Morgunblaðið - 05.12.1919, Blaðsíða 4
4
MOB0UNBLAÐtfi
Danskir leikfimisskór nýkomnir til B. Stefánsson & Bjarnar,
bezta tegund
Laugavegi 17.
Brezki iðnaðurinn
og heimsmarkaðurinn.
Samkvæmt bréfi frá London til
„Wall Street Journal“ hafa Bretar
mikinn viðbúnað til þess í kyrþey
að koma á stórfeldum framkvæmd-
um. Eftir þessari frásögn hefir
voldug félagsstofnun verið mynd-
uð, sem heitir „Federation of Brit-
ish Industries“, og eru í því félagi
allir helztu iðnrekendur í brezka
ríkinu; það er meira en 16.000
firmu sem hafa yfir aðráðaógrynni
fjár, og hefir þess ekki verið getið
hið allra minsta, hvorki í nokkru
ensku né amerísku blaði.
í „Federation of British Indust
ries“ eru 184 iðnsambönd og 852
stór firmu og önnur minni, samtals
1000 meðlimir, sem eru fulltrúar
fyrir 16.000 atvinnufyrirtæki, og
geldur hvert þeirra 500 dollara árs-
tillag. Það eru alt Bretar, enginn
útlendingur, ekki einu sinni Frakk-
ar né Ameríkumenn fá inntöku í
félagið.
Hlutverk þessa félagseraðstyðja
og vernda brezkan iðnað og koma
Bretlandi aftur í það sæti, sem það
skipaði áður fyrri á heimsmarkað-
tnum.
Ennfremur bætir Mr. Herbert
N. Cason við, sem skrifað hefir
greinina í Wall Street Journal:
Þetta verður gert með því að gera
réttarfarið óbrotnara, með því að
minka kostnaðinn við einkaleyfi,
með því að verndá iðnaðinn, með
því að safna skýrslum handa félags-
mönnum, méð því að koma á fót
bókasafni og iðnaðarsafni, með því
að halda sýningar í útlöndum, með
vísindalegum rannsóknum, með því
að hjálpa hugvitsmönnum, með því
að fá afnumið ríkiseftirlitið og með
því að auka verzlunina við önnur
lönd.
Skipulag félagsins er tvenskon-
ar, eftir iðngreinum og eftir héruð-
um. Aðalaðsetur þess er í London,
39 St. Jarnes Street, S. W. 1. Það
hefir 16 deildir á Englandi, Skot-
landi og Wales og 3 á Irlandi.
Félagið stefnir að því, að koma
í veg fyrir hættu, sem atafar af ó-
heppilegri samkepni, með því að
koma á öflugu skipulagi innan iðn-
aðarins. Það skoðar atvinnuvegina
sem heild og það telur vinnu jafn-
gilda og fé í atvinnurekstrinum.
Það er enginn verkamannaand
stæðingur. Þvert á móti. Það vill
frjálsar umræður á milli verka-
manna og vinnuveitinda, til þess að
koma á betri samvinnu og sam-
komulagi á milli þeirra og til þess
að komast hjá verkfölium og öðr-
um deilum í iðnaðarmálum.
En fyrst og fremst er þetta samt
einkafélag, sem komið hefir verið á
fót í hagnaðarskyni fyrir meðlimi
sína. Það nýtur engrar opinberrar
vemdar. Það á að eins að kenna
brezkum iðnrekendum að hjálpa
sér sjálfum.
Einn af ráðherrunum, Sir Auk-
land Geddes, hefir nýlega tilkynt,
að landsstjórnin hafi í hyggju að
taka upp nýja verzlunarstefnu, en
sem enn hafi ekki komið til fram-
'kvæmda, vegna þess óróa, sem rík-
ir í iðnaðarmálunum.
En félagið er ekki að bíða eftir
neinum breytingum, það er ekki
einungis að mynda sína eigin verzl-
unarstefnu, heldur er það einnig
að koma henni í framkvæmd.
Það hefir sérstaka deild handan-
hafs, til þess að efla utanríkisverzl-
unina. Slíkar deildir gætu ef til vill
komið í staðinn fyrir konsúlastarf-
semina, sem nú þykir orðin úrelt.
Félagið hefir þegar skift heimin-
um niður í 21 umdæmi, og sett um-
boðsmann fyrir hvert umdæmi, og
á hann að vera vel mentaður og
duglegur verzlunarmaður.
Félagið hefir einnig búist við, að
halda sýningu á brezkum vörum
eingöngu, í Zappeion í Aþenuborg,
frá 13. okt. til 14. hóv.
Nú er það að teyma fjölda af ót-
ýaiidtþþ kffupWnQtiin til Örtftlauds.
t
Hérmeð tilkynnist vinnm og vandamönnum, að okkar ástkæra
dóttir, Svava, andaðist að heimili okkar þ. 2. þ. m.
