Morgunblaðið - 16.01.1920, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 16.01.1920, Blaðsíða 1
7 árg., 58. tfol. Fðstudag' 16 ianóat’ 1920 IhaIo I d a.r p fiMtm Srtl r. GAMLA BIO LIBERTY IV. kafli (5 þættir) af hinni heinnsfrægu mynd, verður sýndur í k v ö 1 d kl. 87* og 9Va. Gætið þess! að fylgja æfin- týriL’bertysog engu lir aðsleppa Fyrirlggjandi hér á staðnum: Varahlutar allskonar fyrir ARCHI- MEDES mótora, bæði utanborðs- og venjulegar benzin-vélar til notkunar á landi. G. EIRÍKSS, Reykjavík. Einkasali á íslandi. Erl. símfregnir. (Frá fréttaritara Morgunblaðsins). Khöfn 14. jan. Hafnbanninu í Austurvegi hefir íiú verið létt af. Byltingar í Þýzkalandi. Byltingaröldur rísa nú um þvert °8' endilangt Þýzkaland. Námu- verkfölliu breiðast út. Landið hefir verið lýst f uppreistarástandi. Hinir róttækustu byltingamenn íara með miklar æsingar og friðar- samningarnir létta mjög undir með þeim. Koltschak Það er nú opinberlega staðfest að her Koltsehaks sé allur farinn í mola og upprættur. Khöfn 14. jan. Borgarastyrjöld í Þýzkalandi. Frá Berlín er símað, að blóðug upphlaup hafi orðið þar 1 tilefni af umræðum í þinginu út af lögum um lán til iðnreksturs. Yoru það aðal- lega óháðir jafnaðarmenn og kom- munistar, sem stóðu fyrir óspekt- unum. Herlið var kvatt á vettvang °g tvístraði það múgnum með hftnd- sprengjum. Voru þar særðir og repnir rúmlega 300menn.-Fundi kafiBo^r;8a8íttaímiðjn , km hefir verið lýst í upp- °g hefir N°ske fe»8. .5 þar æðstö v6,a s hendm. Het?. ýnn byrjað , h>nn> ýt komu blaðanna „Freiheit“ „Rothe Fahne1 , sem þau g££u út Liebkneeht og Rosa Luxemburg Það er búist við því, að Sparta- kistar muni reyna að koma á alls- herjar verkfalli. Fjöldi útlendra æsingamanna i'ók þátt í upphlaupunum. Nýjar kosningar í Danmörku. Þjóðþingið danska var sett aft- 111 ' gær. Stjórnarandstæðingar JuQiRfáíag cfíayfijavifiur: SiQuröur Braa eftir Jofyon Bojer verður leikinn í Iðaó föstudaginn 16. þ. xnán. kl. 8 síðd. Aðg.m. seldir í Iðnó i dag. Overland nýleg, i áEætu standi, til sölu nú þegar, módel 90. — Allar nánari upp- lýsingar gefur Þorsteinn Jónsson, Strandgötu 25, Hafnarfirði. kröfðust þess, að nýjar kosningar færi fram. Zahle forsætisráðherra lýsti því þá yfir, að nýjar kosning- ar mundi fram fara undir eins og kosningalögin nýju og grundvall- arlögin nýju væri staðfest. Atkvæðagreiðslan í Suður-Jótlandi. Suður-józk „hvítbók1 ‘ hefir verið gefin út. Þjóðaratkvæiðagreiðslur i Suður-Jótlandi fara fram dagana 9,—10. febrúar og 1,—2. marz. Talsímaverkfallið í Kaupmannahöfn heldur enn áfram. Póstmál Dana. Á 9 mánuðum hefir tekjuhalli á póstmálum Dana orðið 5% miljón króna. Vopnahlé Bolzhewikka og Eistlendinga hef- ir verið framlengt. zJCaraléur Siyurðss. Samkvæmt símskeyti frá frétta- ritara vorum í Kaupmannahöfn, er Haraldur Sigurðsson píanóleikari frá Kaldaðarnesi alfluttur þangáð og hefir fengið stöðu sem kennari við hljómlistarskólann þar. öengi erlendrar myntar Khöfn 13. jan. Sterlingspund........... 20,70 Dollar................... 5>53 Mörk (100) ............. 10’75 Sænskar kr. (100) ......115’85 Norskar kr. (100) ......109,00 London 13. jan. Danskar kr.............20,57^2 Þýzkmörk................191,50 frá 1905. Væri átt við sömu gull- tryggingu í 1. gr. 2, sem átt er við í l. 'gr. 1, þá yrði aukaseðla útgáfan væntanlega skaði fyrir bankann, haiin gæfi seðlana ekki út og við- skiftalífið fengi ekki neina auka- seðla, sem væri hið mesta tjón fyrir það.Þessvegna hlýtur orðið „málm- forðinn“ í 1. gr. 2 að þýða það, sem ávalt var skoðað sem málm- forði frá 1906—1914, og sem kallað er málmforði í 5. gr. laganna frá 1905, en það er auk annars inneign í erlendum viðurkendum bönkum. Séu aukaseðlarnir trygðir til fulls með þessum málmforða, greiðist ekkert gjald til landssjóðs af þeim. Reykjavík 14. janúar 1920 Indr. Einarsson. Kristján Jónsson. Gullmál Islandsbanka Hr. Björn O. Björnsson hefir í Morgunblaðinu 10. janúar 1920 beint þelrri spurningu til okkar undirritaðra, hvort inneign í er- lendum bönkum, og seðlar stærstu seðilbanka væru löglegur málm- forði, ef þeir næmu meiru en % af því gulli, sem lögum samkvæmt á að vera til tryggingar þeiim Is- landsbankaseðlum, sem úti eru í umferjð? Sjálfur virðist hann álíta að svo sé ekki. Fyrirspurnin er bygð á niðurlagi 5. greinar laga nr. 66,10. nóv. 1905: „Þeir hlutar málmforðans, sem taldir eru undir tölulið c og d (inn- eign í bönkum, sem greiðist þegar beimtað verður og seðlar viður- kendra banka) mega ekki fara fram úr þ4 alls málmforðans1 . Þessi málsgrein verður ekki þj’dd öðru vísi en svo, að inneign í bönk-; um, og hinir áðurnefndu seðlar, megi ekki út rýma meiru af gulli úi málmforðanum en 14. 