Morgunblaðið - 17.08.1922, Side 1

Morgunblaðið - 17.08.1922, Side 1
i m msvvsuam Stofnandi: Vilh. Finsen. 9. ápg>) 235 tbl. Gamla Bíó Mansalarnir. Amerísk stórmynd. Aðalhlutverkið ieikur Juanita Hansen. Landsblad Lögrjetta, Fimtudaginn 17. ágúst 1922. Ritstjóri: Þorst. Gíslason. l&aíoldarprentsmiðja h.f. 9 þætt' I 5. kafli: I Ijónagröfinni. 6. kafli: Hræðileg hefnd j Þessir tveir kaflar verða sýnd- ir i kvöld kl. 9* Næst verður 7. kafli sýnd- ur o? er þessari stórkostlegu rnynd þar tneð lokið Pöntunum veitt móttaka i síma 475. Ef þjer notið einu sinni rjóm ann frá Mjólkurfjelaginu MJÖLL þá notið þjer aldrei f^amar út lenda dósamjólk. Kjötútsala BorgarnEss si-m áður heflf verið á Laugavegi 17, er í ár flutt í $ kjötbúð MILNERS og fæ >t þ»f framvegia daglega nýtt kjöt með ódýrasta verði. — Ennfremur verður be.-ta tegund at’ rjómabús-smjöri fyrirliggjandi. fiotf mi Handsápur, 15. teg. Þvottasápur, 2. teg. Grænsápa í trjebölum Þvottasóda, Þvottaduft >Major« Línsterkja OFNS VERTA. Simar 28!, 481 og 681. lionthcliffe. Northcliffe lávarður, sem nú erj nýlátinn, var fyrir löngu orðinn: heimskunnur blaðamaSur og blaða- j eigandi. Eins og auðvitað er, stó'ðu oft um hann harðar deilur og snarpar og voru dómar manna um hann og framkomu hans og starf ærið misjafnir. En hvað sem j?ví líður, þá er það víst, að hjer er um að ræða einhvern alira áhrifamesta mann samtíðar sinnar og stórmerkilegan mann í sögu blaðamenskunnar. Northcliffe lávarður, eða Alfred Hamsworth eins og hann hjet að skírnarnafni, var fæddur 15. júlí 1865, af góðum ættum, og fór að fást við blaðamensku þegar um 15 ára aldur og hafði hugur hans mjög snemma hneigst í þá átt. Starfaði hann fyrst við ýms bamablöð, seinna einnig við önn- Ur blöC kunnra blaðamanna, og komst fljótt í mikið álit yfirboð- ara sinna. Einn þeirra bauð hon- um nokkra seinna að gerást með- eigandi í stóm blaðafyrirtæki, en Northcliffe hafnaði því og stofnaði nokkru seinna sjálfur blað í London. Hjet það Answers og byrjaði að koma út 1888 og varð mesta gróðafyrirtæki undir stjórn N. Græddi hann um tíma á því um 50 þús. pund á ári. Upp úr þessari starfsemi hans óx smám scman hið mikla blaðafyrirtæki lians, sem kallað var Amalgamated Press og fór útbreiðsla blaða hans sívaxandi og áhrif þeirra um leið og eru þau nú kunn um allan heim undir nafninu Northcliffs- blöðin. Til dæmis um þetta má geta þess, að eitt aðalblað hans The Daily Mail kemur nú út daglega í 1 miljón og 350 þúsund eintökum. Aðalblöð hans voru annars The Times, The Daily Mail, Overseas Daily Mail, Weekly r-ispatch og Evening News. Auk þess hefir liann gefið út allmikið af ýmiskonar bókum og má þar t. d. minna á Hamsworths alfræði- bókina svonefndu, sem hjer er talsvert þekt. Til þess að relta alt þetta mikla' blaðabákn, hefir hann reist miklar bj’-ggingar og látið iara að nota margvíslegar nýjar vjplar. Og til þess að afla pappírs keypti hann 1906, ásamt bróður sínum, Rother- mere lávarði, sem líka er blaða- maður, heilt skóglendi í Ameríku og- setti þar upp miklar papp- írsgerðarverksmiðjur, að miklu leyti reknar með fossaafli úr vatnsföllum þar í landareigninni. Northcliffe liefir að sjálfsög'ðu haft mikil afskifti af opinberum málum, bæði með þvf, sem, hann hefir sjálfur skrifað heinlínis, eða á annan hátt hefir komið fram fyrir áhrif hans og blaðamanna hans. En til dæmis um starfs- mannafjölda þann, sem við blöð hans vinnur, má nefna það, að þegar Daily Mail var 25 ára lijelt, hann starfsmönnum sínum við það blað veitslu mikla og sátu hana 7000 manns. Það er talið, að sem blaða- maður hafi Northcliffe alveg skapað nýja