Morgunblaðið - 18.05.1922, Page 4
MORGUNBLAÐIÐ
luíritunarbækur
(iiótubækur) á 60 aura stykkið, en ef
teknar eru 100 e'ða fleiri, þá 50 aura
títykkið. Fást á
9
Skrifstofu fsafoldarprentsmiðju h.f.
Stönmannaskálinn.
Burtfararprófum við stýrimanna-
skólann lauk 2. maí, og útekrifuðust
34 nemendur skólans. 32 tóku al-
menna stýrimannaprófið og voruþað
þessir. — Stigatalan er fyrir aftan
naf nið:
Ari Helgason, Barðastrandarsýslu 81
Árni J. Vigfússon, Skagafjarðars. 74
írni J. Vigfússon, Austur-Skaftf. 82
Bjarni Eiríksson, Hafnarf..........91
Brynjólfur Kjartansson, Rvík .. 94
Cæsar Hallbjörnsson, Mar, Barð. 78
Einsr V. Einarsson, Rvík ........ 101
Guðjón Finnbogason, Rvík ......... 87
Guðjón Guðbjörnssou, Snæfellsns. 79
Guðm. Fr. Gíslason, Rvík ..........49
Guðm. Guðmundsson, Strandas... 105
Guðni Pálsson, Rvík .............. 83
Gunnl. Axel Jóhannessou, Eyjaf. 104
Hannes S. Einarsson, Húnavatnss. 84
Haraldur Pálsson, Rvík .......... 103
Hinrik J. Sveinsson, Rvík ........ 87
Jóhann O. Bjarnason, Árness. .. 95
Jón Jónsson, Rvík ................ 96
Jón Júníusson, Árnessýslu ........ 87
Kristján H. Jónsson, Hnífsdal .. 93
Lárus Iiúðvíksson, Akureyri .... 107
Lúðvík Vilhjálmsson, Akranesi .. 106
Magnús Brynjólfsson, Árnessýslu 103
Óskar Ág. Sigurgeirsson, Rvík .. 94
Öskar E. M. Guðjónsson, S.-Múl. 78
Páll V. O. Böðvarsson, Seyðisf. 97
Sigurður Þ. Sveinsson, Rvfk .... 89
jítefán í. Dagfinnsson, Rvík .... 69
Stengrímur Steingrímsson, Rvík.. 98
Sæmundur E. Ólafsson, Árness... 98
Sæmundur J. Guðjónsson, ísaf... 49
porsteinn N, Þorsteinsson, Rvík.. 90
Undir fiskiskipstjóraprófið gengu :
Guðjón Jónsson, Eyrarbakka .... 51
Guðm. Halldórsson, Rvík ...........48
Við skólauppsögn færðu lærisvein-
w þessir forstöðumanninum að gjöf
dtskorið blekstativ, mikið listaverk, í
minningu um 25 ára kennarastarf
hans við skólann.
-------—o---------
-= DA6BÖK. S-
Útileikirnir á leikvellinum við
Gxettisgötu, undir stjórn Valdimars
Sveinbjömssonar, eru nú byrjaðir og
ídremta börnin sjer hið besta. pátt-
takan er þó ekki mjög mikil enn,
*g mun kennarinn geta tekið við
fleiri bömum í kensluna, sjerstak-
lega stálpuðum. Er hann til viðtals á
vellinum daglega, kl. 9—12. Náms-
skeiðið á að standa rúrnan mánuð og
kenslugjaldið fyrir allan tímann er
5 krónur, og er það lítið, þegar þess
er gætt, að enginn styrkur hefir
verið veittur til kenslunnar. Náms-
skeið þessi em mjög farin að tíðkast
A Norðurlöndum á seinni ámm og
eiga rót sína að rekja til Svía.
ísland fór hjeðan kl. 9 í gærmorg-
un til Hafnarfjarðar, en þaðan kl. 8
í gærkveldi til Kaupmannahafnar um
Færeyjar og Leith. Meðal farþega:
Sigurður Eggerz forsætisráðherra og
frú hans, Sigurður Briem aðalpóst-
meístari og frú hans, P. L. Mogensen
lyfsölustjóri, Björn Sigurðsson fyrv.
bankastjóri, frú Kristín Sveinbjarn-
ardóttir, frú Björg Blöndal, Elín
Klein, Elisabet Kristjánsdóttir, ung-
frúrnar Guðrún Thorsteinsson, Sig-
ríður Briem, Þóra Árnadóttir, H.
Johansen, Dágmar Porláksdóttir, Þór
unn Björnsdóttir, frú Möller, Tage
Möller, Andreas Guðmundsson heild-
sali, Olafur Kjartansson kennari, Jón
Helgason verslunarmaður, og Finnur
Jónsson skósmiður. Alls fóru um 40
farþegar með skipinu.
