Morgunblaðið - 30.05.1920, Qupperneq 3
MORGUNBIiAÐH)
3
Millerand hefir í hótunum.
Fyá París er símað, að Millerand
neiti >ví algerlega, að nokkrar
foreytingar séu gerðar á samning-
unum, er bandamenn gerðu með
ser í Folkstone, og hóti >ví ella, að
segja af sér.
Prá þingi Bandaríkja.
_Frá Washington er símað, að
[AVilson forseti liafi neytt neitunar-
>«dds síns um friðarályktunina.
Utanríkismálánefnd öldungaráðs-
ins hefir felt. tillögu forsetans um
>að, að Bandaríkn taki að séér um-
s>já með Armeníu.
Verkföllin dönsku..
á erkfalinu, sem danska verka-
t'iannasambandið hefir hótað, hefir
verið frestað um vikutíma.
Dagbök.
Veðrið í gær:
Reykjavík ANA gola, hiti 6,6
ísafjörður logn, hiti 4,2
Akureyri logn, hiti 7,0
Seyðisfjörður SV kaldi, hiti 5,1
Grímsstaðir logn, hiti 1,0
Vestmanaeyjar A gola, hiti 8,5
Pórshöfn YSY gola, hiti 8,0
Loftvog einna lægst fyrir suðvestan
land og fallandi. Austlæg átt.
Brunaliðið var kallað í fyrrakvöld
®ð húsi í austurbænum. Hafði kviknað
í henzíni en tókst að slökkva áður en
nokkurt tjón varð af. Maður einn
brendist þó allmjög á hendi.
Öll farþegarúm á Botniu næst eru
Pöntuð. Búist við að skipið fari héð-
®n viku af júní.
Pétur Jónsson atvinnumálaráðherra
for n°rður með Koru í gær. Er nú
Al«ignús Guðmundson einn ráðherra
eftir.
Kora fór héðan i. gærkvöldi kl. 8
'estur og norður um land áleiðis til
Noregs.
Sig. Eggerz hefir að sögn tekið aft-
m umsókn sína um bæjarfógetaem-
bættið á Akureyri og sýslumenskuna í
Kyjafirði. Er talið líklegt að Stein-
grímur Jónsson, sýslumaður í Húsa-
Vlk, muni standa næstur að hreppa
hnossið að Eggerz frágengnum.
Vorpróf mentaskólans verður að
tnestu leyti haldið í harnaskólanum að
Pessu sinni vegna viðgerðar þeirrar,
sem fram á að fara í mentaskólanum
anr en konungur kemur.
Seglskip kom hingað með timbur-
farm í fyrradag.
Vppgripaafii er nú hér af hrogi
v „Uln 'bnglega svo að tæplega mn
veiðst meira í annan tíma.
tii Jit?r®T;rrGullf0Sá er komhi
vii mg var á Akureyri
gær. Villemoes VaT. - t,, . „
a Blonduósi í gæ
Trúlofun. Fyrir nokkr, • -u *
trúlnf,, , Kk;ni opinheru?
trulofun sína ; Noregi n
***** aó«£ h!„
i k:m~ ‘"f"1*- s*“
^egja hafa aðeinS tveir bát
Öllum þeim, sem auðsýndu hluttekningu við fráfall og jarðarlör dóttur
okkar, Ágústu, vottum við innilegustu þakkir.
Sigurbjörg Ámundadóttir. Bjarni J. Jðhannesson.
Knattspyrmimót Rvíkor
Kl. 4 keppa Vifeingur og Fram,
Kl. 5'|4 keppa Væringjar og Knattspyrnufél. Rv.
hreinsar alt
HUSTLER er ný sápa, sem gerir þvotta og
hreingerning létt verk og ánægjulegt.
LítíS eitt af sápu og dálítil fyrirhöfn hreinsar
allan fatnaS á svipstundu ef notuð er HUSTLER
sápa. Hdn gerir hvítt hvítara og ljósa liti bjartari.
