Morgunblaðið - 29.07.1921, Síða 2

Morgunblaðið - 29.07.1921, Síða 2
MOBGUNBLAÐIÐ Ritstjórar: Vilhj. Finsen og Þorst. Gíslason. borið eitt orkestnr. Þegar dregur úr fjárkreppunni, rætist líka úr þessu. En þá er um að gera að nota tim- ann vel til undirbúnings. Bæjarlífið hér virðist heldur ekki vera svo fjölskrúðugt, að ekki megi einhverju bæta við. Reykvíkingar fá eflaust ekki margt, sem í senn er eins mentandi og skemtandi og góð hljómlist, og hún fæst, ef viljinn er með. ■a Dýrfíðin. Nýkomin Hagtíðindi flytja að vanda yfirlit yfir smásöluverð á ýms- um nauðsynjum á siðasta ársfjórð- ungi ásamt samanburði við fyrri tima. Yfirlit þetta sýnir yfirleitt lækkun, hvoit sem miðað er við :. apiíl eða júlí í fyrra. EÍDStaka vöru- tegund hefir hækkað i verði, nefni- lega bankabygg, rúsinur, kaffibætir, súkkuiaði, mjólk og nautaket, sem alt er heldur dýrara nú, en það var i. júlí í fyrra, þó eigi muni það miklu. En hinsvegar hafa ýœsar nauðsynjar iækkað mjög mikið i verði i sama timabili, hrisgrjón úr 2 kr. niður i 83 aura, sagogrjón úr 2.03 niður i 1.01, kartöflumjöl álíka mik- ið, kandís úr 3.57 í 1.99, melis úr 407 i 175, kaffi úr 4.00 i 2.72, saltfiskur úr 1.50 í 103 og kol úr 48 kr. i 25.60 skippundið. Þessar tegundir hafa fallið mest i verði, en aðrar að Dokkrum mun. í samandregnu yfiiliti erbirthlut- fallið í hundraðstölum milli vöru- verðsins fyrir striðið og þess sem var 1. júli. þ. á. Verðhækkunin nemur á brauði 3oo°/0, á kornvör- um 231%, á kálmeti 265%, á sykri 302%» á kaffi, te og súkkulaði 115°/o» á feitmeti, mjólk, osti og eggjum 279%. * kjöti 364%, á fiski 194%, á sápu og sóda 35 6%, og á stein- oliu og kolum 367%. A síðasta ári hefir lækkunin orðið mest á slein- oliu og kolum 38%, á sykri 32%, á fiski 28°/0 og kornvörum 27%. Hafa vörar þannig lækkað alt að þriðjungi á siðasta ári. í skýrslunni er talið, að vöruverð hafi að meðaltali hækkað um 270% siðan striðið byrjaði, en meðallækk- un á siðasta ári er talin vera 17%, en 20% á siðustu fimm ársfjórð- ungum og 4% á siðasta ársfjórð- ungi. En séu matvörur einar taldar, er verðhækkunin siðan fyrir stríð 259%. Er þetta svipuð niðurstaða og er hjá nágrannaþjóðunum. Þeir vöruflokkar, sem mest hafa fallið i verði hafa aldrei verið taldir með í skýrslunni, svo sem vefnaðarvara og skófatnaður. En eitt mesta dýitiðar- bölið, húsnæðisleysið helst óhindrað en húsaleigan er tilfinnanlegur i5t- gjaidaliður. En nú eru byggingarefni, einkum timbur farið að falla stórum i verði, svo að væntanlega verður á næstunni farið að byggja aftur, þó miklum vandkvæðum sé bundið, einkum vegna hins mikla vinnu- launakostnaðar við húsasmiðar. fird ðiv ið Jn' nr;- ð:.d i _ ..