stefnu, þá sem nu ræður í stftrfrækslu flestra stór- biaða- Dómar manna um hana eru r.okkuð misjafnir, en gífurleg á- hrif hefir hún haft. Og auk mikils dugnaöar og starfsþreks, bæði til þess að vinna sjálfur og stjórna öjðrum, var Northcliffe sjálfur mjög vel ritfær maður. Hafa sum- ar greinar hans verið gefnar út sjerstaklega í bókarformi, t. d. í bókinni At the War, 1916. Til dæmis um vinnulag hans, má geta þess, að hann fór lengstum á fætur um kl. 6 4 morgnana, en fremur snemma í rúmið á kvöldin. Annars var hann allmik- ill íþróttamaður, eins og títt er um Breta. Hann var einnig auð- sæll maður og gaf einnig ó'sart til ýmsra fyrirtækja, einkum stuidi hann flugtilraunir mikið, og pauða krossinum gaf hann stórfje á slríSsárunum. Kona hans starfaði einnig mikið í Rauða krossinum. Af stórmálum þeim, sem hann hefir haft afskifti af, skal lrjer aíeins getið hinna helstu. í deil- uEum út af Búastríðinu tók hann mikinn þátt og á þeim árum var uppgangur hans einna mestur. I heimsstyrjöldinni seinustu voru áhrif hans einnig mikil. Hann hafði löngu áður en stríðið byrj- aði, livað eftir annað skrifað um „hættuna af Þjóðverjum“, þó án nokkurra verulegra æsinga gegn þeim. En hann barðist mikið fyrir flotaaukningu, fyrir herskyldu, þegar það mál komst á dagskrá og auknum loftvörnum og flug- ferSum. Lenti honum þá oft sam- an við stjórnina og aðra valda- menn, t. d. Kitchener um tíma, Churchill, útaf Dardanellaherför- b.ni, sem hann var mótfallinn og síðast en ekki síst við Asquitli og var það eipna mest fyrir hans áhrif, að Asquith varð að fara frá, eu Lloyd George tók við. í írskum málum tók hann einnig mikinn þátt og var Irum lilið- hollur. 1 friðarsamningunum mun honum hafa þótt nokkuð hart gengið að Þjóðverjum og veittist allmikið að Yersala-fundinum og sögðu andstæðingar hans reyndar, að það liefði mest verið af því, að hann he'fði sjálfur ekki verið sendur þangað. Um tíma var líka grunt á því góða mil’i þeirra Lloyd George og hans. A ófriðar- árunum var hanu gerður einskonar frjettaráðherra fyrir ,óvinalöndin‘ svonefndu og átti þá að útbreiða enskar fregnir og enskan skiln- ing á málunum og vann þar mik- ið verk. Annars hafnaði hann ráð- herrastöSn, sem honum var boðin 1918. Á ófriðarárunum fór hann einnig til Bandaríkjanna 1917 og vann þar mikið að nánara sam- komulagi og samvinnn en áður var milli Breta og Bandaríkja- manna. Yfirleitt kvað hann hafa ferðast mikið og lesið mikið og 1921 fór hann t. d. í ferðalag kringum jörðina og ætlaði þá til Canada, Ástralíu, Nýja Sjálánds, Japan og Kína til þess að kynnast málefnum þessara landa. Northcliffe lávarður verSur graf inn í Westminster Ahbey, segja skeytin, og er þar legstaður ýmsra merkustu manna Englendinga. Fríhöfn í Kiel. Þjóðverjar hafa allar klær úti til þess að bjarga Við verslun sinni og viðskiftum og reyna að gera hafnar- borgir sínar að viðskiftamiðstöðvum. Þannig hefir ríkisþingið þýska ný- lega samþykt fjárveitingu til þess að byggja fríhöfn í Kiel. Steinolían. Mikið er um steinolíueinkasöl- i.na talað, og flest á einn veg, sem sje þann, að sú ráðstöfun sje næsta óheppileg. Menn aðhyll- ast vfirleitt frjálst verslunarfyr- iikomulag, en eru einokunarversl- un andstteðir. Nu hjuggust menu 'við, a'ð frjáls samkepni fengi að njóta sín í steinolíuversluninni og væntu góðs af því. En þá skellur þetta yfir. Þessi verslunarhöft snerta mest vjelbátaútveginn, en kunnugt er það, að formaður Fiskifjelagsins, hr. Jón Bergsveinsson, er einka- sölunni mjög mótfallinn. Hefði þó ■ mátt ætla, að stjórnin færi í þessu máli fremur eftir tillög- um Fiskifjelagsstjórnarinnar en annara. Á afstöðuna til þingsins er nokk- u.