Morgunblaðið - 08.06.1920, Blaðsíða 3
MOKGUNBLAÐIÐ
3
er það spá manna, að hernaðar-
stefnan muni verða ríkari í land-
'du eftir kosningarnar heldur en
áður.
Dagbök.
Veðrið í gær:
Rcykjavík ASA st.kaldi, hiti 8,2
ísafjorður logn, hiti 7,0
Akureyri S andvari, liiti 9,0
^eyðisf jörður logn, hiti 4,6
Grimsstaðir logn, hiti 4,6
Vestmannaeyjar SA kald’, hiti 8,3
Pórshöfn SV gola, liiti 7,0
hoftvog ltegst f\rir suðvestan lnnd
°g hægt fallendi. Suðaustlæg útt.
Sveinbjörn Egilson. ritstjóri er flutt-
Ur frá Vesturgötn 16 í Grjótagötu 20A.
Snjóþyngsli eru enn víða úti um land
í Reykjarfirði var ekki farið að láta
út fé fyr en í fimtu viku sumars, og
enn kváðu þar vera hús í kafi víða,
Senr - lágt standa.
Botnia fer til Kaupmannahafnar á
hádegi í dag, kemur skipið við í Far-
eyjum en hvergi annarstaðar og verð-
Ur því varla meira en 6 daga á leið-
inni. Meðal farþega eru: Stefán Jóns-
son dócent, Freysteinn Gunnarsson
cand. theol, Ólafur Hjaltested kaup-
maður, Jón Aðils prófessor, Jón Þor-
kelsson skjalavörður, Th. Krabbe verk-
fræðingur og frú hans, Árni Benedikts-
son stórkaupmaður, Jón Gunnarsson
samábyrgðarstjóri og frú hans, Sigurð-
nr laeknir Magnússon, Magnús Péturs-
*on héraðslæknir, Servaes, prestur í
■Laudakoti, Guðm. Björnson landlæknir
'’áhannes Jóhannesson bæjarfóg., Þor-
'str,ifin Gíslason ritstjóri, Vilhjálmur
^insen ritstjóri, Þorkell Clementz vél-
fræðingur, ungfrúrnar Snorra Bene-
^iktsdóttir, Þórhildur Briem, Soffía
^kúladóttir, Ragna Eggertsdóttir, Ásta
þ°rkelsson, E. Árnadóttir, Þuríður
Slgtryggsdóttir, K. Hjaltested, G.
Thorsteinson, frú J. Eyland, síra Þor-
steinn Briem, cand. theol. S. Á. Gísla-
'SOu. Alls um 70 farþegar.
Prestkosning. Á laugardaginn var
v°i"u talin atkvæði úr Helgafellspresta-
ko'li. Úrslit kosninganna urðu þau, að
cand. Sigurður Ó. Lárusson fekk 180
atkvæði og er löglega kosinn prestur.
Magnús Guðmundsson cand. fekk 153
atkv. en hinir tveir umsækjendur sár-
fá. Fjögur atkvæði -urðu ógild.
Sameiningin. Þeim Jóhannesi Jó-
nanuessyni bæjarfógeta og porsteini
óíslasyni ritstjóra hefir danska stjórn-
boðið til Danmerkur til þeSB
v«ra viðstaddir hátíðahöld þau, er fram
fara í sambandi við endursameiningu
Snður-Jótlands og Danmerknr. Hafa
^ir þegið boðið og fara utan með
®°tniu í dag.
Taugaveikin á Vífilsstöðum er nú
i rénun og er farið að sótthreinsa þá,
Pr tóku hana. Alls tók veikin þar 13
qg einni stúlku varð hún að bana
kjóðvinafélagið er í dag 50 ára. Var
stofnað 8. janúar 1870. Hefði ver-
. ^aklegt að minnast starfsemi þess
þágu íslenzkrar menningar þessa
^fa öld. Hefir það ekki verið lítið
6,11 það hefir lagt af mörkum til bóka-
^€l'ðar landsins.
Skólablaðið. Maí-hefti Skólablaðs-
I. 8. I
K. R. I
í kvöld keppa kl. 9
Tveir drengir
geta fengið vianu við útkeyrslu á gosdrykkjnm strax.
(eldri deildir)
Knattsp.fél Vikingur og K. R.
Hornablástur byrjar á Austurvelli kl. 8.
Afarspennandi kappleikur. %
Stjórn Knattspyrnwfél. Víkingur.
Sanitas.
Duglegan ungling
i6—-18 ára vantar við keyrsln að Alafossi i sumar. Upplýsingar gefur
Es. Suðurland
fei héðan til Vestfjarða á morgnn miðvikndag 9. júni kl. 11 árd.
Hf. Eimskipafélag Islands.
_______________________*______
Es. Gullfoss
í næstu ferð sinni fer e.s. Gullfoss að eins til Leith og snýr þar
við aftur til Reykjavíkur. Búist er við að skipið fari frá Leith um 5.
jdlí næstk., og óskast tilkynningar um vörur sendar oss hið fy/sta.
Hí. Eimskipafél. islands.
Aðalumboðsmenn: Sig. Sigurz & Co., Reykjavík.
Jlofeí lsfcmcf
vantar mann (Hotel-kar!) nú þegar til ýmsra starfa fyrir Hotelið.
Nánari upplýsingar á skrifstofu Hotelsins kl. 3—4 næstu daga.
ins er nýlega komið út. Byrjar það á
„Opnu bréfi til skólanefnda og fræðslu-
nefnda“ frá íþróttasambandi fslands.
