Morgunblaðið - 16.01.1920, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
atfcAtfc Ato.J, iiU ní/s ttt*
XORGUNBLAÐIÐ
Rititjóri: Vilh. Fídmh.
Stjónunálaritstjóri: Einar Arnórsson.
Mitstjóm og afgreiðal* í Lækjargötn 2.
Sími 600. — Prentsmiðjnsími 48.
Kemnr út alla daga viknnnar, að
mánndögnm nndanteknnm.
Bitstjómarskrifstofan opin:
Virka daga kL 10—12.
Helgidaga kl. 1—3.
Afgreiðslan opin:
Virka daga kl. 8—8.
i Helgidaga kl. 8—12.
Angiýaingum sé skilað annaðhvort
á afgreiðsinna eða í ísafoidarprent-
amiðjn fyrir kL 5 daginn fyrir útkomn
þess blaðs, sem þsr eiga að birtast í.
Anglýsingar, sem koma fyrir kL 12, fá
að öllnm jfanaði betri stað í blaðinn
(ú lesmálssíðnm), en þœr sem síðar
koma.
Anglýsingaverð: Á fremstn síðn kr.
B.00 hver cm. dálkabreiddar; á öðnm
fíðnm kr. 1.00 em,
Verð blaðsins er kr. L60 á mánnði.
höfð og íim kvöldið varð hann að
’koma fyrir Thornp. Upplýstist það
þá, að hann hafði notað stöðn sína
sem stjórnarformaður firmans, til
þess að reka gTÓðabrall í skjóli
firmans og sknldaði því nú
milj'ón krónur. Hann kvaðst ekk-
ert þekkja til leynisamningsins við
Albrechtsen, en það lét Thorup sér
ékki nægja og fór engu vægilegar
með 'hinn sænska stéttarbróður sinn
en aðra. Og er Johanason sór við
„dómaraæru sína“, að hann vissí
ekkert nm þetta, sagði Thorup
hlátt áfram að hann færi með lygi!
Var svo JohanssoU ‘hneptur í
varðhald, og er hann sá, að hverju
fór, féll honum allur ketill í eld og
harst illa af. Enda er það hvergi
nærri skemtilegt fyrir dómara, að
láta hneppa sig í fangelsi fyrir f jár-
svik. Jomgner var 'líka hneptur í
varðhald, en Jaeobsen fram-
kvæmdastjóra var slept vegna þess,
hvað hann er ungur — að eins 21
árs.
Mál þetta hefir að sjálfsögðn
vakið mikið umtal í Danmörk og
virðist sumum sem Thorup hafi
komið nokknð hrottalega fram í
íþví. Meðal þeirra, sem hafa harð-
lega vítt Thorup fyrir þetta, er
August Goll dómari í Nordre Birk
ög fyrverandi lögreglustjóri í Ar-
ósum.
August Goll.
Ámælir hann Thorup fyrir fram-
!komu hans sem dómara við Johans-
son og segir að hann haldi enn fast
við hið gamla réttarfar, sem ætti að
vera kveðið niður og dautt, síðan
hið mannúðlegra réttarfar gekk í
igildi í Dnmörk hinn 1. októher síð-
astliðinn.
--------o--------
Forsikringsaktieselskabet
... T R E K R O N E R
Brunatryggingar.
Að alumh osmaðnr:
Gunnar Egilson,
Hafnarstræti 15.
Talsími 608 og 479 (heima).
U A ©1B&W
Edda 592012061/2 — 1-
Lögreglan veiðir. I gær sendi Sigur-
jón Pétursson kaupmaður mann út nm
götur bæjarins, klæddan í sjóföt, sem
á eru málaðar auglýsingár. Hefir Sig-
urjón haft þessa a'ðfer‘5 í nokkra vetur
til þess að auglýsa sjóklæði sín, og he£-
ir það gengið ágætlega. En í gær brá
svo við, að lögreglan tók sjóklæða-
manninn fastan. Mun hún sennilega
hafa litiö svo á, að hann væri dulbúinn,
en það er bannað í lögreglusamþykt-
inni að ganga um bæinn í dnlarklæö-
um. En þar er átt við þá menn, sem
villa á sér heimildir. pessi maður vilti
síður en svo á sér heimildir. Hann var
auglýsingaberi frá Sigurjóni og hans
verk var einmitt þa‘S, að sýna sig víöast
sem slíkan.
Fundur í Guöspekisfélaginu föstnd.
16. þ. m. kl. 8i/2 síöd.
Brezkur botnvörpungur kom hingaö
í gærdag.
