Morgunblaðið - 28.07.1922, Side 2

Morgunblaðið - 28.07.1922, Side 2
MORGUNBLADID og eiga þeir skyldar bestu þakkir fyrir alt starf sitt og fyrirhöfn. Mörgum mun virðast svo, sem knattspyrnumenn vorir hafi ekki siaðið sig vel á sjálfum vellinum er þeir þreyttu viö Skotana, en sje nánar athugað, er frammistaða þeirra alls ekki slæm. Lið Skot- anna var afar sterkt. Svo að segja úrval úr þremur bestu áhuga- mannafjelögunum á Skotlandi. Frá Greenock (er vann síðast liðið ár) voru 2. Frá Civil Service 7 (meö Mr. Mitchell) og frá Queens Park 7. Var því ekki von að vel færi, er við svo mikla afburöamenn var að etja. Til samanburðar vil jeg setja hjer kappleiki þá er Queens Park hefir náð í Danmörku frá því 1898 til 1921. Nú er samanburð- prinn vitanlega ekki alsko|star rjettur vegna þess að Danir hafa mikið betri skilyrði til æfinga tn við, og hafa þar að auki iðkað knattspymu lengur. Svo er og hins að gæta að það er Queens Park eitt, sem keppir, en ekki úrval úr þremur fjelögum. I öll- um leikjum keptu Queens Park við úrvalslið danskra fjelaga, að undanteknu fyrri leiknum 1903, sem var háður við „Köbenhavus Boldklub". Listinn er banaig: 1898 .. .........Unnið með 7 :0 á. . — — 3:0 1900 ................ — — 6:1 s. á............... — — 8:1 1903 ................ — — 1:0 s. á............... — — 4:1 1914................. — — 5:1 1921................Tapað — 3:4 s á...............Unnið — 3:2 s. á..............Tapað — 6:1 Um síðasta kappleikinn er það að segja, að Skotamir höfðu leikið þrisvar sinnum á fjórum dögum og auk þess víst verið að skoða „Köbenhavn ved Nat“ nóttina á undan. Að minsta kosti segir „Idrætsbladet“ danska það og er því engin furða þótt illa hafi farið. Anars sjá menn það eftir þessu að Danir era mikið að sækja sig þó illa hafi tekist í fystu. Þeir hafa auðsjáanlega staðið mjög líkt 1898 og 1903, eins og við nú. Er því lífsnauðsyn fyrir knatt- spymumenn vora að sækja sig nú eins best þeir geta. og ekki hætta í’yr en þeir hafa unnið Skotanna. Við þurfum að fá oftar hingað flokk ein-s og þenna, sem nú var að fara hjeðan. Þeir eru ágætir knattspyrnumenn, fjörugir, skemti- legir og koma alstaðar mjög vel fiam. Við skulum vona að annar eins flokkur komi hingað bráð- lega — og að knattspyrnumenn vorir taki þá snarplegar á móti. K. ' .................. "" é' Islenskur ska &it bú n i n g u á fi^tnur litla og granna stúlku, óskast til kaups. Menn snúi sjer skriflega eða raunnlega til H A. Bates, Hotel Island. □ Edda 59227317-1 ABC I. O. O. F. 1047288i/2. —Instr. Úr Vopnafirði er skrifað 20. þ. m.: „Hjer er nú góður fiskafli, en tíðin er köld og grasspretta mjög ljeleg, flestir samt um það bil að byrja hey- skap, en menn búast við ljelegu hey- skaparári. Frá Winnipeg bafá* m. a. komið heim hingað í sumar tveir Vopn- firðingar, Helgi Jónssön, frá Ljósa- landi, og Jakob Vopnfjörð. Helgi hefir verið 15 ár vestra. Báðir hafa þeir farið austur á fornar stöðvar, eti eru nú komnir hingað aftur og fara innan skamms heimleiðis, vest- ur um haf. Skemtiskipið Osterley kom til Ham merfest þremur dögum eftir að það fór hjeðan. Er ferðinni nú um það bil lokið. Skipið er í Belgíu þessa dagana og kemur til London á sunnu- daginn kemur. Osterley fer ekki vest- ur um haf og verður ferðafólkið að sjá fyrir sjer sjálft heim frá London. Gunnar Hallsson búfræðiskandídat frá Ásgeirsstöðum í Eiðaþingi kom hingað með íslandi síðast frá Dan- mörku. Hefir hann dvalið í 8 ár samfleytt í Danmörku og tók fulln- aðarpróf við danskan búnaðarskóla fyrir 6 árum. Dvelur hann hjer fram undir haustið í kynnisför og