Morgunblaðið - 06.01.1921, Blaðsíða 2
I
M0IKK7NBLAMÍ
■þeirra vestur að Þjórsárbrú Jó-
haiDies Guðmundssbu ög kvaðst
skipstjóri dáðst að því •KVemi’g
liaim hafi komið öllum skipverjum
yfir vötnin, sem voru flest nær
ófær vegna vaxta og jakahlaupa,
án þess að nokkurt óhapp kæmi fyr
ir. Það hafi verið þrekvirki, sem
enginn annar en íslendingur hefði
getað gert og aðeins á íslenzkum
hestum. Prá Þjórsárbrú komu skip-
verjar hingað í bílum, allir heilir
heilsu.
Skipstjóri og stýrimaður á „Mag-
da' ‘ eru báði ungir menn, framúr-
skarandi dugiaaðariegir. Þeir hafa
báðir verið 5 ár í ófriðnum, skip-
stjórinn sem fyrirliði á tundur-
spiíli öll árin. „Magda“ var aðeins
4 ■mánaða gamalt járnskip 750
smálestir' að stærð og hafði 180 hest
afla vél.
Aður en skipverjar fóru frá
Strönd gáfu þeir skipsbjölluna til
kirkju seín í ráði er að reisf verði
að Langholti þar eystra. Á hún að
hringja þákkiæti skipverja út til
safnaðarins, þá er fólk g'engur tiil
kirkjunnar.
i
ir.
•ispsvQria-
Stjórnin lætur undan.
Fyrir fáum dögum voru ailar
horfur á að bakarar mundu leggja
niður vinnu með nýárinu. Og á
■mánudagin var svo langt komið, að
óvíða var hægt að fá brauð í bæn-
um. Var það hin nýja skömtun
stjórnarinnar, sem olli þessu. ’Bak
arar álitu sig órétti beitta með
hveitiskömtuninni, og töldu, að
bæði væri skamturinn, sem almenn-
ingi væri ætlnður of lágur og
enn fremur að hveiti það, er þeim
væri ætlað til kökugerðar svo lítið,
að ekki borgaði sig að baka þær.
í reglugerð stjóruarimiar frá 25
okt. var svo fvrir mælt, að ein-
staklingar fengju 2 kg. af hveiti á
mánuði. Hveitiseðlum má svo skifta
fyrir brauðseðil; þannig að fyrir
Livern 400 gr. hveitiseðil fáist 500
gr. af brauði. Bn heilt fraœkbrauð
vegur nál. 500 gr. Bakarar áttu að
skila vikuiega brauðseð.lum fyrir
90% af því hveiti, sem þeir hefðu til
að baka úr þá vikuna, en 10% átti
að notast til kökugerðar sem seLjast
raættu seðlalaust. i’il hveitibrauðs
tálcBst eigi að eins franskbrauð, súr-
brauð og siktibrauð, heldur einnig
tvíbökur, kringlur, skonrok og ann
að hart brauð, sem hveiti er notað í.
Bakarar sneru sér til stjónarráðs
ins með umkvartanir, en eigi báru
þær neinn áraugur framan af- —
Sömdu þeir einnig við bakarasveina
um, að gera verkfall, ef stjórnin
tæki það úrræði, að taka brauðgerð-
airhúsin leígnajmámi um stundar-
sákir. Voru fundir haldnir á nýárs-
dag og annan nýársdag og samið
•þar bréf til stjómarinnar og lýst
yfir, að bakarar mundu ekki starfa
framvegís. et! ekki fengjust titelak-
anir á fyrirmælum reglugerðarinn-
ar. Að vísu hafði stjórnin rýmkað
nokkuð um, með auglýsingu sinni
29. f. m. um, að hveiti- og sykur-
skamturinn yrði aukinn þannig,1
að seðlarnir sem í upphafi áttu að
gilda í 4 mátíuði, skyidu að eins j
‘gilda þrjá mánuði, en bakarar iétu j
sér ekki nægja það. Fór nefnd sú, í
sem félag b.akara hafði kosið til |
forustu í máiinu, á fund atvinnu-
málaráðherrans á mánudaginn og
hafði bréf félagsins meðferðis. En
ráðherrann var ekki viðstaddur og
ætlaði sendinefindin því að skilja.
