Morgunblaðið - 15.09.1921, Blaðsíða 4
MORGUNBLAÐIÐ
^ DAGBÖt =■
Hjálparsíöð tLiknar« fyrir berkia-
veika er opin:
Mánudaga n—12 f. m.
Þriðjudaga 5— 6 e. m.
Miðvikudaga 3— 4 e. m.
Fðstudaga 5— 6 e. m.
Laugardaga 3— 4 e, m.
Lúðrafélaqið »Harpa« spilar á
Austurvelli í kvöld kl. 8, ef veður
leyfir.
A%úst Siqurðssvn hefir í dag verið
samfleytt i 25 ár prentari í ísafold-
arprentsmiðju.
Brytinn, sem tekur við á »Botniu«
eftir C. Andersen, heitir Sörensen.
Hefir hann undanfarið verið biyti á
skipinu »Köbenhavn«, sem Saroein-
aðafélagið hefir i förum milli Kaup-
mannahafnar og Aarhus.
Eldjaravcrslun Kristjáns Þorgrims-
sonar hefir Har. fóhannessen tekið
við og opnar sölubúð í Kírkjustræti
10, þar sem áður var lækningastofa
Matt'niasar Einarssonar læknis. Hefir
verslunin einkasölu á vörum frá
verksmiðjum Anker Heegaard. Lækn-
ingastofa Matthiasar læknis er flutt
í Pósthússtræti 13, hús Carl Sæ-
mundsen.
Frikirkjuturninn, sem rifinn var í
sumar, er nú bráðum fullgerður aftur.
Hjúskapur. Gefin saman i bjóna-
band 9. þ. m. af síra Ólafi Ólafs-
syni Guðriður Vilhjálmsdóttir og
Pálmi A. Loftsson fyrsti stýrimaður
á »Goðafoss«.
Flýting klukkunnar. A síðasta
fundi bæjarstjórnar var till. Þórðar
Sveinssonar um að flýta klukkunni
visað til fjárhagsnefndar. Fjárhags-
nefndin hefir ákveðið að leita um-
signar verkstjórafélagsins áður en
nokkuð yrði afráðið.
Beiðni Skúla Jónssonar og félaga
hans nm að fá að leggja barkskip-
nu »Tristad« upp og nota það i
hafskipabryggju, hefir nú verið synj
að af hafai-rnefnd.
Fiskreitaqerð. Sótt hefir verið um
til bæjarstjórnarinnar alt að tveim
dagsláttum i Skildinganeshólum tii
fi.kreitagerðar. Fasteignanefnd hefir
lagt til að umsækjandanum sé leigt
0.6 ha. land, og sé leigutiminn 10
ár og ársleigan 30 kr.
Húsnaðismálið. A bæjarstjórnar-
fundi i dag mun verða til umræðu
húsnæðismál bæjarins, húsaleiga og
húsnæðisleysi og fleira, er að þvi
lýtur.
I suður 0? norður. Morgunbl. er
skrifað: Nú er verið að grafa gryfju
í Laufárstúni, aflanga, og snýr frá
suðri til norðurs, öfagt við fjósið,
því það snýr i austur og vestur,
eins og kirkjur kristinna manna.
Getið er þess til, að þarna sé ver-
ið að taka gröfina handa »Tim-
anum«.
Dr. Alexander Jóhannesson er ný
komin heim úr för suður i Þýska-
land. Hann fór héðan i júlíbyrjun,
fyrst til háskólans i Greifswald og
hélt þar tvo fyrirlestra: Um bók-
mentasamband Þýskalands og ís-
lands og um Nútiðarmenningu ís-
lands. Fyrirlestrarnir voru mjög vel
sóttir, annar haldinn i stærsta fyrir
lestrarsal háskólans, hinn i hátiða-
salnum. Prófessor Merker, bókmenta-
fræðingur, lýsti fyrirlesaranum fyrir
áheyrendam og bauð hann velkom-
inn. Einnig flatti hann um þetta
leyti ágætan fyrirlestur um forn-
islenska menning. 1 Greifswald var
A. J. hálfan mánuð, hélt svo til
Berlinar og flutti einnig þar fyrri
fyrirlesturinn. Þaðan fór hann suð-
ur og vestur um Þýskaland, alt til
Muachen, var boðið að halda fyrir-
lestra til og frá, en gat ekki komið
þvi við vegna óhentugs tima. Næsta
vetur kemur út á þýsku, i þýðingu
eftir Poestion, rit dr. A, J. um
frumnorrænar rúnaristur, í ritsafni
Streitbergs i Leipzig um germönsk
fræði.
