Morgunblaðið - 28.01.1920, Side 4
4
MORGUNBLABIÐ
Tuxham mótorar
Fyrir báta og skip, einnig land-motoi a með 1 — 2 — 3 og 4 cylin-
dere; stærð 7 til 240 hestöfl.
Tvixham rafmagnsmótorar' ljósamötorar) stærð 4—140 hestöfl,
með viðtengdnm dynamo á steyptum járnstalli. Tuxham færanlegir
landmótarar (uppsettir á 'þar til gerðnm járnvögnum fjórhjóluð-
um) eru hentugir við ýmsa landvinriu og til affermingar á skipum,sem
ekki hafa gufu- eða mótorspil. Tuxham mótorar eru: endingarbezt
ir, eyða minstu, auðveldastir og ábyggilegastir allra mótora.
Tuxham mótorar eru viðurkendir af Öllum sem hafa reynt þá, að
vera hinir heztu, sem enn þá hafa komið til íslands, enda hefir mikið
meira komið hingað af þeim nú i*pi> á síðkastið, heldur en öllum öðr-
um mótortegundum til samans, og það eitt ætti að nægja til þess að
sanna yfirburði þeirra fram yfir aðra mótora.
Leitið upplýsinga um Tuxliam mótorinn hjá okkur og þeim, sem
hafa notað hann.
Umbóðsmenn út um land óskast hið fyrsta.
Aðalumboð fyrir Island:]
Haraldur Böðvarsson & Co. h f.
Reykjavik. Skrifstofa Suðnrgata 4.
Simi 59. Simnefni Export Pósthólf 373.
Overland-bifroið
model 90, sem ný, til sölu nú þegar. Upplýsingar í verzlan Jóns J >ns-
sonar frá Vaðnesi. Simi 228.
Ef þér viljið fá góðan bíl af þessari tegund, þá komið i dag — á
morgun getur það verið of seint.
„Barreff'4
er óefað sú fullkomnasta og einfaldasta reikningsvél sem hægt er að fl
Sýnishorn fyrirliggjandi.
fí.f. Tírníjólsstm & Jónsson,
Tiyggvagata 13. Simi 384.
<z DA6BÓK =J
Reykjavík logn, hiti -4- 8.8
Ísafjörður n. kaldi, hiti -4- 6,7
x. kureyri n.n.v. andvari, hiti -4- 6,3
Seyðisfjörður n.v. kul, hiti -4- 10,0
Grímsstaðir logn, hiti -4- 10,5
Vestmannaevjar logn, hiti -4- 3,0
Þórshöfn s. kaldi, hiti 3,0.
Töluvert af heilagfiski barst til bæj-
arins í gærmorgun. Fengu þó færri en
vildu bita af þeim ágæta mat.
Nidaros, aukaskip Sameinaðafélags-
ins, fer frá Kaumannahöfn 3. febrúar.
Gullfoss kom í gær frá útlöndum.
Farþegar voru Sveinn Björnsson hæsta-
ráttarmálaflutningsmaSur, Jakob Möll-
er ritstj., J. Fenger stórkaupm., frú
Margrét Zoega, frú Jaeobsen, Courmont
konsúll, Friðbj. ASalsteinsson loft-
skeytastöðvarstj. o. fl.
Skemdirnar á Undine. Skemdir þær,
sem orðið hafa á skipinu við strand þess
cru svo miklar, að ekki eru tiltök a‘ð þa'ð
’haldi áfram til Dýrafjarðar. Hafði kaf-
ari fundið glufu svo stóra, að nauðsyn-
leg er viðgerð. En hún kvað vera fram-
kvæmanleg hér. Saltið kvað eitthvað
hafa skemst í einni lestinni.
Fermingarbörn síra Jóhanns Por-
kelssonar komi í kirkjuna fimtudag kl.
5 og fermingarbörn síra Bjarna Jóns-
sonar föstudag kl. 5.
Danskur þingmaður
látinn.
