Morgunblaðið - 24.04.1921, Síða 2
íSOKOUWÖltAiH*.!
13.3. fiausteen
heiiduErslun,
Reykjavík.
Fsf^It^liggjarsdl s
Cabburys-Caeao
Handsápur
Niðursuðuvörur
Búðingsefni
Eggjaefni
Leirvörur
Kústar
Olíuföt
Ennfremur
Te
I’vottasápur
Kryddvörur
Bökunarefni
Stívelsi
Isenkram-vörur
Penslar
Teppi.
Vefnaðarvörur
i mikSu úrvali o. fl. o. fl.
Eg undirritaður leyfi mér hér með
að ílyt'jii hjartanlegitt þákkir iriítiar
hinu góða fólki á Tsáfirði, seim bæSi
með rausnarlegri peningagjöf og ýmsri
annari hjáip auðsýndu iduttekningu
og samúð Guðbjörgu sál systur minni
bíeði meðan hún lá þar á sjúkraihús-
inu og eins við jarðarför liennar, og
hið eg guð að launa fójki þessu þenn-
an kærleika þess við hina látnu.
Víganesi í Arneshreppi 7. ntars 1921
. Eiríkur Guðmundsson
í nýútkomnu Iðunnarhefti stendur
i ritdómi um Paustþýðingu Bjarna
Jónssonar frá Vogi: „Og þá veit eg„
að Bjarni lætur ekki þá kórvillu
henda sig, sem hent hefir þýzkn-
dócentinn okkar hér, í formálanum
fyrir Paust, I, bls. LI, þar sem hanu
segir: „En Sorgin, sú fjórða, skríð-
ur gegnum sbráargatið' ‘ o. s. frv.
Þettg er jafn-herfilegur misskilning-
ttr á málinu og á sjálfu skáldritinu.
pýzka orðið „Sorge“ þýðir ýmist
„áhyggja“ eða „kvíði“, eins og líka
lijarni hefir þýtt það réttilega í Faust
I, l.jóðlínu 644; og það er áhyggjan,
eu. ekki sorgin, sem blindar Faust
sv», að hann getur farið að telja
sér trú um, að hann muni ná takmarki
sínu“ o. s. frv.
Ritstj. Iðunnar fer hér vísvitandi
tneð rangt mál, er hann segir að
hér sé að ræða um misskilning á má!-
ittu og á sjálfu skáldritinu, þar eð
við fyrir alllöngu síðan töluðumst við
um þetta atriði og ágreiningurinn var
að eins um, hvort íslenzka orðið Sorg
gæti haft eða hefði merkingu þá, er
felst í þýzka orðintt Sorge.
Eg skal gjarna fræða hann nánar
ura þptta. Orðið sorg er sameiginlegt
f\TÍr allar germanskar tungur og
táknar upprunalega einmitt áhyggju,
sbr. t. d. Cleasby-Vigfusson, Icel-
Engl. Dictionary bls. 578: sorg:
sorrow, care, bereavement; the original
sense is care (frummerkingin er
áhyggja). Frummerking þessi hefir
breyst í flestum germönskum málum
og táknar nú venjulega harm, harm
við ástvinamissi eða þ. h., en hefir
þó haldist í íslenzku fram á þenna
dag.
I fornmálinu má finna mörg dæmi
hinnar upprunalegu merkingar, sbr. t.
d örlög sín viti engi maðr fyrir, þeim
er sorgalausastr sefi (Hávamál 56),
sorg etr hjarta (Hávamál 121), mín-
ar eru sorgirnar þungar sem blý (gam-
alt viðkvæði úr Sturlungu). í nýís-
lenzku helzt frummerkingin einnig í
NORDISE
HVSFOSSIKRINGS A.s. AF 1897.
Líf tryggingar.
Aðalumboðsmaður fyrir ícland:
Grimnar Egilson
Hafnarstræti 15. Ta!s. 608.
orðum eins og bugsorg, búksorg og
í íslenzkum nútíðarskáldskap er Sorg-
íji konu, er verður oft á vegi manna.
