Morgunblaðið - 22.10.1921, Síða 2

Morgunblaðið - 22.10.1921, Síða 2
MORGUNBLAiIi 1 í Gúmmisíigvéí af öífum sfærðum, fásf f)já Tfvannbergsbræðrum. MOSOUMBLAÐIÐ Bitstjönur: ViThj. Finaeii og Þorat. Qialaaoa. Munið eftir fataefna útsölunui á hinum níð- sterku norakunnu tauum okkar. í fötin koatar frá kr. 26,00 alt að kr. 58,00 Hfé í»l. Nýlonduwörufélag Klapparatíg l Simi 049. Málverkasýning Ol. Túbals í Bárunni Opin daglega frá kl. II—5. Fermingarkort mjög faileg ineð erindum, og bóka- kort Ennfremur heillaskeyti, og er úr miklu að velja, fáat í Safnahúsinu. fell af felli upp að hæstu fjalla- hnúkunum. Per saman hjá mál- aranum afburða góður og djúpur skilniugur á verkefnum þeim sem hann velur sér og frábær kunn- átta í því, að festa það á léreftið með lit og línum. Meðferð litanna er einnig sér- kennileg. Þar er festa og dirfska, litirnir eru ekki loðnir eða hvik- ulir, heldur hreinir og sterkir. Bera myndimar þess merki, að málarinn hvikar ekki og prófar sig fram, en stefnir að vissu marki. Eigi skulu einstakar myndir á þessari sýningu Jóns gerðar að umtalsefni, því hið sama má um flestar þeirra segja. En taki menn eítir myndinni ,,Að fjallabaki“ til þess að sjá hve meistaralega honum tekst að sýna víðáttu og stórfengleik. Og taki mexm eftir haustmyndunum hans til þess að sjá djarfa og hreina liti. Skoði menn vandlega myndimar og segi til, hvort þeir finna ekki eitthvað fagurt og hillandi, sem þeir sjá vart í öðrufti íslenskum mynd- um. 1 fyrrasumar var Jón óheppinn með veður meðan hann dvaldi hér og náði litlu af fegurð íslenskrar náttúru. En í sumar liggja eftir hann stórvirki, því veðráttan hef- ir verið betri við hann en í fyrra. Sýning hans færir mönnum heim sanninn um, að í Jóni hafi íslensk náttúra íundið mann, sem fær er um að ráða við hin mörgu og stór- feldu verkefni, sem hún hefir að bjóða sönnum listamönnum. A. Ný bók. Hrannaslóð, sögur eft- ir Sig. Heiðdal. Bóka- verslun Arinbj. Svein- bjamarsonar, Rvík. Sviplitlar sögur og bragðlausar, fátækar af listgildi og lifandi til- finningu; sögur sem fjöldi manna hefði getað skrifað, ef nent hefði að fást við slíkt. Engin tilþrif, lítil efni og ófimlega farið með þau. Þetta verður efst í huganum eftir lestur þessarar bókar. Engin sagan festist í manni, engin per- sónan er annari meiri — allar svo nauða lítilsigldar og grunnar. Það er heldur ekki sjáanlegt, að höf. leggi nokkra rækt við þær — ef til vill vegna þess, að honum er þegar í byrjun ljóst, að þær hafa skap ,4ítilla sanda og sæva“. En jafnvel þó mennimir sem lýst er, séu svo hversdagslegir, þá gátu sögurnar orðið góðar. Hamsun teflir ekki altaf stórmennum fram og tekst þó að gera sögur sínar snildarverk. „Yeldur hver á held- ur“. Eina sagan, sem höfundi gat orðið eitthvað úr, er síðasta sag- an. .lón litli er söguefni, æfiferill lians gat orðið ljómandi æfintýri, eins og svo margra fátækra at- gerfismanna. Og honum er lýst þannig, að lesandixm fær áhuga á framtíð hans, vill vita hvernig honum reiðir af. En þá þarf höf. endilega að koma með flugríkan, eldgamlan Vestur-íslending, sem gefur Jóni litla stórfé, svo gatan er rudd þama að hálfu leyti fyrir hann í stað þess að láta hann