Morgunblaðið - 27.04.1922, Side 2

Morgunblaðið - 27.04.1922, Side 2
ekki tilætlunin að gera slíkan ssmning til eins árs heldur að láta núverandi ástand haldast ó- breytt án nýrra samninga þar um tel jeg að sjerstakan samning þurfi að gera í einhverju bind- andi formi um það, að bestu kjör- in standi oss til boða með tiltekn- um skilmálum að árinu loknu. Jeg leyfi mjer að vænta eftir sem allra ítarlegustum og skýr- ustum svörum um þetta, sjerstak- lega frá hæstv. stjórn, og eftir þeim svörum fer afstaða mín til fromvarpsins. ------o----- Erl ^ínsfre&nir frá frjettaritara Morgunblaðsins. Khöfn 25. apríl. Allsherjarverkfall á írlandi. Símað er frá Dublin, að alls- herjarverkfall hefjist um alt ír- land í dag, til þess að mótmæla því stjórnleysi, sem sífelt vofir yfir og hernaðarflokkurinn hótar. Frá Genúaþinginu. Búist er við, iað Gienúaþingiim verði slitið 2. maí. Lloyd George hefir látið Frakka skilja það á sjer, .að ef þeir haldi áfram þver- móðsku á fundinum, muni Eng- land leita annað til að koma á fullum friði í Evrópu. Forvextir í danska þjóðbankanum eru (lækk aðir) 5%. Þjóðvepjar og skaðabæturnar Skiaðabótamál Þjóðverja er ei- líft vandræða- og deilumál, sem ekki er komið í fast horf ennþá, þrátt fyrir sífeldar . ráðstefnur, nefndiaskipanir, tillögur og yfir- veganir. Gerðir bandamanna í málinu hafa áorkað því einu, að veikja aðstöðu Þjóðverja, markið hefir hríðfallið og vandræði Þjóð- verja aukist svo bæði inn á við og út á við, að hagur ríkisins er í mestu tvísýnu. Síðustu kröfur skaðabótanefnd- arinnar voru gerðar 21. mars síð- astliðinn. Samkvæmt þeim áttu Þjóðverjar að greiða 18 miij. gullmörk um miðjan apríl og síð- an 50 miljónir á mánuði þangað til í október, en 60 miljónir í nóvember og desember, auk 1450 gullmarka virði í vörum. Var þetta nokkur rýmkun á fyrri kröf um, en sá böggull fylgdi skamm- rifi, að bandamenn áttu að fá eftirlit með skattstofnum Þjóð- verja. Hafa Þjóðverjar mótmælt þessum tillögum og talið þær ó- hæfar. Fer hjer á eftir útdráttur úr ræðu Wirth kanslara, þeirri er hann hjelt í ríkisþinginu, er kröf- urnar urðu kunnar: Síðustu tillögur skaðabótanefnd arinnar htafa valdið því, að mark- ið fjell svo, að tekjuhallinn á fjárlagafrumvarpinu hefir stigið úr 28 upp í 224 miljarða (papp- írsmarka). Er þetta enn ein sönn- un þess, að þvingunarstefnan greiðir ekki fyrir heldur dregur úr þrótti Þýskalands og skaðar ekki að eins Þýskaland heldur og bandamenn sjálfa og viðskiftalíf alls heimsins. Eftirlit það sem bandamenn} krefjiast með innanríkismálum Þjóðverja er ósamrýmanlegt sjálfs ákvörðunarrjetti þjóðanna ogi heiðri stórrar þjóðar. Við höfum fengið svo slæma reynslu af eftir- litinu, að enginn óskar þess, að þetta fyrirko'mulag verði einnig látið ná til ahnennra málefna í landinu. Við höfum fjölda her- manna frá bandlamönnum hjer í landinu, og fær hver óbreyttur hermaður þvisvar sinnum hærri laun en þýskur deildarforstjóri í ráðuneytunum. Engin þýsk stjórn mun ganga að þessum ákvæðum. Jeg endurtek það, að stjórnin villi hvorki ganga að kröfunum umi eftirlit nje koma í framkvæmd lögum þeim um nýja skatta, er bandamenn krefjast. Stjórnin vill spara eins og frekast er unt og það hefir hún gert. Þýskir em- bættismenn og verkamenn í ríkis- þjónustu hafa miklu verri kjör en starfsbræður þeirra erlendis. Þjóð- verjum er legið á hálsi fyrir það, að þeir hafi of marga ráðherra, en ráðherrarnir ellefu, kanslar- inn og forsetinn kosta tilsamans ekki ríkið eins mikið og tveir hers höfðingjar í setuliði bandamanna. Um líkt leyti og kröfur skaða- bótanefndarinnar komu fram voru! birtar nýjar tillögur um þetta I sama mál, er gert hafði Robert' Horne fjármálaráðherra Breta og! stóð enska stjónin í heild sinni áj bak við þær. Þessar tillögur gera! ráð fyrir að skaðabótunum verði skift í tvo hluta, sem sje her- kostnaðarskaðabætur og skaðabæt ur fyrir tjón unnið í ófriðnum. Er þetta gert með hliðsjón af til- lögum þeim, sem efst eru á baugi r.