Morgunblaðið - 06.08.1922, Blaðsíða 4
M0RGUNBLA8I®
Hinar naarg eftirspurðu
Ðarnapeysur
eru nú komnar aftur,
einnig barnasokkar.
hlyti aS vera hafin langt yfir fjöld-
ann.
„Ef jeg þekki frænku mína
rjett“, sagöi ofursinn, „eru allar
tilraúnir í þá átt aö aftra henni
frá því að fara, árangurslausar,
þegar hún einu sinni hefir tekið það
í sig. — Auðvitað sjáumst við aft-
ur. — Þú leyfir mjer samt að
fylgja þjer til dyra“.
Hún aftraði honum vingjarnlega
frá því. „Þú veist að jeg er vön
að komast af án hjálpar karl-
. manna! Jeg sje ykkur bráðum!“
Hún beygði höfuðið lítið eitt og
gekk fljótlega út úr salnum. í
hverri hreyfingu lýsti sjer bæði
ejálfsþóttinn og hin frábæra fegurð.
— Mjer kom ekki til hugar ^ð
koma mín mundi VerSa til þess að
ræna þig svona skemtilegum gesti,
faSir minn, sagði Bernd dálítið
kesknislega, þegar hún var komin
út úr dyrunum. Annars hefði jeg
beðið þig að koma til fundar við
mig á öðrum stað, því jeg held aS
henni hafi ekki veriS meira en svo
um það gefið að hitta mig, en
mjer hana
— Jeg varð sjálfur hissa á aS
sjá hana, og það er bara tilviljun
að hún býr á sama staS og jeg.
En þú þarft alls ekki að óttast að
henni falli neitt illa aS sjá þig,
því hún var einmitt nýbúin ac
minnast á þig mjög vingjarnlega.
— Er þaS mögulegt; hún veit
aðvitað um þetta alt.
— Hvemig ætti hún annað en
vita þaS, sem öll blöð hafa verið
full af nú upp á síSkastið? Hún
hefir minst á þaS með stakri nær-
gætni.
— Jæja, það gerir hvorki til
nje frá, hvaS hún segir eða hugs-
ar! En við getum ekki talaS sam-
an á þessum stað, sem allir geta
heyrt til okkar. Eigum viS að koma
upp á herbergiS þitt, eða viltu
heldur koma heim til mín, þar er
ej. nþá afskektara ?
— Það er nógu afskekt hjer, viS
skulum koma upp á herbergið mitt.
Þegar þeir voru komnir inn á
herbergið, læsti ofurstinn dyrun-
um vandlega.
Svo sneri hann sjer að syni sín-
um og sagði mjög alvörugefinn:
— Nú, er þetta ekki alveg dæma-
leust hneyksli ? HvaS segirðu nú
um tengdaföður þinn, leyndarráS-
iö ? — Og þú ert giftur inn í ætt-
ina! Yæri furSa þó maður misti
vitið yfir öðru eins?
— Eigum við ekki aS láta þá
dánu óáreitta, faSir minn ? — þaS
sem er skeð, er skeð, og verSur ekki
aftur tekið — heift þín og reiði
hefir sannarlega haft nógu ilt í
för meS sjer.
Ofurstinn hleypti brúnum.
— Eiga þetta að vera ávítur?
— ÞaS vildi svo óheppilega til
aS konan mín n/iSi í símskeytið, og
það hefir sjálfsagt verið þess vegna
aS veikindi hennar brutust svona
út.
Degemdorf ypti öxlum.
— Þess ætlaSist jeg ekki til; en
Malva hefði þó fengiS að vita
þaS hvort sem var, og nú finst mjer
aS við ættum ekki að vera að eySa
tímanum í óþarfa meðaumkunar-
skraf — þaS hefir lítið aS þýSa.
— Þú ættir að reyna að muna
íaðir minn, aS það er konan mín,
sem þú ert aS tala um.
Ofurstann setti dreyrrauSan.
— Konan þín, já, sem þú hefir
verið gintur til aS giftast! Jeg vil
hennar vegna reyna að hugsa mjer
að hún hafi ekkert um það vitað.
En það kemur lítiS málinu viS!
HvaS ætlarSu nú að gera?
— ÞaS, sem kringumstæðurnar
heimta af mjer; jeg sendi lausnar-
beiðni mína undireins í dag.
— Hvernig á jeg aS skilja þaS?
það er þó vonandi ætlan þín að
skilja við konuna? Öll sú slægS,
sem hefir verið notuS til að koma
þjer inn í þetta hjónaband, er
nægileg ástæSa til aS fá skilnað;
það fullvissar justisráðið mig um,
— Hvernig heldurðu að jeg sje
innrættur? Úr því þaS ekki var
Malva, sem sveik mig, hefi jeg
ekki minstu átyllu til slíks. Jeg
hefi gifst henni af ást, og jeg væri
sá mesti níSingur, sem sóliu hefir
nokkru sinni skinið á, ef jeg yfir-
gæfi hana þegar ólániS dynur yfir
hana.
