Morgunblaðið - 22.06.1921, Side 2
B
MORGUNBLAÐIÐ
Knattspyrnumót Islands hefst i kvöld kl. 9. K. R. og Víkingur keppa.
baðherbergi og ennfremnr sett á
skipið kraítmikla loftskeytastöð.
Á íslandi koma nú m. a. forstjóri
nýlendustjórnarinnar á Grænlandi
Dangaard Jensen, etatsráð Manberg,
professor Tuxen, Andersen forstjóri
og frú hans, Tulinius stórkaupm. og
fjölskylda hans, og einnig hinir fyr-
nefndu fulltrúar blaðanna dönsku auk
fjölda margra annara farþega, flest
íslendingar.
[riotDrskDnnortan ,fians
fæst leigö til flutninga fyrir mjög sanngjarna leigu.
Talið viö
O. Benjamínsson
Sími 166.
4
Það hefst í kvöld og keppa 3
félög, K. R., Víkingur og Fram.
Mót þetta er merkasta knattspyrnu-
mót ársins og þykir jafna miklu
máli skifta, hvert félagið hreppir
nafnbótina »besta Knattspyrnu/élag
Islands«, þó stundum geti farið svo,
annarar nafnbótar vegna, að »versta
Knattspyrnufélag Reykjavíkur* verði
•besta Knattspyrnufélag ísl nds*.
Fyrsta íslandsmótið fór fram árið
1912 og vann þá K. R. íslandsbik-
arinn. Næstu tvö ár var ekki kept,
en árið 1915, 1916, 1917 og 1918
vann Fram bikarinn. Arið 1919
vann K. R. og í fyrra vann Vík-
ingur bikarinn. Á þessu móti keppa
K. R., Vikingur og Fram og eigast
þau fyistnefndu við í kvöld. Þykir
liklegt, að bikarinn lendi hjá Fram
að þessu sinni, ef dæma skal eftir
Reykjavikurmótinu. En óvænt tið-
indi geta altaf orðið.
«- mm 0 ....
Sæsimabilunin.
Sæsíminn er ekki kominn i lag
ennþá og er þó liðinn hálfur mán-
uður frá því að hann slitnaði. Er
þessi bilun og hin langa bið á við-
gerðinni bagaleg fram úr hófi, því
óven.ulega mikið er að gera nú, og
stafar það sumpart af konungskom-
unni, og i öðru lagi er þetta hinn
versti timi árs fyrir loftskeytaaf-
greiðslu vegna birtunnar á nóttinni.
Loftskeytastöðin hefir ekki nærri við
að afgreiða þau skeyti sem komast
þurfa leiðar sinnar, og er það al-
titt þessa dagana að menn fá skeyti
3—5 daga gömul, Er það svo hæg-
fara afgreiðsla að margir geta beðið
tjón af.
Það er vegna samnings íslands
við »Stóra Noiræna*, að stöðin hér
á Melunum var ekki höfð sterkari
«n hún er, svo ekki yrði um sam-
kepni að ræða frá henni. En ein-
mitt þessvegna hefir félagið siðferði-
lega skyldu til, að bregða ávalt við
pegar l stað er sæsiminn slitnar og
gera við simann tafarlaust. Samn-
ingsbundna skyldu hefir félagið ekki
til þessa, þvi samkvæmt samning-
unum getur félaginu haldist uppi
að láta símann vera i lamasessi mán-
uðum saman.
í þetta sinn var félagið i fljótara
lagi til að senda viðgerðaskip til
Færeyja, en þó ekki eins fljótt eins
þurft hefði að vera. En skipið mun
vera komið á staðinn fyrir nokkrum
dögum og má þvi búast við að
siminn komist í lag á hverri stundu.
Hver dagurinn er dýrmætur.
-------0------
Qstur
m
vil eg kaupa
UUh. Finsen ritstjóri.
mysu, gouöa, schweizer,
bachsteiner, appetit, nýkom-
inn í
uerzl. „Uísir“.
Færaysk. pEysur
fyrirliggjandi
Tage & F. C. Möller
Segldúkur í ágætu standi
til sölu ódýrt
Magnús Guðmundsson
skipasmiður
Gullúr merkt E. M., ásamt
nælu tapaðist 19. júní, skilist
gegn fundarlaunum á
Skólavörðustíg 38.
Eggert Stefánsson söng-
vari hefir snngið inn í »grammofón«
nokkur lög eftir Sigvalda Kaldalóns
bróður sinn, og fást hér nú Söng-
kassaplötur með þeim lögum. Þar
á meðal er lagið, sem Eggert söng
hér fyrra sunnudag við kvæðið »A1-
faðir ræður«, eftir Sigurð Eggerz,
og þótti það mjög gott.
-= DA6BÚK. =-
□ Edda 592162467» — 1.
Blandaða kóríð. Samæfing
i kvöld kl. 9 stundvíslega.
Anqela, sagan sem kom út i
Morgunblaðinu fyrir nokkurum ár-
um hefir nú verið gefin út. Sagan
er mjög skemtileg og ódýr eftir því
sem nú gerist um bækur. Fæst hún
á afgreiðslu Morgunblaðsins.
Heitnilisiðnaðarsýninqin. Nefnd sýn-
ingarinnar hefir beðið að geta þess,
að eftir þennan dag verði ekki tek-
ið á móti munum á sýninguna, sök-
um anna og annara orsaka.