H. Erkes, sem nú er orðinn há
skólabókavörður í Köln á Þýska-
3örö,
hæg og góð, neðarlega i Arnes-
sýslu, v ð þjóðvegion, fæst til kaups
og ábúðar nú strax; ásamt heyjum og
allri áhöfn ef óskað er.
Borgunarskilmálar sérlega hægir.
Bygging getur komið til mála, ef
um ábyggilegan mann er að ræða.
Nánari npplýslingar gefa Gisli
Björnsson Grettisgötu 8 og Þórður
i Tryggvaskála.
; ^SKIPA^
^ ■ ÍSLANDS /v W
Es. Suðurland
fer héðan að forfallalausu 20.
september til Vestfjarda.
Plys-kápur
nýkomnar.
Versl. „GullfossM
landi, hefir nýlega gefið hiskólan-
um safn sitt af nýislenskum bókum,
nál. 4000 bindi, og er það sem
stendur stærsta bókasafn í nýíslensk-
um fræðum á Þýskalandi.
-0-
Skip rekst á hval.
Sú nýlunda varð fyrir nokkru
suður í Bisquaia-flóa að stórt eim-
skip sigldi á hval. Beið hvalurinn
þar bana en skipið dalaðist að fram-
an við áreksturinn en varð þó ekki
lekt.
Fæði og húsnæði í Kaupmannahöfn.
Vistleg herbergi og ágsetf fæði á hentugum sia^
býðst íslendingum við vægu verði hjá
Fru Margrefhe Ande
Peder Skramsgade 15, 3. sal.
G.s. Islanð
fer frá Kaupmannahöfn 18. september til:
Leith, liorðfjarðar, Seyðisfjarðar, Húsavikur, Aku>**
eyrar, Siglufjarðar, ísafjarðar og Reykjavikur.
C. Zimsen.
RQ mun adðrari eh áQur
Svo sem:
Kitti
Krit, mulin og heil
Terpentina, frönsk
Törrelse
Politúr
Broncetintur
Skjællakk
Lökk allsk. af ýmsum litum
Menja
Carbolineum og Blakk-
fernis
Fernisolia
Cylindér- og Lageroliur
Barkalitur og Blásteinn
Carbidur
Koppafeiti og Grænolía
Tvistur og Hampur
Lóðarönglar No.8—7 ex.ex 1.
Löðartaumar 18” 20 ’ 22”
Bindigarn
Saumgarn o. m. m, fl.
verslun
ims HBB
Hafnarstræti 18.
Fyrlr>liggjandi
G. M. Björnsson.
Rósir í pottum til sölu &
Njálsgötu 53.
Fynirliggjandi s
Umbúðapappir i 57, 4-0)
20 cm. rúllum.
Stefán A. Pálsson & Co
Lækjargötu 2 Sími 244.
— 251 —
fylgdi. Hann varð að vinna og átti líka nóg að
vinna fyrir. Strax næsta morgun skyldi hann
leita sér að atvinnu. Og hann skyldi láta Ruth
vita, að hann væri viljugur til að fara að vinna
á skrifstofu hjá föður hennar.
Hann sat langan tíma í ömurlegu ástandi —
hann vissi ekki hvað lengi, en raknaði við sér
við það, að drepið var á dyrnar. Það var Maria,
og spurði hún hann, hvort hann væri veikur.
Hann svaraði með undarlega ókunnuglegri rödd,
að hann hefði bara sofið. En hann fann að hann
var veikur. Og stuttu síðar var hann lagstur
með blossandi hita og óráði og öllu því rugli og
aýnum, sem þvi fylgir.
