Morgunblaðið - 25.01.1921, Page 3

Morgunblaðið - 25.01.1921, Page 3
MORGUNBLAf»f« inum, að fást við skýringu og könnun á »fjölbreyttasta manni þessar fjölbreyttu aldar«. En höfundurinn gerir meira en skýra Snorra, verk bans og starfsaðferðir Hann skýrir líka íslenzka sagnaritun yfirleitt á þessum tíraum, stefnur hennar og áhrif þau, sem hún varð fyrir og hafði. Er sá kaflinn einhver merkilegasti í allri bókinni. Sézt á honum meðal annars, hve höf- undinum er sýnt um að fá les- endur til að hugsa með sér. Mundu menn ekki fara erindis- leysu, þó sá kaflinn væri lesinn tvisvar eða þrisvar. En þó er síðasti kaflinn, »Yflr- lit«, beztur. Þar getur höfundur sveigt mest frá visindunum og helgað listinni einni frásögnina. Er sá kafli djúphugsaður og anildarlega skrifaður. Manni dettur í hug, er maður les hann, það sem stepdur á einum stað í bókinni: »í höndum sumra höf- unda tekur alt á sig Ijóma.* — Ekki væri undarlegt, þó islenzk alþýða tæki þessari bók tveim höndum. Hún skýrir svo ná- kvæmlega þann manninn, sem mörgum gáfuðum alþýðumanni hefir verið tíðbugsað um. Og þeim, eem Snorri hefir verið eins og lokuð bók, gefst nú tækifæri til að kynnast honum, og um leið að heyra gný af byltingum merkilegasta tímabils þjóðarinnar. J. B. **> ' %: 5^ í fyrradag kl. 2% héldu frambjóð- eudur A-listans fund í Nýja Bíó og ^oru þangað allir boðnir og velkomnir, ^ftir því sem rúm leyfði. Voru bekkir aflir setnir og fjöldi manns stóð, svo gera má ráð fyrir að um 600 manns háfi verið samankomnir á fundi þess- ttill. framkomu andstæðingablaðauna, eink- um Vísis, gegn þeim frambjóðendum, og gerði samanburð á stefnum lista þeirra, sem fram hafa komið undir kosningarnar. En Ólafur Thors talaði um fjarhagsastandið í landinu, hvers vegna fjárkreppan væri fram komin og horfurnar í framtíðinni. Varð hann að takmarka mjög mál sitt, vegna þess að fundartími var mjög takmarkaður, og þrír fylgismenn B-listans, sem á fundinum voru, þeir Ingimar Jónsson, Héðinn Valdimarsson og Ólafur Prið- riksson höfðu beðið um orðið. Var tími þeirra mjög takmarkaður og mátti því búast við, að það yrði kjarngott, sem þeir segðu. Talaði Ingimar um landsverslun, en Héðinn lagði spuming ar fyrir áheyrendur. Ólafur talaði um alt og ekkert og lék samtímis. Svöruðu Jón Þorláksson og Ólafur Thors þeim og fórust þeim síðarnefnda svo orð, að í þetta skifti hefði farið sem endra- nær, er (þeir töluðu Ingimar, Héðinn og Ó. F., að svara þyrfti þeim Ingimar og Héðni, en Ólafi þyrfti aldrei að svara. Gaf Ólafur Héðni góð svör og gild og fóru B-in jþrjú mjö halloka á fundinum. En C-in þögðu. I Laugarnesi héldu frambjóðendur enn fremur fund í fyrradag og segist framb.jóðendum A-listans svo frá, að ánægjulegt hafi verið að sitja hann, og dáðst að jþeim áhuga og eftirtekt, sem fundarmenn hafi sýnt. Að kveldi sama dags var kvennafund ur haldinn í Báruhúsinu að tilhlutun Kvenréttindafélagsins og töluðu þar all ir frambjóðendur. Báru undirtektir fundarins undir mál A-listaframbjóð- endanna þess vott, að Iistinn á drjúgt fylgi hjá kvenkjósendum í bænum. — Á fundi B-listans á laugardagskvöldið var var einnig talað úr flokki frambjóð enda A-listans