Morgunblaðið - 24.02.1920, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ
3
Kálfskinn
gallalaus, hert og órökuð, kaupa íyrst um smn
0 Fríðgeírsson & Skúíason.
Bankastræti n. Sími 465.
Nvkomin
«
sýnishorn af fjölbreyttum enskum vefnaðarvörum.
0. Friðgeirsson & Skúiason.
Bankastræti 11. Sími 465
^DanslaiRur.
íþróttafélags Reykjavíkur verður haldinn í Iðnó laugardaginn 28.
febrúar kl. 9 síðdegis.
Aðgöngumiðar kosta 10 kr. fyrir parið og 6 kr. fyrir einstaka.
Pélagsmenn þeir, sem ætla sérað taka þátt í dansleiknum, leggi
miða inn í Bókaverzlun ísafoldar með árituðu nafni sínu fyrir mið-
vikudagskvöld. Aðgöngumið verða síðan afhentir á sama stað á fimtu-
dag.
Hverjum félagsmanni er heimilt að taka með sér eiim gest, en
verði rúm fyrir fleiri þátttakendur, geta félagsmenn fengið vitneskju
um það er þeir sækja aðgöngumiða sína.
Seld verður aðeins fyrirfram ákveðin tala aðgöngumiða, og ef
ekki verður rúm fyrir alla umsækjendur ganga þeir fyrir, sem fyrst
koma.
FRAMKVÆMDANEFNDIN.
BARNA8KÓLINN
tekur aftur til ssarfa miðvikudag 25. febr.
Morten Hansen.
Siðprúður piltur getur fengið
gott fæði á góðum stað. A. v. á.
KONA
óskast til að gera hrein 2 skrif-
stofuherbergi. Uppl. á skrifstofu
Rafveitu Reykjavíkur, Laufásveg
16.
Siglingar til Gautaborgar
Bjarni Jónsson frá Vogi bér fram
frumvarp um það að ríkisstjórninni
heimilist að verja af ríkisfé alt að
30000 kr. til þess að styrkjia beinar
skipaferðir milli íslands og Gauta-
borgar, gegn að minsta kosti jafn-
miklum fjárstyrk frá sænska rík-
inu, þar sem slíkar skipagöngur
mundu auðveldia mjög sölu á þeim
íslenzkum afurðum, er Svíar kaupa,
svo sem síld, kjöti og ull.
-------o-------
,Portland‘ sokkið.
Þýzkur
botnvörpungmr sigldi á skipið.
kyrir nokkru seldu bræðurnir
Proppé þilskipið „Portland“ til
Færeyja. Var skipið afhent kaup-
andanum í Stykkishólmi í fyrra
manuði, cn iskipstjóri sigldi því
hingað fyrir kaupandann.
Fyrir hálfum mánuði lagöi skip-
ið á istað héðan áleiðis til Þórshafn-
ar. Á þeirri leið sigldi þýzkur botn-
vörpungur á skipið Og sökk þag
þegar, en það tókst að bjarga öll-
nm skipverjum. Þeir voru allir
Færeyingar og kom botnvörpung-
unnn með skipbrotsmennina til
Þórshafnar á laugardaginn.
Kútter Portland var gamalt skip
en traust. Það var 60 smiálestir að
stærð.
Isle/tzk myntslátta.
Bjarni Jónsson frá Vogi ber fram
frumvarp um það að ríkisstjórn-
inni sé heimilt að setja á stofn sér-
staka, íslenzka peningasláttu og
verja til þess fé úr ríkissjóði, svo
sem þörf er á, eða taka lán í því
skyni.
1 greinargerð isegir svo:
Um gengi myntar mun mestu
ráða hlutfallið milli aðfluttrar og
útf luttrar vöru. En þessu er ekki til
að dreifia hjá oss, vegna þess að vér
notum enn danska mynt, en gengi
hennar í þeim löndum, er vér eigum
mest skifti við, er lágt, eins og
kunnugt er. Verzlunarjöfnuður
hins íslenzka ríkis virðist, sam-
kvæmt reynslu undanfarinna ára,
vera mjög hagkvæmur, en hins veg-
ar er alt öðru máli að gegna um
Danmörku. Þar eru lilutföllin alt
önnur í þessu efni en hér og iand-
inu óhagstæðari. Er engu sýnna en
að gengi 'hinnar dönsku myntar
muni enn lækka að miklum mun,
og það svo, lað oss muni geta af
staðið hinn mesti fjárhagsvoði. Á
þessiun byltinga- og breytingatím-
um er eigi fyrir það að synja, að
sá voði geti á skömmum tíma að
oss steðjað, og því virðist brýn
nauðsyn bera til, að ríkisstjónl-
inni sé veitt heimiid sú, er frum-
varp þetta fer fram á. En til þess
er að sjálfsögðu ætlast, að stjórnin
rannsaki hið allra bráðasta alt, er
að þessu rnáli lýtur. Vilji stjórnin
neyta heimildarinnar, leiðir það og
af sjálfu isér, að hún lætur áður
fram fara samninga þá við Noreg
og Svíþjóð, sem 9. gr. dansk-ís-
lenzkra sambandslaga gerir ráð
fyrir.
