Morgunblaðið - 02.03.1922, Qupperneq 2
stífaðan flibba um bálsinn. Hans
hfcfir orðið vart á bæjunum kring
um Reykjavík, og talaði þar all-
mikið um Bnglandsferðir er hann
hafði farið. Ef manns þessa yrði
vart einhverstaðar, eru menn beðn
ir að tilkynna það tafarlaust til
lögreglunnar í Reykjavík, eða
gera næsta sýslumanni eða hrepp-
stjóra aðvart þegar í stað.
------o-------
Alþingi.
Fundir.
Á þingfundunum í gær gerðist
lítið markvert, í efri deild urðu
engar umræður um þau mál, sem
þar voru á dagskrá.
í neðri deild áttust þeir við
nokkur orðaskifti Jón Sigurðsson
þm. Skagfirðinga og Jón Þor-
láksson frsm. allshn. um sölu á
þjóðjörðinni Sandá.
Virtist þm. Skagfirðinga það
talsvert kappsmál og líkaði ekki
allskostar vel við nokkrar breyt-
ingar, sem allsherjamefnd hafði
gert á frv. Jón Þorláksson tók
málinu rólega og varði gerðir
nefndarinnar.
Verður eki að svo stöddu sagt
ger um stórmál þetta, ef til vill
vikið að því síðar.
Jón Baldvinsson talaði nokkur
orð fyrir frv. sínu um breytingu
á lögunum nr. 49 frá 1914 um
bæjarstjóm Reykjavíkur.
Vill flutningsmaður láta færa
aldurstakmarkið fyrir kosningar-
rjetti niður í 21 ár og einnig að
sveitarstyrkur svipti menn ekki
rjettinum.
Taldi hann fyrri ástæðunni
það til gildis, að alment væra ung-
ir menn áhugasamir um þjóðmál
og fylgdu málefnum en ekki mönn
um. Um hin atriðin — sveitar-
styrkinn — sagði hann, að tíðast
yrðu menn styrkþurfa sökum elli
eða bamaeigna. Væri hart að
svifta menn kosningarrjetti af
þeim sökum. Litu aðrar þjóðir
jafnvel svo á, að bameign væri
svo þarfleg yðja að verðlaunaverð
væri. Ekki gengur frv. svo langt
enda ekki ráðlegt meðan fjár-
hagur vor er jafn örðugur sem
bann nú er. Frv. var vxsað til
allsherjamefndar og er eftir að
vita hverjum augum hún lítur á
fjölgunina.
Pleir-a markvert gerðist ekki.
Dagskrá:
Efri deild. 1. um breyting á
sveitastjómarlögunum frá 10. nóv.
1905, 1. umr. (Ef leyft verður).
2. um breyting á lögum nr. 57,
22. nóv. 1907, um vegi, 1. umr.
(Ef leyft verður).
Neðri deild: 1. um breytingu á
lögum um dýravemdun, 3. nóv.
1915, I. umr- (Ef leyft verður).
2. um breyting á lögum um bjarg-
ráðasjóð íslands. nr. 45, 10 nóv.
1913, 1. umr. (Ef leyft verður).
3. Tillaga til þingsályktunar um
landhelgisgæslu, hvemig ræða
skuli.
-------o-------
Wirht og Ratenau.
I öllum þeim umræðum, sem orð-
ið hafa um f járhagsmál Þýskalands
undanfarna mánuði, hefir eigi bor-
ið meira á öðrum manni en dr.
tRathenau, sem var viðreisnarráö-
herra Þjóðverja áður en endurmynd-
un þýska ráðuneytisins fór fram í
haust. Mun hann mega teljast mesti
fjármálamaður Þjóðverja nú á tím-
um, og eigi öfundsverður af hlut-
verki sínu. Á myndinni er hann
sýndur í viðræðu við Wirth kansl-
ara.
------o------
Síðustu skeyti.
Khöfn, 1. mars.
Egyptsku málin.
