Morgunblaðið - 27.07.1922, Side 3
M0RGÐNBLA8I*
Tm, að nú þegar sól þeirra er
linigin til viðar í vestri, muni hún
að sjálfsögðu bráðlega koma upp
aftur í austri.
í Eystrasalti verður Þjóðverja
vart, hvar sem litið er, og þétt
nýi siglingafáninn þeirra virðist
svo hlutfallaskakkur og pjötluleg-
ur, að tæplega sje hægt að nota
hann í sængurver, þá er þó mesti
nýtískufloti heimsins í uppsigl-
ingu undir þessu floggi, — með
vöruskipum hiksvörtum eins «g
framtíð Evrópu og farþegaskip-
<um, drifhvítum eins og MiðjarS-
arhafsförin í höfninni í Livorno.
En Þjóðverjar hafa enn þá
skæða keppinauta, þar á meðtl
einn sem er að girða allar hafr-
arborgir Eystrasalts neti af útí-
búum — aðalstöðin er í Danzig,
er. undirstöðvar í Windau, Libau.
Eiga og Reval, og í júní bættisl
við ný stöð í Petrógrad. Þetta
er mikið fyrirtæki lítillar þjóðar,
— það er norskt fjelag, sem hefir
haft þor og dug til að setja
sjer markmið, sem önnur stærri
fjelög hafa ekki ennþá ko:n<5
auga á, — Bergenske gufuskipa-
fjelagið, sem hjer er í broddi
fylkingar í framkvæmdum, enda
eru í stjórn þess þeir menn, sem
besta þekkingu hafa á siglingum
í Eystrasalti.
Ýms önnur erlend fjelög eru
nú að setja iipp spáný „skilti“
á fjölförnustu götunum í Petro-
grad. Englendingar, Ameríkumenn
og Hollendingar eru þegar farnir
að keppa um siglingarnar^ milli
Petrograd og Ameríku, en sú sam-
kepni hefir farið hljótt hingað til.
Fyrir nokkru bauð enska „White
Star‘ ‘ -f jelagið utanríkisráðstjóm-
inni að efna til reglubundinna
áætlunarferða vestur um haf.
-------o-------
Rúslaust uiö BEysi.
Sú óskiljanlega fásinna hefir
vcrið gerö af landsstjórninni nú í
vor, að selja til niðurrifs gistihús-
ið við Geysi, sem reist var þar
si:marið 1907.
En sala og niöurrif hússins
«r fjarstæða, þótt ekki sje tekið
tillit til þess, sem sagt er, að verð-
ið hafi verið altof lágt, en að
boðið hafi verið mun hærra í hús-
iö af fjelagi hjer í Reykjavík,
sem ætlaði að láta það standa
óhreyft til notkunar þama, ef
það hefði náð kaupum á því.
Húsið fekk mikla viðgerð í
fyrra. Til þeirrar viðgerðar var
netaður skúr, sem reistur hafði
verið til bráðabirgða fyrir kon-
ungskomuna þá um sumarið. Þá
hafði og verið keýþt til hússins
mikið af innanstokksmunum, rúm-
um, sængurfatnaði, eldunaráhöld-
um o. s. frv., svo að þar mátti
þá taka á móti 20 manns til gist-
ingar, áð sögn. En alt þetta er nú
selt fyrir óverulegt verð, húsið á
3000 kr. og húsbíinaður á 1500
kr., að því er sagt er.
Hjá því getur ekki farið, að
reisa verði þarna aftur gistihiis
áður langt um líöur, og mun það
þá sýna sig, að til þess fari að
minsta kosti nokkrir tugir þús-
unda króna. En eftir viðgerðina,
sem konungshúsið við Geysi frá
1907 f jekk í fyrra, hefði þaö lengi
mátt endast og var sæmilegur
gistingastaður.
Oddafjelagar vom fyrir fáum
dögum á ferð þama eystra margir
saman, en þá hafði húsið nýlega
verið rifið og flutt burtu, svo að
þeir munu fyrstir hafa fengiö að
kenna á gistihússleysinu við Geysi.
En margir ferðamenn munu síðar
finna sárt til þess.
Eftir að þetta var skrifað, sem
hjer er á undan, er Mbl. sagt, aö
þaö sje sýslunefnd Arnessýslu, sem
keypt hafi húsið og ætli það til í-
búöar á læknissetri þar uppi í sýsl-
unni, en að það sje fjármálaráð-
herrann, sem selt hafi húsið.