í munarheiini skáldanna verða jafn-
vel hugarkóndir manna að lifandi
Verum, shr. Sólhvörf Schillers:
Mór lifði alt
í munar heimi,
aldin og ástrósir
og eimur bylg.ju —
og líkt og Gleði, Von og' aðrar bug-
arkendir er Sorgin alltíö í íslenzkum
skáldskap. Goethe hugsar sór „Sorge“
líkii í konugorvi og því var eðlilegast
að nota stallsysturina Sorg í íslenzk-
um skáldskap, en ekki Áhyggju, sem
vaj'la jrnm lcoma fyrir í konugervi í
íslenzkum skáklskap. Á dönsku þýðir
Sorg oft áhyggja; Konráð Gíslason
| þýðir Sorg m. a.: umhyggja, áhyggja
(Dönsk orðabók bls. 447) og Jónas
J ónasson gerir slikt Irið sama: a-
hygg.ja, uinhýggja, hannur — (Dönsk
orðabók bls. 447), enda þarf ekki ann-
að en að benda Iðunnarritstjóranum
á orðatiltæki eins og:
Dy smaa Sorger taler,
nieu den store Sorg tier.
Danska orðið Sorg í algengari merk-
ingunni heitir að réttu lagi a íslenzku
harrnur (sbr. harmleikur), þó að hinu
verði ekki neitað, að í nútíðarmáli
íslenzku mun sorg — harmur vera
venjulegri merkingin. Loks skal bent
á, að Iðunnarritstjórinn sjálfur segir
í riti sínu um tilfinningalífið (Árbók
Iiáskólans 1918, bls. 55): Sorgin —
Ilún er hámark hrygðarinnar, en á
öðrum stað stendur þessi setniug (bls.
31): „þykisl maður aftur á hinn bóg-
inn vita, að manni sé alveg fyrir-
munað að ná takmarki löngunar sinn.
ar, eða ef maður er sviftur ein'hverju
því, sem maður hefir mætur á, og
geti rnaður sjálfur ekkert við þetta
ráðið, þá fyllist maður sorg og söknuði
i yfir því, sem mist er eða manni hefir
ekki tekist að höndla“. (Fyrirsögn
kaflans: Von og kvíði, vonbrigði og
vonleysi).
Af þessu ætti að vera ljóst, að eg
notaði Sorg í æfiágripi Goethes af
ráðnum hug og í samræmi við ís-
lenzka málvenju og að kórvilluað-
dróttun Iðunnarritstjórans hefir orðið
ti! af þekkingarskorti hans á íslenzkri
tungu, gáleysi, illvilja eða einhverj-
nm „samsettum hugðum' ‘.
Alexander Jóhanneason.
i skeytum hefir verið sagt nokkuð
frá tilraunum Karls, fyrrum keirara
Austurríkismanna og konungs Ung-
ver.ja, til ]?ess að ná aftur völdum í
Ungverjalaudi. pótti tvísýnt um tíma,
hvort Iionum mundi ekki takast að
kornu f'ram vilja sínum, því mikill
hluti hersins var honum fylgjandi og
kaþólska klerkastéttin sömuleiðis. Var
cVestur hluti Ungver jalands í uppnámi
um uokkurt skeið, og má telja vist,
að -ef Ungvcrjar' hefðu verið látnir
sjálfráðir um málið, þá væri Karl nú
kominn á konungsstól í Budapest. En
fyrir erlenda íhlutun varð ekkert af
þessu. Páskaleiðangur konungsins varð
fýluferð og nú er hann kominn til
Sviss aftur, og þykir þar verri gest-
ur efti'r en áður. Er jafnvel talið
Hklegt, a'ð hann muni nota sér boð
Spánarkonungs og fara til hans.
Talið er víst, að þessi tilraun kon-
ungsins til ríkistöku i Ungverjalandi,
sé orðin fyrir áeggjan vina hans þar,
einkuin þó tveggja rnanna, Lehar of-
ursta, sem er gamall vopiiafélagi kon-
ungsins og Mikes bisknps og greifa.
Tóku þesiiir merin honum opiium örm-
um, er hann kom til Ungverjaiands.
