Morgunblaðið - 17.08.1922, Síða 3

Morgunblaðið - 17.08.1922, Síða 3
MORGUNBLABIB sitt er sagt «ð kastalinn hafi feng- ið af því, að þegar drepsótt r in inikil geysaði í Rómaborg, áriö 590 e. K., gekk mannfjöldinu í skniðgöngu um borgina ákallandi guð til hjálpar, sást þá yfir húú þessu engill, sem var að sliðra sverð sitt sem merki þess að guSi væri runnin reiðin. Kastalinn stend nr á vestari bakka Tiberfljóts, sama megin og Petruskirkjan og Vatikanið. Pyrir mörg hundruð árum voru grafin lej’nigöng frá kastalanum í Vatikanið og er liægt að komast eftir göngum þessum enn. Bnn dvaldi jeg 2 daga í Róm, fór á skrifstofur ræðismannanna ti) þess að láta þá rita á vega- brjef mitt leyfi til' að ferðast um Austturríki og Þýskaland og ■keypti mjer farseðil til Berlín. 26. febr. fór jeg svo frá Róm til Pir- enze í besta veðri, sat í vagnklef- anum við hliðina á sænskum verk- fræðingi og margt fleira var þar í klefanum af norðurlandafólki. Þegar til Pirenze kom var mjer vel fagnað á gistihúsi því, sem jeg bjó þar á áður, og dvaldi jeg þar enn í 2 daga. Bn nú var ekki vistlegt í Pirenze, því æsingar voru þar í fólki og ölæði á götum, lýð- nrinn var í störum hópum á stræt- um og torgum og lenti í skærur milli óróaseggja og lögreglunnar, sá jeg þegar flokkarnir voru að skjóta og hjálparvagn kom til að sækja þá særðu; sagt var að einn eða tveir hefðu verið drepnir sunnudaginn sem jeg var þarna um kyrt og nokkrir höfðu særst. Jeg samdi ljóðabrjef handa Rik arði, bjó mig svo undir heimferð- ina og sammæltist við dánskan rithöfund, sem þarna var staddur og ætlaði heimleiðis. Snemma morguninn eftir ókum við til braut arstöðvarinnar, var þar dauflegt um að litast. Stór hópur af fólki þögull og þungbfiinn stóð þarna með farangur sinn fyrir utan læst ar járngrindur framan við járn- brautarstöðina. Lítið var farið að birta af degi og myrkur o'g þögn TÍkti vfir brautarstöðinni, svo ekki var útlit fyrir neina starfrækslu þ>ar. Nokkrir hermenn gengu- fram og aftur fyrir innan grindurnar. Þó maður spvrði einhvern hvernig þetta mundi enda, þá vissi eng- inn neitt og það lakasta var aö I búast mátti við að sprengikúla springi í miðjum hópnum þegar minst varði, sem gæti gert stórt strik í reikninginn. Brátt var Íkomið fram yfir þann tíma, sem lestin átti að koma og fara og við vissum ekki hvað til bragðs skyldi taka. Pjelagi minn vildi helst snúa heim til gistihússins aftur, en jeg vildi það síður, held- ur komast leiðar minnar ef mögu- legt væri. Loks opnuðu hermenn- irnir grindina til hálfs og leyfðu þeim sem farseðil höfðu að koma inn. Við höfðum báðir farseðil og sluppum því inn á stöðina, en nú tók lítið betra viS, því engir braut arþjónar voru sjáanlegir og alt sem í þoku. Við bárum farangur* okkar út að vagnteinunum og komum þar auga á lest, sem var lík því að hún ætti að leggja af stað bráðlega; var okkur sagt að hún mundi. fara eitthvað norður á leið, settumst við þá rólegir inn í einn klefapn og biðum góða stund þangað til lestin rann af stað með okkur, en hyert hún átti að fara vissum viö ekki. — Brátt sáum við samt að hún var á norðurleið, þektum stöðvamar, s(-m við fórum fram hjá, enginn brautarþjónn virtist vera með og cnginn spuröi um farseðla. Eftir rúma klukkutíma ferð vorum við staddir í smáborg einni, var okkur nú ságt að fara út úr vagninum, því hann færi ekki lengra í bráð. Þessu boði varð auðvitað að hlýða, hlóðum við nú farangri okkar í eitt hornið á veitingasalnum á járnbrautarstöðinni; stóö svo ann ar þar á verði meðan hinn for rannsóknarferðir um nágrennið til að leita upplýsinga. Enginn vissi neitt um það hvenær ferð 1 nmndi