--------o-------
Kjöttollurinn og líminn
Hjer í blaðinu hefir áður verið
gctið um tollahækkanirnar í Nor-
egi, þar á meðal kjöttollshækk-
unina, sem tilfinnanlega snertir
verslun okkar íslendinga við Nor-
eg, með því að mikið af því kjöti,
sem við flytjum út, er selt þangað.
Misskilningur er það, sem kast-
að hefir verið fram í blöðum hjer,
að þessi tollhækkun standi á nokk-
urn hátt í sambandi við Spánar-
tollsmálið. Hækkun kjöttollsins í
Noregi er einn liður í nýju toll-
niálakerfi, sem Norðmenn eru að
koma á hjá sjer, eins og nýlega
var sýnt hjer í blaðinu, og eru
engin ákvæði þar sjerstaklega stíl-
uð gegn Islandi.
í grein, sem Tíminn flytur um
þetta kjöttollsmál síðastl. laugar-
dag, er ofmikið gert úr því tapi,
sem tollhækkunin valdi lijer á
landi, miklu meira en góðu hófi
gegnir, aS því er þeir segja, sem
þessum málum eru kunnugastir.
Ekki minnist þó Tíminn á það,
sun eðlilegast virðist að mönnum
tlytti í hug í sambandi við þetta
jnál, ef um væri að ræða jafnmikið
tap vegna tollsins og blaðið gerir
"áð fyrir, en það <er, livort ekki
tæri gerlegt að leita fyrir sjer
neð sölu á lifandi fje erlendis:
Tímanum dettur ekki í hug neitt
írræði annað en það, að færa tap-
iS, sem hann áætlar, frá kjötfram-
Itiðendunum og yfir á aðra fram-
Itiðendur landsins. Greinin er, eins
flest, sem í Tímanum stendur,
vinhugsuð fjarstæða, más og fjas,
áí athugunar og án skilnings.
Nú segir blaðið, að öll tollhækk-
urin falli að sjálfsögðu á seljanda
vörunnar, en ekki að neinu leyti
á neytandann. En þegar um var
að ræða fisktollshækkunina á
Spáni, þá var kenning þess þvert
á móti, að neytendur vörunnar
bolguðu tollhækkunina, en ekki
seljendumir. Það stendur þó svo
ólílit á í þessum tveimur tilfell-
um, að kjöttollurinn norski kemur
jafiit niður á öllum, sem þangað
selj* kjöt, en spánska tollhækk-
unir. átti ekki að koma niður nema
á ehstökum þjóðum, sem seldu
fisk til Spánar. íslenska kjötið
steniur jafnt að vígi í Noregi og
kjöt allra annara landa, en það
átti íslenski fiskurinn ekki að
gera á Spáni, ef tollhækkunin
hefði komist á. Af þessu leiðir
það, að þótt ætla mætti, að öll
fisktcllshækkunin á Spáni lenti á
olckuí, þá er ekki sama máli að
gegna um kjöttollshækkunina í
Noregi-
Aniars er það álíka fjarstæða
og annað ofstækisrugl Tímans um
Spánartollsmálið, að vera að setja
þctta norska kjöttollsmál í sam-
band viö það.
Tíminn áætlaði einu sinni ár-
legt tap landsins af Spánartolls-
hækknninni 7 milj. kr., eða eitt-
hvað þar um bil, og sagði, að
heldur vildi hann láta landsmenr.
taka á sig í sameiningu að greiða
þá fjárhæð, en að leyfa innflutn-
ing Spánarvínanna. En skömmu
áður hafði hann reiknað út, að
landið gætj ekki risið undir því
fjárhagslega, að greiða á nokkr-
um áratugum vexti og afborgacdr
af þeim 10 milj. kr., sem teknar
voru til láns í Englandi. Þar höfð-
um við þó fengið miljónirnar, sem
við áttum að borga á löngum
fiesti. En Spánartollsmiljónirnar
ætlaði blaðið okkur að borga án
þess að hafa fengið‘nokkuð í aðra
hend.
