Morgunblaðið - 30.05.1920, Síða 1
Sigfús Slðndahl & Co.
IHeildsala — Lækjargötu 6 B.
Aluminium vörur (katlar pottar/skeiðar, gafflar o. s. frv.
li Emaleraðarf do. (feikna úrval).
Ilmvötn &jHárvötn[( do. ) (þýzk, ensk, frönsk),
Vatnsfötur (stórt úrval í”28—30—32 cm.)
9 Herra slifsi (feikna úrval)
Silki & Flauel (stórt úrval)
Postulinskönnur (feikna úrval)
“y Hakar & Skóflur
Verkmanna slitbuxur
do. nœrbuxur
I Verkakvenna millipils (niðsterk)
Ghlorodont tannpasta (mjög ódýn)
Pebecco tannpasta (mjög ódýrt)
Gigarettuveski (feikna úrval).
Góðar vörurí Smehhíegar vörur!
Lægsta verð í borginni.
Sími4720. Sími 720.
7. árg., 170. tbl.
Mary Piekford
Vegir ástarinnar
verður sýnd ennþi í kvöld
kl. 6, 71/* og 9.
Aðgöngumiðar seldir í Gl-
Bíó kl. 2—4, en ekki tekið á
móti pöntunum í síma.
SlésYÍkDrmSlið
Snðnr-land unterin ábveðin
Khöfn, 26. maí.
Sendiherrasamkundan hefir tekið
ákvarðanir um Slésvíkurmálið og
landamæri Danmerkur. Lítilfjörleg-
ar breytingar voru gerðar á „Claus-
enslínunni“. Annað atkvœðahérað
l'ellur undir Þýzkaland.
Verófaíí i ÞÓzhafandi.
Khöfn 26. maí
Frá Berlín er síraað, að verðfall
breiði.st út þar og' kaupmenn og
sveitafélög verði fyrir miklu fjár-
tjóni. Sumar nauðsynjavörur liafa
fallia alt að því um helming.
Baðmnll fellar i yerði,
Khöfn 26. maí
Wolffs fréttastofa segir þær
íi'éttir frá Amsterdam, að baðmull
að falla í verði.
— 1 — —
Landamæri Letta.
Khöfn 26. maí
ei'u nú sögð ákveðin á friðarfund-
imun í Moskva, cn fjárhagsatriði
samninganna eru enn óútkljáð.
Lettland verður 70 þús. ferkíló-
metrar að s'tærð.
Landamæri Litliáa,
Khöfn 26. maí
Samningarnir við Rússa um
l.mdamæri Litháa, liafa strandað í
bráð.
Ásælni Pólverja.
Pilsudski forseti Pólverja og Pet-
ljura fyrverandi einræðismaður í
Ukraine gerðu fyrir skemstu
bandalag sín í milli og eftir það
hófst sókn Pólverja á bendur Búss-
um og Ukraine. Og þeir náðu Kiew,
höfuðborg Ukraine — tóku Ihana
herskildi.
Petljura varð fyrstur manna til
þess að hefjast lianda um það, að
Ukraine segði skilið við Rússland
og yrði sjálfstætt ríkj og 1919 var
liann eigi aðeins orðinn ríkisstjóri
hinjg rússneska Ukraine, heldur
hafði hann einnig stofnað ukrainskt
lýðveldi í Austur-Galizíu. En með
því hafði hann ýft upp fjandskap
milli Póllands og‘ Ukraine, því að
Pólland krefst þess að fá a 11 a.
Galizíu, hvað sem þjóðemi íbúanna
þar líður. Vegua þessa urðu Pól-
verjar honum þungir í skauti og
þegar einnig reis upp fjandskapur
Sunnudag 30 maí 1920
milli hans og Denikins, sá hann
þann kost vænstan að kasta tign
sinni og flýja — til Póllands.
Reyndi hann fyrst að fá Pólverja
til þess að hjálpd Ukraine og afsal-
aði þá Pólverjum öllum hinum
ukrainska hluta Galizíu. Og nokkru
síðar er hann kominn til Kiew aft-
ur, en að þessu sinni í för með erki-
óvinum Ukraines.