bréfið eftir á skrifstofunni, en skrif
ari «á er varð fyrir svörum neitaði
að taka á mótj því. Fóru þeir þá á
fund forsætisráðherra og gat hann
sem vonlegt var ekki gefið fulinað-
arsvör, þar sem máiið heyrði undiir
atvinnumálaskrifstofuna, en gaf þó
sendinefndinni von um tilsla'kanir
er hakarar mættu við una- Síðar um
daginn kom svo svar atvinnumála-
dei'ldarinnar, og var það á þá leið,
að bakarar þyrftu ekki að svara
seðlum nema fyrir það laveiti sem
franskbrauð, sigtibrauð og súr-
brauð væri bakað úr. Þessar tegund
ir verða því eftirleiðis á seðlurn, en
aðrar ekki.
Ráðstöfunin er óskiljanieg. Ein-
mitt þær brauðtegundirnar sem
nauðsyniegastar eru eru skamtað-
ar, en hinar óþarfari og þá einkum
kökurnar, sem bæði þarf hveiti,
sykur, mjólk og feiti til að firam-
leiða, eru látnar alfrjáisar. Virðist
•svo, sem skömtunin hætti að koma
að tiiætiuðum notum, þegar hún
takmarkar fraimieiðslu á nauðsyn-
legustu vörutegundunum, en lætur
hið óþarfasta afekiftalaust. Og svo j 'r
mörg göt hafa nú verið nöguð á
skömtunarreglugerðina sælu, að ei
er eftir nema ræxni, sem best væri
að hyrfi sem allra fyrst úr sögunni.
NORDISK
ULYKKESFORSIKRINOS A.S.
af 1898.
Slysatryggingar
og
Ferðavátryggingar.
Aðalumboðsmaður fyrir Island:
Gunnar Egilson
Hafnarstræti 15. Tals. 608.
Silfurbiýanlur funöinn á göium
bæjarins Afgr. vísar á
Síór síoía til leigu.
Afgr. vísar á.
Utanríkisráðherran danski Scave-
nius hefir komið fram með þá til-
lögu í þinginu að laun danskra
sendiherra yrðu að hækka, að mikl-
um mun. Taldi hann kjör sumra svo j
bágborin, að þeir yrðu strax að fá I
launahækkun annars væru þeir
rnauðbeigðir til þess að segja upp
starfanum og leita sér annara lífs-
starfa. Jafnaðarmenn voru mjög á
móti.þessu, töldu það óþiarfa einn
og kváðu svo að orði, að þeir mundu
ekki ganga hungraðir til rekkju á
jólunum þó þeir fengju ekki iauna
viðbót. En samþykt var samt í þing-
inu að veita 300,000 krónur til
launahækkunar á tímabilinu frá
október til apríl.
ifiia oa iOMlalaoi
i ■ ■ ■
Símað hefir nýlega verið fra Was
hington að fyrverandi formaður
matvælanefndarinnar í Ameríku,
Hoover, hafi Lagt tíl við hinn ný-
kosna foseta, Harding, að Bandar
ríkin gengju í þjóðbandalagið eftir
vissar breytingar í lögum ])ess. Hoo-
ver hafði ennfremur látið þess getið
að ógemingur væri að stilla til frið-
ar í Norðurálfunni, fyr en skaða-
bætur þær, sem Þýzkalánd ætti að
greiða, væru fastákveðnar og hafð-
ar í samræmi við gjaldþol landsins.
fæst hja
VERSLUN ÓL. ÁMUNDASONAR.
I. O. O. F. 102178%.—I. d
Fundur í Versilunarmannafélagi
Beykjavíkur 6. janúar 1921 kl. 9 e. h.
Nýja Bíó hefir nú fengið nýja send-
ing af Islandsmyndum Svenska Bio-
graphtheatern og er byrjað að sýna
iþær. Eru þar gullfallegar myndir frá
pingvelli, Hvítá, Gullfossi og Vest-
mannaieyjum. Einstakar í sinni röð eru
fuglannyndirnar úr Vestmannaeyjum,
og standa þær alls ekki að baki bestu
dýralífsmyndum, sem sýndar hafa ver-
ið hér nokkurntíma. Má eindregið
ráða mönnum til að skoða þessar mynd
þær eru úrvalsgóðar.
