Morgunblaðið - 29.07.1921, Side 1

Morgunblaðið - 29.07.1921, Side 1
mmmmm Gamla Bíó mmmm PÉtir lemi Ný Olaf Fönss-mynd í 5 þátum auk formála. Samin og útbúin á leik- svið af Fritz Magnusen. Aðalhlutvekið leikur Olaff Fönss. Einnig ná nefna hina góð- kunnu leikara: Vald. Möllet*, Cajjus Bruun, Ebbe Thomsen Lund. Þetta er vafalaust lang- besta Olaf Fönss-mynd sem sést hefir. Sýning kl. 9. Erl. símfregnir frá fréttaritara MorjfunblaBsina. Khöfn 27. júlí. Tyrkir fara enn halloka fyrir Grikkjum. - Stjjórn- in flúin frá Angora. Taka Grikkir Konstan- tinopel? Frá Konstantinopel er slmað, að stjórn þjóðernissinnanna tyrknesku sé flúin frá Angora austur á bóginn til Rivas. Kemalistar hafa beðið bandamenn að taka i taumana og stöðva styrj- öldina. Frá Aþenu er simað, að gríska herráðið sé að bera saman ráð sín um herför til Korstaniínopel, þó að varnarlið bandamanna sitji þar og hafi nýskeð fengið 10 þúsund her- manna liðsauka. -0- IN HÍIlRM A landbúnaðarsýningunni stóð til að sýnd yrði plógvél ein nýrrar teg- hndar, sem náð hefir mikilli úlbreiðslu á síðustu árum. En milliferðaskipin Rátu ekki flutt vélina hingað i tæka {íð, svo sýningin varð af henni og Vat það illa farið, þvi þar er um öýung að ræða, sem bændur hafa vonandi gott af að kynnast. En nú með Lagarfoss kom vélin ‘'iogað og er byrjuð að starfa. Hún r6tar upp jörðinni suður i Fossvogi sýnir þau vinnubrögð, að plæg- lЧaraðferðirnar sem menn eiga að Veojast virðast fornaldarlegar. Þúfnabaninn, en því nafni hefir v þessi verið nefnd og er réttnefni, er drá«arvél mikil, er hefir 8s hesta afl og gengu*1 fyrir benzini. Er hún á fjórum hjólum og eru framhjólin smi, en afturhjólin afarstór; þvermál þeirra er á fjórðu alin. Þar sem jarðvegur er votlendur má setja stál- hlifar metersbreiðar á hjólin, svo vélin sökkvi ekki i, og ennfremur varna breiðu hjólin vélinni því að velta um koll, þó mikill sé hliðar- halli. En á harðlendi og sléttu eru mjó hjól notuð. Breiðu hjólin gera það einnig að verkum, að vélin gengur slyðrulaust yfir hvað mikið kargaþýfi sem er. Má nota þennan hluta vélarinnar til alls þess, sem dráttarvélar eru venjulegs notaðar til. Vegur »togari< þessi nálægt 4 smál. en nokkuð meira ef breiðu hjólin, eða hjólskórnir eru á. Plægingarvélin er fest aftan i dráttarvélina. Er það sivalningur freklega þriggja metra langur, hjól sitt á hvorum enda.'en ás á milli. Á ás þennan eru festir plóghnífar, þverbeygðir i endann, þannig að þeir skera bæði lárétt og lóðrétt þegar sívalningurinn snýst. Tala þeirra er mismunandi eftir þvi hvað smátt á að mylja svörðinn en oftast eru not- aðir frá 100 til 150 hnifar á sivaln- inginn. Drifás gengur frá aflvélinni til sivalningsins, og snýr vélin hon- um með miklum hraða. Getur sá sem stýrir vélinni haft fulla stjórn á plógsivalningnum, lyft honum upp svo að hann sneiti ekki jörðina og beitt honum misjafnlega djúpt með einu handtaki. Þegar plægt er snýst sivalningur- inn með miklum hraða, tætir gras- svörðinn i tætlur og þeytir hon- um langar leiðir aftur undan sér. Við tilraunirnar i Fossvogi var not- uð stutt en sterk tegund af hnifum og var plógfarið 8 þumlunga djúpt, miðað við að yfirborðið hafi verið slétt að kalla, þvi vélin er svo þung að hún pressar niður þúfurnar áður en sivalningnrinn fer yfir þær og plægist þvi svörðurinn milli