«.T » .... ,1- a gu .J iqqa ablEii ð. tJ3g óe hl'J: íii MORGXINBLAÐjlÐ 1 -EDAGBÚIE- Inqvar Þorsteinsson skipstjóri var meðal farþega hingað á Gullfossi. Hann tekur nú við stjórn á Ville- moes. En það skip er nú á leið hingað frá Ameríku, fór frá Mont- real 21. þ. m. Bor% kom hingað í gærmorgun frá Bretlandi. Hefir skipið innan- borðs 400 smálestir af kolum, tölu- vert af steinoliu og nokkuð af öðr- um vörum. Gullfoss fer héðan einhvern næstu daga vestur til ísafjarðar. Aætlað er að skipið fari héðan 3. ág. til út- landa. Á það að flytja hesta til Newcastle og haida þaðan til Dan- merkur. Hverfist>ata. Viðgerðinni á Hverfis- götu miðar hægt og sigandi áfram. Er mikil bót að sú gata verður lðguð, því i óþurkum var hún tæp- lega fær gangandi fólki. C. Venn Pilcher heitir próf. frá Wycliffs College i Toronto i Banda- rikjunum, sem hér er nú á ferð, kom með Gullfossi í fyrrinótt, ætl- ar að ferðast upp að Saurbæ á Hvalfjarðarströnd og viðar. Hann hefir þýtt á ensku Passiusálma Hall- grims Péturssonar og hefir sú þýð- ing verið gefin út, eða að minsta kosti itarlegt úrval, og heitir: »Me- ditations on the Cross«. Nú ætlar hr. C. V. P. að kynnast stöðum þeim, sem H. P. dvaldi á. Þessi þýðing á ensku af Passiusálmunum hefir hlotið mjög fofsamleg nmmæli í »Sameiningunni«. Scenski aðal-konsúllinn. Það er Tofte bankastjóri, sem sænska stjórnin hefir valið fyrir aðalkonsúll sinn hér. Lr lax i Tjörninni? Surair sem við Tjörnina búa hafa ucdanfarið tekið eftir þvi að óvenjustór fiskur er kominn í Tjörnina. Hafa sumir séð sporð hans svo greinilega að tæplega getur verið um það að vill- ast, að hér mun vera kominn lax. Er það hugsanlegt að lax hafi vilst upp holræsið ofan frá sjó við stór- straumsflóð, eða þá stór sjóbirt- ingur. Kreyns kaupmaður frá Rotterdam, var meðal farþega á Gullfossi. Hann dvaldi hér sem unglingur nokkurn tíma, lærði þá isiensku og hefir haldið henni svo vel við, að hann talar hana enn sérlega vel og verður sagt frá þvi siðar hér I blað- inu. Knattspyrnan. Fram sigrar K. R. með 3:1. í fyrrakvöld kl. 9 hófst Knatt- spyrnumót »Víkings«. Háðu Fram og K. R. þar orustu. Veður var fremur gott. Fram menn birjuðu með ailsnarpri sókD, er endaði með þvi að Sam. Thorsteinsson skaust eins og elding hjá báðum bakvörðum K. R.-manna og í mark. Við þetta kom mikill vigahugur í K. R. menn, enda leið ekki á löngu áður en knötturinn lenti i marki Fram-manna. Eftir þetta var leik- urinn mjög jafn, sókn hjá báðum félögunum á vixl, en í einu afupp- hlaupum sinum tókst Fram mönn- um að skora mark bjá hinum. End- aði háifleikurinn því með 2:1. Siðaii hálfleikurinn hófst með mik- r OTTO ^ M0NSTED** illi sókn hjá K, R. er hélst þar til örfáar minútur voru eftir af leikn- um, að Fram menn gerðu upphlaup og i þvi upphlaupi tókst Pétri Hoff- mann að hlaupa með knöttinn i gegn um bakverði og inn i mark. Mjög tvísýnt var lengi framan af siðari hálfleiknum, hver mundi vinna, þvi sókn K. R. manna var svo mikil, að viðbúið var, að mark kæmi á hverri stundu. Kappleikurinn var yfirleitt mjög skemtilegur, þvi leikið var af miklu kappi af beggja hálfu. í kvöld eiga Víkingur og K. R. að keppa. Vikingur hefir nú heimt Óskar Norðmann og Halldór Hall- dórsson heim aftur, og hefir því ekki enn i vor haft á eins góðum mönnum að skipa og nú. Þrdndur. 