<z DA68ÓK =>
Edda 59202246% — 1.
Heirn frá Ameríku kom tiíú með ís-
landi Páll porvarðsson múrari ásamt
konu og barni. Hefir hann dvali'S 6 ár
vestra en hygst nú að setjast hér að
fyrir fult og alt.
Nidaros fór kl. 9 í gærmorgun beina
leið til Færeyja og Ivaupmannahafnar.
Farþegar voru þessir: A. Obenhaupt,
H. Börsen, O. Johnsen, Árni Riis, E.
Hemmert, Guðm. Hlíðdal, Carl Han-
sen, S. Zetterlund, Gunnar Sehram,
porleifur GunnarssOn, Elías Hólm, Ottó
Bj. Arnar, Ýlling Steini Helgason, Jón
Pórðarson, Robert Hansen og kona hans
Finnbogi porvaldsson, Olav Hope,
Kristín Thoroddsen, Jóhann porsteins-
son kaupm. frá ísafirði og dóttir hans,
Ólafur Jóhannesson konsúll og sonur
hans.
Síldarlcaup þingmanna. Á fundi neðri
deildar alþingis í gær las forseti upp
tilkynningu frá Stefáni Stefánssyni
þingmanni, um það að þeir þihgmenn,
er vildi afla kjördæmum sínum fóður-
síldar, skyldi gefa sig fram við for-
mann landbúnaðarnefndar.
Gullmál íslandsbanka. Frá Jóni Dúa-
syni hefir þinginu borist álit um það
mál og var það álit lagt fram á lestrar-
sal í gær.
Samkomubannið upphafið. í dag er
upphafið samkomubannið, sem fyrir-
skipað var hér í bænum vegna spönsku
veikinnar, eða ótta við hana. Sem betur
fer mun mega telja áreiðanlegt, að veik-
in hafi ekki borist til bæjarins og allir
eru nú frískir, þeir sem einangraðir
voru, eða að minsta kosti sýnt, að þeir
hafa ekki inflúenzu.
TJngfrú Kristín Thoroddsen hjúkrun-
arkona var meðal farþega á Nidaros,
og er liún á leið til Valparaiso í Chile.
--------0--------
Gjafir til Samverjans
Kaffigestir á bolludaginii 38,95.
Jón Laxdal 100 kr. N. N. 10 kr. G.
£ kr. Á. 5 kr. Kona 5 kr. Kaffigest-
ir (úr vélskólanmn) 40 kr. Áheit
(G. H. B.) 5 kr. G. E. 3 kr. Jóhann
15 kr. N. N. 10 kr. Afhent Vísir
15 kr. Jósep G. Elíasarson, Signý-
arst. 20 kr. Kaffigestir 10 kr. Áheit
5 ltr. Kaffigestur 2 kr. K. P. 20
’kr. Ónefndur 300 kr. Kaffigestir
5,50 kr., 2 kr. og 6 kr. D. Bernhöft
200 bolllur. Sig Gunnlaugss- 100
bollur. Frú Símonarson 35 bollur.
Skjaldbreið 1000 bollur. C. Proppé
ein tuuna saltkjöt.
Kærar þakkir.
21. febrúar 1920
Har. Sigurðsson.
Skipaskoðun.
Eftirlit með skipum og bátum
og öryggi þeirra.
Eitt af hinu marga sem fylgir
sjálfetæði íslands er að skipaskoð-
un sú, er hér verður framvegis gerð
sé svo nákvæm og fullkomin, að
aðrar þjóðir viðurkenni hana, taki
það gilt sem hér er gert á því sviði
og geti ekki haft átyllu til að kref j-
ast þess, að þau skip, sem hér hafa
fengið skoðunarvottorð séu skoðuð
erlendis, þótt þau eigi að flytja eem
farþega 1—2 erlenda merin. Til
þess að skoðun skipa geti hér farið
fram að sið og nákvæmni annara
þjóða er nú unnið að reglugerð til
að fara eftir.
Stjórnarráðið hefir skipað nefud
manna til þess að vinna þetta verk
og e.r því flýtt sem kostur er á.
Nefnd þessa skipa: skólastjóri
Páll Halldórsson, verkfræðingur
Th. Krabbe, vélfræðingur Ólafur
Sveinsson og ritari Fiskifélagsins
Sveinbjörn Egilson.'Auk þess vinna
að reglugerð jiessari, prófessorarnir
Guðm. Finnbogason og Sigurður
Nordal.
