Morgunblaðið - 11.07.1922, Síða 3

Morgunblaðið - 11.07.1922, Síða 3
MORGUNBLABI® hreppstjóri og dannebrogsmaður. Hann andaðist að heimili sínu hinn 5. dag maímánaðar síðastl. og skorti þá aðeins örfáa daga á sjötugt; var þrotinn að heilsu síðustu árin og lá rúmfastur og þungt haldinn síðasta missirið. Fæddur var hann í Hrífunesi í Skaftártungu 10. maí 1852, sonur Einars (d. 1888) bónda í Hrífu- aaesi, Bjarnasonar (d. 1852) á Þykkvabæjarklaustri, Jónssonar, og Guðrúnar Jónsdóttur frá Bakka í Landeyjum. Yoru þeir bræður Bjarni á Klaustri afi Jóns og Jón faðir Eiríks hreppstjóra í Hlíð. Voru þau Hrífunessystkini mörg, og eru þeir nafnkendastir Jón í Hemru og sjera Bjarni, fyrrum prestur að Mýrum í Alfta- veri, kvæntur Guðrúnu Runólfs- dóttur dannebrogsmanns í Holti á Síðu, eru þau nú til heimilis í Reykjavík. í Hrífunesi ólst Jon upp og var þar til 27 ára aldurs; kvæntiSt þar árið 1877 Hildi Vig- ' fúsdóttur hreppstjóra á Flögu í sömu sveit, Bótólfssonar, en flutt- ist 1879 að Hemru þar í sveit og reisti þar bú; beypti hann jörð- ina og bjó þar blómabúi upp frá því, eða 43 ár. Lifir Hildur hús- freyja enn, mikilhæf gerðarkona. Varð þeim hjónum 7 barna auðið og komust 6 upp: 1. Þorgerður húsfreyja í Vestri-Garðsvika í Rangárvallasýslu, gift Einari hreppstjóra Einarssyni þar, 2. Sig rún, ógift á Skúmsstöðum í Land- eyjum; 3. Guðrún, ógift í föður- garði; 4. Jóhanna, ekkja Einars Bergsisonar á Mýrum, 5. Þor- valdur bóndi á SkúmhsstöSum, kvæntur Ólöfu Jonsdottur frá Hlíð í Skaftártungu og eru þau hjón fjórmenningar, 6. Valdimar barnakennari í Hemru, ókvæntur. Jón Einarsson var atkvæðamað- ur í hjeraði og ljet sig miklu skifta opinber mál. Voru þeir hreppstjórarnir Runólfur Jónsson í Holti og- Ingimundur Eiríksson á Rofabæ í Meðallandi helst nefnd ir til almennra mála, þegar Jón kom til sögunnar, en ekki leið á löngu, áður hann kæmi þar einn- ig til skjalanna. Allir voru þeir merkir á marga lund og miklir skýrleiksmenn, en mentunar nutu þeir ekki, eSa annarar fræðslu, en þeir gátu sjer sjálfir veitt; sómdu sjer þó vel með mentuð- um mönnum og voru allir sæmdir heiðursmerki dannebrogsmanna. Jóni var að vísu komið kafla úr vetri til sjera Páls Pálssonar að Kálfafelli, síðar að Þingmúla, á- samt Gísla bróður sínum, er síðar fór til Vesturheims, og mun þeim , hafa verið ætlað að ganga skóla- veginn; en það rjeðist á annan veg og gerðist Jón bóndi sem fyr er sagt. Varð hann, áður langt um leið, einhver kunnasti maðurinn í sinni sveit og jafnvel innan sýsl- unnar; gegndi flestum þeim trún- aðarstörfum, er fyrir koma í hjer- aði og jafnan var hann kvaddur til hinna vandasömustu verka. Hreppsnefndaroddviti Skaftár- tunguhrepps var hann 30—40 ár, eða frá því að hreppaskifting varð þar og jafnframt um tíma oddviti Leiðvallarhrepps hins foma, sýslunefndarmaður um langt skeið og amtsráðsmaður, safnaðarfulltrúi, fræðslunefndar- maður og loks hreppstj. síðustu 10 árin. 1 kjöri til þingmensbu var hann nokkrum sinnum og kosinn varaþing'maður Heimastjórnar- manna við fyrstu landskjörskosn- ingar 1916. Jón var maður hjeraðsríkur og skoðanafastur; ljet ekki smn hlut fyr en í fulla hnefana