Strandvarnirnar. »Beskytteren«
kom hingað í gær frá Danmörku
A skipið að vera hér um tíma i
stað »Islands Falk«, sem nú er ver-
ið að gera við ytra.
Skipið hafði með sér 3 togara,
sem verið höfðu við veiðar í land-
helgi. Voru tveir þeirra þýskir og
einn enskur.
Sirius fer héðan í dag kl. 10 árd.
Meðal farþega verða: }ens Eyjólfs-
son kaupm,, Þorv. Egilsson, Kjartan
Rosinkransson, Asgeir Torfason
skipstj., Jakobsen endurskoðari, frú
Friða Jónsson, frú Dýrleif Tómas-
dóttir o. fl.
Synodus hefst á morgan kl. 1 og
verður þá Halldór Kolbeins kand.
theol. vigður prestur til Flateyjar.
Gaqnfrœðaprófi er nú lokið í
Mentaskólanum.
Norsku fimleikantennirnir fóru til
Þingvalla i gær og með þeim mót-
tókunefndin og nokkuð af fólki
Freðfiskur
nýkomin i
verzl. „¥ísir“
Stígvél nr. 35 eru til
sölu, verö 25 kr. Til sýnis
á afgreiðslunni.
Smóking til sölu. A. v. á.
Ólaffa Jóhannsdóttir
talar í kvölö kl, 8'la í húsi
K. F. U. M. AHir velkomnir.
Da mange Damer var forhind-
red, paa Grund av Vejret at
tage Dronningskrinet í öjesyn,
tilbydes det Torsdag Kl. 1—5.
Amtmanöinöe Havsteen
Ingólfsstræti 10, I. Sal.
héðan úr bænum. A sunnudaginn
fóru iþróttamennirnir ásamt ýmsu
fólki suður i Hafnarfjörð, gengu það-
an upp með Kaldá og óku siðan
suður að Hrauni. Voru um so
manns í þeirri ferð, þar á meðal
norski ræðismaðurinn og landsslma-
stjóri. I gærkvöldi var fimleikamönn-
unum haldið kveðjusauisæti i Nýja
Bió og tóku rúmlega hundrað manns
þátt í þvi. Var siðan stiginn dans í
Templarahúsinu.
Búmannsklukkan. Klukkunni verð-
ur seinkað um eina klukkustund i
nótt, samkvæmt ákvörðun stjórnar-
ráðsins er nú hefir felt úr gildi
timareikningsreglugerð sína, sem sett
var í maiz i vetur.
——-----0— -------
iiiiimii wii .............................. II Iiiiiiinminiiiiiiinn—
Jarðarför Einars sonar okkar fer frara frá dómkirkjunni fimtu-
daginn 23. þ. ra. klukkan 107» fyrir hádegi.
Geirþrúður og Helgi Zoega.
Jarðarför konunnar minnar, Ingveldar Gestsdóttur, er andaðiat
þann 20. þessa mánaðar, fer fram frá Landakotsspítala föstudaginn
24. þessa mánaðar kl. 47» siðdegis.
Halldór Samúelsson.
Jarðarför Sig. Jónssonar Hverfisgötu 83, fer fram frá Fri-
kirkjunni föstudagiun 24 þ. m. kl. 2.
Samúel Ólafsson.
Jarðarför Þorgils Snorrasonar, Hverfisgötu 83 fer fram frá
Fríkirkjunni kl. 12 á hádegi föstudaginn 24 þ. m.
/
Samúel Olafsson.
Auglýsing
um aö hinn sérstaki tímareikningur
falli niður.
Reglugjörð stjórnarráðsins 15. marz 1921, um sér-
stakan tímareikning, er úr gilöi felö. Þetta kemur til
framkvæmöa þannig, aö miðvikuðagurinn 22. júní enðar
einni klukkustunö eftir miðnætti samkvæmt tímareikningi
þeim, sem ákveðinn er með nefnöri reglugjörð, og ber þá
að seinka klukkum eftir því.
Þetta birtist almenningi hérmeð til Ieiðbeiningar og
eftirbreytni.
Lögreglusjórinn í Reykjavík, 20. júní 1921.
Jón Hermannsson.
Det kgl. oktr. Söassflrance--Kompagni.
tekur að sér aBs konar s jóvátrygging & r.
Að&lumboðamaSur fyrir ÍHland
BOOEET CLAESSEN, hæstaréttarmálaflutiiingsmath*.
*
Válryggingarfálðgin
SKANDINAVIA — BALTICA — NATIONAL
Hlutafje samtals 43 miljónir króua.
ÍSLANDS-DEILDIN
TROLLE & ROTHE hf. Roykjavík.
AUskonar sjó- og stríCsvátryggingar á skipum og vöruai.
gegn lægstu iCgjöldum.
Ofannefnd félög hafa afhent Mandsbanka í Reykjavík til geyrtuda
hálfa millién krónur,
aem tryggingarfé fyrir skaðabótagreiðslum. Fljót og góð skaðabótae
greiðsla. öll tjón verða gerð npp hér á staðnum og félög jþesn hlÚ
vamarþing hér. — BANKAMBDMÆLI: fSLANDSBANEX
T