- Frá Kairo er símað aö fulltrúi
Breta þar, Allenby lávarður, hafi
lýst því yfir að upphafin væri vernd
Breta yfir landinu og Egyptaland
lýst frjálst og fullvalda ríki. Til
bráðabirgða er þó status quo eða ó-
breytt skipulagiS að því er til her-
varnanna kemur. Útlendingum er
veitt trygging um samgöngur allar.
írsku málin.
Dail eirann kom saman í dag.
Mary prinsessa.
Mary prinsessa — dóttir Engla-
konungs, sem nýlega lofaðist enskum
lávarði — giftist í gær að viðstöddu
gífurlegu fjölmenni.
Lof tsiglingafj elag.
Frá Berlín er símað, að stofnað
sje þýskt-spanskt fjelag til þess að
halda uppi loftferðum milli Sevilla
og Suður-Ameríku. Ferðirnar eiga
að byrja sumariö 1923 með 150 þús.
kúbíkmetra zeppilínsskipi fyrir 100
farþega, póst og flutning. Ráðgert
er að ferðin milli endastöðvanna
taki 4 daga.
-= DA6BÚE =-
Næturlænir: Gunnl. Eirtarsson. Ing-
ólfsstræti 9. Vörður í Reykjavíkur
Apóteki
MORGUNBLABIÐ
Fjögra manna skrifstofu-
borð óskast til kaups eða leigu.
Upplýsingar í síma 866.
Hangið hrossakjöt fæst,
1 kr. */a kg- í Grettisbúð. Sími
1006.
Húseign
hjer í bænum, óskast i skiftum
fyrir góða bújörð, ágætlega hús-
aða og vel setna. Upplýsingar
gefur
Steindór Gunniaugsson
hæstarjettarlögm.
Bergstaðastræti 10 B. Sími 859.
íþróttaíjelag Reykjavíkur heldur
! árshátíð -sína laugardaginn 11. þessa
mánaðar. Það er venjulega besti dans-
leikur ársins, og mun verða svo enn.
Germania beldur fund annað kvöld
kl. 9 á Hótel Skjaldbreið. Á fundi
þessum ætlar dr. Alexander Jóbann-
esson að halda fyrirlestur um þýsk-
ar og íslenskar bókmentir. Þjóðverj-
ar allir, sem hjer eru staddir eru
velkomnir á fundinn, þó ekki sjeu
þeir meðlimir fjelagsins.
Skipafregnir: Gullfoss fer frá Leitb
á morgun.
Goðafoss er í Kristjaníu.
Lagarfoss á leið til Hafnarfjarðar
með kol, væntanlegur þangað á föstu-
dagsmorgun.
Borg er á Eskifirði.
Villemoes í Kaupmannahöfn á leið
til Frakklands.
Kauptaxti á Akureyri. Vinnuveit-
enidafjelagið og verkamannafjelagið á
Akureyri hefir nýlega komið sjer
saman um kauptaxta verkamanna. —
Verkalaun við afgreiðslu skipa eru
kr. 0,85 á klst., eftirvinna, nætur- og
hfclgidagavinna kr. 1.10. Við almenna
vinnu kr. 0.75, eftirvinna kr. 1.00.
Tryggi vinnuveitandi verkamanni 150
klst. dagvinnu á mánuði, þá er kaup-
ið kr. 0.60 á klst. Þessi vinnutaxti
gildir frá 6 febrúar til 15 júní n. k.
.* • Uá •; • , ■... :.í
Stjórn Landsbankans hefir sótt til
fasteignanefndar um spildu úr Mið-
selstúni á leigu til íbúðarhúsabygg-
inga, ca. 5000 fermetra að stærð.
Fasteignanefnd veitti borgarstjóra
heimild til að gera leigusamning við
stjórn Landsbankans um þessa lóðar-
spildu með venjulegum leigulóðarkjör-
um, þó svo, að leigutíminn sje 100
ár, og að fyrstu 30 árin greiðist eng-
ic, loiga. Hinsvegar sje það áskilið,
að á byggingum sje byrjað á komandi |
sumri og spildan albygð meðfram að-
liggjandi götum innan 10 ára.