Fyrir rúmxtm mánuði lézt einn af
helztu jafnaðarmönnum Dana, Sig-
vald Olsen, þjóðþingsmaður. Hann
var fæddur 185Aeg faðir hans var
skóari. Eftir fermingu átti dreng-
urinn að læra járnsmíði og byrjaði
á því, en slasaðist og varð að hætta.
Gerðist hann þá vindlagerðaimað-
ur og dvaldi um hríð í Þýzkalandi.
Sigvald Olsen.
Kyntist hann þar skrifum Lasálles
og gerðist jafnaðarmaður. Þegar
hann kom aftur heim til Danmerk-
ur, safnaði hann öllum starfsbræðr-
um éiínum í tóbaksverksmiðjum í
félag og hann var einn af aðal-
mönnunum í því, að stofna jafnað-
armannaflokkinn í Danmörku. A
þing var hann kosinn í Kaupmanna
höfn 1895 og hélt því sæti til dauða-
dags. Hann var einn af frumkvöðl-
um þess, að verkamenn stofnuðu
sitt fyrsta samvinnufélag, „Félags-
brauðgerðina“, og hann var for-
stjóri verkamanna-ölgerðarhússins
„Stjemen“, sem nú er orðið mjög
arðsamt fyrirtæki.
Ekki þótti Sigvald Olsen neinn
þingskörungur; enda var honum
rajög stirt um mál. En hann var
manna samvizkusamastur og hrein-
lyndastur og hafði því mikið álit á
sér, bæði innan jafnaðarmanna-
flokksins og utan hans.
Austurriki hjálpað.
Matvæli til aprílloka.
Með samningum við yfirráð
bandamanna fékk Renner, ríkis-
kanzlari í Austurríki, því til vegar
komið seint í desember, að banda-
menn lofuðu að hjálpa Austurríki,
fyrst með því, að senda þangað
30,000 smálestir af komi, sem lágu
í Triest, og ennfremur með því, að
gera það að skilyrði fyrir 'lánveit-
ingu til Jugo-Slava, að þeir sendi
mjatvælli tií Austurríkis. Er talið,
að þetta verði nóg til þess, að fæða
A usturríkismenn fram til apríl-
loka, ’hvað sem þá tekur við. Þá
gerðu og bandamenn tilslakanir frá
friðarsamningunum í St. Germain,
þannig, að þeir gefa Jausar ýmsar
austurríkskar eignir, sem stjórnin
getur nú sett að veði fyrir nýjum
lánum.
-------00-----
Þýzka blaðið „LokaIanzeiger“
kemur nýlega fram með þá uppá-
stungu, að skattskylda alla útlend-
inga í Þýzkalandi, viðskiftarekend-
ur líka, ef þeir dvelja lengur en
viku í landinu. Og skatturinn á
ekki að vera neitt smáræði, eftir
uppástungu blaðsins, 10—20 mörk
á dag. Blaðið hyggur, að um ein
mi'ljón útlendinga sé í Þýzkalandi
altaf til .jafnaðar, og því telst svo
til, að þó það verði ekki nema
helmingur þeirra, sem greiðir skatt,
þá muni ríkissjóður þó fá 5'miljón-
ir rnarka á dag, eða rúmlega 1%
miljarð á ári. i
,Todd’ chock wrilor,
er ómissandi fyrir alla þá sem nota tjekkávlsanir.
Sýnishorn fyrirliggjandi.
H.f. Arnljótsson & Jónsson
Trvggvagata 13. Sími 384.
Tilkynning
frá
H.f. „Isaga“, Rauðarárstig.
Fiskidufl mefi blinkljósi hefir verið lagt út til sýnis vestantil á höfn-
inni. — Er það ómissandi áhald fyrir alla trawla'a, mótorskip og önnnr
fiskiskip.
Upplýsingsr á skiifstofu h.f. »Isaga«, sími 166.
