Morgunblaðið - 13.05.1921, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 13.05.1921, Blaðsíða 4
 MOuG'i:\BL AÐIÐ yertíðaii'lok, krossmessa oi- hvitasunna eru í þessari viku og því þarf margt að kaupa — Fatnað, Regnkágiur, Síiki- svuntur, Fiúneil, Slifsi, Blússur, kjólaefni og margt og margt annað er þið fáið best og ódýrast í verzlun Árna Eirikssonar Austurstræti 6. 0. S. n. mótarhjól vil eg selja. Verð 2500 kr. rljólið selst að eins gegu fullri greiðslu við móttöku þess Verzlunin Breiöablik Simi 168. Sími 168. Hefir á boðstólum fyrir hvíta- sunnu alt til bökunar. x <u '£ ro O <s> i— 3 lO Perur Ananas Apricots Kirsiber Plommur Bláber Eggjaplómur Jarðarber. Kökur og kex Sultutau Marmelade Orange Tomata heila Súpur í kraft Grænar baunir Picles Sardínur í olíu og Lauk [tomat Salat olíu Búðingur í dósum o. m. m. fl. Reynið og sannfœrist, bestu og ódýrustu kaupin werða í Breiðabliki. — Vör- ur sendar heim. Munið ávalt að versla í BREIÐ ABLIKI. Sólrík stofa með húsgögnum til leigu frá 14. mai á Bergst.str. 51. boftur SuðmundssDn Sanitas. Talsími 190. der er indarbejdet hos Köbmændene, söges af konkurreneedygtig köbenhavrisk Orossist til mod god Provision at sælge forskellige Toiletartikler. Henvendelse med alle Oplysninger til: Lauritz Andersen, Havnegade II Köbe,nhavn K. Laxveiði. Tilboð um laxveiði i Elliðaánum í sumar trá 1. júní til 31. ágúst senðist borgarstjóra fyrir 17. þessa mánaðar kl. 4 síððegis. Skilmálar til sýnis á skrifstofu borgarstjóra. Borgarstjórinn i Reykjavik 10. mai 1921. K. Zimsen. Fyrst um sinn verður lokað fyrir vatnsleiðslur bæjarins, nema í Skólavörðuholtinu innan Laugavegs og Þingholtsstrætis, frá kl. 9—11 á morgnana. Reykjavík 12. maí 1921. BæjaruErkfræðingurinn. Kaupið Morguoblaöjð. -.ríS09P' Vér munum framvegis öðru hverju birta vott- orð sem oss berast um GLAXO-mjólkina, til þess að sýna almenningi hvernig hún reynist þeim sem van- ist hafa á að nota hana. Hér birtist eitt slíkt vottorð: »Háttvirtu herrar. — Konau mín hefir beðið »mig að tjá yður hve fegin hún hafi verið er »þér tókuð að flytja hingað GLAXO-mjólkina. »A Englandi hafði hún vanist henni um langt »skeið og þó sérstaklega s m ljósmóðir og »hjúkrunarkona notað hana handa börnum og »sjúklingum. Að vísu hefir hún ekki þurft á »henni að halda á þann hátt hér, en þar á »móti notað hana til almennra heimilisþarfa og »sjálf um eitt skeið lifað aðallega á henni, þeg- »ar hún vegna lasleika varla mátti neyta ann- »arar fæðu, jafnvel ekki venjulegrar mjólkur »nemaaf skornum skamti. Þykist húnvarlaum »of geta mælt með þurmjólk þessari. Virðingarfylst Snæbjörn Jónsson Rvík l0/5 ’21- } M ¥ 1 S; I ■ S $ m 1 i M <■<-] I fl PEningaskápar Nokkrir peningaskápar til sölu. O. Johnson & Kaaben. Bíll til sölu. Lítið notaður Chevrolet-bíll til sölu nú þegar. Ol. Johnson. 8 stúlkur óskast í vinnu til Seyðisfjarðar. Þurfa að fara með Sterling næst. Upplýsingar hjá Hjalta Jónssyni framkvæmöastj, — 99 — borgun fyrir vikuvinnu. ÞaS var meiri fúlga en hann hafði nokkru sinni átt í einu. Hann var gersamlega ráð- þrota, hvernig hann ætti að fara að eyða öllum þess- um peningum. Hann hafði fundið gullnámu. Hann ráð- gerði að kaupa meiri föt, gerast áskrifandi að tímarit- um og kaupa ýmsar handbækur, sem hann var nú neydd- ur til að leita að á söfnum, þegar hann þurfti að nota þær. Hann sendi handritspakkann með pósti til Jouth Companion, og seinni hluta laugardagsins, þegar hann hafði lokið við uppkast að grein um perlu-kafara, fór hann og heimsótti Ruth. Hann hafði símað áður, svo hún tók sjálf á móti honum. Forna bylgjan af íturmensku cg heilbrigði streymdi um hana af persónu hans og Lunaði hana. Það var eins og hún ílæddi yfir í líkama hennar og- fossaði um æðamar eins og glóandi eldur- avo hún titraði ósjálfrátt við þetta aukna afl. Hann roðnaði ofurlítið, þegar hann tók í hönd hennar og horfði í bláu augun. En sólbruninn á andliti hans