--------o-------
□ Edda 59227317-1 ABC
Odd-Fello,war fóru eftir pingvalla-
förina með gesti sína frá Khöfn,
sem hjer eru nú, austur að Geysi og
Gullfossi. Lögðu á stað á laugardag
á bílum austur yfir Hellisheiði og
austur Grímsnesbraut, en stigu á
hesta er hana þraut, og riðu upp í
Haukadal. Gistu í Austurhlíð og
Múla. Póru svo á sunnudag að Geysi
og Gullfossi og gíttu næstu nótt 1
Skipholti. Þaðan riðu þeir niður á
Skeiðaveg og fóru svo í bílum til
Eyrarbakka og þaðan heim hingað á
manudagskvöld. Veður var hið ákjós-
anlegasta alla dagana, sem þeir voru
á leiðinni. Bjart sólskin við Gullfoss
svo að hann sýndi sig í ailri sinni
dýrð. Regnskúr fengu þeir fyrst er
þeir stigu í bílana fyrri hluta dags
á mánudaginn, eftir að þeir höfðu
snætt morgunverð á Ósaba.kka við
Laxá. Gestirnir Ijetu hið besta yfir
förinni og voru óþreyttir, þótt óvan-
ir sjeu þeir að ferðast á hestum.
Nýtt strandferðaskip er nú verið
að smíða fyrir íslensku stjórnina í
Flydedokken í Kaupmannahöfn og á
það að vera allstórt og vel vandað.
Glaður fór hjeðan norður á síld-
veiðar á laugardagskvöldið. Austar-
lega á Húnaflóa og undan Skaga
varð hann var við töluverða síld og.
kastaði þar netum, en lánaðist ekki
að fá neitt. Hann kom norður til
Akureyrar í fyrrinótt. — Síldveiðin
er fremur treg norðanlands enn.
Austur á Síðu fór dr. Ólafur Daní-
elsson fyrir stuttu; ætlar hann að
dvelja þar um tíma.
Ólafur Túbals málari kom 'til bæj-
arins fyrir nokkrum dögum vestan af
Snæfellsnesi; hef ir verið þar um
tíma og málað mikið. En ekki sýnir
hann neitt af því hjer í þetta sinn,
en fer heim til sín, að Múlakoti í
Fljótshlíð nú í dag og verður þar í
sumar, en þó einhvern tíma inni á
Pórsmörk.
Landsbankinn. Fyrir hálfum mán-
uði var byrjað að steypa hina nýju
viðbót Landsbankahússins og miðar
því verki óvenjulega fljótt áfram.
Hefir kjallarahæðin þegar verið
*teypt ásamt öllum skilrúmum, þar á
meðal eldföstu skápunum. Kjallara-
gólfið er víðast hvar alt að meter á
þykt og steypan i því mjög járnbend,
útveggirnir mjög þykkir og sömuleið-
is veggir eldföstu hólfanna, sem í
kjallaranum eru, en þau eru þrjú alls.
I austurenda gamla bankahússins var
enginn kjallari aður, en hann hefir
nú verið grafinn og hlaðið undir
veggjaundirstöður gamla hússins, svo
að þær standa nu dýpra en áður.
Yerður siðan steypt innan á veggina
og innrjettuð tvö „Boxa“ -herbergi í
austurenda kjallarans. í gamla kjall-
aranum er verið að breyta ýmsum
skilrúmum.Verið er að slá upp steypu
mótum fyrir stofuhæð bankaviðbótar-
innar og er hún nú að byrja að teygja
sig upp yfir skíðgarðinn við Austur-
stræti. Með sama framhaldi verður
þcss eigi langt að bíða að þessi nýja
stórbygging hækki í lofti. Það eru
múrararnir Kornelíus Sigmundsson,
Óli Ásmundsson og Ólafur Jónsson,
og Einar Einarsson snikkari, sem
tekið hafa að sjer bj'ggingu hússins.
Silfurbrúðkaup eiga þau á morgun
Jóhannes Jóhannesson bæjarfógeti og
frú hans, Jósefína Lárusdóttir sýslu-
manns, og síðast amtmanns, Blöndal
á Kornsá. pau eru á ferð í Norður-
landi pg halda silfurbrúðkaup sitt á
Kornsá. !Þar giftustu þau fyrir 25
árum og var Jóh. Jóh. þá settur
sýslumaður í Húnavatnssýslu. í þess-
ari ferð heimsækir bæjarfógetinn
einnig fæðingarstað siim, Enni í
Skagafirði.
Barnaleikvöllurinn. paö hefir staðið
til undanfarið, að forstöðukona Barna
leikvallarins færi með börnin í stutta
ferð út fyrir bæinn, þeim til gamans.