Þá er grein er heitir „Kvennaskól-
ar“ og næst „Uppeldi“ eftir Steingr.
Arason, framhald greinar er áður hef-
ir komið í blaðinu, auk ýmislegs fleira.
Gullfoss. Næsta ferð skipsins eftir
að það kemur hingað verður til Leith
°g þaðan til baka hingað. Skipið fer
ekki lengra til þess að geta komist
ti’ JL'upmannahafnar svo tímanlega að
geta komið hingað úr þeirri ferð um
líkt leyti og konungur kemur hingað.
------o—-----
Lúðvík fyr konungur í Bayern
flýði til Lugano í Sviss þegar stjóm
arbyltingin varð í Þýzkalandi og
hefir dvalið þar þangað til nm
síðustu mánaðamót að hann flutti
*
heim til Bayern aftur og settist að
í Wildenwart-höll skamt frá Mun-
chen. Ætíar hann að dvelja þar
framvegis.
Hafnarverkfallið.
Fregnir þær sem undanfarið hafa
borist af hafnarverkfallinu í Kaup-
mannahöfn hafa bent í þá átt, að verk-
fallsmenn væru að láta undan síga.
Nýlega samþyktu þeir að afferma skip
fyrir ríkið og sveitarstjórnir og á laug-
ardaginn barst forstjóra Eimskipafé-
lagsins skeyti það sem hér fer á eftir:
Hafnarverkamanna-, sjómanna og
kvndaraverkfallið er í raun og veru að
engu orðið. Er búist við því, að hafnar-
verkamenn gefi sig fram til vinnn
næstu daga. Gullfoss affermir fyrri
partinn í dag. Byrjar að hlaða á mánu-
daginn og leggur „Samfundshjælpen“
til vinnukraft. Skipið verður ferðbúið
12. þ. m.
Sigurjön Pétursson.
votta eg hér með öllum þeim er hjálpuðu mér og léttu undir hina
þungu byrði mína við fráfall .sona minna á sumardaginn fyreta þ- á-
Bið eg himnaföðurinn að þeir hinir sömu fái uppskorið ávexti
af góðsemi sinni hjá honum, þar sem að allar sorgir og allur söknuður
er að fullu bættur.
Vík í Mýrdal 28. maí 1920
(juðríður Péturssdóttir.
Hlatayelta Laudsspitalasióðsins
Áformað er að halda hlutaveltu 19. júní n. k. til ágóða fyrir
Landsspítalasjóðinn. Treystum vér bæjarbúum til að styrkja hana
með gjöfum, og stórum, eins og að undanförnu. Viljum vér biðja alla
sem ætla sér að gefa eitthvað, að senda munina til einhverrar af oss
undirrituðum, ekki seinna en 17. júní n. k.
Anna Daníelsson, Bríet Bjarnhjeðinsdóttir, Elín Jónatansdóttir, Guð-
rún Árnason. Ingibjörg H. Bjarnason, Katrín Magnússon, Laufey Vil-
hjálmsdóttir, María Sigurðardóttir, Þórunn Jónassen.
Stássstofuhíisgögn
,f jórir stólar og einn sófi klætt með rauðu plussi, ásamt plussteppi 4X
5 álnir, rósótt í sama lit, til sölu með góðn verði ef keypt er strax-
Upplýsingar á trésmiðavinnustofunni á Grettisgötu 21.
Slys.
Þýzkur maður
druknar hér á ytri höfninni.
í fyrradag fóru þrír menn á báti
frá Völundarbryggju og höfðu ætlaS
að róa sér til skemtunar út á höfnina.
Einn þessara manna var þýzkur en
hinir innlendir. Var báturinn úr striga
og víst mjög ófullkominn og hefir tæp-
lega getað borið þrjá menn. Enda fór
svo, að þegar þeir voru komnir skamt
frá landi hvolfdi bátnum og mennirnir
fóru allir í sjóinn. Kunnu tveir þeirra
ekkert til sunds en sá þriðji lítið. Og
þjóðverjinn var bæklaður; hafði mist
annan fótinn í ófriðnum. íslendingarn-
ir komust báðir heilu og höldnu til
lands, en þjóðverjinn druknaði.
Maður þessi hét Adolf Simon. og var
klæðskeri. Kom hann hingað með skip-
inu „Kakali“ í vor og hefir unnið hjá
klæð skerafélaginu „Árni &g Bjarni' ‘
síðan. Var hann einhleypur maður, 33
ára gamall, og hefir átt heima í Berlín
síðastliðin 12 ár.
skýra Petrograd upp og kalla hana
eftirleiðis Leningrad-
Loftskeytasamband milli Danmerk-
ur og Bandaríkja.
Danir hafa gert út sendinefnd til
Bandaríkjanna til þess að semja við
stjómina þar um byggingu loft-
skeytastöðva til þess að annast
skeytisendingar milli Danmerkur
og Vesturheims.
Verkamezn í Valencia
hafa boðað allsherjar verkfall, ef
félögum þeirra, sem settir voru í
fangelsi út af óspektum 1. maí,
verði ekki gefnar upp sakir.
Hitt og þetta
Vilhjálmur keisari
hefir nú haft bústaðaskifti. Fór
hann frá Amerongen 12. maí og
hafði þá dvalið þar í hálft annað
ár. Er hann nú fluttur til Doom,
smábæjar skamt frá Amsterdam.
Leningrad.
Echo de Paris segir, eftir fregn-
um frá Stokkhólmi, að í ráði sé að