Nokkrar breytingar við núgild-
andi lög um skoðun skipa hefir
nefndin sent alþingi og .eru þær
breytingar í samræmi við þá reglu-
gerð, sem unnið er að.
Eitt nýmæli er þar, sem vert er
að geta um, og er það yfirskoðun-
armanns embættið. Nefndin hefir
ályktað svo, að nauðsyn bæri hér
til jafnt og í öðrum löndum, að
einn j-firskoðunarmaður hefði um-
sjón með gerðum og framkvæmd-
um hinna annara skoðunarmanna
landsins, að hann ferðaðist til eftir-
lits og leiðbeininga til þeirra staða
á landinu, þar sem skoðunarmenn
væru skipaðir, og áleit að með þess-
um hætti kæmist betra samræmi og
samvinna á milli skoðunarmanna
landsins.
Skoðun skipa eftir reglugerð-
: jnni verður dýr, þegar miðað er við
gamla taxtann, en segjum að hún
kostaði um 30,000 kr. á ári og að
aðeins einum mótorbát af þeim 700,
sem nú eru í landinu væri með
góðri skoðun, bjargað frá að hverfa
með allri áhöfn, þá er ábati en ekki
halli það árið.
Öllum þjóðum ber saman um það,
að nákvæm skipaskoðun sé nauð-
feynleg og rneira og meira er hert
á eftirlitinu og alt miðar þetta að
því, að tryggja betur líf og eignir
manna. Á hvaða stigi stöndum við
hér, þegar um öryggi á sjónum er
að ræða? Hér er ekki svo langt
komið, að lög séu til, sem banni
mönnum að ferma svo báta sína,
að eltki sé annað sýnilegt en að tjón
bljótist af. Enginn hefir vald til að
stöðva bát, sem svo er hlaðinn fólki,
máske í langferð, að skipverjar
hafi hvergi nærri það rúm á skipinu
sem heimta má til þess að koma
fyrir seglum eða vinna annað, er
geri ferðina greiða og örugga, og
þessir menn, sem standa fyrir slíku
ferðalagi takast á hendur og hafa j
ábyrgð á að fcoma vátrygðum vör-
um og fólki því, er trúir þeim fyrir
sér, áleiðis. Ættu því lög um sektir,
sem um munaði, hið bráðasta að
koma og ekki aðeins sekta þá, sem
fara ofhlaðnir vörum eða fólki frá
einhverri höfn, lieldur einnig þá,
sem þannig koma annarstaðar að,
svo að þeir sjái og finni, hvað það
gildir, að tefla með líf og heilsu
manna og það annað, sem þeim er
trúað fyrir að flytja. Hleðslumerki
á skip og lög sem banna að flytja
nokkuð það á skipum eða bátum,
sem eykur þá hættu, sem öllum sjó-
ferðurn fylgja, verða að koma hér.
Við lieyrum svo oft um slys á sjó
og svo mörg heimili eru snortin af
þeim sorgar viðburðum, að allir
ættu að vera með tillögu þessari, en
ekki móti, ekki aðeins fulltrúar
Ný regnkápa
til sölu með íækifærisverði
A. v. á.
Glitofnar ábreiður
eða
vil eg kaupa.
Vilh. Finsen, ritstjóri.
Nýkomið allskonar
BLÓMSTURFRÆ
og
MATJURTAFRÆ
Marie Hansen
Sími 587. Bankastr. 14. Sími 587.
BEGONIUHNÚÐAR
ANIMANER
RANUNKLER
GLADIALES
LILLIER
í fl. litum,
nýkomið í stóru úrvali.
Marie Hansen
Sími 587. Baukastr. 14. Sími 587.
2 Hús
til söln á Siglufirði, laus til íbúðar
15. maí n. k. Mjög lágt verð ef sam-
ið er strax við Sigfús Ormsson,
Bjargarstíg 4, Hafnarfirði, eða
kaupmann Sigurð Kristjánsson,
Siglufirði.
Til Hafnarfjarðar.
fer mótorhjól. — Tekur farþega og
flutning. — Slmi 586.
Tytteber
aðeins 40 aur. J/» kilo í verzlun
Einars Árnasonar.
þjóðarinnar á alþingi, heldur allir
landsmenn.
Við verðum nú sem sjálfetæð
þjóð að vanda okkur meira en gert
höfum, því framvegis munu aðrar
þjóðir athuga betur gerðir okkar
en áður og þær verða gagnrýndar.
Allir verða að lúta því, hvort líkar
betur eða ver, sem getur orðið tiL
þess að setja okkur 4 bekk með öðr-
um menningarþjóðum heimsins,
þótt þjóðin sé fámenn. SpiiLing
heimsstyrjaidarinnar hefir ekki náð
hingað og enn erum við menn með
lieilbrigða sál í hraustum iíkama.
Sýnum okkur þannig.
Reykjavík 11. febrúar 1920
Sveinbjöm Egilson.