eftir átta mánaða dvöl í hitabeltinu dró úr roðanum, þótt þessi sólbruni hlífði ekki hálsinum á honum fyrir rauð- um röndum undan hálslíninu. Hún tók eftir þessum rauðu röndum og brosti að þeim, en brosið hvarf, þegar hún leit á fötin hans. Þau voru alveg mátuleg á hann, cg það leit út fyrir að hann væri orðinn grennri og beinvaxnari. Þar að auki hafði hann skift um höfuð- fat og var nú með mjúkan flókahatt. Hún mundi ekki eftir, að hafa verið svo únægð fyrri. Þessi breyting sem var orðin á honum hlaut að vera hennar verk. Qg hún var hreykin af því, og ásetti sér að umskapa hann enn meira. En mesta breytingin, sem fram hafði farið á honum, 7* — 100 — og sem hún var ánægðust með, var nú samt sem áður sú hve hann hafði breytt um málfæri og orð. Það var ekki að eins, að hann talaði réttara, heldur talaði hann með meiri léttleik í hugsuninni, og hann var auðugri að orðum. Það var ekki nema þegar hann varð sérlega hrif- mn og ákafur, að bar á sjómannstalinu og þá um leið, að bann slepti endingum orða. En fyrir utan þennan léttleik liugsunarinnar, varð hún vör við sama fimleik- ann í málinu, og gladdi það hana mjög. Þar kom fram bæfileiki hans til glettni og spaugs, sem hafði* aflað honum svo margra vina meðal félaga hans, en hann hafði ekki getað neitt þess hæfileika fyr í samtali við hana, því að hann skorti hæfileg orð. Hann fór að hafa það einhvernveginn á tilfinningunni, að hann væri ekki algerlega óviðkomandi persóna. Hann sagði Ruth frá starfi sínu, og að hann hefði ásett sér að hafa ofan af fyrir sér með því að skrifa og læra meira. En liann varð fyrir miklum vonbrigðum, því honum virtist hún ekki fallast á þetta og meira að segja vera því mótfallin. „Sjóið þér til“, sagði hún hreinskilnislega, ,rithöf- undarstarfsemi verður að vera eins og hvert annað verk. Eg veit auðvitað lítið um það, en eg nota almenn skyn- samleg rök. Maður getur ekki haft von um að verða duglegur járnsmiður og góður nema maður hafi lært starfið í 3 ár eða jafnvel 5. Rithöfundum er nú borgað betur en járnsmiðum, svo það eru vitanlega fleiri sem langa til að skrifa — sem reyna til að skrifa“. „Ef til vill. En get eg þá ekki verið svo af guði gerð- ur, að eg hafi sérstaka hæfileika til að skrifa?“ spurði hann og var ánægðnr með sjálfum sér, hve vel honum hafði tekist að segja þetta. Og á sama augnabliki var — 101 — eins og risi upp í huga hans mynd af öllu umhverfinu þáma ásamt fleiri atburðum úr lífi hans, atburðum sem voru ljótir og dýrslegir. Þessi mynd reis upp á auga- bragði án þess að rjúfa samræðuna eða trufla hugsanir hans. Hann sá sjálfan sig og þessa fögru, yndislegu ungu stúlku, sá sjálfan sig sitja frammi fyrir henni og tala við hana á fögru máli í stofu innan um bækur og myndir, og yfir allri myndinni hvíldi geislaljómi, en utan við hana í skugganum risu upp aðrar mótstæð- tr myndir. Hann heyrði enn bergmálið af rödd sinni, þegar hún svaraði:: „En liversu góða hæfileika, sem einhver hefir til þess að verða smiður, þá hefi eg aldrei heyrt um neinn, sem ekki þurfti fyrst að læra „Hvað ráðleggið þér mér þá?“ spurði hann. „En gleymið þér ekki, að eg hefi hæfileika til þess að skrifa. Eg get ekki skýrt það fyrir yður. En eg veit, að þeir búa í mér“. „Þó verðið þér að læra af kappi“ svaraði hún, og það hvort sem þér verðið rithöfundur eða ekki. Ment- un er nauðsynleg, hvaða lífsstarf sem þér veljið yíSur, og sú rnentun má ekki vera lítil eða af handahófi. Þér verðið fyrst að búa yður undir háskólanám“. „Já“ — sagði hann, en hún tók óðara fram í fyrir bonum, eins og henni hefði skyndilega dottið eitthvað í bug. „Vitanlega getið þér haldið áfram með skriftir yðar“. „Eg vari lika neyddur til þess“, sagði hann svip- þungur. „Hvers vegna f ‘ sagði hún og horfði á hann. „Ef eg ekki skrifa, getur ekkert orðið af háskóla- námi. Eg verð að vinna mér fyrir fæði, fötum og bókum“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.