vitjar fornra stöðva. Siglingar. ísland fer til Vestfjarða kl. 2 í dag. Goðafoss fer norður um land til útlanda á morgun með fjölda farþega. Gullfoss hjelt áfram ferð sinni út frá Vestmannaeyjum í gær- morgun. Átti skipið að koma við á Stokkseyri og Vík ef fært yrði, en varð að hætta við að koma á Stokks- eyri vegna brims og á sömu leið mun hafa farið við Vík í gær. Lagarfoss fer til Aberdeen og Hull einhvern næstu daga með eitthvað af vörum og mun mestmegnis flytja kol hing- að aftur. Hjólreiðarnar, sem haldnar verða í sambandi við skemtun verslunar- manna 2. ágúst hafa dregið mjög að sjer athygli fólks. Verður þátttakan sennilega mikil, ef til vill 20—30 menn og er síðasti frestur til að gefa 'sig fram í dag. Skeiðið sem farið verður er nálægt 14 'kílómetrar, nefni lega frá Árbæ og upp að Geithálsi og til haka aftur að Árbæ. Aðrar íþróttir verða einnig sýndar á skemt- uninni en eigi er fyllilega afráðið um þær ennþá. Hefir komið til mála að .þreytt yrði reiptog, bændaglíma og 100 metra hlaup. Samkoman verður haldin á túninu á Árbæ og verður staðurinn skreyttur á ýmsan hátt og vandað til alls eftir föngum. Eru allar horfur á, að þessi skemtun taki fram flestum eða öllum útiskemtun- um, sem haldnar hafa verið hjer áð- ur, það er að segja ef veðrið verður gott. L. P. Olsen kaupmaður frá Næst- ved kom hingað til bæjarins í fyrra- dag með Islandi ásamt frú sinni. Eru hjón þessi komin í kynnisför, dvelja um tíma hjer í bænum og halda síðan norður í land. paðan fara þau til Noregs. Ólafur Jónsson læknir er kominn heim aftur úr sumarleyfi sínu. Dvaldi hann viku tíma við Laxá í Melasveit ásamt Ólafi Jónssyni gjaldkera, við) veiðar. r Blindra manna skemtun heldur Sam verjinn í Iðnaðarmannahúsinu á sunnudaginn kemur og hefst hún kl. 2 og stendur til kl. 6. Er það Sam- verjinn hjer sem stendur fyrir skemt un þessari. Allir blindir menn úr bænum og hjeðan úr nágrenni eru velkomnir á samkomuna í Iðnó og eru frjálsir að því, hvort þeir vilja neyta þeirra góðgerða, sem þar verða bornar fram, ókeypis eða ékki. Sam- verjinn mun reyna að hafa bifreiðar til að sækja alla þá, sem ekki geta komið sjálfir, og þurfa þeir sem vilja láta sækja sig að gera aðvart eigi síðar en annað kvöld. Hjónahand. Hinn 15. þ. m. voru gefin saman að Kálfafellsstað í Aust- ur-Skaftafellssýslu ungfrú Jóhanna Ájósmyndari Pjetursdóttir og Helgi Hermann Eiríksson M. Sc., náma- fræðingur. Faðir brúðarinnar, síra Pjetur Jónsson, gaf þau sarnan. íþróttafjelag Reykjavíkur. Æfing í útiíþróttum á Iþróttavellinum í kvöld kl. 714. Tönsberg leiðbeinir. Allir velkomnir. Síldveiðin. Mjög lítil síld er ennþá á veiðistöðvunum norðanlands og afli sára lítill. Fyrsta síldarflutn- ingaskipið til útlanda á þessu sumri átti að fara frá Siglufirði í nótt til Gautaborgar, með, 1000—1200 tunnur síldar og er talið að það sje öll sú síld, sem komin var á land á Siglu- firði fyrir daginn í gær. Laxveiði hefir verið minni síðustu vikurnar en venja hefir verið til und- anfarin sumur og fremur lítið af laxi borist til bæjarins. Kvarta íshúsin undan laxleysi og segja að alt selj- ist jafnóðum, sem til þeirra berst. Verðið á laxinum er þó heldur lægra en síðastliðið sumar. Steinsteypuhús er Jón Kristjáns- son læknir að láta byggja við norðan- vert Miðstræti og er það fullsteypt og verið að byrja á frágangf þess að innanverðu. Húsið er þrjár hæðir og verður öll neðsta hæðin notuð fyrir lækningastofur 0 g mun læknirinn ætla að bæta við sig ýmsu af nýjum áhöldum þegar hann kemur í nýju húsakyUnin, sem verða miklu rúm- betri en þau sem hann hefir nú. Skjöldur fer í dag til Borgarness. Sjera pórður Tómasson flytur er- indi um andlog mál í dómkirkjunni í kvöld kl. 81/2- Menn taki með sjer sálmabók. Leiðrjettingar. Þessar prentvillur eru í grein dr. Jóns Helgasonar biskups um „Menn og mentir“ í síð- asta blaði: 2. dálki 6. 