Sextugsafmæli á Guðmundur Jakobs-
son hafnarvörður í dag.
Nokkuð af fiski kom hingað í gær og
gerðist þegar þröng mikil niðri á fisk^
sölutorginu. Var svo þröngt, að ekki
komst nema hjehningurinn að og urðu
margir að fara heim tómhentir eftir
langa bið, því að fiskinn þraut löngu
áðru en eftirspurninni yrði fullnægt.
Bsajarstjórnarfundur var haldinn í
gærkvöldi. Meðal annars, sem þar var
til umræðu, var málið út af fisksölu-
skúmum, sem reistur hefir verið við
geymsluhús Höepfners-verzlunar.
Nýjar þingkosningar? Miklar líkur
eru taldar til þess, að ógilt verði kosn-
ing Jakobs Möllers, og fara þá nýjar
þingkosningar fram hér í Reykjavík
seint í febrúar. Við kosningu Sveins
Bjömssonar verður sennilega ekki
hróflað, þar sem hann fékk svo yfir-
gnæfandi meiri hluta atkvæða, að það
getur engu breyttumkosninguhansþótt
nokkrir menn, sem ekki áttu kosning-
arrétt, hafi kosið.
Ljósmæðrataxti. Prá nýári er lögboð-
inn taxti ljósmæðra sem hér segir:
Minsta þóknun fyrir að taka á móti
bami kr. 7,00 og kr. 2,50 fyrir hvern
dag, sem ljósmóðirin dvelur hjá sæng-
urkonunni, nema þann dag, sem bamið
fæðist, og kr. 1,00 fyrir hverja vitjun
í kaupstað eða kauptúni, þar sem ljós-
móðirin býr.
Húsaleigunefnd hefir sótt um dýrtíð-
amppbót á launum sínum.
Fisksala. Botnvörpungamir Jón for-
seti, Ethel, Vínland hafa nýskeð selt
afla sinn í Englandi, Jón forseti fyrir
3400 pund, Ethel fyrir 2720 pund og
Vínland fyrir 4500 pund.
Skipstjórarnir Guðm. Sigurðsson
(fyr. skipstj. á Frances Hyde), Jón
Ámason á Heimaskaga, Halldór por-
Blá matrosafet
á drengi, af öllum stærðum, nýkomin i
Brauns Verzlun,
Aðalstræti 9.
Sfúíka
sem kann á ritvél, getur fengið góða atvinnn nú þegar. Tilboð merkt
RITVÉL, sendist litstjóra þessa blaðs, sem fyrst.
Kvöldskemtun
verður haldin í Báruhúsinu annað kvöld (laugard. 17. þ. m.) kl. 81/2
síðd. Til ágóða fyrir fátækan berklaveikan mann hér í bæ.
“TIl skemtunar veiður:
1. Alþm. Bjarni Jónsson frá Vogi: Fyrirlestnr.
2. Hr. Þórarinn Cfuðrnundsson fiðlnleikari: Orkester.
3. Frú Stefanía Gnðmundsdóttir: Upplestnr.
4. Ungfrú Þuríður Sigurðardóttir: Syngur nýjar gamanvísur.
Aðgöngumiðar seldir í Bárunni í dag (laugard.) kl. 10—5 og við
innganginn. Skemtið sjálfum yður vel og gerið bágstöddum gott.
Þetta verðnr bezta og síðasta almenna skemtun vetrarins.
Dans á eftir. — Húsið opnað kl. 8.
steinsson og porsteinn porsteinsson eru
nú allir á leið til Englands með botn-
vörpungunum Ymi og Gylfa. Fór Jón
Áraason með skipshöfn með sér til þess
að sækja nýjan botnvörpung. Hinir
munu hafa farið í þeim erindagerðum
aí líta eftir smíði botnvörpimga eða fá
ný skip.
Mackensen
kemur til Berlin.