Þessi iierferð Pólverja er með al-
veg sama marki eins og þær styrj-
aldir, er háðar voru þarna fyrir
mörgum öldum og tilgangurinn er
hinn sami.
T austurhluta Evrópu eru fljóts-
hverfi, ef svo mætti að orði kveða.
Amiað er hjá Moskva, hitt í Pól-
landi hjá Warschau og Krakau.
Hjá Moskva eiga þrjár stórár upp-
tök sín 0g skamt á milli: Dwina,
hún rennur í Eystrasalt, og hjá
ósum hennar hafa Lettar stofnað
sjálfstætt ríki; Djnpr, hún rennur
suður í Svartahaf og meðfram
lienni búa Ukrainar; Volga, hún
fellur í Kaspiahaf og rennur um
Rússland. í vestra. fljótshverfinu
eiga upptö'k sín Weichsel-árkerfið,
sem fellur til Eystrasalts, og
Djnstr-árkerfið, sem fellur til
Svartahafs. Það er ekki nema eðli-
legt að í þessum fljótshverfum eða
fljóta-miðstöðum hafi risið upp
stórar borgir.
Þegar þessa er gætt, verður
manni fvrst ljóst, hvernig stendur
á fyrri alda styrjöldum milli Pól-
verja og Rússa. Bæði ríkin hafa
viljað ryðja. sér braut til hafs eftir
fljótavegunum, sem byrjuðu lijá
þeim. Rússar hafa viljað eignast
Dwina og Dnjpr fram til ósa og
þar með borgirnar Riga og öherson.
Pólverjár hafa viljað eignast
Weichsel og Dnjstr fram til ósa og
þar með borgimar Danzig og Od-
essa. En þrátt fyrir þetta virðist
svo, sem hagsmunir þessara ríkja
þyrfti eigi^ að rekast á, því að hvort
ríkj hafði sérstakar ár til þess að
þræða sér braut til hafs. En þá ber
þess að gæta, að í Dnjpr falla marg
ar ár, sem eiga upptök sín svo vest-
arlega, að telja má, að þau upptök
sé í pólska fljótshverfinu. Það má
kalla, að Dnjpr tengi saman War-
schau og Moskva. Og skamt norðan
við þetta árkerfi á Njemen upptök
sín. Hún fellur til Eystrasalts og
umhverfis hana hefir Lithaugaland
verið stofnað.
Þegar þessa er vandlega gætt,'
hvernig þessi tvö fljótshverfi eru
samtengd af ótal rninni ám, þá skil-
ur maður fyrst til fulls ástæðurnar
til rússnesku og pólsku styrjald-
anna. Þegar Rússar ætluðu að kom-
ast til Svartahafs eftir Dnjpr, urðu
þcir eigi að eins að sigra Ukraine,
heldur einnig að verjast Pólverjum
og Lithaugalandsmönnum, sem
komu -eftir hliðarám Dnjprs að vest
an og vildxi brjóta sér leið til
Svartahafs. En jafnframt þessu
áttu og Pólverjar og Lithaugalands
rnenn í ófriði vegna þess að báðir
sátu við það árkerfi, er fellur í
Dnjpr.
Pyrir 400 árurn var uppgangur
Pólverja sem mestur. 1501 lögðu
þeir Lithaugaland undir sig,
nokkru síðar Letland og suður á
bóginn ruddu þeir sér braut til
Dnjprs og enn leugra. Og einni ölcl
síðar voru þeir komnir svo langt,
að pólski ríkiserfinginn var gerður
að stórfursta áf Moskva. Var þá
ékki annað sýnna, eu að Pólverjar
myndi eignast hvorttveggja fljóts-
hverfið.
Én Rússar ráku fljótt pólska
krónprinsinn af liöndum sér og
litlu síðar settist Romanov-ættin í
'hásæti Rússlandjs. Eftir það viar
smátt og smátt þröngvað kosti
Pólverja unz skapadægur þeirra
kom árið 1795. Þá var Póllandi
skift rnilli Rússlands, Prússlands
og Austurríkis. Pejigu Rússar þá í
sinn hlut alt Dnjprs-árkerfið hæði
í Póllandi og Lithaugalandi (Nje-
men-árkerfið).