Einn áhrifamesti stjórnmáiamaður
Ungverja, Andrassy greifi, tók lika
málstað konungsins, og varð hann for-
sætisráðherra meðan á stímaörakinu
stóð. Þá þykir ekki neinn vafi á ]m.
að ríkisstjórinn, Horthy, hafi hvatt
Ivonunginn til þessa tiltækis, enda \ar
hanh fús á að afsala sér sölduih í
heridnr hans. pannig virðisi- enginn
þrándur hafa verið í götn KsrL upp
í konungssessinn, frá þegnuni rikis-
ins. Enn fremur er talið víso. að
Karl hafi þótst viss um fylgi Frakka,
því hann hafði fengið áskorun mn nð
■leita nftur konungstignar frá ka-
þólsku klerkastéttinni í Frakkt 'i
og háttsottur maður innan frönsku
stjómarinnar hafði heitið honum
fylgi sínu, og talið honum trú um,
að hún mundi láta málið afskifta-
laust.
Aðalmótstaðan kom líka úr annari
átt, nefnilega frá hinu svo nefnda
„litla þríveldasambandi“. Einn hinn
færasti stjórnmálamaður Tjekkosló-
vakíu, dr. Benes, sýndi fram á, að ef
konungsstjórn kæmist á aftur í Ung-
verjalandi, þá mundisennilega verða
endnrskoðaður friðarsamningur banda-
manna við Ungverja (Trianon-samn-
ingurinn) og jafnvel að Ungverjaland
og Austurrí.ki mundu þá sameinast á
ný, eins og áður var, og mundi þá
cinnig fara fram endurskoðun á samn.
ingunum við Airsturríkismenn (St.
German-samiringurinrr). En af þessn
mirndi litla þríveldasamhandinu safa
hætta, bæði Tjekkoslóvakíu, Jugoslav-
íu og Rúmeníu, því að þau hefðu feng
ið iiind sitt frá Aústurríkismönnum
og Ungverjum. Hih tvii fyrstnefndn
lýstu því þess vegna strax yfir við
Ungverja, að þau álitu það rrægilegt
tilefni til ófriðar, ef Habsborgarætt -
irr kæmist á ný til valda í Ungverja-
landi. Síðar tókn Rúmenar í sama
sfrenginn, og enn fremur Italir. Og
bandamenn hafa lýst yfir því, að þeir
mótmæli ríkistöfeunni. Við þerta heykt
ist. uppgjafakonungurinn og lagðis'
veikui’. Dvaldi hann nokkra daga eftir
þetta í þorpinu Steinamanger á. landa-
mærum Ungverjalands og fór síðan
til Sviss. Hafði ferS hanu orðið hio
æ f i Hty rlitéga-:t u. A lerðirrni íil TTng-
verjálnnds var hann klæddur sem ensk
ur liðsforingi og hafði falsað vegá-
bréf. Vissu ekki rrema fáir menn hvað
um var að vóra, fyr en lranii kom til
Budapest á sjálfan páskamorguninn.
En á bakaleiðinni fylgdi honum lög-
reglulið og liðsforingjar úr her banda-
maniia, og var sterk gæsla höfð 'á
hónum.
Þegar Karl konungur sá, að von-
laust væri um að hann kænrist til
valda., gerði hann þá miðlunartillögn,
að hanri bauðst til að afsala sér kon-
ungdómi í hendur Ottó prins, sonar
síns. En því var ekki tekið. Hefir
konungurinn nú um orð, að bíða betra
færis síðar. Hann kveðst vera lögleg-
ur konungur landsins, og muni helda
rétti sínrtm til streytu, en kveðst hafa
látið rrndan í þetta sinn, vegna hags-
nruna lands og þjóðar.
Æfintýrinu er nú lokið aS sinni,
en hver veit nema kongi skjóti upp
aftur von bráðar. Nýlega hafa borist
skeyti um það hingað, að stjórnin
ungverska hafi, eftir að Karl kon-
ungur var farilin, lýst yfir þeirri skoð-
un sinni, að Karl konungur væri lög-
mætur drotnari landsins. Og hver veit
nema honum takist að komast að
samningum við nágranna sína í Tjekko
slóvakíu og Jugoslavíu.
Kirkjuhljómleikarnip.
Næstkomandi þriðjudag heldur Páll
Isólfsson enn kirkjuhljómleika í Dóm-
kirkjunni. Hafa þeir nú verið haldnir
fimm sinnum og ávalt við ágæta að-
sókn. Þegar þess er gætt, að kirkjan
tekur miklu fleiri áheyrendur en sam-
komuhúsin hér í bænum, er auðsætt,
að hljómleikar þessir hafa náð óvenju
[ góðum tökum á fólki. Er það vel far-
I ið, að Reykvíkingar hafa kunnað að
meta. gagnsemi þá og unað, sem góð
sönglist veitir.