og þótti einatt harður í horn að taka. íhaldssamur var hann og fáskift- inn um nýbreytni þá, er hvar- vetna var farið að bóla á í kring um hann; fombýll að gömlum sið og kunni manna best að setja á hey sín, gestrisinn og höfðingi heim að sækja, skemtinn í viðræð- um og vel aS sjer, tryggur og frændrækinn. Hann var mikill mað ur vexti og ekki flysjungslegur, harður og þrautseigur. Þegar Jón í Hemm nú er fallinn frá, er mjög farinn að þynnast flokkur hinna eldri bænda í Skaft- ártungu. Og þó að einatt vildi svo til, að hann væri öllum þorra manna andvígur í skóðunum, ekki síst þeim, er fram^rlega stóðu, munu nú flestir, er þektu hann best, fúslega játa, aS mikið hafi verið í mamninn spunnið og margt stórvel um' hann. P. « --------o-------- Ur Oræfum. Nokkur mannalát. Síðastliðið ár var manndaúði mikill í Öræfum í Austur-Skaftafellssýslu, því að á rúmum _3 mánuðum ljetust þar 10 manns; var margt af þessu fólki roskið orðið og jafnframt hú- aldrað, en sumt á góðum aldri. Er sveitin fámenn og mikið skarð orðið við fráfall þessara manna, er margir voru bændur góðir og hiriir nýtustu menn. Fara hj-er á eftir nöfn lrinna látnu; dóu þeir allir úr lungnabólgu, nema tveir hinir fyrstnefndu. Gísli Kjartansson uppgjafaprestur, andaðist í septembermánuði eftir stutta legu. Vair hann bilaður á heilsu um mörg ár og Ij-et af prest- skap fyrir nókkrum árum. Hann var fæddur að Ytri-Skógum undir Eyja- fjöllum 8. júlí 1869, og því vel fimt- ugur, er hann Ijetst. Foreldrar hans voru Kjartan, prestur Jónsson í Skóg- um (síðar á ElliðaVatni) og síðari kona hans Ragnhildur Gísladóttir í Gróf í Skaftártungu, Jónssonar; er hún enn á lífi í Reykjavík. Stúdent varð sjera Gísli árið 1890 og útskrif- aðist af prestaskólanum tveim árum sðar; og vígðist svo að Felli ,í Mýr- dal, en varð að láta af embætti á besta aldri sakir heilsubrests. Gerð- ist þó enn prestur að Sandfelli í Öræfum 1913, en þrálát heilsubilun neyddi hann til að segja af sjer að fullu að fáúm árum liðnum. Hann var kvæntur Guðbjörgu Guðmunds- dóttur, hreppstjóra Isleifssonar á Háeyri, og Sigríðar Þorleifsdóttur (a Háeyri); lifir hún mann sinn ásamt nokkrum börnum þeirra. Er Sigríður elsta dóttir þeirra gift frænda sínum Guðmundi Bjarnasyni og puríðar Pálsdóttur, Þórhallssonar' og Þuríðar Jónsdóttur frá Hlíð í Skaftártungu. Eru þau hjon í Skafta- felli hjá puríði (móður Guðmundar) og þar andaðist sjer Gísli hjá’ þessu ágætisfólki, er svo frábærlega hafði farist við hann í veikbidum hans. Sjera Gísli var glaður í lund og glæsimenni; ljúfma'nnlegur í allri framgöngu og hinn besti drengur, góðum gáfum gæddur, en naut þeirra ekki sem skyldi. Páll Bjarnason óðalsbóndi að Ilnappavöllum andaðist snemma vetr- ar úr innvortist meinsemd, frekiega hálfsjötugur. Hann var -sonur Bjarna Pálssonar, áður bónda þar, er yar hróðir Þorsteins bónda í Hnappa- vallahjáleigu. Voru þeir bræður kunn- ir bændur í Öræfum um eitt skeið; en eru nú dánir fyrir mörgum ár- um. Bróðir Páls og sonur Bjarna er Magnús, er dvalist hefir í Vest- urheimi um 30 ár; greindarmaður og fór talsvert með lækningar. Páll var kvæntur Guðnýju Sigurðardóttur, hreppstjóra