ú nm uppgjöf allra herlána miíli bandamanna innbyrðis og mun til- ætlunin með með tillögunum sú, að Þjóðverjum verði gefnar upp aliar herkostnaSárskaðabæturnar á sínum tíma, þó ekki sje það beint tekið frtim. Frakkar hafa tekið þessum ensku tillögum mjög fjarri. Þeir sitja fastir við sinn keip, og skaðabóta- nefndin sömuleiðis. Fyrir nokkrum dögum komu hótanir frá nefnd- inni til Þjóðverja um það, að ef þeir intu ekki af hendi greiðslur samkvæmt ákvæðunum frá 21. mars, mynd verða tekið til refsi- ákvæðanna, og sýnir þetta senni- lega, að Þjóðverjiar hafi ekki enn svarað orðsendingunni og ekki greitt upphæðina, sem þeim var fyrir sett að greiða fyrir miðjan april. Þjóðverj'ar kippa sjer ekki upp við hótuninia, um framkvæmd refsiákvæðanna nú orðið,þeir hafa heyrt hana svo oft. Rkaðabótamálið er ekkert nær lausninni nú en verið hefir áður og á ráðstefnunni miklu verður það ekki rætt, því Frakkar og Bretar höfðu komið sjer saman um að það skyldi ekki komafram í Genúa, þó þar eigi að leggja grundvöllinn að f járhagsviðreisn Evrópu. -------o------- Gengi erl. myntar. Khöfn 26. apríl. Sterlingspund............ 20.85 Dollar.................. 4.71V2 Mörk...................... 1.70 Sænskar krónur .. . . 122.35 Norskar krónur........... 89.35 Franskir frankar . . .. 73.65 Svissneskir frankar.. . . 92.00 Lírur.................... 25.30 Pesetar.................. 73.50 Gyllini..................179.40 MORGUNBLAÐIÐ Brostu nii li Mð mitt. Brostu nú litla Imrnig mitt þó bylurinn gnauði á þaki. Vindurinn þýtur í vetrarhöll, en vor er að skýjabaki. Brostu nú litla barnið mitt; lát bros þitt, á tári skína. 1 feldinn hún mamma þín vefur þig vel Qg vorið á margt til að sýna. Brostu nú litla barnið mitt; við brjóst þinnar köhln sveitar finst það, sem græðir öll mai;na mein, e! mikið og vel þú leitar. Brostu nú litla barnið mitt, 'þó bylurinn gnauði á þaki. Vindurinn þýtur í vetrarhöll, en vor er að skýjabaki. S. F. --------o-------- FerðaáaEtlun ruglaö. Margir eru óánægðir út af því, og ekki að ástæðulausu, að Ster- ling hefir verið látiun bíða hjer í 6 daga eftir fáeinnm, 3 eða 4, þingmönnnm. Alþingi hefir samið ferðaáæ • m fyrir skipið og þar ákveðið. að það fari hjeðan 20. apríl. Þ. ssi áætlnn hefir verið símuð út um land, og á öllum viðkomustöðum skipsins, gera menn ráð fyrir, að hún verði haldin. Hjer býður fjöidi fólks, sem þarf að komast til Austfjarða. Þar er uppgripa-' afli og ýmsir menn eystra hafa, að sögn, ráðið til sín fólk hjer syðra, sem koma á með þessari skipsferð. En þrátt fyrir þetta j ei skipið kyrsett hjer í 6 daga, , inest eða eingöngu fyrir tilmæli | eins eða tveggja þingmanna, sem ; vel hefðu þó getað beðið hjer | eftir Goðafossi, að því er flest- um virðist, en hann á að fiara hjeðan 3. n. m. — Líklegt, er svo, j að þessi töf St-erlings hjer nú, , valdi óreglu á næstu ferðum I j skipsins. i --------0-------- Alþingi. J gær fóru fram þiuglausnir. Las forseti