Hljómleikarnir næstu verðp. haldn-
ir til ágóða fyrir landsspítalasjóð ís-
lands. Ætti það ekki að draga úr að-
sókninni, að fólki veitist það tvent í
einu, að lilusta á góða meðferð frægra
tónsmíða og styðjn þjóðnýt nraniiúðar-
fyrirtæki. Verðru- huidsspítalasjóðnum
því yomtndi góður styrkur að þessari
aðstoð Páls ísólfssonar og fólksins,
Mem starfar að hljómleikununr með
hontim. Kirkjan mun verða alsetin nú
eins og áðrrr.
DA6B0K
□ EDDA 59214257-1
; -Bið '. f.'.==F.. af R.'. M.'.
j [I fl P H 1924258
(■ II. U. I. Stvd 1024259—1
Kóræfing annað kvöld. kl.. 9. I).
!
i Knattí'pyrnníelagið Víkingur. Aðal-
fundur í dag kl. 2 í Bárunni uppi lijá
í 3. og 4. flokkr. — Fjölmenrrið.
Trúlofun sína opinberuðu á sumar-
daginn fyrsta ungfrú pórtrnn Jóns-
dóttir á Hótel Island og Einar Guð-
• bjartsson Irá Arnarfirði.
Uamla Bíó sýnir' þessa dagana mjög
áhrifamikla, mynd, „Raúða hanskann“
Sést þar hvert.atriðið öðru undarlegra:
j Eru þar ruörg' öfl að verka, sem
| ludda áhuga áhorfandans óskiftum frá
| byrjun til enda.
Sálarrannsóknarfélag íslands held-
i
! ur fmrd á miðvikudaginn næstkomandi
]'k). 8l/2 í Iðnó. pórðrir læknir Sveins-
i son flytur erindi.
Samkomu heldur O. J. Olserr í kvöld
kl. 7 í I ngólfsstræti 21B. Uniræðu-
éfni: Friður á jörðu.
Fylla kom í fyrradag inn hiugað,
og hafði ekkert „veitt“.
Skemtun barnadagsins í Iðnó vaf
endurtokin í gærkveldi. Hefir verið
«v<> mikil aðsókn að þeim skemtuu-
um, að hún verður enn halditr í kveld.
Fjáxlögin voru til annaiar umræðu
í ga'i' á löngum fundi. Verður sagt
írá. afdrifum þeirra í næsta blaði.
Verðlagsnefndin sáluð. Lögbirtinga-
’tdaðið síðasta tilkynnir, að reglugerð
‘28. sept. 192(1 sé úr gildi feld, og er
verðlagsnðfndin samtímis lögð niður.
Þorlákur Björnsson verslunarmaður
er orðinn l'nlltrúi heildsöluverslunar-
innar H. Benediktsson & Co.
Heiðursmerki. Oddur C. Thoraren-
nen konsúli, fyrrum lyfsali á Akur-
eyri, hefir verið sæmdur riddara-
krossi St. Ólafsorðunriar norsku, 1.
tlokks.
Fyrirlestur um Jón biskup Ogmunds
son ætlar dr. Jón Hélgasön biskup
að Iralda í dag kl. 3 í Nýja Bíó fyrir
Al'þýðuí'ræðslu Stúdentafélágsins. —■
Vorn í gær li'ðnar á'tta aldir frá
dauða þess merka biskups, cr fyrstur
sát á biskuþsstóli í Norðiendingafjórð-
urrgi. Þái’f éigi að efa að erindi þetta
verður fróðlegt mjög og vel flutt og
verður áreiðanlega vissara að hafa
fyrra fallið á því að ná sé í aðgöngu-
miða.
Gesta er von hingað til bæjarins
í júuílok næstkomandi. Kemur þá
hingað eimskipið „Empress of India“
frá Englandi með um fimm hundruð
farþega, og dvelur hér í nokkra daga.
Verður margt merkra manna með
skipinu. — Ensk ferðainannaskip hafa
eigi koruið hingað síðan 1914.
-©-