vinna það afreksverk sjálf- an. Með þessu móti verður Jón ekki annað eða meira en algengur dugnaðarmaður, sem fengið er vopn í baráttuna og kann að nota það. Óskiljanlegt er nafnið á bók- inni og myndin framan á káp- unni, þegar litið er til efnisins. Þegar maður sér þessar hvítfyss- andi hrannir og boðabiot, þá heldur maður, að þetta eigi að vera tákn voldugra andlegra hranna í sögunum. En það er lítið um þesskonar mátt í þeim — miklu meira af afllausum smá- bæringi á grunnsævi lítilla hugs- ana. Þess er heldur ekki að vænta. Hrannir rísa ekki í logni, og eng- inn stormur er í bókinni — að- eins lognmolla. J. B. Heine-þýðingar. Það var einn gamall gylfi. Það var einn gamall gylfi. Hans hár var grátt, hans hyggja þung. Sá veslings gamli gylfi tók konu, er var ung. í höll var hirðsveinn fríður. Hans hár var bjart og létt hans lnnd. Sá sveinn bar silkislóðann, er drotning dró við grund. Hvort kantu gamla kvæðið ? Það er svo ljúft, það er svo leitt. Þau urðu að blikna bæði; þau unnust alt of heitt. Gaktu! Ef baka meyjarsvik þér sorg, þá svanna annan taktu! Eða heldur burt úr borg bregð þér strax, og gaktu! Þá brátt þú finnur blávötn skygð, þar bakka grátpíll þekur. Þar grætur þú úr hjarta hrygð, og hugraun enda tekur. Og upp á fjallið er þú snýr, þú andvarpar af striti. En efst þér berst að eyrum gnýr af arnarvængjaþyti. Þá verða muntu emi að og endurborinn vakna, og frjáls úr lofti líta það, hve lítils þarftu að sakna. Eg vildi, — Eg vildi að þið væruð orðin að vorsins blómum, mín ljóð, svo teiga mætti ykkar angan mitt ástkærasta fljóð. Eg vildi að þið væruð orðin að vinarkossum, mín ljóð, svo ykkur fengi öll á vangann mitt ástkærasta fljóð Eg vildi að þið væruð orðin að vænum baunum, mín ljóð. Þá syði eg baunasúpu, er svei mér yrði góð. Sváfnir þýddi. -----0----- *= DA8BÚK. =- „Sanitasa IJúffengu Sítrón, faest hfá ölium betri kaupmönnum sem versla með slíka vöru. Messað á morgun í fríkirkjunni í Hafnarfirði kl. 1 e. h. sr. Ól. Ólafs- son (misseraskifti), og í fríkirkjunni í Reykjavík kl. 5 síðd. sr. Ól. Ólafs- son (misseraskifti). Messur í dómkirkjunni á morgun kl. 11 síra Jóhann Þorkelsson (ferm- ing), kl. 5 síra Bjarni Jónsson (alt- arisganga). Síra Haraldur Níelsson prédikar í fríkirkjunni á morgun kl. 2. e. h. Messur í Landakotskirkju. Hámessa kl. 9 f. h. og kl. 6 e. h. guðs- þjónusta með prédikun. Messufall í Hafnarfjarðarkirkju á morgun sakir gyllingar á kirkjunni. Sýning Jóns Stefánssonar málara í húsi Egils Jacobsen verður opin í síðasta sinn á morgun. Gullfoss kom hingað laust fyrir há- degi í gær, frá Vestfjörðum, með allmarga farþega. Skipið á að fara til Kaupmannahafnar í fyrramálið og kemur við í Bergen. Meðal farþega að vestan var Sigurður Sigurðsson ci.nd. jur. frá Vigur, er sest að hér í bænum, og frú Halldóra Proppé. Fyrsti vetrardagur er í dag. Sum- arið kvaddi með blíðviðri hér í Reykjavík og sunnanlands, en tals- verðu frosti. Ólafur Þ. Halldórsson cand. phil. er nýkominn hingað til bæjarins. Hef- ir liarm dvalið á Spáni Síðastliðið ár. Skotfélag Reykjavíkur. Æfing í Iðnó í fyrramálið kl. 9. Félagsmenn eru beðnir að mæta snemma. Silfurbrúðkaup eiga þau Borgþór Jósefsson