Því miður var þetta gert af tak-
markalausum yfirgangi. Rússland
varð eigi samband frjálsra og jafn-
'réttliárra ríkja, er hagnýttu sér
fljótaleiðirnar í félagi, heldur var
hinu mikþj/ríki haldið saman með
grimd og liarðneskju, og framandi
þjóðflokkar hneptir í ánauð.
Um leið og heimsstyrjöldin hófst,
byrjaði hið tröllaukna rússneska
ríki að riða. Pólverjar kröfðust
þess undir eins að verða sjálfstæð-
ir. Þýzkaland og Austurríki hlésu
,að glæðunum til þess að veikja
Rússland, en bjuggust ekki við því
að þau myndi sjálf verða að láta
hin pólsku héruð sín af höndum.
Og Þjóðverjar gengu lengra. Þeir
sneiddu Letland, Eistland og Lit-
haugaland af Rússlandi og var þá
Austur-Evrópa alveg -eins að landa-
skipun og hún hafði verið fyrir
1501. Þar eru mörg sjálfstæð ríki,
sem þegar eru farin að berjast um
fljótavegina. Pólverjar eru atkvæða
mestir eins og fyrrurn og eru nú
komnir til Dnjpr sem ,,bjargvætt-
ur“ Ukraine. Þeir ætla sér að ná
Odessia, og Danzig hafa þeir sarna
Isafoldarprentsmiðja h. f.
.......... NÝJA Bló
I heljar skoíreyk
Ameríkskur sjóqleikur
í 3 þáttum.
Aðalhlutverkin leika hinir nafn-
toguðu leikendur:
Tom Mix og Bessle Eyton
Það er tilkomnmikið að sjá hvern-
ig »sléttubörnin« þeysa á Ijón-
tryltum fákum yfir hvað sem
er, og að sjá orusturnar miklu
milli Iudíána og ferðafólksins,
sem jafnan eiga þessa tryltu en
gjörfulegu vikinga yfir höfði
sér úti í óbygðum Ameríku.
Hér tekur hvert atriðið áhrifa-
meira við af öðru og með si-
vaxandi á h u g a munu menn
fylgja þessum tryJlingsleik.
Sfml 817 Sfmi 817
Nýkomið
Síldarnet, lagnet, reknet,
Manilla,
Stálvír,
Grastóg,
Arar, allar stærðir,
Kompásar,
Nátthús,
Blakkir alls konar,
Lausliakar,
Ræði,
Málningarvörur alls konar.,
Törrelse, Terpentína,
Fernisolía, Penslar,
Peysur, enskar,
Verkamannaskyrtur,
Sjómannaskyrtur,
Sportkápur, skálmar,
Gúmmíkápur, mjög ódýrar,
SJÓFATNAÐUR aJls konar,
Síðstakkar, enskir, norskir,
Olíukápur,
Olíubuxur,
Olíusvuntur,
Sjóhattar,
Skálmar,
Stuttstakkar,
Síðkápur.
Þesar vörur fáið þið ódýrastar og
beztar í
V eiöarf œr aver sluninni
Geysir
Hafnarstræti 1.
sem fengið. En jafnframt hafa Pól-
verjar lagt undir sig suðurhluta
Lithaugalands og upptök Njemens
0g þar með varnað því, að Lit*
haugaland komist að Dujpr-
Það varð fögnuður um víða ver-
öld er Pól'land 'fékk frelsi sitt aft-
ur. Eu það virðist svo, sem Pólverj-
ar hafi ekkert lært af reynslunni.
Þeir eru svo sem ckki að hugsa um
að sameina það sem pólskt er, held-
ur krefjast þeir þess, að Pólland
verði aftur jafnstórt og þá er þáð
var stærst, þrátt fyrir það þótt með
því sé gengið á rétt annara þjóð-
fiokka, Þeir vilja eigi að eins fá