þúfna miklu betur en með gamla plæg- ingarlaginu. Jörðin tælist í sundur, moldin fer í dust, en grasrótin i smáflyksur, sem liggja efst iflaginu. Er það langt til að sjá eins og plægð og margherfuð slétta, sem staðið hefir yfir sumartima og er byrjuð að gróa. En þegar nær er komið, sést að flagið er nýplægt, en meira liggur af grasrótartætlun- um ofan á en í venjulegum sléttum, vegna þess að þær eru léttari en moldin og hafa orðið efstar þegar plógurion henti þeim af sér. Eftir eina plægingu með 100 hnifum Ht- ur flagið mjög vel út en sé það plægt aftur og fleiri hnifar notaðir er svo vel frá þvi gengið, að full- yrða má, að ókleyft sé að vinna verkið eins vel með verkfærum þeim er hingað til hafa verið notuð hér á landi, hversu vel sem til ervand- að, og hvað mikið sem til er kostað. Við tilraunirnar í Fossvogi sem gerðar hafa verið á þurrum móa og mýrlendi, fór vélin álika hart eins og maður gengur hægt, og breiddin sem hún hefir fyrir i einu er 21/* meter. Geri maður ráð fyrir að hún fari fjóra kilómetra á klukku- H. BENEDIKTSSON & CO. Höfum fyrirliggjandi: Sildar og fiskiriiðursuðu frá liorcanners Ltd., Stavanger. Pétur A. jónsson syngur í Nýja Bíó mánudaginn I. ágúst kl. 7*/a stundvíslega. I siðasta sinn. Ný söngskrá. Aðgöngumiðar seldir frá í dag í Bókaverslun ísafoldar og Sig- fúsar Eymundssonar og kosta kr. 2,00 og 3,50. tlma, ætti hún að piægja einn hekt- ara á klukkustund. En þá verður spildan sem hún vinnur á að vera stór, svo engar séu tafir við að snúa við. A mjög smáum spildum má ekki láta vélina vinna, því þá fer of mikill tími til ónýtis. Jarðveg- urinn má ekki vera grýttur; að visu gerir e^ki mjög mikið til þó lausir steinar ekki stórir séu hér og hvar á stangli, en jarðfastir steinar mega ekki vera fyrir. Að öðru leyti ger- ir ekkert til hvernig landið er, það má vera hversu stórþýft sem vera skal, votlendt og jarðvegurinn seig- ur. Og af þesskonar jarðvegi er nóg til á íslandi. Svo mikið, að allar jarðabætnr sem gerðar hafa verið á síðari árum eru þar eins og dropi i hafinn. En með komu'þessarar vél- ar hingað, virðist mega ætla, að það vopn sé fengið gegn þúfunum, sem ráðið geti niðurlögum þeirra i stór- um stil. Þúfnabaninn einn getur sléttað meira, en gert er nú með plóg og herfi á öllu landinu. Má þvi fullyrða, að hér sé verk- færi það fengið sem meiri þýðingu hafi fyrir íslenskan landbúnað en nokkurt það tæki er hingað hefir komið áður. Vélin hefir verið feng- in hingað til reynslu frá Stokkhólmi en þýsk er hún að uppruna. Verð- ur hún til reynslu hér i tiu daga á ábyrgð verksmiðjunnar og stjórnar henni maður frá henni. En sjálfsagt er að Búnaðarfélagið fái þann styrk hins opmbera sem með þarf til þess að kaupa vélina, því hún hefir sýnt það að hún hæfir betur staðháttum hér en nokkurt landbúnaðarverkfæri útlendt er hingað hefir komið. Verð- ið er að visu mikið — 60 þúsund krónur, — en afköstin eru lika stórkostleg. Hljómlist. Viðtal við Jón Leifs. Hér í blaðinu hefir áður verið getið um komu Annie og Jóns Leifs hingað. Hún mun ætla að halda hér hljómleika innanskams. Jón Leifs hefir dvalið í Þýska- landi ófriðarárin og ætlar þangað aftur i sumar eða haust. Morgun- blaðið hefir hitt hann að máli og spurt hann frétta af ferðum hans og fyrirætlunum. — Eg fór utan um haustið 1916 og hef dvalið í Leipzig lengstum