeim eru lagðar á herðar. Þingsaga síðustu ára sýnir glögt að mikill meiri hluti þingmanna hirðir lítt um skyldurnar. Og brag- urinn allur á þingsamkundunni er engan veginn því líkur, að þar sé merkasta stofnun þjóðarinnar og þar samankomnir hennar vitrustu og beztu menn. Þing Islendinga á tultuguslu öldinni er óvegleg sam- kunda og ber síst ,af öllu vott um skyldurækni eða virðingu þiug- manna fyrir starfi því sem þeir hafa verið kallaðir til. Það ber vott um fávisku, leti kæruleysi og algerða vöntun á ábyrgðartilfinningu, hjá alt of mörgum þingmönnum. Af þessu leiðir að starfið miðar ekki að neinu marki, stefnan verður eng'- in, en gjörðirnar fálm út í loftið, og fum ráðreikulla manna. Má vera að það sé ekki réttlátt, að liggja þingmönnum á kálsi, þó þeir þekki ekki til allra mála jafn vel. Mörg mál sem koma til þings- ins kasta eru þess eðlis, að sérþekk- ingu þai’f til þess að geta sagt hvað sé rét’t og lxvað rangt þeim viðvíkj- andi, og þá vandinn að kunna að velja ráðunauta. En sum mál eru svo veigamikil atriði í starfsemi þingmannsins, að hann getur aldrei orðið að gagni nema hann kunni góð skil á þeirn. . Svo er t. d. um fjármálin. Þau eru eitt aðalstarf 'hvers einaSta reglulegs þittgs 0g þau snerta svo mörg önnur mál, að enginn getur heitið forsvaranlegur þingmaður, riema hann hafi kynt sér þau ræki- lega. E11 einmitt á þessu sviði virð- ast þingmenn vera svo herfi'lega úti á þekju, að öl'lum hlýtur að blöskra. Á yfirstandandi þingi hefir margt skeð, sem sýnír þetta áþreif- anlega. Frumvörpum, fjárhagslegs efnis, hefir verið dembt inn á þing- ið af handahófi. Útgjöld landsjóðs hafa stóraukist vegna nýrra laga og þá verið reynt að finna eitthvað til að fylla hítina með nýjum skattaálögum. Þingið mun líta svo á, að landbúnaðurinn sé ekki af- lögufær, því alla nýju skattana vill það leggja á sjávarútveginn, og mxxn víst sjaldgæft, að nokk- urn tírna hafi verið jafn misjafn- lega skift byrðum þjóðfélagsiinls1, eins og þingið hefir skift þeim nú í sumar hér á landi. Ef þjóðin ætti svo Öflugan at- vinnuveg, að hann gæti svarað út öllu því fé, sem hún þarfnast til opinberra þarfa, þyrfti litla fjár- málaþekkingu til að vera þingmað- ur. En engitt þjóð á slíkan atvinnu- veg og íslendingar ekki heldur. Gjaldþol sjávarútvegsins íslenzka er takmarkað og hann fer að verða hrösull úr þessu, ef löggjöfin held- ur áfram að bregða fæti fyrir hann. Þingmenn halda því rnáske fram, að nauðsyn brjóti lög, og að þeir verði að bera skattana, sem eitt- livað hafa ti'l að borga með. Um hitt sé ekki hægt að hugsa, livort það ríða atvinnuveginum að fullu. En að þessari stefnu er skammgóð- ur vermir, því hún leiðir til þess að leggja alla atvinuuvegi í ka'lda- kol. Og hvar á þá að taka tekj- urnar ? Annars er þessi okurtolla-stefna, sem þingið thefir tekið upp, einnig athugaverð frá öðru sjóuarmiði. Hún lilýtur að leiða til þess, að landið einangrist eða að minsta kosti eigi örðugi’a uppdráttar í al- þjóðaviðskiftunum en aðrar þjóðir. Við vei’ðum ekki lengi samkepnis- fæi-ir á útlendum markaði með vör- ur, tollklyfjaðar á bak og' í fyrir. Og hjá okkur er tollur á hvei’ju strái. Tollur á kolunum, sem notuð eru tíl að veiða fiskinn, tollur á sa’ltinu, sem liann er saltaður með, tunnunum, sem síldin er flutt út í, og svo útflutningsgjald á fiskinum. Væri nú ekki sú lciðiu réttlátari, að stryka yfir alla tollana og leggja einungis á hagnaðinn, sem útgerð- armenn liafa af atvinuu sinni, og ‘hafa þann skatt þeirn mun hærri. Þá -væri atvinnúvegurinn frjálsari, og það fé, sem hið opiubera fengi, vel fengið, en ekki tekið af atvinnu- rekendum, sem sumir hafa stórtap af atvinnurekstri sínum. Kolatollurinn, sem er ein nýjasta uppgötvun þingsins í tollamálum, er eitt þeirra tvíeggjuðu sverða, sem dregin hafa verið úr slíðrum á þessu þingi. Sennilegt er, að hann verði til þess að útgerðarmenn stundi isfiski miklu meira en áður og spai’i sér eftir megni að leggja hér upp fisk og taka kol, ef toll- inum verður ha’ldið svo háum, sem gert er enn i þinginu. Og hver verður þá ágóði landsinS ? Ekkert annað en minni innflutniiigur á kolum og meira vinnuleysi á fisk- ixpplagisstöðvunum. Atvinnuvegir, sem klafabundnir erix af tollum og álögum, verða al- drei langlífir. Það ætti þingið að hugleiða betur en það hefir gert. Það er ekki einhlítt að leggja á tolla, heldur verður líka að reyná að sjá fyrir, hverjar