ð minst áður hjer í blaðinu. En það fullyrða ýmsir þingmenn, að ef málið hefði komið til kasta aiþingis, þá hefði einkasalan ekki komist fram. Mbl. hefir nú aflað sjer nokk- urra nánari upplýsinga um þessa einkasölu, en áður lágu fyrir. Það spurðist f.yrir um hana á 2. skrif- stofu stjórnarr., en var vísað það- an til Landsverslunarmnar, því það er hún, sem gert hefir samn- ingana við útlenda fjelagið, sem skift verður við, en auðvitað í samráði við landsstjórnina. Formaður Landsverslunarinnar, hr. Magnús Kristjánsson, gaf góð- fuslega eftirfarandi upplýsingar: Fjelagið, sem samið er við, heit- ir „British Petroleum“, en það annast öll söluviðskifti hins svo nefnda Ensk-persneska (Anglo- Persian) steinolíufjelags. Fjelag þetta hefir viðskifti um allan heim og hefir mjög færst í auk ana og náð undir sig víðtækum samböndum í olíuframleiðslu og olíuverslun eftir að heimsstyrjöld- inni lauk. Það er stutt af ensku stjórninni og hún hefir lagt fram tóluvert af því fje, sem það starf- ar með. Verslunarmálaráðherrann enski á sæti í fjelagsstjórninni. í sumar var hjer maður frá fje- laginu, Wimberry að nafni, sem sanidi fyrir þess hönd við Lands- verslunina. Samningurinn er gerður til 3 ára, talið frá 10. febrúar 1923. Yerðið skal miðað við^ verð- skráning á . heimsmarkaðmum, stígandi og fallandi eftír því, sem þar gerist. Landsverslunin hefir r;,ett til að setja eftirlitsmann til tryggingar þessu. Forstjóri Lands- verslunarinnar sagði, að verðið þyrfti ekki að vera hærra hjer en í Englandi. Landsverslunin hefir fengið stál- tnnnur til steinolíuflutnings, og geta kaupendur skilað þeim, þeg- ar þær eru tæmdar. Rýmar olían minna í þeim ílátum en í trje- tunnum. Hin miklu skip, sem gerð eru til olíuflutninga langar leiðir, svo sem frá námum í öðr- álfum til Englands, bera 6000— 8000 tonn, og er það ársforði Hýja Sió njósnarinn frá RichmDnc]. Sjónleikur í 6 þáltum, tekinn á Film af Paromount-FlrtEraft PicturES Corp. FIeu Uork. Aðalhlutverk leikur hinn al- þekti leikari Robert Warwick. Sögulegur þáttur úr þræ a- stríðinu. Mjög skemtileg mynd. Sýning kl. 8!/a. « ni—1—1111111 mrb i i n iinimiuiii tekur öll málaflutningsstörf. Skrifstofa Klapparstíg 20. Til viðtals 12—1 og 4—5 e. h. Sími. 546. Páll Isólffsson tekur að sjer kenslu i piano-leik, harmonium-leik og hljómfræði næstkomandi vetur. Til viðtals í Kirkjustræti 4, daglega, kl. 1 — 2. eöa meira handa íslandi, svo að ekki getur komið til greina, að flytja olíuna hingað á slíkum skipum. Hugsað hefir verið um, að koma hjer upp geymistöð fyrir stein- olíu, en alt er óráðiS enn um það mál, sagði Landsverslunarforstjór- inn. En hann hjóst við að slík stöð- mundi kosta um 200 þús. kr. Hefir hann fengið uppdrátt og áætlanir þessu viðvíkjandS, sem gerðar eru af enskum manni. Þetta eru þær upplýsingar um rnáliS, sem forstjóri Landsversl- unarinnar ljet í tje. Athugasemd. I tiiefni af símskeyti, birtu í blaðinu í dag, um viötal mitt við dr. Kortsen, leyfi jeg mjer að taka fram það, sem hjer segir: 1. Dr. Kortsen spurði mig um hvort jeg væri með frjálsri versl- un, því svaraði jeg játandi. 2. Dr. Kortsen spurði mig hvem- ig afstaöa flokkanna í þinginu væru til frjálsrar verslunar, því svaraði jeg á þessa leið: í þeim f'.okkum, sem styðja stjórnina eru sumir með frjálsri verslun, aðrir með einkasölu í ýmsri mynd, og á meðal andstæðinga stjómarinnar er hið sama tilfellið. Dr. Kortsen hefir sjeð þessa leiðrjettingu og hefir ekkert við hana að athuga. Reykjavík 16. ág. 1922. Sig. Eggerz.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.