1. a. o.: ótrú- legu fyrir óþrotlegu; 2. dálki 17. 1. a o.: eru fyrir hendi, en á að vera: eru ekki fyrir hendi; 1. d. 2. bls. 24. 1. a. o. á að -standa: hrottaskapur- inn í fari hans og framkomu, og í 35. 1. sama d. stendur svo sem fyrir: svo mörg sem. Úti í Viðey voru þeir í gær Jón biskup Helgason, sjera pórður Tóm- asson og margt af venslafólki þeirra. Kynnisför. Meðal farþega á Goða- fossi var frú Viktoria Larsen frá Jót landi og sonur heunar, Danisland dýralæknir. Frú Viktoria er ættuð úr Eyjafirði, dóttir Jóns bónda Jóns- sonar frá Kroppi. Fór hún ung til Danmerkur, fyrir nærfelt 40 árum, og gjftist þar dönskum „Mekaniker“. Nú er hún í kynnisför til systkina sinna: Jósefs Jónssonar á Oddeyri (föður Jóhannesar glímukappa) og frú Onnu konu Árna Jóhannssonar hankamanns hjer. Danisland dýra- læknir ætlar að ferðast til Þing- valla og Geysis. # er sraiðuð i Svíþjóð, fundin upp i Sviþjóð og einkarjettur fengitm ura allan heim. Hún er hentugasta hring-prjónavjel i heimi, allra prjónavjela einföldust, auðveldust og ódýrust. Meðal hennar mörgu kosta raá nefna þessa: IMargbreytt werkhœfni. Framúrskarandi hljóðlaus gangur. Vinnugeta svo undrum gegnir. Vjelin getur prjónað úr allskonar bartdi, frá því fínasta til þess grófaBta. — Ilún er óvenju endingargóð. gFavoHt^ ætti að vera til á hverju heimili; hún er —• þessi .prjónavjel — jafn nauðsynleg og sauraavjelin. Einkasölu á íslandi hefur líerslun Gunnars Gunnarssonar Hafnaratræti 8. Reykjavík. Tek aftur á móti sjúklingum. Konráð Konráðsson. G.s. „Islanð" fer til Isafjarðar, Bíldudals og Patreksfjarðar i dag kl. 2 e. h. Farseðlar seldir í landi. / C. Zímsen. Skrúfur algengar stærðir, ódýrar, selur Brynja. Uilartrefill, stór, rauð-hvít- röndóttur. tapaðist á s/s »Island< í fyrrakvöld. Skilist til L P. 01- sen, Skjaldbreið. Gummivatnsstigvjel töp- uðust 7. þ. m. á leið frá Lög- bergi upp á Sandskeið. Finuandi beðinn að skila þeim til Sigurðar Daníelssonar á Kolviðarhóli. Fná Danmönku. Munum 01 áhölðum sem eg hefl lánað ferðamönnum, svo sem aktýgi, hlífðarföt 0. fl. óskaat skilað hið allra fyrsta Kolviðarhóli 27. júlí. Sig. Danielsson. Hanövagn hefir tapast. Skilist til Útfluttar landhúnaðarafuröir. Vikuna sem lauk 21. júlí fluttu Danir út af landbúnaðarvörum m. a 2 milj. kg. af smjöri, 17 miljón egg, og 2,4 milj. kg. af fleski. Ennfremur vora flutt út 53.700 kg. af nýrri mjólk til Bretlands. Vilh. Finsen um auðæfi íslands. í grein í „Nationaltidende“ seg- ir Villí- Finsen ritstjóri frá gull- bormiartilraununum í Reykjavík og minnist í því sambandi á sillur bergsfaámuna í Helgustaðaf jalli og surtarbrandinn, sem hann telur eigi útilokaö að megi nota til kolatöflugerðar. Finsen minnist ennfremur á brennisteinsnámana og kaolin-lögin á Vestfjörðum og telur óefað, að í skauti íslenskr- ar náttúru sjeu fólgnir margir fjársjóðir, og að nánari rannsókn- ir og nýjar aðferðir geti korpið mörgu óvæntu til leiðar, „enda þótt flestir álíti, að fjársjóðir þeir sem ísland hefir fengið í vöggu- gjöf, sjeu ekkí fólgin undir storkn- uðu hrauni, heldur í hafinu sem ólmast við vogskornar strendur landsins“. —_—,—o-—-------- R. P. Leví. Kaúpakona óskast á gott heimili. Gott kaup í boði. Upp* lýsingar á Hverfisgötu 50, hjá Guðjóni Jónssyni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.