og gerður að ágætur rómur. Fundir þessir hafa sýnt það Ijós- iega, að A-listinn á víða hauk í horni, hjá andstæðingaflokkunum. Fylgi hans er alstaða nema hjá mönnum, sem hafa einkunnarorðin: „Eg er ekki kominn hingað til þess að látast sann- f ærast' ‘. Jón Þorláksson talaði fyrstur og mintist á afstöðu A-listans til þing- Qokka og stjórnarinnar. Sýndi hann fram á, að óviturlegt væri að lofa þv'í fyrir fram að berjast fyrir falli stjórn- arinnar, eins og flokkum væri nú hátt- að á alþingi. Þingið * væri í rauninni skipað fjórum flokkum og af þeim hefði að eins einn verið í beinni and- stöðu við stjórnina á síðasta þingi, sem sé flokkur Sigurðar Eggerz. En ekki ttmndu þeir frambjóðendur A-listans vera fúsir að lyfta honum npp í ráð- herraaessinn. Alt hlyti að verða undir því komis hvernig málum iskipaðist þegar á þing kæmi, og hvað snerti af- stöðu þeirra frambjóðendanna, þá yrði hún, eins og áður hefði verið tekið fram, undir því komin, hvort sam- vinnu yrði auðið við stjórnina í þeirra áhugamálum. Þá talaði hann um ein- akunarstefnuna og frumvörp þau, sem stjórnin mun ætla sér að leggja- fyrir komanda alþingi. Taldi hann frum- vörp þessi ekki framkomin fyrir neina brýna nanðsyn og stefnan væri var- hugaverð. Skýrði hann málið með Ijós- ttm dæmum úr reynslu annara þjóða og benti á ýmsa galla, m. a. að það væri algild regla að vörur þær, sem einka- sala væri á, væri jafnan verri en aðrar °g verðið hærra. Frjáls samkepni og frjáls verslun væri sú stefna, sem af- farasælust væri í viðskiftamálum. Varð enginn til að hrekja þessi um- hiæli. Einar H. Kvaran mintist m. a. á Heimilisiðnaðarfélagið sýndi um síðastliðna helgi muni þá, sem unnir hafa verið á námsskeiði félagsins nú í vetur. Var unnið í 6 vikur, 12 stundir á viku 10 nemendur tóku þátt í námsskeið- inu. A sýningunni, sem haldin var í Búnaðarfélagshúsinu voru marg ir eigulegir munir, og furða hve miklu nemendurnir höfðu komið í verk á ekki lengri tíma. Flest- ir voru hlutirnir úr basti og tág- um, svo sem mottur og mynda- rammar, körfur smáar og stórar, að ógleymdum bastskónum, sem allir vildu eiga. Nokkuð var og unnið úr hrosshári, t. d. gólf- tnotta, afarsterk að sjá, og má óhætt fullyrða að þar er íslenzkt efm, sem úr má vinna marga nothæfa hluti, og getur það stund- um komið í stað bastsins, svo sem í mottur, skó og fléttur í ýmiskonar hluti. — Þar voru og allmargar burstategundir og var hrosshár í flestum þeirra. Nokkuð var af inniskóm, bæði úr klæði (með selskinnssólum), flaueli og striga og loks voru spjaldofin bönd og er vel farið að reynt er að halda uppi svo göfugri og gamalli iðn. Kennari i spjaldvefnaðinum var frú Guð- rún Þorláksiióttir. Hverfisgötu 86, en hinar námsgreinarnar allar kendi frú Herdís Jakobsdóttir, Lindargötu 20 Félagið hafði langað til að koma á nárasskeiði í vefnaði, en sökum húsnæðisvandraiðanna hér í böfuðstaðnum, sér það sér ekki fært að koraa því á að sinni, en greiða vill það fyrir þeim, sem eiga vefstól heima fyrir, en hafa ekki tök á þvi að afla sér efnis eða ýmsra áhalda, er þurfa við uppsetning á vef o fl. Félagið pantar og fyrir þá er óska þess efni og áböld til heimilisiðnaðar. MI