Jarðarförin ákveðin siðar.
Bakkastíg 3.
Sigrún Rðgnvaldsdóttir. Jóhannes Sveinsson.
Kaffi
(brent og malað)
faest nú aftur í
Nýkomið
Skinntau — Eskimóaföt — Silkiblúsur —
Silkinterfðt— Silkimillipyls — Silklsokkar
8ilkikögur bvít, svðrt og misl. — Silkibönd
margir litir— Silkihanzkar — Skinnhanzk-
ar — Vaskaskinnhanzkar — Japðnsk Siiki
Crepe De Chine — Ilmvötn — Handsápur
Handklœði — Handklseðadregill — Rúm-
teppi — Borðdúkar — Borðdúkadregill
Serviettur — Puntdúkar — Dömukragar
Tclpukragar — Matrósakragar — Gar-
dínur — Uilarhúfur — Barnakjólar
Hnappar og m, fl,
Sjöl og Skúíasiiki koma bráðiega.
Sími 599 Verzl. Gullfoss Hafnarstr. 15
VeggfÓÖUF
nýkomið.
Pór. B. Þorlaksíon.
Brazilisk sendinefnd hefir nú kom-
ið við í yíir 20 iðnaðarborgum.
Félagið hefir þegar fengið miki-
ar pantanir frá Serbíu, Marokko,
Sviss, Bæheimi og hollensku Aust-
nrindíum. Til þess að ná í útlenda
markaði hefir það látið prenta leið-
arvísi á sex tungnmálum. Það hefir
einnig samið útflutningsskrá, þar
sem taldir eru upp helztu brezku
iðnrekendurnir.
211 manna ráð hefir yfirstjóm
félagsins. Þetta ráð hefirfullaheim
ild til þess að taka lán og gera
skuldbindingar. Það er nokkurs-
konar iðnaðarþing. Eign allri er
skift í fimm flokka.
Formaður félagsins er valinn ár-
lega. Þessa árs formaður er Sir
Vincent Caillard, forstjóri Vick-
ers, Ldt. En stofnandi og sálin í
jessum félagsskap er maður, sem
engan titil hefir og að litlu hefir
verið getið, F. Dudley Docker í
Birmingham.
Mr. Docker er sá brezki Rocke-
feller. Hann vinnur í kyrþey. Hann
er viðskiftafrömuður. En sem „or-
ganisator“ stendur hann engum að
baki, nema ef vera kynni Lord Lev-
erhulme. Og nú, þar sem hann hefir
komið áttunda hlutannm af brezka
heiminum í samband, má telja hann
nokkurs konar iðnaðarhershöfð-
iiigu hér í blaðinu). Ilcfir deildin
hmgað til haft tvö slík skemtikvöld á
vetri og hvert þeirra verið helgað ein-
hverri ákveðinni Norðurlandaþjóð.
Hefir aðsóknin að skemlikvöldum
þessum hingað til verið mjög mikil,
enda vel vandað til þeirra. H.
„Nýársnóttin' ‘ er Ieikin í kvöld í
(50. sinn.
mgja.
(V erzlunartíðindi.)
PA8101
Edda 59191266 Va
I. O. 0. F. 1011258y2.
Fundur í Guðspekisfélaginu í kvöld
kx. 8%.
Aðalsteinn Magnússon frá Grund í
Eyjafirði er látinn á Holteheilsuhæl-
inu í Danmörk. Hann var sonur Magn-
úsar kaupmanns á Grund, maður á
bezta aldri og hinn mannvænlegasti.
Hann stundaði nám við Verzlunar-
skóla Islands og útskrifaðist þaðan
vorið 1910. Var hann eftir það heima
um hríð, en gekk síðan á Hvann-
eyrarskóla og i-auk burtfararprófi það-
an. I fyrra kendi hann vanheilsu og
reyndist það vera tæring. Fór hann þá
á heilsuhælið á Vífilsstöðum og var
þar um hríð, fékk nokkurn bata, en
sigldi þó til þess að fá fullan bata.
En nú er hann látinn og kemur sú
fregn eins og þruma úr heiðskíru lofti
yfir alla ættingja hans og vini.
Hæusnabygg
heil! mais
Maismjö!
nýkoraið í verzlun
(Bl. cflmunóasonar
Simi 149. Laugaveg 24.
Rjól
fæst í
Liverpool.
Hjúskapur. í gærkvöldi voru gefin
saman í hjónaband ungfrú Sigríður
Jónsdóttir frá Villingaholti í Árnes-
sýslu og Ágúst Guðjónsson fisksali.