HUSTLER er ágæt hreingerningarsápa, því aS
hún vinnur fljótt og skaSlaust. Hún er ágæt sem
handsápa og babsápa, því aS hún skaSar ekki
hú ina hversu fíngerS sem hún er.
Hustler Sápa
Sparar erfiSi—Skemmir hvorki þvott né hendur.
EinkaumboSsmenn : PórSur SVEINSSON & CO., Reykjavík.
Tílktjnning
'Á fiuidi féélagsins í gær, 26. nsaí, var sambyktur eftirfarandi
kaupgjaldstaxti fyrir trésmiði félagsins:
Hag'vinna úti við .... 1 kr. 90 au.
Dagvinna á verkstæði 1 — 85 —
Hftirvinna.....2 — 25 —
Helgidagavinna .. .. 2 — 50 —
Taxtinn gengur í gildi 1. júní. *
Hafnarfirði, 27. maí 1920.
TTlarkús Sigurðsson
ritari.
takendur gefið sið fram, og ferst mót-
ið því fyrir. Er'þetta hin mesta háð-
nng vélriturum hæjarins og verður
ékki skilin nema á þann veg einan,
að þeir viti sig alls ekki vaxna starfi
sínu og þori því ekki að keppa.
,,Harpa“ spilar í kvöld kl. 7, fyrir
framan Kvennaskólann.
-------o-------
Armenia.
Hver á að hafa eftirlit með landinu?
Þjóðbandalagið hefir skorast
undan því, að taka við umsjá með
Armenm og hefir heldur eigi viljað
skora á neitt ríki að taka það að
sér. Hefir það snúið sér til yfirráðs
bandamanna og sagst verða að vita
'fyrst hvað það liefði hugsað sér
með hernaðarvernd þar og hvar
það ætlaði að láta liið nýja ríki
hafa aðgang að hafi.
Þjóðbandalagið hefir sem sé ekki
yfir neinum her að ráða og’ getur
þess vegma ekki neytt Tyrki til
þess að verða á burt úr Armeníu.
Þess vegna vill það fá að vita,
hvort bandamenn muni vilja senda
þangað her og reka Tyrki á braut
og fullnægja þannig friðarskilmál-
unum. En þótt Tyrkir yrði hraktir
þaðan, þarf að hafa þar mikinn
landvarnarher og' meiri ’heldur en
nokkurt eitt verndarríki nmndi sjá
sér fært að hafa þar.
Þetta er hvorki fyrsti og sjálf-
sagt ekki síðasti agnúinn á þjóð-
bandalaginu og hinui nýju ríkja-
skipun í hehninum. Hvernig á þjóð-
bandalagið að fá þjóðir til þess að
hlýðnast sér, ef það hefir engan
her ? Og 'hver eða hverjir eiga að
leggja fram þann her? í fyrstunni
vakti iflpað fyrir mönnum, að ef
eitthvert rikj hyrjaði ófrið, væri
allar þjóðir í bandalaginu skyldug-
ar til þess að berjast gegn því, og
þá þær auðvitað helzt, sem næstar
eru. En hvernig á að fá þær til þess
að hlýða þessu, einkum fyrst í stað,
með'an alt er á ringulreið í heimin-
um? Hver mun t. d. verða til þess
að skakka leikinn ef Bolivia og’
Ohile fara í bár saman? Eða ef
Persía og Azerbejdshan fara að
berjast? Ætli flestar þjóðir þykist
ekki bættari með því að spara líf
sona sinua, sem aldrei fást hætt,
enda íþótt bandalagið kynni að
greiða herkostnað — heldur en
fara að vasast í því að stilla til
friðar ?
Friðarsamningarnir hafa komið
á svo miklum glundroða í heimin-
um, að aldrei hefir ástandið verið
verra. Ný ríki hafa sprottið upp
eins og mý á mykjuskán og' alls
Hér með færum við öllum, bæði
skyldum og vandalausum imiilegt
hjartans þakklæti íyrir kærleiks-
ríka. hluttekningu í okkar sorg við
veikindi, fráfall og jarðarför okkar
elskulega einkasonar, Guðhjörns
Helga Helgasonar, sem andaðist 30.
apríl síðastliðinn.