siðan og stundað nám við hljóm- listarháskólann þar. Aðalkennari minn í pianóleik hefir verið Teichmiiller prófessor. Seinni árin hef eg einnig lagt stund á aðrar greinar hljómlist- arinnar og að þeim ætla eg helstað reyna að starfa hér í sumar. Og það er? — Það er að reyna að koma hér upp strok-orkestri og æfa það. En strok-orkestur þar sem í eru fiðlur, bratscher, cello og contrabassar, er besti og eini grundvöllurinn sem hægt er að leggja, til þess að koma seinna upp fullskipuðu symfoni- orkestri. Eg sá i blöðunum að gerð hefir verið tilraun til að koma upp vísi til orkesturs. Sjálfsagt er þeim það ljóst, sem að því stóðu, að það var, eins og eðlilegt er, ófullkomið að samsetningi og útbúnaði. En það stendur til bóta. Og vonandi hefir sú byrjun orðið til þess að sýna mönnum að eitthvað má þó gera i þessu efni, enda hafa ýmsir, sem tóku þátt I þeim æfingum haft, góð orð um það, að taka þátt í þessu strok-orkestri, sem eg er að reyna að koma upp. Hafið þér fengið margt fólk? — Eg fór Dndir eins daginn eftir að eg kom að færa þetta í tal við þá, sem eg vissi um. En auðvitað þekki eg ekki alla, sem eitthvað wmmmm Nýja Bíó mmmmm Aukamynd Olympiu-leikarnir i Anfwerpen 1920. IV. og eíðasti kaíli. Ljómandi fallegur japansk- ameriskur sjónleikur í 5 þátt- um. Mesturhluti leiksins fer fram í Japan í skínandi fögru landslagi. Aðal hlutverkin leika: Jack Abbe, Teddy Sampson, og Darre Foss. Sýning kl. 8VS. leika hér á strokhljóðfæri. En eg vonast til að ná tali af þeim öllum. Það, sem eg er smeikastur við hér, er alls ekki þekkingar eða kunnáttu- leysið, heldur viljaleysið, deyfðin eða feimnin eða hvað það nú er. Fólk fæst ekki til að gefa sig fram, held- ur að það spili ekki nógu vel. En fjöldinn ræður miklu um þetla — ef viljinn er með. Menn verða að muna, að þetta er ekki nema byrj- un og það má vinna mikið með æfingunni. Og fólkið lærir um leið. Ef þetta tekst sæmilega verð eg hér fram á haust. Þá hef eg einnig hugsað mér að ná tali af þeim, sem leika á blásturshljóðfæri og reyna siðan að útvega i Þýskalandi, þegar eg kem þangað, þau réttu hljóðfæri, sem nota á i orkestum, þvi þau eru þvi miður ekki til hér ennþá — og reyna svo að æfa með þeim að sumri og koma á þennan hátt upp með tíð og tíma fullkomnu symfoni- oikestri hér. Hafið þér kynt yður orkesterstjórn sérstaklega? — Eg hef stundað hana sérstak- lega við skólann í Leipzig, hjá operudir. prófessor Lohse og kapel- meister Szendrei. Auk þess hefi eg stjórnað þremur symfoni-orkestrum í Leipzig. — Eg hef skrifað all- langa grein, sem sennilega kemur bráðum út, um eitt áhugamál mitt, sem eg hef áður skrifað uro. i Lög- réttu — s. s. hljómlistarskólann og vik þar einnig að orkestrinu og sam- setningu þess. Því slikur skóli yrði orkestrinu til mikils stuðnings. SkólaDs er lika þörf að öðru leyti og eg þykist geta fuliyrt, að hann megi reka án fjárhagslegs halla. En nú eru óheppilegir timar. — Mér er fullljóst að tímarnir eru nú erfiðir. En eg er heldur ekki að fara fram á nein fjárútlát. En þeir, sem koma sunnan af Þýska- Iandi, verða ekki mikið við vand- ræðin varir, i samanburði við það sem þar er. Hér hafa menn það alment betra, að þvi er virðist. Og bær, sem hefir efni á þvi að halda uppi tveimur Bióum — hann ætti að geta

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.