Dómsdagur. Alþýðublaðið hefir ein-
hvern veginn fengið þá trú, að dóms-
dí.gur eigi að verða 17. desember, og
c’1 afskaplega hrætt. Það er von.
Dánarfregn. Frú Anna Guðmnnds-
dóttir, kona síra Oddgeirs Guðmunds-
sonar í Vestmannaeyjum, lézt hinn 2,
þ. mán. Hennar verður nánar minst
s;íðar.
Veðrið í gær.
Reykjavík: N. kaldi, hiti —0.5.
ísafjörður: Logn, hiti -f-1-1.
Akureyri: NNA. kul, hiti 0.0.
Seyðisfjörður: NA. kul, hiti 0.5.
Grímsstaðir: NNV. kul, hiti -r-3.0.
Vestmannaeyjar: NN. kul, hiti 0.0.
Þórshöfn: V. sn. vindur, hiti 5.0.
B. N. S. Reykjavíkurdeild norræna
st údentasambandsins heldtir. „Sænskt
krÖlcí? ‘ í Iðuó á mórgun (sbr. auglýs-
i
Suðurland liggur nú við Battaríis-
garðinn og er verið að gera ýmislegt
við skipið. Hlutafélagið „Hamarí ‘ ann-
ast viðgerðiná.
Vígahnöttur sást hér í fyrradag. Er
sbkt engi nýlunda, þótt ýmsar smásál-
ir og fáráðlingar setji þetta í samband
við ímyndaðan dómsdag í náinni fram-
tíð.
Jarðskjálfti, allsnarpur, fanst hér í
fyrrinótt um kl. 5.
Trúlofuð eru ungfrú Ragnhildur
Hjaltadóttir Jpnssonar skipstjóra og
Kristján Siggeir'aáfn kh'trptntíður.
Bílstjóri
óskar eftir atvinnu nú þegar. Til-
boð merkt Bilstjérri sendist afgr.
blaðsins fyrir 8. þ. m.
Tyffeber
ný, fást í
Blóm Isukar
frá
Hollaridi
Hyacinther, Crocus, Narcissi,
Begonia.
Sérttaklega fallegar tegundir.
Verzl.Gullfoss
Sími 599. Hafnarstræti 15.
„ísland“ fer héðan í dag kl. 4 síð-
degis.
R. N S
Síldartunnur þær, er lentu í sjóinn
á ísafirði um daginn í rokinu, þegar
„Dndine“ skemdi bryggjuna þar, hafa
r.ú náðst aftur og eru óskemdar að
eögn.
,jaeiher‘.‘, þýzka -skipið, sem hingað
kom með salt á dögunum, teknr hér
kjötfarm til útlanda.
, Sænskt kvöld
verður haidið i Iðnó, langardaglnn 6. desember kl. 8‘/a stundvis-
lega. Til skemtunar verður; Hljóðfærasláttur, karlakór,
fyrirlestrar og ef til viil tvisöngnr og danz. — Félagar vitji að-
göngumiða fyrir sig og gesti sína i Háskólann á fðstudag frá kl 4
til 10 og laugardag frá kl. 2—5. Kosta þeir kr. 2.50 stk.
M.b. Svanur
er héðan væntaniega í kvöld til Btykkishólms og Búöardals
Vörur afhendist fyrir kl. 2 i dag.
Afgreiðslan.
G.s. Island
fer kl. 4 síðdegis
í dag.
G. Zinsan.
ffl.b. Skaftfe!!ingur
fei til Vikur og Ve.tmaunaeyji um næstu helgi.
cTlíq c3/ 'arnason
Aftur er byrjað að baka
hin góðu, göralu
normalbrauð
í Félagsbakariinu
c/i’ cJ. c/íans&n.
Tfíufaveífu
heldur kvenfélag þjóðkirkjunnar í Hafnarfirði stmimdaginn 7. þ. xn.,
í vörugeymsluhúsi Davíðssoms ogHobb ’s, og byrjar kl. 4 síðdegis._
Margir ágætir munir. — Aðgangnr kr. 0.25. Drátturinn kr. 0 50.
fííufaveífunefndin.
og
köko
- margar ágætar tegundir og hentagar kassastærðir fyrir heimilin að
kaupa í einn, fást nú i heildsöla til kaupmanna og kaupfélaga hjá
cSHöóvarsson & cKafBarg.
Laugaveg 12. Símí 700.
Góð bújörð
i Árnessýslu til sölu. Jörðiu er laus til ábúðar frá næstu far-
dðgum. — Lysthafendur snúi sér til
Steindórs Gunnlaugssonar yfirdóroslögmanns.
Slmi 579 B. Bergstaðastræti ro B.
Bezf að auglíjsa í Jtlorgunbl\