5. gr. ákveðui' hver gulltrygging megi vera minst, en það liggur í hlutar- ins eðli, að hver seðilbanki, sem er, má liafa rneiri tryggingu fyrir seðl- um sínum en þá, sem ákveðin er lægst. 5. gr. c. kallar þessa inneign í erlendum bönkum „málmforða" með berum orðum, og það af henni sem hefir farið fram úr þá al gull- tryggingu 5. greinar, hefir í reikn- ingum ís'Iandsbanka árin 1906, 1908, 1909, 1910, 1911, 1912, 1913 og 1914 verið samþykt. að vera „málmforði“ af öllum, sem voru ráðherrar eða bankaráðsmenn þessi umgetnu ár. 9. sept 1915 komu út. lög um trygginguna á þeim seðlum Islands- banka, sem gefnir eru út fram yfir 2% miljón króna. Þar heimtar 1. gr. 1. að helmingur þeirra (50%) sé trygður með málmfokða eftír 5. gr. laga 10. nóvember 1905, (% gull, 14 inneign o. s. frv.). En 1 gr. 2. skipar svo fyrir, að greiða skuli afgjald til landssjóðs af því sem eftir er o'g „málmforðinn nægir ekki til“. I þessum lið er ekki vitnað í 5. greinina í lögunum Ellen Key sjAtug. Hinn nafnkunni sænski rithöf- undur og lífspekingur, Ellen Key, varð sjötug hinn 11. desember. Var henni við það tækifæri sýndur margvíslegur sómi og heillaóskir drifu að henni hvaðanæfa, enda eru pit hennar þýdd á ótal tungumál og eru lesin um allan hinn mentaða heim. „Hver er Ellen Key?“ spyr einn af aðdáendum hennar. Og hann svarar sér sjálfur á þessaleið : NYJA BIÓ ÆfintýFÍ Macistes IV. (siðasti) kafli 6 þættir Ein sýning kl 9. „Hún er samvizkusemi, hugrekki og mannvit íklætt holdi og blóði. Hún er einn af aðalforvígismönn- um hinnar andlegu kirkjubygging- ar. Fyrir 25 árum var hún ofsótt — nú er hún virt og elskuð“. — Myndin hér að ofan er tekin af Ellen Key árið 1917. Er hún gerð af listmyndasmiðnum sænska, pro- fessor H. B. Goodwin. Fjársvikí Danmörk Sænskur dómari tekinn fastur. Nýkomið: GIPS fyrir myndhöggvara og til ýmsra annara nota. G. EIRÍKSS, Reykjavík Danskt víxlarafirma, Kassmanns Efterfölgere, varð gjaldþrota í haust. Gjaldþrot þetta komst svo undir sakamálsrannsókn hjá hin- um alkunna dómara Thorup, sem hefir verið refsivöndur allra fjár- glæframanna og smygla í Danmörk síðan stríðið hófst. Firmað var ásakað fyrir f jársvik í sambandi við ifjármálaviðskifti ýms fyrir aðra menn. í vor bauð Kassmann út ný hlutabréf í firm- anu fyrir % miljón króna. En það mishepnaðist algerlega — menn skrifuðu sig að eins fyrÍT 10 þús. króna hlutum. Þá keyptu firmuíi Nordiske Kabelfabrik og h.f. Möll- er Krösgaard Sterlingspund fyrir 170,000 og 100,000 kr.hjáKassmann. En þau sáu oldrei framar grænan eyri af því fé, hvorki Sterl.pund- unum né kaupfénu. Það hafði Kass- mann notað til þess að greiða skuldir harðvítugra lánardrotna. Aðalmennirnir í fjársvikum firm ans eru forstjórarnir tveir Jungner og Werner Jacobsen og Aage Al- brechtsen víxlari. Hafði firmað gert samning við hinn síðastnefnda um það, að öll viðskifti þess í kaup- höllinni skyldn ganga í gegn um hans hendur og ágóðinn skyldi skiftast jafnt mitli þeirra þriggja. Firmað átti að sjá Albrechtsen fyrir fé, ,en .mikið af því notaði hann í eigin gróðrabrall, og var svo komið um eitt skeið, að hann skuld- aði firmanu 1% miljón sem hann átti ekkert upp í. En í nóvember hafði hann þó mjakað skuldinni niður í 800.000 krónur. Þeir Jung- ner og Jacobsen urðu og uppvísir að því, að hafa brallað með fé firm- ans fyrir sjálfa sig, með milligöngu Albrechtsens. Stjórn Kassmanns var einnig kölluð fyrir réttinn og það kom upp úr kafinu, að henni hafði ekki verið ókunnugt um málavöxtu. Mest umtal, í sambandi við mál þetta, vakti það, þá er formaður stjórnarinnar, Johansson dómari frá Málmhaugum, var kallaður fyr- i” réttinn. Það eitt var nægilegt til þess að vekja umtal, að dómari skyldi yfirheyrður í sakamáli. Hann var tekinn fastur að morgun- lagi, en mótmælíi því harðlega og kvað dönsku lögregluna eigi geta. heft sig, því að hann þyrfti yfir til Málmhauga til þess að dæma í máli. En sú viðbára var að engu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.