Ingimundarsonar á Fag- urhólmsmýri. Hann var búhöldur í besta lagi, valmenni og bókamaður meiri en alm-ent tíðkast til sveita. pá ljetust og systur hans tvær, Guð- rún og Kristín, heilsulitlar um mörg ár. Enn ljetust í Hnappavallahjáleigu Guðrún Þorsteinsdóttir, ekkja por- steins Pálssonar, er fyr getur, há- öldruð kona, og sonur hennar por- steinn oddviti Þorsteinsson; var hann urn fimtugt og stýrði búi þeirra, ókvæntur. pá ljetust einnig bræður h.ans tveir (Þqrsteinssynir af fyrra hjonabandi), Pall hóndi á Hnappa- völlum og Sigurður Iróndi á Hofsnesi, orðlagður gæðamaður, kvæntur Guð- rúnu Bjarnadóttur frá Skaftafelli. í Sv'ínafelli.andaðist' húsfreyja Guð- rún Sigurðardóttir (ein af dætrum Sigurðar hreppstj. Ingimundarsonar) kona' Páls óðalshónda 1 Svínafelli, JónSsonar, Pálsso-nar !í Arnardrangi, föður Láusár læknis á Sjónarhóli, er fyrir fjórum árum -eþ dáinn. lí Rvík. Var Guðrún tápkona mikil og' vinsæl, og áttu þau hjón mörg börn, öll uppkomin. Hún mun' hafa verið hátt' 'á sjötugsaldri. Loks Ijetst Jón óðalsbóndi Sigurðsson í Svínafclli, bónda Jónssonar sama staðar, ,og Sigríðar Runólfsdóttur systur Eyjólfs hreppstjóra og smá- skamtalæknis á R ynisvöllum í Suð- ursveit. Var Jón staddur á Smyrla- björgum í Suðursveit,' er' hann tók veikina og andaðist þar, rúmlega hálfsextugur. Hann var kvæntur R annveigu Runólfsdóttur (Þórhalls- kjarkgóðu, þá sem litlu nenni og sjeu ófærir til að bjarga sjer, þá sem vinni andlega vinnu og hina sem eingðngu vinna með höndunum. Þeim síðast töldu segir hann að megi aftur skifta í verklærða menn og hina, sem sjeu algengir verka- menn. Hann segir að af þeim sem eingöngn vinni andlega vinnu, sje langmest af stúdentnm, listamönnum blaðamönnum, leiknrnm, rafmagns- fræðiogum og skrifstöfumönnum í Astraliu. Ritstjórinn fullyrðir, að sumir þessara flokka hafi vitanlega mikln meiri mögnleika til þess að bjarga sjer en aðrir. Hann segir, að t. d. hljómlistarfræðingur, sem ekki væri því dnglegri, mundi svelta i hel í Melbourne. Aftur á móti mundi dnglegnr múrsmiður eða trjesmiður bjargast vel áfram alt frá þeim degi að hann stigi á land, jafn vel þó hann kynni ekki málið. Telur haun vera vöntnn á duglegum handverks- mönnum alstaðar i álfunni. Þó segir hann að flestum muni bregða mest í brún við það, hvað persónnfrelsi manna sje langtum minna i Astraliu en t. d. á Norður- löndum; þar megi menn ekki standa á gangstjettunum og tala saman þá komi óðara lögregluþjónn og skipi mönnum að haida áfram, og verði maður ekki strax við þeirri sonar) og Róshildar Bjnúnadóttur frá Mörk á Síðu. Lifir Ranjiveig mann. sinn ásamt fjórum börnum þeirra. Jón var glaður í vinaihóp, rólyndur hversdagslega og æðrulaus; karlmenni að burðum og hinn gervi- legasti. Va|r einkver kunnasti Ör- æfingar á seinni árum og annálaður ferðamaður, glöggur á vötn og gætinn fylgdarmaður. Má svo að orði kveða, að halm hafi staðið í stöðugum mannafI utningum nú um 30 ára bil; ir.iinu ferðir hans um Skeiðarársand í þágu annara ekki auðtaldar i svip — (otg- ekki allar sljettar (yfir Skeiðair á og Núpsvötn). Mætti hanh nú segja að loknu dagsverki eins og 'kveðið- var fyrrum: „SkröltlhJef jeg