Síðan vopnahlé var samið og
Mackensen hershöfðingi varð að
gefast npþ með a'llan her sinn á
Balkan, hafa Bretar haft hann í
haldi suður í Saloniki, þangað til
nú fyrir skemstu, að þeir gáfu hann
lausan og Ieyfðu honum að hverfa
heim til Þýzkalands. — Macken-
sen er nú kominn á láttræðisaldur,
en meðan hann hafði herstjórnina
á hendi, mátti eigi sjá að ©11 i sak-
aði hann. En á þessu eina ári, sem
hánn hefir verið fangi Breta, hefir
hann elzt mjög mikið. — Myndin
hér að ofan sýnir komu hans til
Anhalter Bahnhof í Berlín. Kom
þangað múgur og margmenni til
þess að fagna hinum aldraða hers-
höfðingja, er kemur heim hvítur
fyrir hærum. Mackensen ber öll
æðstu heiðursmerki hins fyrver-
andi keisararíkis, svo sem j'árn-
krossinn stóra, „Pour la merite“
og hinar gullnu einkennisfestar. Á
höfðinu hefir hann hina einkenni-
legu bjarnarskinnshúfu „Dauða-
riddaranna‘ ‘. /
Þýzkaland,
Pegar Bethmann-Hollveg, He’lf-
ferich, Hindenburg og Ludendorff
var s’tefnt fyrir rannsóknarnefnd-
ina í lok nóvembermánaðar s. 1. til
þess að rannsakast skyldi ábyrgð
þeirra á upptökum ófriðarins, þá
komu þessir gömlu fultrúar þýzka
stórveldisins þannig fram, eins og
meðlimir rannsóknarnefndarinnar
væri hinir seku en þeir ekki. Og
þessi framkoma þeirra studdist aug
ljóslega við það að skoðanir þýzku
þjóðarinnar eru að breytast þeim
í vil. Vörn þeirra var aðallega falin1
1 því að sýna »ð framkoma Þýzka-
lands gagnvrt Rússlandi hefði adít-
af stuðst við meiri hluta þingsins,.
og því bæru þeir enga ábyrgð >á
henni. Og sömuleiðis hefði þing og
stjórn samþykt kafbátahernaðinn,
sem átti að ríða Englandi að fullu.
Stjórnmálamennirnir kendu þjóð-
inni nm alt saman, en herstjómin
kendi aftur á móti istjórnmála-
mönnunum um, þar sem þeir hefðu
fengið hernum það óframkvæman-
lega hlutverk í hendur að berjast
við allan heiminn, <án þess þó að
fá þeim þá hjálp, sem til þess hefði
þurft. Stjórnmálamennirnir hafa
nú reynt, ekki einungis að neita
allri þátt-töku sinni í framkvæmd
unum, heldur og jafnframt að
reyna að draga fjöður yfir alt sam-
an með því, að gerst dómarar í
sjál'fs sín sök. Þjóðin er aftur á
móti sárgröm yfir því, að sjá farið
með uppáhaldshetjur sínar eins og
einhverja óþekka skóladrengi og
það af undirmönnum þeirra. pað
er því, eins og nú standa sakir,
jarðvegur fyrir einskonar aftur-
halds-sameiningn í Þýzkalandi, jafn
framt því, að stjórnarfl'okkarnir
eru ósáttir. Þetta er kjarninn í
þeirri byltingu, sem átti <sér stað í
Pýzkalandi undir áramótin.
Höfuðástæðan til ósamlyndisins
innan stjórnarinnar liggur á atvinn
umálasviðinu. Það hefir nú um lang
an tíma verið unnið að lagafrum-
varpi um atkvæðisrétt verkamanna
innan ýmissa atvinnugreina og
stóriðnaðar. Einkum er það 34. gr.
í lagafrumvarpinu sem miklum
vafningum veldur. Samkvæymt
henni áttu verkamenn rétt á að hafa
2 menn í stjórn hv ers fyrirtækis
og iðnaðarreksturs. Sömuleiðis áttu
öll at vinnufyrirtæki, sem höfðu 50
verkamenn í þjónustu sinni, að
’leggja fram sundurliðaðan ársreikn
ing og ennfremur áttu verkamenn
að fá mikla hlutdeild í ráðningu og
uppsögn verkamanna. „Demokrat-
ar‘ ‘ eru á móti simdurliðuðum árs-
reikning. Sumir flokkar móti hlut-
töku verkamanna í ráðningu og
uppsögn, en frjálslyndi flokkurinn,
sein áður studdi jafnaðarmanna-
frumvörpin, villl ekkert með það
liafa að verkamenn hafi þátt-töku
í stjórn og fyrirkomulagi. Þó hafði
er síðast fréttist einhver miðlunar-
vegur átt sér stað, sem ekki var
ólíklegt að yrði gengið inn á. par
að auki kom þama til greina, í ó-
sættinni, utanríkismálin, og sérstak
lega sú krafa bandamanna að Þjóð-
verjar skiluðu 400.000 tonns af
ýmsum hafnarvirkjum, sem sést
hefir í erlendum skeytum. En nú
hafa þeir fengið það lækkað niður
í 300.000, mest vegna þess, að Þjóð-
verjum tókst að sýna bandamönn-
um fram á, að slík krafa, gerði
þeim enn örðugra fyrir en áður að