4- Þegar timi vinst til og rúm blaðs- ins leyfir, mun eg taka þessa »Eft- irför« nafna mins og kuuningja til rækilegrar ihugunar. Vil eg ekki láta hann lengi hafa þá bjargföstu trú, að eg sé á »uud- anhaldi en hann sjálfur i stöðugri »eftirför«, svo hann fyrir þá sök komist aldrei úr »geðheimi« sinum inn í »nirvana«. S. Þ. Hitt og þetta. Roald Amundsen er nú kominn tii Seattle i Ameriku. Hefir hann látið i ijós, að hann áliti áætlun sina um að láta sig reka yfir Norðuiheimskautið, framkvæmanlega, Ætlar hann að dvelja i Bandaiíkjun- um i heilt ár, áður en hann leggur á stað i leiðangurinn á ný. Hnefalcikarnir. Tekjurnar af hnefaleikunum milli Carpentier og Dempsey urðu alls 1,632,380 dollarar og er það miklu meira fé en nokkurntíma hefirkom- ið inn fyrir nokkra iþróttasýningu i heiminum. Norrœna stúdentasam- bandið. Sumarmót þess hefir, cins og áð- ur er getið, staðið í Söndeiborg að þessu sinni. Danska stúdentablaðið »Studium« getur þess, í grein um mótið áður en það var haldið, að reynt muni verða að halda næsta sumarmót á íslandi. En sennilega hefir eigi verið tekin föst ákvörðun um þetta á fundinum þvi ella mundi það frétt hingað. Samningar hafa nýlega náðst milli verksmiðju- eigenda og veikamanna í ullar- og bómullarverksmiðjum í Englandi. — Höfðu verksmiðjueigendur farið fram Glepváipygging. y,Glarmestrenes Glasforsikring“, hlutafélag Kaupmannaliöfn. Aðalumboðsmaður fyrir Island: Halldór Gunnlögsson Lindargötu 28 Reykjavik tekur í ábyrgð aliskonar spegilglerrúður í sölubúða og skrifstofi gluggum, sömuleiðis stórar rúður úr tvöföldu gleri, m. m. Bifreiða og bifhjólavátrygginga Trolle Rothe h.í. Egg Ðlómkál Agurkur Tomater Kartöflur Citronur alt glænýtt V* w \ i : o / í / -r/) | — / <V l E.s. Gtillfoss Farseðlar meðGullfoss til útlanda óskast sóttir á morgun laugardag 30. júli. ■if Hf vil eg kaupa Uilh. Finsen ritstjóri. á að lækka kaupið um 22% en úr- slitin við samningagerðina nrðn þau, að verkafólkið gekk að 16% kaup- lækkun. Eru það 250 þús. manna, sem samDÍngur þessi nær til. Bruni í Kaupmannahöfn. í verksmiðjunni »Völundur« i Kaupmannahöfn varð mikill brnni 29. þ. m. Brunnu þar inni 12 bif reiðar, 3 flngvélar og ýms hergögn og húsin skemdust mjög. Skaðinn er metinn eio miijón króna. Rifvél, brúkuð óskast keyp Tilboð með upplýsingum ui merki og veið sendist undir merl Ritvél til afgr, þessa blaðs. Til Keflavikui4 fer Bíll á Laugardagsmorgunir kl, 9. Nokkrir menn geta feng far. Upplýsingar í Bilaafgreiðs: Magnúsar Skaftfeld Austurstræti Símar 695 og 710. Kex og Kaffibrauð margai* teg. fást nú í verslun 0. Amundasonar Sími 149. Laugaveg 24. Steiudó Þingvallatúrar. Til Þingvalla leigi eg mínar ágætu fjögra-, sex- og sjö- mannabifreiðar ódýrast allra. Viðstaða á Þingvöllum allan daginn ókeypis. Komið á afgreiðsluna og semjið við mig Steindór Einarsson. (Hornið á Hafnarstræti og Veltusundi, móti 0 Johnson & Kaaber). Farmiðar seldir á afgr. Simar: 5 81 og 8 3 8. Þægilegar og vissar ferðir. Bú5 til sölu á ágætum stað í Hafnarfirði < samið er strax. A. v. ó.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.