Morgunblaðið - 14.06.1921, Page 2
2
MORGUNBLAÐIB
I kvöld keppa Vikingun og K. R. kl. 9. Honnablástur á Austunvelli kl. 8.
MORGUNBLAÐIÐ
Ritst jórar:
Vilhj. Finsen og Þorst. G-íslason.
Haframjöl
Kaffi
Fiskilínur 2Va, 3, 3l/2 lbs.
Ljábrýni
Ullarballar
Baðker
Taurullur
Síldarnet
Segldúkur
Fiskbönd]
Matskeiðar og gaflar
Deasertskeiðar og gaflar
Borðdúkadregill
Vasaklútar
Lífstykki
Golftreyjur
Sjalklútar
Vindlingar: Embassy
— Gold Flake
— Three Castle
— Country Life
— Three Nuns
Allar þessar vörur seljast lægsta
heildsöluverði.
I
Simi 282,
nrinn, einkum síðari lotan, hinn
skemtilegasti.
Að leikslokum afhenti Sigurjón
Pétursson »Fram« knattspyrnuhorn-
ið. Hafði það unnið mótið og sett
alls 12 mörk en fengið eitt. Vík-
ingar voru nr. 2, og settu 7 mörk
en fengu þrjii, en »R K.« settu eitt
mark en fengu 16.
■= DAGBÖK. =
™Blanaða-kórið. Samæfing í kvöld
kl. 8. Aríðandi að allir mæti stund-
víslega.
Knattspyrnan. í fyrrakvöld kl. 9
keptu »Vikingur« og »Valur«. End-
aði leikurinn svo að »Valur« sigr-
aði »Viking« með 3 : 0. Fyrri hálf-
leikurinn var svo jafn, að ekki mátti
í millum sjá, en i síðari hálfleikn-
um sóttu »Valsmenn« sig tölu vert
mikið, og skoruðu 3 mörk með
litlu millibili. Leikurinn var yfir-
leitt daufur hjá báðum; þó hafði
maður búist við fjörugum leik, vegna
þess hve jöfn félögin voru.
Suðurland kom hingað á laugar-
dagskvöldið. Meðal farþega voru,
Ol. Jóhannesson konsúlí, Asgeir
Torfason skipstj., Gunnlaugur Þor-
steinsson héraðslæknir á Þingeyri,
Friðrik Hjartarson kennari o. fl
Gullfoss fór frá Kaupmannahðfn
í fyrradag. Skipið kemur við í Leith.
Hingað mun það liklega koma á
þriðjudag.
Laqarjoss kom hingað aðfaranótt
sunnudagsins. Meðal farþega voru:
Guðm. Bergsson póstm., fónas Jón-
asson ritstj. frá Akureyri, Eggert
Laxdal kaupm., Jón Laxdal stórkaup
maður, Eskildsen framkv.stj., Haut
fulltrúi, Valdemar Jónsson versl.m.,
Jón Espholin kaupm., o. fl.
Rtyiiii Pðis!
Færeysk. peysur
fyrirliggjandi
Tage & F. C. Möllerj
Héðan fer skipið að öllu forfalla-
lausn eftir miðjan dag í dag.
Botnia er væutanlég hiugað á
fimtudag.
Island á að fara þann 21. þ. m.
frá Kaupm.höfn. Komið hefir til
mála, að skipið fari fyr, en ekki
mun það verða ákveðið enn. Mun
það verða ákveðið náriar eftir komu
Botniu hingað.
Söngskemtun Eggerts Stefánssonar
fór fram í Nýja Bíó á sunnudaginn,
fyrir allmiklum fjölda áheyrenda.
Var söngmaðurinn auðheyrilega betur
»upplagður« nú en í fyrri skiftin
sem hann hefir sungið. Gerðu áheyr-
endur góðan róm að söngnum og
klöppuðu honum lof í lófa.
Ósýnilegi gesturinn. í veitinga-
húsi Rosenbergs var oftast gest-
kvæmt seinni hluta dags í fyrra-
dag, en líkt var að koma þar og
vant er. Allur munurinn var í því
fólginn, að þrjár stúlkur höfðu ver-
ið settar til þess að taka á móti borg
un í stað þjónanna, í von um að
gestir mundu þá greiða ríflegar
fyrir sig. Mun þetta og hafa orðið
og allmikið fje hafa safnast í sjóð
iþýsku barnanna. Tveir Þjóðverjar
sungu vísur og lásu upp, við og við.
Óþarflega var höndum kastað til
undirbúnings þessarar samblöndu
og þarf betur til að vanda, ef fólk
á ekki að verða leitt á slíku. 1 gær-
kveldi var skemtun haldin í Nýja
Bíó fyrir þýsku börnin og var þar
fult hús að kalla.
-0=-
láráöuendni drengja.