Sælgætið
Alþýðublaðið hirtir fyrir nokkru
grein eina, sem það hefir snapað
upp úr „Thc Times Weekly“ og er
nýárskveðja Bolsivika, jafn skríls-
leg og æsingaþrungin og alt annað,
sem frá Bolsivikum kemur.
Blaðið nefnir greinina „Móður í
Bolsivikum“ og finst auðsjáanlega
eins mikið til um hana og hún væri
guðleg opinberun. Alt skrílshróp og
hyltingaæsingar þessara blóðþyrstu
m.anna, Bolsivikanna, er hið mesta
sælgæti þessa blaðs. Það hampar
hátt á iofti hverri fregn af gerðum
þeirra, eins og þær væru hin dýrð-
legustu mannúðarverk.
En þessi nýárskveðja Bolsivika,
sem þeir sendu út frá loftskeyta-
stöðinni í Moskva, er auðvitað ekk-
ert annað en sigurfögnuður yfir
nnnimi ‘hermdarverkum og nýjar
hótanir um framhald þeirra. Þeir
hylla þarna í þessari kveðju með
tryllingsfögnuði, heimsbýltinguna,
sðm mannkyninu gervöllu er nú að
blæða fyrir, og á eftir að blæða enn
um ófyrirsjáanlegan tíniíf. Þeir spá,
að þeir muni ná völdum meðal allra
stærstu menningarþjóðanna. Þeir
segja, að hið síðasta ár bafi verið
sigurár fyrir verkalýðinn. En þeir
geta ekki um, bvað mörg mannslíf
þeir hafi á samvizkunni, hvað mikil
hafi verið rán þeirra og spellvirki,
og hve grimd þeirra og villidýrs-
háttur hefir s'ett mikinn blett á alt
mannkynið. Þeir segja alla herfor-
ingja keisarasinna horfna úr sög-
unni fyrir þnngum höggum rauða
hersins. En þeir láta þess ekki getið
að þeir liafa breytt keisaradæminu
í sannkallað helvíti. Þó margt væri
að á RúSsIandi meðan það var keis-
aradæmi, þá var þar ekki önnur
eins kúgun, hörmung og hlóðug
manndráp, eins og Bolsivikar hafa,
gróðursett þar. Nú er það suudur-
limað, ósjálfbjarga ríki, sem getur
ekki hrist af sér þessa drottinsvik-
ara, Bolsivikana.
Hótanir og nýjar ógnanir frá
þeirra hendi vrðist því ekki vera
nein gleðifregn. En Alþýðubl. tek-
ur alt slíkt tvcimur böndum og hef-
ir lengi gert. Bolsivikaógnir og
stefnuskrá þeirra hefir alt af verið
því mesta sælgæti.
Skúfasilkiö
margeftirspnrða
nýkomið I verzlnn
Guðai. Olsen.
Notið
NJÁLSTÖFLUR
við hósta og hæsi.
Kafflstell, Súkkulaðistell
og ýmsar fleiri glervðrnr.
Nýkomið I verzlnn
Olafs Amundasonar,
Langaveg 24.
MATSVEINN.
Vanur matsveinn óskar cftir
góðri atvinnu nú þegar, helzt á
trollara. A. v. á.
Hermannakirkj ugarðar.
Eftir styrjöldina má hér og þar
sjá, þar sem orustur voru háðar, ný
myndaða kirkjngarða. Þar eru
grafnir hermenn þúsundum saman.
Stærsti kirkjugarðurinn er í
Frakklandi í héraðinu Romagne.
Þar eru 'grafnir yfir 21,500 ame-
rískir hermenn. Og svo mikil er
aðsókn þangað af Ameríkumönn-
um til þess að sjá grafir ástvina
sinna, að þar hefir verið hygt gisti-
bús, og hefir ameríska deild„Rauða
krossins“ útbúið það með húsgögn-
um og öðrum þægindum.
Næst stærsti kirkjugarðurinn er
hjá Thiaucourt, þar eru 4200 graf-
ir. Hinir hafa þetta 3500 og 2500
grafir.