Trúlofuð eru póra V. Jónsdóttir og
Einár Guðmundsson bifreiðarstjóri,
Spítalastíg 7.
Saga Borgarættarinnar er nú komin
hingað. Verður kvikmyndin sýnd á
næstunni í Nýja Bíó.
Karlakór K. F. XJ. M. endurtekur
enn söngskemtun sína annað kvöld. —
Mun mörguin það kærkomið, því að-
sóknin var svo inikil í fyrri skiftin,
að fjöldi fólks varð að hverfa frá.
. Leikhúsið. Heimkoman var leikin í
gærkveldi í fimta skifti fyrir fullu
húsi. Hefir aðsóku verið ágæt að leikn-
um, enda er liann þess fyllilega verður.
íshúsin. ísfélagið ísbjörninn og
ísfélagið við Eaxaflóa eru nú bæði að
stækka íshús sín við Tjörnina, iþar sem
þau undanfarna vetur hafa ekki get-
að fullnægt þörfinni með íspantanir.
Isbjöminn hefir látið byggja hús, sem
tekur 1000—1100 smálestir af ís, en
ísfélagið við Faxaflóa hús sem tekur
um 700—800 smálestir.
Hæstiréttur. Föstudaginn 7. þ. m.
verður tekið fyrir málið: Hreppsnefnd
Hvolhrepps gegn Sæmundi Oddssyni,
Hjalta Jónssyni og skiftaráðandanum
í R.angárvalllasýslu, f. li. dánarbús
SveinS Arnasonar út af sölu jarðar-
irinar Vestasta Moishvols. Jörð þessa
seldi Hjalti Jónsson f. h. erfingja Ól-
afs Magnússonar Sveini Árnasyni á-
búanda jarðarinnar, 16. apríl 1918,
fyrir 3000 kr., en Sveinn seldi hana
aftur Sæmundi Oddssyni 25. maí s. á.
fyrir saina verð. Hreppsnefnd Hvol-
hrepps heldur því fram, áð salan til
Sveins hafi að eins verið máilamyndar-
sala og hafi Sæmundur vlerið hinn
sanni kaupandi, og hafi Sveinn selt
honum forkaupsrétt sinn, en með því
Jíiafí forMaupsréttur hreppsins verið
fyrir borð borinn. Eftir aukaréttar-
dómi Rangárvallasýslu 28. febr. f. á.
skvldu úrslit málsins vera komin undir
synjimareiði Sæmundar Oddssonar.
Björgunarskipið pór hefir nú los-
að sig frá Grandagarðinum og byrjar
n ú strandvarnirnar fyrír Suðurlandinu
innan skamms.
Es. Gullfoss
fer héðan vestur og norður um lanð til útlanða á föstu-
ðag 7. janúar kl. 10 árðegis.
Flutningabif-eiðar
fást leigðar, hvort sem er í tíma- eða »akkorðs«-vinnu,
Allar upplýsingar gefur hr. verkstjóri Guðjón Arn-
grímsson (sími 525).
Hf. Kvelðúlfur.
Uppboð
þurkuðam saltfiski, svo serh þorski, smáfiski, ísu og
ufsa verður halöið föstuðaginn 7, janúar kl. 1 e. háðegi í
pakkhúsinu við Liverpool.
Kartöflur
góðar og óöýrar, fást í
Heilöverzlun A. Guðmunðssonar.
Dansleikur
verður halðinn á Þrettánðakvöið
í Hafnarfirði og hefst kl. 8 e. m.
Veitingar fást á staðnum.
í Gooð-Templarhúsinu
(jósendafélag Reykjavíkur
Funöur í Bárubúð fimtuðaginn 6. þ. m. kl. 81/* e. h.
Umræðuefni: Kosningarnar.
Nýjir félagar geta fengið skírteini við innganginn.
STJÓRNIN.
Peningaskápar.
Fékk nú með »íslandi« nokkra Milners peningaskápa.
F. Þ. J. Gunnarsson.
Guðmundur Ásbjðrnsson
Laugaveg 1. Sími 561
Landsins bezta úrval af
IAMMALISTUM og RÖMMUM
Myndir innrammaðar fljótt og vel.
Hvergi einx ódýrt. KomiS og reyntít