sameinaðs þings, Magnús Krist jánsson, upp yfirlit það yfir etörf þingsins, sem birt verður síðar hjer í blaðinu og mælti svo að skiln- aði: „Störfum þingsins er þá lokið að þessu sinni. pví verðnr ekki neit- að, að ómildir dómar eru oftast feldir um störf þingsins, en hins venju lega síður gætt að líta á og mæla alla þá erfiðleika sem ætíð hefir verið við að stríða. Þetta þing hefir þó að mínu áliti átt venju fremur úr vöndu að ráða og má í því sambandi nefna Spánarsamninginn og viðskiftamál- i i yfirleitt. Jeg treysti því fastlega, að þjóðin muni við nána athugun sannfærast um að í Spánarmálinu hafi eigi ver- ið um aðra færa leið að velja en þá, sem farin var. Hvað önnur viðskifti og fjárhags- mál snertir myudi það frekar geta orkað tvímælis hvort afgreiðsla þeirra hafi orðið sem ák.jósanlegust. En hvað sem öllu öðru líður og hvernig sem dómarnir verða, þá er það von mín eða jafnvel sannfær- ing, að hver þm. hafi lagt það eitt tii málanna er hann vissi sannast og rjettast og ekki látið annað hafa áhrif á atkvæðagreiðsluna og eigin sannfæringu. Með þeirri meðvitund getum vjer rólegir mætt hverju sem að höndum ber. Að svo mæltn vil jeg óska öllum háttv. þm. góðrar: lieimkomu og heillaríkrar framtíðar. i Jeg bið hinn alvalda alheimsst jórn- j ara að varðveita fósturjörð vora frá I öllum yfirvofandi hættum og veita oss i Öllum styrk til að vinna verk vorrar j eigin köllunar bæði innan þings og ulan“. , Þá stóð forsætisráðherra upp og las j upp boðskap konungs um að þingi væri slitið. Stóð þá upp Sigurður Stefánsson og kallaði snjöllum rómi: ! „Lengi lifi Kristján X konungur vor“ j en þingmeim tóku undir með níföldu ! húrrahrópi, sem sjaldan mun lætur tekist hafa. Að því loknu gengu þingmenn út. ---------o-------- Hin eyðandi öfl. Það má nú kannske segja sem svo, að mjer komi það ekki mikið' við, livað skrifað er í Alþýðu- blaðið, og að jeg' sje því síður fær um að gera nokkra bragar- bót á því, sem bóta þarf, Þetta kann hvorttveggja rjett að vera. En af jeg er alþýðumaður og þeirri stjett hlyntur þá finst mjer, að bæði* jeg og aðrir úr þeirri stjett, sem eitthvað vilja til mál- anna leggja bafi að minsta kosti ltyfi til þess að stinga niður penna og láta í ljósi skoðun sína á því er málgagn alþýðu (Alþýðu- blaðið) flytur, og þá' einnig því erj þoim felhir miður. Og það er ein- mitt ein slík grein er koni mjer tij þess iað skrifa þessar Mmir. Hún birtist í Alþýðublaðinu 11.' apríl með fyrirsögninni „Hið eyð-| andi afl“. Henni er hrúgað sam- an af svo óskammfeilnum orðum og lítt hugsuðum að mig imdrar að sjá slíkt á prenti. Greinin öll er eitt fyrirlitning- ar og haturshróp til stóreigna- maimanna og þeirra, er eitthvað láta viirna. Þeim er lýst þar sem emhverjum skæðustu óvinuni al- þýðunnar, sem verstu föntnm og níðingitm, er lemji menn áfram með blóðugum svipum til vinnu, hundna í þrældómshlekki. Jeg segi nú fyrir mig, að jeg kann ekki og kannast ekki við þessa lýsingu á þeim nýtu mönn- tim er halda uppi atvinnuvegun- cm hjer hjá okkur til sjós og sveita, og þáð þýðir ekki neitt að hrópa upp með það í Alþýðu- blaðinu til allrar alþýðu, að fylkja sjer undir merki þeirra manna, j er svona skrifa og ráðast (eðti jeg veit ekki hvernig á að skilja það öðru vísi) ó ’ alla stóreigna- j menn og vinnuveitendur og vilja roka þá frá eignum sínum. Það þýðir ekki neitt að hrópa upp með það og jeg hygg jeg tali þar fyrir munn fjölda alþýðn- manna, er jeg segi, að jeg