Það hefir stundum verið kvartað
yfir því i blöðunum, að tæpast væri
hægt að trúa nokkrum dreng hér i
bænum fyrir trúnaðarstöfum — þó
í smáum stíl væri — hinir ráðvöndu
rétt undantekning. Þetta er sorg-
legt, ef satt er.
Á sunnudaginn var eg á gangi á
Óðinsgötunni, var þar þá drengur,
—■ á að giska um fermingaraldur, —
að bjóða fisk, sem hann haíði í
hjólbörum. Eg keypti af honum
1 fisk, en þar eð eg var á leið
austur í bæ, bað eg hann að koma
fiiskinum heim til rnín, en það var
mest 3 mínutna gangur þaðan sem
við vorum, og sagði eg honum svo
greinilega um húsnúmirið, að ekki
gat verið um að villast. Eu fisk-
urinn eer ekki kominn heim enn.
Er eitt af tvennu: að drengurinn
hefir afhent fiskinn í aunað hús,
sem eg get tæplega skilið, því hús-
ið var svo skamt frá okkur, eða hitt
að hann hefir viljandi eða óviljandi
gleymt að skila fiskinum.
Þessar linur eru aðeins skrifaðar
til þess, að menn trúi ekki ofve
drengjum, sem þeir ekkert þekkja.
Oheppinn kaupandi.
Fiskilínur 1 J/a og 2 punda
Ongla No. 7, 8 & 9 ex.ex.long
Manilla flestar stærðir
Hampur tjargaður
Keðjjur 5/s °g 3li”
Botnfarfi
Sissons farfavörur
Olíufatnaður
Hollenzkir vindlar
Brasso fægilögur
Zebra ofnsverta
»Víking« skipskex
Te ágætis tegundir
Þvottaduft
Regnkápur karlmanna
Underwood — ritvélar
o. m fl.
Thora Friðriksson
óskar eftir tveimur góðum her-
bergjum í eða nærri miðbænum
frá 1. ágúst. Afgreiðsla blaðsins
tekur á móti tilboðunl
með 1 holíi, óskast til kaups.
Afgr. vísar á.
Bifpeið
fer austur að Húsatóftum á
Skeiðum fimtudaginn 16. þessa
mánaðar. Nokkrir menn geta
fengið far. Uppl. á -Bifreiðast. í
Lækjartorgi 2, sími 485
Guðm. Jónsson.
Erl. símfregnir
frá fréttaritara Morgxmblaðsins.
Khöfn 10. júaí.
Norska verkfallið.
Frá Kristjmíu er símað, að full-
trúar landsbandalags verkamanna
hafi ákvarðað, að stórverkfallinu skuli
lokið_ föstudaginn, en sjómannaverk-
fallinu haldið áfram.
ISISMI
er laust 1. september næstkomandi.
Árslaun 1500 krónur, fæði og húsnæði.
Allar upplýsingar fást hjá undirrituðum, sem tekur á móti
umsóknum til 10 ágúst næstkomandi.
Í3afirði, 9. júní 1921.
Héraðslæknirinn, Isafirði.
Allin styðji Landspítalasjóðinn
og gefi einn hlut hver, á hina fyrirhuguðu hlutaveitu sjóðsins
19. júní næstkomandi.
Húseigenður í bænum
eru ámintir um að hreinsa nú þegar húslóðir sínar og láta flytja
burtu allan óþverra og óþarfa skran, sem á þeim kann að vera.
Ennfremur að sjá um að sorpílát og salerni séu i góðu standi.
Heilbrigðisfulltrúinn í Reykjavík 13 júní 1921.
Agúst Jósefsson.
j
gerduft
Hið nafnfræga amerís'ka Royal
Baking Powder, húiS til úr Kremor-
tartar, framleiddu úr vínberjum.
Notað á öUum bestu heimilum um víða veröld
til þess að búa til góðar kökur, kex 0. s. frv. G-er-
ir fæðuna auðmelta, Ijúffenga og heilnæma.
Að eins selt í dósum og missir aldrei styrkleik
sinn né fersMeik.
Selt í heildverzlun
Garðars Gíslasonar
0g flestum matvöruverzlunum.
jiiiiiiihiwi———imrrBiTi—nrTTrr
P. 03. OecabsEn&Sön
Timburverslun. Stofnúð 1829
Kaupmannahöfn C, Símnefni: Granfuru
Carl-Lundsgade New 2Tebra Code
Selur timbur í stærri og smærri sendingum frá Khöfn.
Einnig heila skipsfarma frá Svíþjóð.
Bi.Sjið um tilboð. Að eins heildsala.
Fjársvik.
Frá Kristjanlu er simað, að Christ-
offer Hannevig skipamiðlaii, hafi
verið tekinn fastur fyrir fjársvik er
nemi 20 miljónum króna.
i—... » 0 • ■
mmm
Bifreiða og bifhjólaTátryggingar
Trolle & Rothe h.f.