falla til Bologna; þaö var næsti áfangastaður. Spgðu járn- brautarembættismennirnir að all- ai ferðaáætlanir trufluðust vegna óeirða í borgunum. Einhver gaf þó von um að lestarskrifli kæmi (frá Písa og færi eitthvað noröur ^ eftir seinna um daginn. Samferða- manni mínum leist, ekki vel á | ástandið og vildi helst snúa við til Firenze, en það vildi jeg ekki, 1 Ein flaska af góðu víni sætti okk- , ur við tilveruna og að nokkrum stundum liönum kom lest, sem tdtækilegt virtist að leggja af stað með; fórum við orðalaust : inn í einn klefann og sátum þar ! í næði án þess nokkur ónáðaði ( okkur meö því að spyrja eftir far- seðli eða því um líkt; fórum við ! nú eftir mörgum jarðgöngum gegn um Appeninafjöllin og komumst slysalaust til Bologna. Þar urðum ! við að bíða nokkra klukkutíma j eftir lest er fara skyldi til Vene- dig. Prh. í fyrra mánuði birti Georg Brandes brjef í „Politiken'1 til 1 rússnesku stjórnarinnar. Stóð svo á því, að sendinefnd róttækari rússneskra jafnaöarmanna hafði sent honum ávarp og mælst til þess, að hann sendi rússnesku stjórninni mótmæli gegn dauða- dómi, sem hún hafði felt yfir nokkrum flokksbræðrum þeirra. Gátu þeir þess í ávarpinu til Brandesar, að þeir heföu þá trú, að mótmæli hans hefðu einhverja þýðingu. Brandes sltrifar á þessa leið: .Jeg á erfitt með aS tileinka mjer þessa trú. En jeg álít það skvldu mína, að draga mig hjer ekki í hlje. Jeg sendi því þetta avarp til rússnesku stjórnarinnar og sjer- staklega til dómstólsins í Moskva. Veit jeg þó vel, að jeg er ekki fulltrúi neins ríkis, flokks eða valds, get ekki sýnt annaö en 60 ára starf í þjónustu hinnar and- legu byltingar. Páir hafa óskað heitar eftir umsköpun í Rússlandi en jeg 'Páár hafa jafn snemma mjer látið í ljósi ótta þeirra á því, að byltingin mundi ekki hafa í för með sjer raunverulega and- lega breytingu, heldur aöeins hitt, að hún hjeldi áfram harðstjóm keisarasinna í gangstæða átt þó enn með sömu meðulum, hinum pólitísku njósnum, pólitísku fang- elsunum, pyntingum í fangelsun- um og stjórnmálablóðsúthellingum. Rússneska stjómin heldur því fram, að það sem hún geri sje nauövörn. En með orðinu nauð- vörn er sjerhvert pólitískt morð riettlætt. Og dómaramir segja, að þeir sjeu skipaðir til að fram- fylgja lögunum og ekki til annars eða meira. En ef lögin ekki nægja, eða eru hlutdræg og órjettlát, hverskonar rjettlæti er þí/ fram- fylgt, ef eftir þeim er dæmt? Og hve oft hefir ekki mikill fjöldi morða átt sjer stað í Rússlandi nú án dóms og laga? Hvaö vinnur hin rússneska stjórn, ef meginþorri verkamanna í álfunni og meiri hluti stjórn- andi gáfumanna Evrópu fá í sam- einingu það álit, að ein harð- stjórnin hafi tekið við af annari ? Jeg þekki hugsunarferilinn í Kússlandi: Við segjumst ekki vera brautryðjendur frelsis eða rjett- lætis. Slíkt er borgaralegur hje- gómi og hugsjónir. Við viljum staðfesta og tryggja þá byltingu, sem við höfum gert meðl sjer- hverju meðali, sem hefir þau á- hrif, að hún verður fastari í sessi. Sje hún fyrst trygð, þá fer að koma tími til aö athttga, hvaða eftirlátssemi við getum sýnt frelsis þörf einstaklingsins og hinu óeðli- lega rjettlæti. — Rússneska stjórnin ætti ekki eins og keisarastjórnin, að skapa tilbúna glæpi til þess að geta slöngvað á glæpamennina veru- legri hegningu. Stjórnarbylting getur ekki bent á löghlýðni sína og hegnt nýjum byltingamönnum fyrir lögbrot. Hið fyrsta verkaíiannalýðveldi á jörðinni hefir viSsulega haft við ógrynni örðugleika að stríða. Sömu stórveldin, sem lýstu hátíð- lega yfir stríði til þess að tryggja (framgang lýðveldishugsjónarinnar, sameinuðu sig án augnábliksum- husunar