trúi ykkur, er svoma hugsið, ekki eins vel fyrir rekstri atvinnuveg-' anna eins og þeim, er þan sæti nú skipa og hafa unnið sig upp í þau fyrir dugnað sinn og anna.ra. Okkur, fjöldia verkamanna, er vel við þá menn, er láta o"kkur fá eitthvað að vinna og borga okkur sanngjamlega vinnuna. Og vlð álítum þá menn hina þörfustu bverju þjóðfjelagi, er koma á stað fyrirtækjum er fjöldi fólks fær. vinnu við og góða borgun, og við( getum vel unt þeim mönnum góðs hagnaðar og jafnvel að verðia stóreignamenn. Og á þeim grundvelli, að manð-: synlegt sje að ryðja þeim úr vegi, svo alþýðan geti orðið efnalega, ardlega og líkamlega sjálfstæð 5000 knónur af 3 tlokks veðdeildarbrjefuua óskast til kaups. Gudmundur Olafsson. tíírni 202. Og þroskuð, getum við ekki starf- að í alþýðufjelagsskap. Og okkar álit er, að Alþýðubl. ætti ekki að ljá rúm slíkum grein- um og þeirri, er jeg hefi minst á, því þær eru „Hið eyðandi afl“ í fjelagsskap alþýðu; þær eyða allri virðingu og öllum áhrifum Al- þýðubl. og það eins hjá öllum hugsandi mönnum, er vilja fylgja alþýðunni að málum. Og þú, er skrifaðir greinina, og ert ungur maður og hugsar hátt og langar til að láta gott af þjer leiða, lairgar til.að láta marga fá vinnu Hða vel, — máske byrjar þú einhverntíma sjálfur á einhverju, er stefnir í þá átt, en þjer mis- hepnast það kannske, einhverra orsaka vegna, og þú verður að búa alla þína æfi meðal fátækr- ar alþýðunnar, meðal þúsundamia er þú segir að hrópi lijer á brauð úr loftilium kjallaraholum og upp- gjafa. hainsnahúsum og sem þú gefur í skyn að ekki haf i ræni á því að þurka miglusveppina niður úr hornunum á herbergjun- um, er það býr í Mjer t’nst það ekki rjettlátt af þjer, að láta hin hörðu örlög þín snúa.st upp í óslökkviandi hatur til allra þeirra, er náð hafa upp á. tindinn, er þú í æskn þráðir, en sjerð aldrei nema í liillingum. Verkamenn, fylkjum okkur um merki sannleika og rjettlætis, ver- iim samtaka í sanngjörnum kaup- kröfum, verum samtaka í því, að bngsa og vinna nð úkkav trygg- ingarmálum, störfum að þ.ví að .alþýðuf jclagsskapurinn eignist sterkan sjóð, sem hægt sje að veita úr í ýmsum tilfellum íþarf- ir einstakra fjelaga og íjelags- skaparins í heild, stofnum fyrir- tæki, sem vel gefast og til hags ero öllum almenningi, og leitum samvinnu við alla góðamenn.hvaða stjett sem þeir tilheyra. ■ VTerkama.nnastjettin er voldug og sterk og getur miklu til vegar komið, ef hún beitir kröftunum rjett. En vei hverjum þeim, er reynir að heða inn í fjelagsskap verk;uuanIlfi hatrinu, lyginni, róg- ijmun og öllu, sem því fylgir, því það eru hin eyðanjdi öfl. K. 'Olafsson. Þessari grein var neitað um rúm í Alþýðublaðinu, af því að hún þótti of fjarri anda jafnaðarstefn- unnar. Bið jeg því ritstjóra Morg- unblaðsins að gera svo vel að birta hana. Jeg bvgg að margir alþýðumenn sjeu sömu skoðunar og jeg. Vakna þeir þá til umhugs- unar um það, að fjelagsskapur- inn er ekki eins heill og hann á að vera, fyrst hugimir og kraft- arnir eru skiftir. K. Ól. 4 ---------------0-------- Chic Nelson heitir danskur hnefaleikamaður, sem nýlega varð svo óheppinn að gerast herskár á götum úti og lenda í áflog- nm. þurfti sjö lögregluþjóna til að koma honum í járn. Til þess að sýna að hann geti Ðeira en flogist á við lögreglumenn hefir hann skorað á tvo bestu hnefaleikamenn Þjóðverja að berjast við sig og á kappleikur- inn að fara fram í asesta mánuði.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.