Björgunarskipiö Þór* fór austur á
Meðallandsfjömr í fyrrinótt, ef ske
kynni að honum tækist að koma
sementsskipinu „Agnes'1 á flot. En
mjög lítil von þykir um að það tak-
ist.
Ville d’Ys franska eftirlitsskipið,
sem verið hefir hjer við land undan-
farnar vikur, fer alfarið hjeðan í
dag. Var boð fyrir ýmsa bæjarbúa
um borð í gær.
.Gullfoss fór frá Stöðvarfirði um
miðjan dag í gær og er það síðasti
viðkomustaðurinn á Austfjörðum. —
Skipið hefir sennilega komið til Vest-
mannaeyja í morgun snemma og
ætti því að geta komið hingað í
kveld seint eða í nótt.
Björgvin Vigfússon, sýslumaður á
Efra-Hvoli, kom hingað til bæjarins
í fyrradag og fer austur aftur í
dag.
Siglingar. Vínlandið og Leifur
hepni komu inn í gærmorgun, bæði
með lítinn afla og fóru aftur út í
nótt. Borg fór til Hafnarfjarðar í
gær og á að fara þaðan til Englands.
Muninn lagði á stað í nótt með salt-
fisksfarm til Spánar.
Fiskileysi er óvenju mikið fyrir
austan land, á' Hvalbak, en þangað
hafa tögararnir íslensku að vanda
farið til að leita fyrir sjer.
Barnaleikvöllurinn. Umsjón með
honum hefir ungfrú puríður Sigurð-
ardóttir, eins og í fyrra. Nafnið var
misprentað Sigríður Sigurðardóttir
hjer í IJaðinu í gær.
Símablaðið. „Elektron' ‘, málgagn
símamanna hefir legið niðri umstund
en hefir nú skift um nafn og kom
annað hefti „Símablaðsins“ út ný-
lega, Er Gunnar Schram símritari
ábyrgðarmaður þess og ritstjóri. —
Blaðið flytur greinar um rafmagns-
fiæði og almenn símamálefni og ættu
þeir, sem áhuga hafa fyrir þeim efn-
um að halda blaðið, því það er vel
ritað.
Gleymið ekki að kaupa Nýal, áður
en þjer farið úr bænum. Öll (3) heft
in fást enn hjá bóksölunum.
■%. 'í
Söngpróf mentaskólans fór fram í
gær og stýrði því söngkennari skól-
ans, Sigfús Einarsson tónskáld. Hef-
ir söngur verið iðkaður og æfður
mikið og reglulega í skólanum í vet-
ur og var það flokkur um 90 nem-
enda úr báðum deildum, sem söng við
prófið, piltar og stúlkur. Sungin
voru 10 lög, ýmist blandað kór, karla
og kvennakór og tvöfaldur kvartett
eða einsöngur og kór, og söng þá
Bjami Bjamason frá Geitabergi ein-
sönginn. En í tvöfalda kvartettinum
— sem einnig hefir sungið nokkrum
sinnum á samkomum skólans — eru
Bjami Bjarnason, Guðni Jónsson,
Jóhannes Kjartansson, Bragi Ólafs-
son, Jens Á. Jóhannesson, Lárus Ein-
arsson, G. Guðjónsson og Ólafur
Helgason. En Gísli Pálsson og Kjart-
an Jóhannsson Ijeku á hljóðfæri með
nokkram lögunum. Fjöldi áheyrenda
var þarna viðstaddur og þótti yfir-
leitt takast sæmilega og sumstaðar
ágætlega. Vonandi verðnr haldið á-
fram að halda uppi og efla söng í
skólanum, því þar er bæði um að
ræða fagra íþrótt og fjörmikinn og
góðan þátt í öllu skólalífi. Hefir
verið of lítið gert að því undanfarið,
Frystur lax
á 0 50 pr. ’/a kg-
Matarverslun
Tómasar Jónssonar.
Finskfura:
2Va’ XT’ bitaefni, 20-25 fet og
borðviður 5/a”, 3U”, 1”, 1T/* °S
l1/*” Þyktir.
Timburverslun
Arna Jónssonar, Rvik.
Drengur
16 ára sem skrifar vel, og getur
skrifað á ritvjel, óskar eftir at-
vinnu frá 1. júní. Tilboð merkt:
»1616«, leggist á afgr. Morgunbi.
tyrir 24. þ. m.
Nvkomið:
Sultutau, margar teg.
Súkkat.
Sennep í smádósum.
Soya
Picles
Möndlur, sætar pg ósætar.
Línsterkja (Colmans).
llersl.OI.Amundasonar
Laugaveg 24. Sími 149.