XXVI kapituli.
Martin Eden fór ekki að leita sér að atvinnu
næsta morgun. Hann vaknaði seinni hluta dags
upp af sótthitasvefni sínum. Mary, dóttir Silvu,
8 ára gömul, stóð á verði við rekkjuna. Hún
rak upp óp, þegar hún sá, að hann vaknaði til
meðvitundar. Maria kom brunandi inn í herberg-
iö. Hún tók á æð hans og spurði.hvort hann
hefði lyst á að borða.
Hann hristi höfuðið. Það var það sem var
fjarlægast honum af öllu, og hann var hissa á
því, að hann hefði nokkurntímau getað verið
hungraður.
— 252 —
»Eg er veikur, Maria«, sagði hann með lágri
röddu.
»Eftir tvo eða þrjá daga eruð þér orðinn
heilbrigður. Á morgun getið þér borðað mikið*.
Martin var ekki sjúkleika vanur. Þegar Maria
og dóttir hennar voru farnar, reyndi hann að
klæða sig. Honum tókst að komast fram úr rúm-
inu með því að taka á öllum sínum viljakrafti.
En þá leið yfir hann. Hálfri stundu síðar komst
hann aftur upp í rúmið, og lá þar með lokuð
augu og reyndi að skýra fyrir sér þrautir sínar.
Maria kom við og við inn og lagði kalda bakstra
um enni hans. En hún talaði lítið við hann,
vildi hún ekki þreyta hann með því. Og þakk-
lætið streymdi um hug hans og hann hét því enn
einu sinni, að Maria skyldi fá búgarðinn.
Síðan fór hann að hugsa um gærdaginn og
bréfið frá tímaritinu. »Hvaða gagn er manni að
því, þó maður skrifi heilt bókasafn, ef maður
drepst af hungri?« spurði hann hátt. »Eg vil
ekki sýsla meira við bókmentirnar«.
Tveim dögum síðar, þegar hann hafði borðað eitt
egg og tvær brauðsneiðar, vildi hann fá að sjá
póstinn sinn. En þá komst hann að raun um það,
að höfuðið var enn of aumt til þess að hann gæti
lesið.
»Þér verðið að lesa þau fyrir mig, Maria!«
»Þér skuluð ekkert kæra yður um löngu bréfin,
senið þér þeim undir borðið. Lesið þér aðeins
stuttu bréfin«.
— 253 —
»Það get eg ekki«, Bagði Maria, »en Teresa
befur gengið í skóla, hún getur það«.
Svo byrjaði 9 ára gamla stelpan að opOa
bréfin og lesa þau. Hann hlustaði annars hugar
á þau flest, en alt í einu heyrði hann að Teresa
las: »Við bjóðum þér 40 dollara fyrir sögunS
yðar með því skilyrði, að þér viljið leyfa okkuf
að gera á henni svofeldar breytingar«.
»Hvaða tímarit er þetta!« hrópaði Martiö.
»lof mér að sjá bréfiðN
Það var White Mause, sem bauð honum 40
dollara fyrir »Röstina« — og hún var ein af fyrstu
sögunum hans. Hann las bréfið hvað eftir annað-
Ritstjórinn sagði honum hreinskilnislega, að hauö
hefði ekki farið með efnið eins og þurft hefði-
En það var hugmyndin, sem þeir keyptu, þ^
hún var frumleg. Ef þeir mættu stytta söguna
um þriðjung, þá tækju þeir hana, og þá sendú
þeir honum 40 dollara, þegar þeir hefðu fengi®
svar hans.
Hann heimtaði blek og penna og skrifað’
ritstjórauum, að hann mætti stytta söguna þrisvaf'
sinnum um þriðjung, ef honum sýndist og haUa
fengi peningana strax.
Þegar bréfið var komið í póstkassann, lagðif
Martin aftur út af og hugBaði. Það var þá eftií
alt saman engin lýgi! »White Mouse« borga^1
við móttöku. »Röstin« var 3000 orð. Það ^
þá satt, að blöðin borguðu við móttöku!
Eitt var minsta kosti áreiðanlegt, þegar