bæjargjaldkeri og frú Stefanía Guðmundsdóttir leikkona á mánudaginn kemur. Skautafélagið hefir sótt til vega- nefndar bæjarstjórnar um leyfi til að fá að nota Austurvöll á komandi vetri til skautahlaupa, og bíður nú með mikilli eftirvæntingu eftir svari. Heyrst hefir að borgarstjóri og aðrir nefndannenn séu félaginu velviljaðir Fiskilínur 21/,, 3 og 3*/i lbs, Manllla og Mc Dougalls baðlyf hvergi eins ódýrt og hjá A. Guðmundsson, heildsbluverslun Simar 895, 282 og 726. E.s. Gullfoss fer héðan á morgun kl. 9 árd.y um lfestmannaeyjar og Reyðar- f jörð til Bergen og Kaupmanna- hafnar. og sömuleiðis verkfræðingur bæjarins, sem er meðlimur þess og kvað hafa mikinu áhuga á skautahlaupum. Aldrei hefir verið jafn mikið fjör í skautahlaupum hér eins og einmitt þann eina vetur (fyrir uokkrum ár- um) sem félagið fekk að nota Aust- urvöll. ísfélögin rífa sundur tjörn- ina undir eins og traustnr ís er kominn á hana, og í fyrra gat Skautafélagið aldrei fengið blett til aígirðiugar. — Aðalfundur félagsins mun verða strax og stjórn félagsins hefir fengið svar frá veganefndinni. íslensk veðurfarsbók fyrir árið 1920 heí'ir veðurfræðideild löggildingar- stofunnar gefið út nú nýlega. Er þar safnað suman í heild veöurathugun- um þeim, sem gerðar voru hér á landi þetta ár á ýmsum stöðum á landinu, er verið hafa 18 að tölu. Málverkasýning Ól. Túbals. — Ól. Túbals er einn hinna yngstu mál- ara og lítið kunnur enn. Á málverka- sýningu þeirri er hann befir nú í Bárunni, eru margar myndir, sem gefa von um list þegar höfundur þeirra hefir tamið sjálfan sig og þroskað. Einn af fremstu málurum vorum hefir sagt um þessar myndir, að í þeim væri margt gott og einkan- lega þótti honum góð ein mynd frá Múlakoti, sú er tekin er að húsa- baki og fjöll í baksýn. Kvað hann það vera „fullgerða mynd og heila“. Flestar myndir Túbals eru frá Múla- koti og umhverfi þar í kring. Og nokkrar einkennilegar frá Yestmanna- eyjum. Þá má nefna fallega mynd af Ey vindarmúla. Holt mundi Túbals að mála minna og keppa að því besta. Þessar myndir sýna það, að hann er efnilegur ef hann leggur nógu mikla rækt við list sína og er strangur við sjálfan sig. Nýlega birtu trúlofun sína, ungfrú Sigríður Halldórsdóttir Njálsgötu 52 og Oddur Björnsson stýrimaður, frá Litlateig á Akranesl. --------0-------- Bretar senda uni 50 manns á ráðstefnuna, sem kemur saman í Washington 11. nóvember. Þó eru fulltrúamir ekki nema þrír, hitt eru alt sérfræðingar til aðstoðar þeim, og skrifstofufólk. heldur fund í K. F. U. M. laug- ardagiun 22. okt. kl. 4 siðd. Áríðandí að allir mæti. 8TJÓBNIN. sem befir verið hjá Ágúst & Co. verður eftirleiðis á Baldursgötu 39. Þar fást einnig brauð og kökur frá Ágúst & Co. Rjól B. B. og margar teg. munntóbsk hjá R■ Pb Levfi (kvennakór) syngur í Good-Templarahúsinu í Hafnarfirði A laugardaginn 22. þ. m. kl 9 síðdegiB. Sími 28. Es, Suðurland Burtför skipsins héðan til Vest- fjarða er frestað tíl mánudags 24. okt kl. 6 síðdegis. T ækif ærisver ð á Kartöflum. Dálítið af kartöflum verðu. selt á 25 krónur tunnan bjá Jes Zimsen. Hreiaai léraftatuslnD inM Sjylii iunta tkM í *--•*-* 1nnrrn1—ltji kJ

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.