Lántaka bæjarins. Fjárhagsnefnd
befir fallist á að bærinn þyrfti að
taka bráðabirgðalán, og hefir falið
borgarstjóra að taka alt að kr. 400000
ssmkv. heimild fjárhagsáætlunarinnar.
Nýja bólvirkið. Hafnarstjóri hefir
nú nýlega gefið fullnaðarkvittun fyr-
ir byggingu nýja bafnarvirkisins. Var
ekkert við framkvæmd verksins að at-
huga. Ekki befir bafnamefnd tekið
til greina beiðni Kampmann Kjerulff
og Saxild um endurgreiðslu á hækk-
uðum vinnulaunum, að upphæð krónur
2334.
Verslunarmannafjelag Reykjavíkur
heldur fund í kvöld kl. 81/2 á Hótel:
Skjaldbreið. Áríðandi mál á dagskrá.
ísfiskssala. Togararnir Skúli fógeti
og Apríl hafa nýlega selt afla sinn
í Englandi, hinn fyrri fyrir 844 stpd.
pund og hinn fyrir 1208 sterlingspd.
Eelgaum seldi afla sinn í Englandi
í gær fyrir 2223 sterlingspund. Er
það ágæt sala.
,Hp§ng|iaHnn( i Hafnarfirði
leikur tiratudaginn 2 uaars kl. 9. Ilúsið opnað kl. 8x/5. Aðgöngu-
miðar fást í Brauðgerðarhúsi Magoúsar Böðvarssonar og við inn-
gangirin.
Fræ og útsæði.
Með því að nú er miklum erfiðleikum bundið að ná til lands-
ins fræi og útsæði, leyfi eg mjer að benda heiðruðum viðskiftavin-
um mínum á, að panta sem allra fyrst, það sem þeir þurfa aí
þessari vöru.
Eg mun þá afgreiða pantanirnar svo fljótt sem verða má,
gegn eftirkröfu eða öllu heidur greiðslu hjer á staðnum.
Verðið verður sanngjarnt eins og áður.
Guðný Ottesen, Reykjavik.
Nýja brauðsölubúð
hefi eg undirritaður opnað i Þingholtsstræti 15, og verða þar á
boðstólum allskonar brauðtegundir. — Mikil áhersla lögð á vöru-
vöndun og lipra afgreiðslu.
Reykjavík 2. mars 1922. Ingimar Jónsson.
NB. Ávalt til ný vínarbrauð og kökur kl. 8 að morgni.
Leikfjelag Rvikur.
Kinnarhvolssystur
leiknar f kvöld. Aðgöngumiðar seldir í Iðnó.
Agætt þelband af ýmsum litum
fæst núna í
Alafoss-utsölunni| Kolasundi.
Kristiania.
16 sameinaðar verksmiðjur. — Árleg framleiðsla 100,000 smál
Stærstu pappírsframleiðendur Norðurlanda. — Umbúdapappir
frá þessu vel þekta firma ávalt fyrirliggjandi hjá einkaumboðs-
mönnum þess á íslandi
Sig. Sigurz & Co. Reykjavik.
Símnefni: »Sigur«. Talsími 825.
rzmz
Hús og herbergi.
Agæt sölubúð
til leigu. Góðir borgunarskilmál-
ar, sjerstaklega ef um fyrirfram-
greiðslu er að ræða.
iGermania1
Fundur á »SkjaIdbreið« föstud.
3. mars kl. 9.
1. Dr. Alexander Jóhann-
esson flytur fyrirlestur (á þýsku)
um þýskar og islenskar
bókmentir.
2. Fjelagsmál.
Stúlka tekur að sjer alls-
konar saumaskap fyrir verslanir.
Tilboð sendist afgr. blaðsins fyr-
ir 6. mars, merkt: lager.
Alle Deutsche willkpj’j.jpen!
*í
Llkkistuskraut, Likklssöi, Sjeð um
jarðarfarir. Lftið á minar kistur og spyrj-
ið um verð áður en þér kanpið annar-
staðar.
Tapast hefir taska frá Rán-
argötu 26 niður í miðbæ. Skilist
á Ránargötu 26.
Eyvíndur Arnason
Laufásveg 52.
Sími 485.