7 tonna mótDrbátur
í góðu standi, er til sölu nú þeg-
ar. A. v. á.
að halda uppi slíkum söng og of slæ-
leg áhersla lögð á hann í skólum yf-
irleitt, þó þetta próf sýni það nú að
lifna er yfir því í mentaskólanum,
Á skólinn því þakkir skilið fyrir
þetta próf Qg þá auðvitað fyrst og
fremst söngkennarinn, hr. S. E.
-------o-------
Gengi erl. myntar.
Khöfn 17. maí.
feterlingspund............. 20.85
Dollar...................... 4.70
Sænskar krónur.............120.20
Mörk........................ 1.66
Norskar krónur............. 87.40
Franskir frtankar ......... 42.75
Svissneskir frankar .. .. 90.25
Lírur...................... 24.85
Pesetar.................... 73.75
Gyllini....................182.40
--------o--------
Sultarhjálp Svíia.
Fyrir nokkru hefur skýrsla verið
gefin út um hjálparstarf Svía í Sam-
ara-hjeraðinu í Rússlandi. Þegar starf
semin hófst var eigi fyrir hendi meira
fje en miljón krónur. Ríkið bætti
einni miljón við og 700 þúsund feng-
isl með samskotum meðal almennings.
Ennfremur hafa borist stórgjafir frá
ýmsum einstöku mönnum. Fæða Svíar
nú 70.000 manns og hafa nægilegt
fje til að halda lífinu í þessu fólki
öllu fram í september. Starfsvið Svía
austur þar er 2600 fermilur og eru
þar 77 þorp. Hefir verið komið upp
almenningsmötuneyti í flestum þorp-
um. Veita Svíar þannig björg frá
hungurmorði nærri því eins ' mörgu
fólki og allir fslendingar em.
--------o---------
Nýkomin
fata- og regnfrakkaefni
til
Andersen & Lauth.
N.B. Aðeins nokkur stykki af svörtu, góðu regn-
kápunum eftir.
Farþegar
með ,Gullfoss( til Kaupm.hafnar sæki farseðia á morgun
(föstudag), en farþegar til Austfjarða á laugardag.
H.f. Eirnskipafjelag Islanðs.
Til 15. júní næstkomandi veitir skólanefnd Reykjavíkur
viðtöku umsóknum um kennarasstöður við Bamaskóla Reykja-
víkur. Umsóknir eiga að vera stílaðar til Stjórnarráðsins. Þeir
kennarar sem hafa sent umsóknir 1920 eða síðar þurfa ekki að
senda nýjar umsóknir.
SKÓLANEFNDIN.
UppbOÖ
á stangasápu verður haldið í húsi h.f. „ÍSLAND“ við Tryggvta-
götu hjer í bæ, föstudag 19. þ. m. kl. 1.
Smjör.
Þeir sem vilja tryggja sjer gott og ódýrt íslenskt smjör all-
an ársins hring gefi sig fram í stma 121.
Fyrirliggjandi s
Vals. hafrar, Hafragrjón, Haframjöl, Hveiti 3
teg., Hrísgrjón, Sagogrjón, Kaffi, »Rio«, »Te«
Ceylon-India, Cacao, Strausykur, Púðursykur,
Rúsínur, Sveskjur, Brauð og kex í tunnum og
kössum, Ávaxtavín, Saft, Kjötsoð, Bökunarfeiti,
Tviritunarbækur.
Símar: 281, 481 og 681.
Uppboðsauglysing.
Laugardaginn þann 20. þ. m„ kl. 2 e. hád., verður, að undan-
gengnu lögtaki 22. júní f. á. mótorbáturinn „Elliði“, eign Da-
víðsson & Hobbs, seldur við opinbert uppboð. — Báturinn er nýl.,
27 smál. að stærð, með 16 besta „D a n“-vjel, einnig nýlegri.
Fer uppboðið fram við bátinn bjer á höfninni greindan dag.
Uppboðsskilmálar verða birtir á uppboðsstaðnum.
Bæjarfógetinn í Hafnarfirði binn 10. maí 1922.
Itflagnús Jónsson.
P. □. 3acDbsen S 5ön
Tímburverslun. Stofnuð 1824.
Kaupmannahöfn C, Símnefni: Granfuru.
Carl-Lundsgade. Nöw Zebra Code.
Selur timbur í stærri og smærri sendingum frá Kböfn.
Eik til skipasmiða.
Einnig beila skipsfarma frá SvíþjófS.
Biðjið um tilboð.
v>.v/xv\v'\v\'ir' v»y,^
Að eins beildsala.
y > V T '.y ■ VAV/ V ’.Y .r ■ v\v.AyAvAv^r-1'
HÚS OG BYGGINGARLÓÐIR.
selur Jónas H. Jónsson, Bárubúsinu, sími 327. — Áhersla lögð *
hagfeld viðskifti beggja aðila.