29. maí 1920
Guðbjörg- J. Hansdóttir
Helgi S. Eggertsson.
STÚLKA eða kona óskast til að
straua einn dag í viku. Upplýsingar
á Laugaveg 32, uppi.
staðar logar alt í ófriði. Mörg af
þessum nýju ríkjum eru eliki sjálf-
stæð nema á pappírnum, og banda-
menn, sem bera alla ábyrgðina á
þessari skiftingu og ætti því að sjá
um að boðorð sín væri haldin, ráða
ekki við neitt, eins og bezt sézt á
því hverju fram fer í Armeníu.
Þeir hafa sjálfir í nógu mörg horn
að líta. Þeim hafa hæzt mörg ný
lönd og heima fyrir er falinn eld-
ur sem getur brotist út í ljósum
loga, ef ékki er vandlega að gætt.
SpííztbeDgenkolin slæm.
Norska kolanámufélagið ,,De
norske Kulf elter, Spitsbergen'4,
seldi gufuskipafélagi nokkru í Nor-
egi fyrir skemstu allmikið af kol-
um fyrir 110 krónur smál. En er
skipafélagið (fór að feyna 'kolin,
þóttu þau óhæf til notkunar og
voru því fengnir matsmenn til að
meta gildi þeirra. Námufélagið
vildi ekki hlíta matinu og fór svo
tvisvar. í seinna skifti var smál.
metin á 65 krónur. Svo var skipuð
yfirmatsnefnd og komst hún að
þeirri niðurstöðu, að kolin væri ó-
'hæf til skipa, en þó inundi mega
nota þau með því móti að hlanda
þeim saman við góð gufuskipakol.
Slík kolahlanda áleit matsnefndin
að mundi jafngilda notkunargildi
40% af beztu gufuskipakolum.
öengi erlendrar myntar
Khöfn, 29 maí.
Sænksar krónur (100) ,. .. 129.50
Norskar krónur (100) .. .. 108.50
Mörk (100)................ 15.00
Sterlingspund............. 23.'45
Frankar (100) .. .... .. 46.00
Dollar.................... 6.01
------o------ |
Guðsþjónusta.
verður haldin í Bárusalnum kl. 8l/ó
í kvöld. Páll Jónsson trúboði talar.
Allir eru hjartanlega velkomnir.
3 háseta, 2 stúlkur og einn land-
niann vantar að Skálum á Langa-
nesi. Þurfa að fara með Suðurlandi.
ÞORSTEINN JÓNSSON
frá Seyðisfirði.
Kennari.
óskast í fræðsluhérað Þingeyrar-
hrepps. Umsóknarfrestur til 11.
júlí þessa árs.
Hvammi í Þinghrepp 22. maí 1920
Jón Þórarinsson.
Uppboð
verðnur haldið mánudaginn 31. þ.
m. kl. 4 síðdegis í Þingholtsstræti
25, á ýmsum húsáhöldum,' t. d.
taurullu, rúmstæðum, tunnum, eld-
húsáhöldum o. fl.
Guðrún Jónsdóttir.
Sendisvein
vantar
R. P. Leví
Islenzkt smjör.
í verzlun : •>; ^
GUÐM. BREIÐFJÖRÐ
Laufásveg 4 Sími 492
Styrfetarsjóðiir W. Fischers
Þeir sem vilja sækja um styrk
úr þessum sjóðf geta fengið prent-
uð eyðublöð hjá Nic. Bjarnasen í
Reykjavík. Bónarbréfin þurfa að
vera komin til stjórnenda fyrir
16. júlí.
Tilboð óskast
í hús kalkfélagsins fyrir 10. næsta
mánaðar. Nánari upplýsingar í
síma 492. v