hann Skeiðarársand og skemt mjer eftir vonum: Nú er je'g' kominn lífs á land úr ljótu Núpsvötnonum." Gamall Öræfingur. o- HorluFlanditliilaF I ÍMIil Ritstj. N0rðntlandablaðsins »Nor- den«, sem g fið er út i Melbourne á Ástraliu, Hans A. C ausen, hefur fyrir stuttu skrifað allitarlega grein i eitt danska blaðið um kjör og hætti innflytjenda frá Norðurlöndum til Astraliu. Telur hann dð sumir Norðnrlandabúar, sem flytji til Eyja- álfunnar, muni gera sjer of glæsi- legar vonir um afkomu þar, og var- ar menn við þvi, að flytja þangað, nema sjerstök skilyrði sjeu fyrir hendi. Hann segir að siðan Bandarikjun- um hafi verið lokað fyrir inuflytjend- um og haldist enn, að Evrópumenn kjósi helst að flytja inn meðal ensku-' mælandi manna, þá sjeu innflutning- ar nú tíðastir til Astraliu. En hann segir að ekki sje vanþörf á dálitilli leiðbeiningu til útsækinna manna sem telji auðvelt að ná i gull og græna akóga i Astraliu. Þvi þessu sje oftast annan veg farið. Innflytjendum frá Norðurlöndum segir hann að megi ikifta i ýmsa ffokka, t. d. þá sem koma með nokkura fjármuni handa á milli, þá sem ekkert eigi annað en til nauð- synlegrar framfærslu fyrst í stað, þá sem tali ensku og hina, sem ekki kunni málið, þá gáfuðn, mentuðu og kröfu, verði maður kallaður fyrir rjett. Kl. 6 segir hann að öllum búðum og veitingastöðum sje lokað og þá verði göturnar mannlausar að mestu. Sama máli er að gegna á hinu andlega sviði. Alstaðar mæti manni þröngsýni og skortur á umbnrðar- lyndi. Erlendnr maður geti altaf bú- ist við ónotum og jafnvel svivirð- ingum. Nefnir hann ýms dæmi þessu til sönnunar. Málfrelsi sje líka mjög þröngt i álfuuni. jafnvel Englendingar þori ekki að koma opinbeilega fram með djarfar hugsanir, þvi það geti kom- ið þeim i fangelsið, Segir hann að sumar stjórnmálagreinar i dönskum blöðum mundu áreiðanlega koma höfundum i margra ára fangelsi. Dagblöðin innlendu gera Hka sitt til að æsa fólkið gegn útlendingum. Telur því ritstjórinn fullsannað, að flestir Noiðurlanda-búar muni minsta kosti fyrst i stað verða fyrir margs- konar óþægindum, ekki síst ef þeir sjeu að reyna að útvega sjer atvinnu. Eftir að höf. greinarinnar hefur talið upp þessa ókosti, segist hann vilja benda á þá kosti, sem geti ver- ið um að ræða við það að flytja til Astraliu. Nefnir hann fyrst loftslag- ið, það sje ólíkt betra en i Norður- evrópu. Þar næst sjen öll laun hærri en vinnntiminn styttri, hvergi sje unnið lengur en 8 klst. og sum- staðar styttra. Segir hann, að hjón með 3—4 börn geti auðveldlega komist þar af með 30 kr. á mánuði. Kjöt sje þar ódýrt, nautakjöt kosti t. d. frá 40—90 aura pd., smjör hafi.stigið en kosti þó ekki meira en kr. 1,30 pd. Karlmannsföt tilbúin megi fá þar fyrir kr. 90, og skó frá 15 —40 kr. Miklu betra segir hann að sje að fá vinnn upp til sveita, og þar sjeu menn heldur ekki jafn gramir við út- lendinga. I sveitinni segir hann að sje borgað hjer um bil 36 kr. á viku auk fæðis en vinnotími sje þar 10 klst. Ávarp til 25 ára stúdentanna 1922« Rdverendi dominit Quintus et vicesimus hic vester natalis faustus sit! Gaudio afficior reminiscens ad~ huc esse multos inter nos, quos et