Herforinginn studdist með báS-
um höndum við borð það, sem stóS
á milli þeirra feSganna, og starði
framan í Bernd.
— Þú getur þá ekki sjeS af þess-
ari miljón, sagði hann í liálfum
hljóðum, en skjálfandi af reiSi. —
Miljónin er þjer dýrmætari en
sómi og óflekkað mannorð ætt-
arinnar.
— Faðir minn! Ef einhver ann-
ar en þú hefði dirfst aS segja slíkt
viS mig! — en jeg hefi ásett mjer
áS tala rólega og reiSilaust við
þig — og þess vegna ætla jeg að
láta þessi ósvífnu orð vera sem ótöl-
uð. — Jeg vona að jeg þurfi ekki
að svara þeim greinilegar, en meS
því að láta þig vita, aS jeg álít
okkur Mölvu alls ekki eiga neitt
tiikall til þess fjár, og aS jeg snerti
ckki einn eyri af því.
Þetta svar kom herforingjanum í
bál og brand. Hann gat með naum-
indum stjórnað sjer og hrópaSi:
— Ertu orðinn alveg brjálaSur?
Ef þú tekur ekki heimanmundinn
og fær þig lausan úr hernum, á
hverju ætlarðu þá aS lifa? — Hef-
irðu fundiS einhver falin auðæfi?
ESa ímyndarðu þjer máske aS
jeg hjálpi þjer?
€ DAGBÖK. r
Vigf. Guðbrandsson
klsoðskeri
Sítni 470 Sinuj.: Vigfús ASslstr. 8
Fjöibreytt fataefei. 1. fi. saumastoía
Jarðarför síra Magnúsar Andrjes-
sonar fer fram að Gilsbakka næst-
komandi laugardag. Kveðjuathöfn
verður í dómkirkjunni hjer á þriðju-
daginn kemur ki. 10y2 árdegis.
Kvikmyndaleikararnir fóru í gær
upp í Hvaifjörð og tóku þar allmikið
•f myndum.
Bifreiðarslysið. Meiðsli bifreiðar-
sijórans á bifreið Gísla Johnsen hafa
ekki reynst eins alvarleg og áhorfð-
ist í fyrstu og er hann nú kominn á
fætur aftúr. Er það rangt, er frá
hefir verið skýrt í blöðunum hjer,
af bifreiðarstjórinn hafi verið drukk-
inn. Stúlknn sem meira meiddist er
jila haidin ennþá, en þó talin úr
hættu.
Naut slasar mann. í fyrri nótt fór
Gunnlaugur læknir Claessen upp að
Meðalfelli í Kjós. Yar hann sóttur
þaðan til Eggerts Finnssonar bónda.
Hafði mannýgur boli á heimilinu
þjarmað svo að honum í fyrradag, að
ráðlegra þótti að leita læknis. Leið
honum illa þegar læknirinn kom til
,hans en var nokkru skárri í gærkvöldi
er hann fór frá Meðalfelli.
k /
Tjömin. Langt er nú síðan slý
hefir verið hreinsað af Tjörninni.
Enda er það orðið svo mikið, að það
þekur.hana nærfelt bakka milli. Er
það til storrar óprýði og óhollustu
og þyrfti að taka það hið allra fyrsta.
Tjörnin er svo mikil bæjarprýði, að
ekki samir, að henni sje ekki haldið
hreinni svo sem unt er.
Auglýsingastjóri. Morgunblaðið aug
lýsir í dag eftir manni til þess að
.annast að öllu leyti um auglýsingar
í blaðið, og má gera ráð fyrir að
marga fýsi að sækja um slíka stöðu.
Kú á dögum er það orðið að list, að
skrifa góðar auglýsingar, en verulega
vel skrifaðri auglýsingu er líka sjald-
an á glæ kast'að. Og það ætti að
vera þakklátt starf að safna auglýs-
ingum, því að þær hafa hagnað í
för með sjer fyrir alla hlutaðeigend-
ur — þann sem auglýsir, skiftavin-
ina, sem vanhagar um það sem aug-
lýst er, blaðið,- sem flytur auglýs-
ingarnar, og að lokum þann mann,
sem útvegar auglýsingamar, semur
þær eða gerir uppástungur að þeim,
gætir þe'ss að þær sjeu rjett stílaðar
og villulausar áður en þær eru prent-
aðar o. s. frv. — Maður sá, sem
óskað er eftir, verður ag vera kurteis,
hugkvæmur og vel að sjer, og hafi
hann áhuga á málinu, mun hann á
stuttum tíma geta skapað sjer góðar
tekjur.