með keisarasinnum, en snjeru sjer síðan á móti Rúss- lendi strax og það varð lýðveldi, sveltu það með látlausu hafnbanni og siguðu á það lier, hverjum á fætur öðrum. Alla þessa heri hefir verkamanna- og bændalýð- veldið sigrað. Það hefir sýnt sig að vera hraust og ósigrandi utan frá. , Nú á það eftir að sýna göfug- ljmdi. • Þó franska stjórnarbyltingin sje enn fyrirmynd nýs tíma, þá er þaö vissulega ekki fyrir þá blóð- dóma, sem ollu því, að ágætustu menn samtíðarinnar sneru baki við henni í gremju, hve fagnandi sem þeir höfðu heilsað henni í byrjun, heldur vegna þess frelsis- storms, sem þaut frá herini út yfir Evrópu, og vegna þess jafnaðar, sem hún kom á með kúgun en hjelt uppi meö hinum mestu fóm- um, og eins vegna þeirrar bræðra- tilfinningar, sem hún bar að'lok- um ekki aðeins til allra þjóða, heldur allra stjetta. Rússneska stjórnin má ekki nnnna á þrælinn, sem hefir brotið hlekki sína og mönnum stendur ótti af. Hún má ekki minna á Ivan hinn skelfilega, heldur ætti hrm að kosta kapps um að sýna Evrópu sig, sem persónugerfing þess ágætasta Og aflmesta í rúss- neskum anda. Heimurinn þarf ekki á meiri hefndargirni að halda, dulklæddri sem ásökun og dómur, heldur mannúö og göfuglyndi. --------o------- Gengi erl. myntar. Khöfn 16. ág. Sterlingspund........... 20,69 Dollar............... .. .'. 4,641/2 Mörk.................... 0,48 Sænskar krónur..........122,35 Norskar krónur............. 80,00 Pranskir frankar........... 37.00 Svissneskir frankar .. .. 88,40 Lírur...................... 21,25 Pesetar . . .. ... .. 72,50 Gyllini....................180,25 Reykjavík 16. ág. Sterlingspund.............. 25,70 Sænskar krónur.............124,22 Danskar krónur.............154,76 Norskar krónur.............102,12 Dollar...................... 5,89 ----:--o------- -= DAGBðK. =- Gullfoss kom hingað í fyrrinótt. Farþegar voru meðal annara: Einar Benediktsson skáld og f jölskylda hans, sjera Meulenherg, próf. Páll E. Óla- son, Kristmundur læknir Guðjónsson, Björn Gíslason kaupmaður, Árni Niku lásson rakari og frú hans, ungfrú Óiöf Sigurðardóttir. Frá Yestmanna- evjum komu Þórður Jensson stjórn- arráðsritari og Mekkino Björnsson verslunarmaður. Forkaupsrjett hefir Magnús Blön- dal boðið bænum að þremur erfða- festulöndum: Norðurmýrarblettum og Blöndufalíð, er hann ætlar að selja fyrir 45000 kr. Lönd þessi eru sam- tals 4,08 hektarar. Fasteignarmat á húsum og löndum er 22300. Fast- eignanefnd hefir lagt til að for- kaupsrjetti væri hafnað. Norðurvöllur. — Til fasteigna- nefndar bæjarstjórnar hefir borist brjef frá próf. Eiríki Breim, þar sem hann mótmælir ákvörðunum þeim, p' bæjarstjórnin hefir tekið um erfða- festuland hans, Norðurvöll, (að bær- inn taka blett þennan undir iín umráð, þar sem hann mundi hafa fyrirgert erfðafesturjetti sínum) og kveðst hann muni leita verndar dóm- stólanna, ef bæjarstjórnin hreyfi því máli meira. Fasteignanefnd hefir líát- ið í ljósi að hún hjeldi fast við fyrri skoðun sína á málinu, að bær- inn taki völlinn undir sín yfirráð. Landið í Fossvogi. Tilboð hefir bæjarstjórnin fengið frá Kristófer Grímssyni um að gera nú í sumar öll nauðsynleg lokræsi í hið plægða land bæjarins í Fossvogi fyrir kr. 3700,00 og ennfremur að moka ruðn- ingnum úr stónj skurðunum fyrir kr. 1000,00. Pípubúta í enda ræs- ana leggi bærinn til. Fasteignanefnd hefir lagt til, að, tilboði hans verði tekið. H.f. „Ari fróði“ hefir boðist til að taka á leigu til 20 ára frá 1. jan. n. á. fiskireiti bæjarins með þeim skilmálum, að fjelagið hafi for- leigurjett að stækkun reitanna,, ef bærinn lætur stækka þá, að lóðir undir nauðsynleg