afleiðhigar þeirra verða. Og þar vilja verða vanhöld á. Nefndarálit og umræður Alþingiú bera ekki vott urn víð- 'sýni og forsjá í þessum efnum. Þegar um tollmá’l er að ræða, er það venjulega viðkvæðið, að svo og svo mikið muni fást inn með þessum tolli, að ógleymdri áminn- ingunni uixx að landssjóðinn vanti penittga. Hið síðarnefnda er oftast aðal-„argumentið‘ *, Þingmenskan er starf, sem krefst mikils tíma. En hér er hún hjáverkastarf. Máske ræður það nxiklu um hvernig hún er af hendi leyst yfiríeitt. En hitt er þó áhrifa- meira, að nú er hætt að vanda til þingmanna. Sbrumararnir, sem ga'la fegurst í eyrum alþýðunnar, eru að ná tökum á fólkinu og fylla þingbekkina. En þeir hafa flestir lítið til brunns að bera, þegar til þingstarfanna kemxxr. t O— Vestmanneyjaflugið Flugfélagið og capt. Faber þafa fengið ýmsar hlýjar orðsendingar frá Véstmannaeyjum eftir flugið þangað á fimtudaginix, sem Eyja- búar voru mjög hrifnir af, þótt ekki tækist að lenda þar í þett-a shin. Af kveðjuskeytinu frá Flugfélag- inu, sem kastað var niður úr flug- vélinni, fundust í Eyjumxm allmörg eintök síðar um daginn og hljóðar það á þe'ssa leið: „Vestmannaeyingar 1 Með fyrstu flugvélinni, sem heimsækir Vestmaxmaeyjar, send- um vér yður kveðju vora. >» Vér vonum að dagurinn í dag verði fyrirboði nýrra tíma, ei’ létti 'Samneytið milli Lands og Eyja, og nátengi hinn nýja bæ yðar þjóð- inni í heild sinni. Vér vonunx að sá tími sé nú þegar liðinn, er Vest- mannaeyjar þui’fa að þykjast af- skektur staður og útúrskotinn ís- lenzku þjóðlífi. Vér viturn, að hjá yður hreyfast sterk framfaraöfl, sem vilja vinna með oss Landbyggjum, og vér hyggjgm að fartækið, sem þér sjá- NYJA BIO Ungfrú Jackie í sjóhernnm. Sú lang skemtilegasta mynd, sem hér hefir sézt, verður sýnd enn í kvöld kl. 6, 71/* og 9. Menn ern beðnir að tryggja sér sæti á fyrri sýningarnar til að forðast þrengsli. ið í dag í fyrsta sinni, sé einmitt meðalið til að sigrast á f jarlægðinni og færa oss nær hvora öðrum. Með því að heimsækja yður nú, viljum vér sýna, að vér böfum sérstaka trú á framtíð flixgsam* bands við Vestmannaeyjar, og vér reiðum oss á það, að þér bregðist við drengilega og styðjið oss eftir fremsta megni til að koma á slíku sambandi sem allra fyrst. Flugfélag íslauds.“ FTá Sigurði lyfsala fékk capt. Faber skeyti, er hljóðar svo í ís* l'enzkx’i þýðingu: „íbúar Vestmannaeyja senda yð- ur beztu óskir sínar og þakkir fyrir hið ágæta flug yðar. Við fundum kveðjuávarp ykkar á ströndinni og munum festa það í minni.“ Annað skeyti frá sama kom einn- ig daginn eftir svohljóðandi: „Áhugi er hér mikill fyrir flug* inu og fyrir því að útbúa hér tryggilegan lendingarstað. Sendið okkur nákvæma skýringu á því, hvað stór haxxn þarf að vera o. s. frv., og eg mun leita samninga við bæjarstjórn um útvegun hans.“ Fullnægjandi svör hefir ekki enn verið hægt að senda við þess* ari fyrirspurn. En sennilega mun það verða á þá leið; að tíminn sé nú orðinn of naumur til þess að nokkrar framkvæmdir geti orðið í haust. Flugvöllurinn verður að vera sem fjærst hinum háu klettum og fjöllum, til þess að forðast felli- byljiua, sem eru svo hættulegir við lendingar. Stærðin má sjálfsagt ekki vera undir 200 metrum á hvern veg. — Ekki er ólíklget að jafnvel þótt sævélar verði aðalfar- tækið víðast á íslandi, þá muni helzt verða að nota landvélar í Vestmannaeyjum, vegna þess hvað höfnin er lítil og býljahætt þar, Kirkjuhljómleikar. Pétur og Haraldur eru fyrir 'löngu flognir héðan aftur, en Páll ísólfsson er ekki farinn exm. Þó fer nú að styttast dvöl hatts hér, því hann ætlar utan með „íslandi“ næst. Hefir hann í hyggju að halda kirkjuhljómleika í Stokkhólmi og víðar, áður en hann fer til Þýzka- lauds aftur. í kvöld kl. 9 ætlar Pál'l að láta til sín heyra í Dómkirkjuuui, og verður það í síðasta sinu, sem Reykvíkiugum gefst færi á að njóta listar haus, í þetta skifti, Ekki þarf að leiða getur að því, að aðsóknin verður mikil í kvÖld. Þeir sem heyrðu til Páls í sumar, munu ógjarnan vilja láta sig yanta nú, og margir þeir sem voru fjar- verandi þá, munu nota þetta tæki- færi. ÞesS vegna viljum vér ráða fólki til, að hafa fyrra fallið á að ná sér í aðgöngumiða. Páll hefir í kvöld á boðstólum hið mesta góðgæti, m. a. Fantasia (G-dur), Preludium (H-moll) og Fugu (G*moll) eftir Bach og Són- ötu í A'dur eftir Mendelsohn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.