Síldarolíuverksmiðju mikla eiga
iNorðmenn á Krossanesi við Eyja-
fjörð. Ætla þeir að reka hana með
ir eiri krafti nú í sumar en nokkru
sinni áður. Kom framkvæmdarstjór-
inn, Andreas Haldö stórþingsmaður
' vérksmiðjunnar fyrir síðustu mán-
aðamót. Eiga síðan að koma 18 skip
og eru sjálfsagt komin, er eiga að
veiða til verksmiðjunnar. Framleiðir
hún bæði síldarolíu og síldarmjel, og
er þessa árs framleiðsla þegar ,seld.
jSr mjelið selt alla leið austur í Jap-
an fyrir verð er jafngildir nálægt
ikr. 33,00 ísl. hjer á staðnum.
Slys. Á Akureyri vildi það slys til
laust fyrir mánaðarmótin síðustu, að
barn datt út um húsglugga niður á
götu og beið bana af.
Tóur hafa verið óvenjulega nær-
göngular að sögn í Þingeyjarsýslu í
vor Hafa þær lagst á greni í heima-
högum og valdið allmiklum skemdum
á sauðfje bænda.
Peningagjöf hefir Sambandsfjelagi
norðlenskra kvenna borist frá ís-
lenskri konu, sem búsett er á Jáva
á Suðurheimseyjum, frú Laufeyju
Friðriksdóttur Oberman. Er hún gift
landstjóranum þar, hollenskum manni.
Verðandi nr. 9 hefir skemtifund á
"' “jiidagskveldið, verður þar minst
margs gamals úr sögu stúkunnar, og
skemt með söng o. fl. Eftir fundinn
verður dansað. Fundur þessi er í
tilefni af því, að stúkan hefir ný-
lega haldið jafnmarga fundi og ár
eru liðin frá Kristburði. Á fundin-
um verður stúkunni færð gjöf, og
attu fjelagar að fjölmenna á fundinn.
nuglýsingastjóri.
Framtíöarstaöa.
Fyrir verulega duglegan, ðreidanlegan og vel
mentaðan mann, sem á eigin H5nd getur annast alt
er snertir auglýsingar i IWorgunblaðið, er taakifæri
til þess að skapa sjer óvenjulega góða stödu^lCúl
Skrifleg umsókn, merkt „Auglýsingaru, leggist
inn ð skrifstofu blaðsins. NSfnum umsækjenda
verður haldið leyndum.
U
E.s. „Villemoes
fermir í New York um miðjan september til Reykjavíkur og
aðalhafnanna kringum landið.
Nánari upplýaingar fást á skrifstofu vorri.
H.f. Eimskipafjelag Islanðs.
Vönöuð húsgögn,
svefnherbergis- og dagstofu, eru til sSlu með tæki-
færisverði. — Til sýnis í dag (sunnudag), allan
daginn í SuðurgStu 14.
Trgggið
*•-" einasta 'sfoosKa fjelaírinu •
H/F Sjóvátryggínsrarfjelagi íslands,
setn .rvggir Kastó) *éra< þegnflmning o. fl. fyrir
sjo j striðsnættu.
Hvergi betri og áreiíanlegri viðskifti.
Skrifstofa í húsi Eimskipafjelagsins, 2 hæC.
Afgreiðslutámi kl. 10—4 e. m. Laugardaga kl. 10—2 e. m.
Símar: Skrifstofan 542. Framkvæmdarstjórinn 309.
Pósthólf: 574 og 417. Símnefni: Insnrance.
HÚS OG BYGGIKGARLÓÐIE.
selnr Jónas H. Jónsson, Báruhúsdmi, tómi 327. — Áhersla lögð á
hagfeld viðskifti beggja aðila.
Vörur
með e.s. „Villemoes“ kring-
um land afhendist ð mðnu-
dag, 7. ágúst og farseðlar
sækist sama dag.g gj -
H.f. Eimskipafjel. Islands.
Lifanði Himbrimi
til sölu. Tilboð óskast. A. v. á
2-3 herbengi
og eldhús vantar mig nú þegar
eða 1. október.
K. Schaleck
(hjá HefilJ & Sög).
Siglingar. Gullfoss kom til Kaup-
mannahafnar 2. ágúst. Goðafoss fór
frá Akureyri í gær. Lagarfoss kom
til Aberdeen 3. ágúst. Botnía fór frá
Leith í gær áleiöis hingað.
Kolafarm er Kvöldúlfsfjelagið ný-
búið að fá. Kom E.s. Activ með hann.
Engleberts-t
gummisólar og
hælar
fást í heildsölu og smásölu í
Versl. O. Amundasonar
Sími 149. Laugav. 24.
Kaupamaður óskast strax.
Upplýsingar á Vatnsstíg 9 frá kl.
10—H árdegi8.