fiskþurkunarhús sjeu leigulausar, að fjelagið fái að nota vatn frá vatnsleiðslu bæjarins, að fjelagið hafi endurgjaldslausan af- notarjett af skúr þeim, sem reistur hefir verið við reitina, að bærinn kosti viðhald vegarins en fjelagið viðhald reitanna. Ársleiga sje krónur 6500,00. Lúðrasveit Reykjavíkur hefir sótt um fjárstyrk til bæjarstjórnar til þess að launa kennara Lúðrasveitarinnar. Hefir fjárhagsnefnd lagt til að bæ.j- arstjórnin verji til þess 1000 krónum af fje því, sem veitt er til óvissra útgjalda á þessu ári. Gullfoss fer á laugardaginn ve3tur og norður um land til Akureyrar, en snýr þar við og kemur hingað aftur og á að vera hjeí samkvæmt áætlun 30. ágúst. Bæjarstjórnarfundur er í dag kl. 5 eftir hádegi. Skýrsla um Bændaskólann á Hvann- eyri skólaárið 1920—1921 hefir Mbl. borist. 26 nemendur hafa verið í eldri deild, en 24 í yngri deild. Kennaralið skólans var faið sama og undanfarna vetur, að undanteknu því, að Medúsa-lem Stefánsson ráðu- nautur tók við kensju 14. janúar í stað Páls Jónssonar vegna veikinda. Verklegár framkvæmdir hafa verið allmiklar við skólann: gerðar þak- sb-.ttur samt. 1980 ferrn., flóðgarðar 113 tenm., engjasljettur: þúfur plægð ar og þeim ekið burt af 7798 ferm., vegur gerður 180 m. langur. I skýrsl- unni er ýmiskonar fróðleikur um uppskeruna, æfiágrip merkilegs nauts, Cæsar að nafni, og um kosti nokk- urra dætra hans á Hvanneyri o. fl. Baðvarðarstaðan við Baðhús Reykja víkur er auglýst laus til umsóknar frá 1. okt. Árslaun eru 1600 kr. og dýrtíðaruppbót. Lúðrasveit Reykjavíkur ljek við Austurvöll í gærkvöldi eins og til stóð. Var þar saman kominn mikill fjöldi fólks, þó munu einhverjir hafa verið þar merkislausir. Sveitin ljek að vanda ágætlega vel. Eru ótrúlegar (þær framfarir, sem hún hefir tekið undir stjóm Otto Böttchers, og sjest á því hve góður kennari er mikils virði. Nokkurt fje mun sveitinni hafa áskotnast við þennan leik í húsbygg- ingarsjóð sinn. ------o------ fieimanmunduvinn „Það er gott Bernd, við skulum vera góðir fjelagar! Og nú verður þú að segja mjer eitthvað um konuna þína og ættingja hennar. Jeg get ekki lýst því fyrir þjer hvað jeg hlakka til að sjá Mölvu og hafa hana hjá mjer á Pranken- hagen, því þú verður að koma með hana undir eins, þegar hiin þolir að ferðast, því hvergi verður hún fljótari að ná sjer en ief hún fær að anda að sjer ilmhreinu loft inu í gömlu beykiskógimum okk- ar — það er langt síðan að við höf um riðið um skógana Bernd en jeg vona að þó að þú sjert ný- giftur, þurfi það ekki aö standa í vegi fyrir'þvi að við endurnýjum þær sbemtanir okkar. Hann brosti, og fullvissaði hana vm að hún þyrfti alls ekki. að óttast það. Svo fór hann að tala viö hana um Mölvu eins og hann væri að tala við goðan vin. Og þegar Lydia skömmu seinna varð litið á úrið sitt, sá hún, sjer til mikill- ar undrunar, að þau höföu talast við á annan klukkutíma, en þá var hún líka orðin svo kunnug bæði Mölvu og Sigríði, að það hefði varla veriö meira þó hún hefði verið búin að vera besta vin- kona þeirra í langan tíma. X — Átti jeg kannske að þeg.ja? Hefði jeg máske ekki verið með- sekur, ef jeg hefði dregiö nokk- urt augnablik að fletta ofan af svikum Breitenbach’s, eftir að jeg fjekk vitneskju um þau? Hátt og harðlega sagði doktor Ellhofen þessi orð.Hann var í æstu skapi, enda þótt sú æsing kæmi ekki fram, öðruvísi en þannig að hiö greindarlega viðkvæma andlit var mun fölvara en vandi var til. Hann stóð í hinni skraut- lausu skrifstofu sinni, og augu hans hvíldu- á unga manninum, sem hann talaði við. Þessi ungi maður var að ytra

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.