Þessi ferð verður farin í dag, þ. e. a.
s. ef veðrið verður gott. Eiga börnin
þá að koma saman á leikvellinum við
Grettisgötu kl. 1 í dag, útbúin á þann
hátt, sem áður hefir verið talað við
þau um. En verði veðrið ekki gott,
verður ferðinni frestað þangað til
betur viðrar. Leikvöllurinn við Grett-
isgötu hefir nú verið lagaður á ýms-
an hátt og fengin þangað ný leik-
áhöld, sem börmmum þykir mjög
gaman að.
Sjötugur verður á morgun Einar
Ólafsson, Laufásveg 39 hjer í bænum.
Hann er gamall Reykvíkingur, fædd-
ur hjer og uppalinn og hefir lengst-
af att hjer heima. Hann hefir alla
tíð verið mesti áhugamaður til vinnu
og aldrei fallið verk úr hendi; stund-:
aði sjómensku mestan hluta æfinnar,
fyrst á opnum bátum og síðan mörg
ár á þilskipum hjeðan frá Faxaflóa.
Síðustu árin hefir hann verið gigt-
veikur í fótum og kemst nú varla
út fyrir húsdyr.
íslensk vinna. Fyrir rúmlega 2000
kr. seldi Bazar Thorvaldsensfjelags-
ms ýmsa íslenska handavinnu þann
stutta tíma, sem skemtiferðaskipið
Osterley stóð við hjer í bænum
snemma í þessum mánuði. Sýnir
þetta að bazarinn hefir mikla þýð-
ingu fyrir sölu innlends heimilisiðn-
aðar og er besti sölustaður fyrir þess
háttar muni. Á sýningu heimilisiðn-
aðarfjelagsins í Iðnskólanum var
einnig allmikið selt, en eigi er oss
kunnugt hve mikið þar var. Var eink
um útsaumur á boðstólum þar.
Fyrirlestur ætlar lektor Sörensen
yfirkennari við latínuskólann í Hor-
sens að halda í K. F. U. M. kl. 8l/2
í kvöld um kristniboð. Lektor Sören-
sen hefir dvalið hjer undanfarna
daga í kynnisför og er hjer með síra
pórði Tómassyni vini sínum. Erhann
kennari i natturufræði og hefir eink-
um lagt stund á jurtafræði.
Hringurinn. Eins og að undanförnu
veitir kvenfjelagið Hringurinn einum
berklasjúkling hjálp til að stanja
straum af legukostnaði á heilsuhæli.
Ber að senda skriflega umsókn til
formanns fjelagsins, frú Kristínar
Jacobson, og fylgi umsóknunum vott
orð borgarstjóra um að sjúklingur-
inn hafi dvalið hjer í Reykjavík í
10 ár samfleytt og ekki þegið af
sveit.
: I
Skota-hornið, sem sagt var frá hjer
í blaðinu í fyrradag er ekki skorið
af Stefáni Eiríkssyni, eins og sagt
var, heldur af einum ungum og efni-
legum lærisveini hans, Halldóri Ein-
arssyni trjeskera. Hafði Stefán sjálf-
ur gert uppdrátt að útskurðinum, en
hvarf burt úr bænum áður en hann
gæti annast xitskurðinn sjálfur. Silf-1
urverkið á horninu er eftir Jónatan
Jónsson silfursmið.
Mr. George Priest prófessor við
Princeton-háskólann í Bandaríkjun-
um fór hjeðan með Gnllfossi í fyrra-
kvöld eftir rúmlega hálfs mánaðar
dvöl. Hefir hann lengst af verið hjer
í bænum, en farið snögga ferð til
Borgarness, austur i Fljótshlíð og
í Landeyjar, til Þingvalla, suður að
Bessastöðum og víðar.
Heimsflugið. Ýmsir hjer í bænum
eru að spyrja um, hvort ekki megi
fara að búast við flugmönnum þeim,
sem nú eru á ferðalagi umhverfis
hnöttinn, og svo sem kunnugt er
ætla að koma við hjer í Reykjavík.