Nttri. Þó tvö ár séu liðin síðan frið- ur komst á, virðist lítið rakna úr vandræðum þeim sem þjóðirnar hafa bakað sér með styrjöldinni. Hungurfréttir berast sí og æ frá þeim þjóðunum, sem undir urðu í viðureigninni og á það einkum við um Austurríki. I Þýskalandi er ekki talið að menn svelti, en samanburður sá, sem birtur er á myndinni sýnir þó, að ólíkt er að lifa í Þýzkalandi nú eða það var fyrir striðið. Sést þar vikuskamt- urinn sem kemur á hvern ein stakling af feitmeti, brauði eggj- um, sykri og mjólk Og þó eiga sumar matvörur, sem Þjóðverjar fá nú, ekki nema nafnið sameig- inlegt með þe m, sem voru fyrir stríðið. Feitmetið er blandað vatni, og brauðið með hrati í. 191 3. 1920 Gewuhe 3ks M & oko. Kartc jg| Á þessari mynd sjást þær mat- vörur, sem skamturinn hefir ver- ið aukinn af, síðan fyrir stríðið. En sú aukning er svo lítill, að þegar myndirnar eru bornar sam- an sést það Ijóslega, að almenn- ingur fær hvorki eius mikla né góða fæðu eins og áður, og að margur maðurinn er því enn í hálfsvelti í landinu. Nefnd situr nú á rökstólum til þess að athuga mentamál vor og koma fram með tillögur til breytinga á þeim. — Þegar frétt- ist um skipun nefndar þessarar, bjuggust menn við því, að tekið yrði að ræða mentamái vor með áhuga í blöðunum, en sárlitið hefir enn sézt ritað um málin síðan, og er það ekki vel farið, því of seint er að koma fram með tillögur síuar þegar nefndm hefir lokið störfum. Það er ekki nema eðlilegt að nefndarmenn irnir segi við þá, sem eitthvað hafa til brunns að bera i málurn þessum, líkt og gömlu prestarnir sögðu forðum við hátíðlegt tæki- færi: »Segi menn til í tíma«. Það er engum efa undirorpið, að mentamálin eru þau mál þjóðarinnar, sem viðtækasta þýð- ingu hafa fyrir þjóðlífið á kom- andi tið. Þau snerta alla karla og konur, æðri sem lægri, eldri sem yngri. Það hlýtur því ávalt að skifta miklu, að skipulag þeirra sé hagkvæmt og hæfi vel því menningarstigi, sem þjóðin lifir á, en bendi jafnan áfram á brautinni til meiri þroska. Að visu getur enginn búist við því, að hið ytra skipulag málanna getí bætt úr innri göllum sem á þeim eru, nó veitt li.fi og fjöri í raálin. Nei, slíkar endurbætur verða að spretta innan að úr sál- arlífi þeirra manna, sem með framkvæmd málanna fara. Skipu lagið getur aldrel orðið annað en andlausar umbúðir. En eins og það skiftir miklu fyrir líf vort og heilsu, að klæðnaður vor sé hollur og laglegur, eíns skiftir það miklu fyrir viðgang fræðslu- málanna, að löggjöfin sé hag- kvæm, hefti ekki eðlilegan vöxt og þroska, heldur efli hann og bendi í réttar áttir. Það er þvi mjög þýðingarmikið hlutverk, sem mentamálanefndinni er falið að inna af hendi, bæði af því, að tillögur nefndarinnar munu móta mjög afgreiðslu málanna frá þinginu, og af því, að búast má við, að þjóðin búi nm langt skeið að því fyrirkomulagi, sem nú verður tekið; enda eru tíðar breytingar á þessum mikilvægu málum óhollar fyrir þjóðlífið. Af þessari ástæðu hef eg tekið pennan til þess að koma fram með nokkrar athugasemdir og og bendingar. Megingallinn. Síðan fræðslu- lögin komu í gildi, hafa árlega heyrst ýmsar raddir um það, hve afarmiklir gallar séu á fræðslufyrirkomulaginu, sérstak- lega að því er barnafræðsluna snertir og hinn almenna menta- skóla. Hefir hlífðarlaust verið borið i brestina, og einnig stund- um bent á leiðir til breytinga, þótt mjög vafasamt sé hvort þær yrðu til bóta, eða hvort þær yrðu framkvæmanlegar vegna kostn- aðar. Vil eg t. d. nefna heima- W* —— ............ ■-■■■•- ■ ' -#>«» . vistarskóla í sveitum handa börn- um En það hygg eg, að marg- ir þeir, sem hæst hafa talað i þessu efni, hafi ekki gert sér ítar- lega grein fyrir því, í hverju megingalliun á fræðslumálum vor- um er fólginn. Að rniiini liyggju er hann ekki fólginn i ýmsum smá misfellum, sem á ytra skip- ulagi fræðamálanna kunna að vera, heldur í því, hve mikil einstrengingsáherzla, er og hefir verið, lögð á að þroska að eius einn þátt sálarlíl'sins o: þekkinguna. Það virðist svo, að menn hafi gleymt því að niestu, bæði við löggjafarstarfið og fram- kvæmd málanna, að sálarlíf vort er þripætt, ef eg má kveða svo að orði. — Það er samþætt af þekkingu. tilfinningu og vilja. Hugsjónarmarkmiðið, sem vór stefnum að, er að verða sannir meun, og með uppeldinu og fræðsl- unni erum vér að beina æsku- manninum á brautina að þessu markmiði, og hjálpa honum á- fram á henní. — Er það nú eðli- legt að vel gangi að nálgast þetta markmið, ef vér vanrækj- um að efla tvo þætti sálarlifsins tilfinninguna og viljanD. Þekk- ingin er að vísu þýðingarmikil í llfsbaráttu vorri, en einhlýt er er hún ekki til þess að vér get- um orð ð góðir menn. Það er engu síður áríðandi að glæða tilfinninguna fyrir því fagra' sanna og góða og hvetja viljann til starfa og stiíðs. Guð hefir ekki gleymt að gefa þessum þáttum sálarlífs vors viðfangs- efni. Er ekki fegurðin hver- vetna letruð fyrir augum vorum, jafnt i fiostrósura vetrarins og hinu fagra blómskrúði sumars- ins, og hvaða gæði lífsins öðl- umst vér án þess að vilja þau? Inn á þessa braut þurfum vér að komast með fræðslumál vor. Vér þurfura að kosta kapps um að þroska alla þætti sáiarlífsins i sem beztu samræmi. Frh. Málaferli standa nú yfir í Berlín út af útgáfu þriðja bindis af „endurminn- ingum“ er Bismarck hefir látið eftir sig. Eru tvö fyrstu bindin komin út fyrir löngu, en í þriðja bindinu ern ýms bréf frá Vilhjálmi þýzkalands- keisara, sem hönum þykja ekki hentug til birtingar. Hefir hann því fengið yfirréttinn í Wiirtenberg til að banna útgáfu ritsins, en sá réttur getur ekki a‘ð lögum bannað útgáfuna annarstaðar en í því fylki. pess vegna hefir málið komist fyrir landsréttinn í Berlín og þar er það nú á döfinni. Málsvari keisarans heldur því fram, að bréfin frá Vilhjálmi II verði ekki birt nema með leyfi hans sjálfs, og að það sé hann, sem á útgáfuréttinn að þeim en ekki Bismarck. Aftur á móti heldur málafœrslumaður forlagsins því fram, að bréfin séu ekki rituð með hendi keisarans, nema að eins nafnið undir þeim, og því hafi bvéfin verið tvíniælalaus eign Bismarcks, og engiim geti bannað erfingjum hans að birta þau. Er úrslita dómsins beöið með hinni mestu eftirvæntingu, því búist er við, að efni bréfanna kasti skugga á keis- arann. --------—0.--------r--.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.