latina et graeca Amálthea nutri- verit. Lugeo autem lingvam latinam et graecam moribundas esse in pa- tria nostra. Mihi enim persvasum est antiquas lingvas fontes esse pretiosae scientiae, maximeque ap- tas ad discipulorum ingenium ex- ercitandum. Spero hanc vestram festivam diem vos impulsuram, et scribentes et loquentes, quantum in vobis est, operam dare, ut ex- pergiscantur lingva latina lingva- que graeca in scola nostra. Praeterea: Hodie, sicut Janus olim et respicientes et prospicientes estis. Respicientes quaeritis: Quid nos experientia docuit? Praeter multa haecce: Multum quidem val- ere in examine pensa accurate di- dicisse, at non scolae soli, sed po- tius vitae esse discendum. Eum, qui cneperit, dimidium facti habere. Fidem assiduam jucunditate cul- torem afficere. Acclivitatem major- Í8 esse pretii moralis quam decli- vitatem. Actos labores esse ju- cundos. Scientiam robori esse ante- ponendam. Secundas res, sine ulla intermissione, optandas non es.se, adversas res patiehtia leviores fieri. Dolorem concretum vix esse feren- dum, luctum autem lacrimis levari. Medium tutissimum ire. Reverendi dominit Praeteritum tempus fundamentum est futuri. Prospicientibus vobis alma Spes sub oculis est. Spero fore ut in futuro vos, un- acum uxoribus et liberis et cogna- tis et affinibus, felicitas emplecta- tur. Valete vigete florete. Oddg. Guðmundsson. Háttvirtu herrar! Gleðilegt 0g hátíðlegt sje þetta 25 ára af- mæli yðar! Jeg gleðst af þvi að enn ern til meðal vor þeir, sem hafa notið næringar frá latneskri og grískri Auð- humlu. En það hryggir mig að latina og griska eru dauðvoDa á vorri fóstur- jörð, þvi að jeg er sannfærður um að forntnngurnar sjeu uppspretta dýrmætr- ar þekkingar, og svo einkar vel lagaðar til að ikerpa skilning lærisveinanna. Jeg vona að þessi yðar hátíðlegi dagur muni hvetja yður til að stuðla að þvi, með rit- um og ræðum svo mikið sem i yðar valdi stendur, að latina og griska endurvaknií skóla vorum. Annars vil eg geta þess að i dag horf- ið þjer hæði afturá við og fram i leið eins og Janus forðum. Horfandi afturá við spyrjið þjer: Hvað hefur reynslan kent oss ? Ank margs , annars þetta: Að mikik sje um vert að visn að hafa, þegar til prófs kemur, rækilega lært fræðigreinarnar, en að ekki sje námið fyr- ir skólann einan, en fremnr fyrir lifið. Að hálfnað sje verk þegar hafið er. Að stöðng trúmenska veiti nnað þeim er hana iðkar. Að rneira siðferðislegt gildi fáist með þvi að leita á brekkuna en undan henni. Að af er þraut þá nnnin er. Að meira virði sje þekking en styrknr likam- ans. Að ekki sjeu æskilegir óslitnir sól- skinsdagar. Að mótlætið ljettist' fyrir þolinmæðina. Að sá sje óhultastur sem kann mnndangshófið. Að táralaus harm- nr sje litt bærilegur, en að sorgin Ijettist fyrir .tárin. Háttvirtn herrar! Liðni timinn er undirlag ókomna timans. £r þjer nú horfið eftir veginum fremri, er hin endur- nærandi von fyrir augum yðar. Jeg von* að á ókomnum tima umfaðmi yðnr far- sæld ásamt konum yðar og börnnm, frænd- nm og tengdafólki. Verið þjer sælir, eflist og blómgist. Oddg. Gnðmundsson.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.