En af þeim er það að segja, að ferðin
hefir gengið illa það sem af er, og
að víst er að þeir verða mun lengug
á leiðinni en þær 10 vikur, sem þejr
höfðu gert áætlun um. peir hjeliju
af stað frá London 26. maí og fóru
frá Marseille áleiðis til Rómaborgar
viku síðar. En þá bilaði vjel þeirra
svo mikið, að þeir urðu að snúa við
til Marseille og töfðust þar nærri
heilan mánuð. Það síðasta er hingáð
hefir frjetst af flugmönnunum er
það, að þeir fóru frá Aþenu 7. júK
og ætluðu að komast til Solum í
Egyptalandi um kvöldið. Má telja
víst, að þeir komi ekki hingað fyr
en snemma i september — ef þeír
koma þá nokkurn tíma.
Fjórir bekkir hafa nú verið settir
á Austurvöll og banninu ljett af hon-
um. En víðar þurfa að koma bekkir
en þar. Væntanlega verður ekki lát-
ið sitja við þessa byrjun.
Siglingar. Gullfoss lá undir Reykja
nesi í fyrrinótt vegna afspyrnuroks
á austan og hjelt ekki áfram fyr en
ur.dir kl. 8 í gærmorgun. Lagarfoss
kom hingað í gærkveldi. — Ville-
moes er væntanlegur til Austur-
lands á morgun eða laugardag, með
steinolíufarm til Landsverslunar. —
Goðafoss kom hingað síðdegis í gær.
ísland kom í gær frá Kaupmanna-
höfn. — Crofter kom frá Spáni með
saltfarm til Copland um hádegi í
gær.
Grassprettan. Frjettir að norðan
segja sömu söguna þaðan, af gras-
sprettunni eins og hjeðan af Suður-
landi. Tún og valllendi sæmilega
sprottið, en mýrar með lakasta móti.
Hefir veðrátta verið óvenjulega köld
á Norðurlandi það sem af er sumr-
■ ir.u.
Páll fsólfsson organleikari dvelur
um þessar mundir í Norðtungu. —
Verður hann fjarverandi hálfs mán-
aðartíma.
Biskupinn, dr. Jón Helgason, ætl-
a’- með Goðafossi næst í vísitasíuför
til Norðurlands og ferðast um Eyja-
fjarðarsýslu. í þessari för býst hann
við áð fara til Grímseyjar og vísitera
þar. Er það fáfarin biskupaleið, því
eigi mun biskup hafa komið til
Gríinseyjar síðan Guðmundur Ara-
son hinn góði. Samskipa biskupi
norður verður síra Þórður Tómas-
son, sem fer heim til Danmerkur
með Goðafossi.
Gagnfræðaskólinn á Akureyri. —
Skýrsla hans fyrir skólaárið 1921—
1922 hefir nýlega verið send þessu
blaði. Fylgja henni erindi tvö, er
hinn nýji skólastjóri, Sigurður Guð-
mundsson flutti við skólasetningu í
fvrrahaust og skólauppsögn í vor. Eru
í fyrra erindinu einkar hlýleg minn-
ingarorð eftir Stefán Stefánsson
skólameistara og bæði eru erindin
ágæt að efni og formi, eins og von
var til úr þeirri átt. Nemendur skól-
ans síðastliðinn vetur voru 104 tals-
ins, 19 i fyrsta bekk, 40 í öðrum og
45 í þriðja bekk. Gagnfræðaprófi við
skólann luku 43 nemendur. Auk skóla
stjóra kom annar kennari nýr að
skolanum, Guðm. G. Bárðarson nátt-
mufræðingur, sem tók við kenslu af
Stefáni heitnum skólameistara, í nátt-
úrufræði og landafræði. Ennfremur
hætti Geir víglsubiskup Sæmundsson,
sem kent hefir dönsku, kenslu við
skólann, en við tók ungfrú Hulda
Stefánsdóttir.
Um fjölbragðaglímu eða ensku
glímuna ritar Jóhannes Jósefsson
fróðlega grein í Vísi í gær. Sýnir
hann þar fram á, að glíma þessi muni
hentugri íþrótt íslendingum en flest-
ar ef ekki allar útlendar íþróttir og
lýsir hann glímunni allítarlega og
segir frá helstu brögðum. Hvetur
hann íslendinga ~ til að leggja stund
á þessa glímu, og vill fúslega veita
: mönnum leiðbeiningar þar að lút-
andi.
Austurrísku drengirnir, sem komu
hingað með Gullfossi fyrir hálfri
annari viku, munu dvelja hjer frarn
til loka næsta mánaðar. Hefir þeim
verið komið fyrir hjá fjölskyldum