Morgunblaðið - 20.08.1922, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 20.08.1922, Blaðsíða 3
MORGUNBLAiIB írrundvelli við Ástralíu. 1 samn- ingnum er þaö tekið fram, að Bretland veiti á þessu fjárhags- .ári 8 miljónir króna og á nokk- ur liluti þess að notast til þess að borga ferðakostnað útflytjend- anna. Fyrst um sinn fara 75,000 manns til Ástralíu. Þegar þangað kemur fá þeir ókeypis land til umráða, og ‘stjórnin þar í landi veitir þeirn lán rneð vægum kjör- um til bygginga og vinnuvjela- kaupa. Þó geta ekki þeir, sem koma algerlega tómhentir, strax fengiS lán. En þeim er útveguð atvinna hjá bændum þar í landi, -og er búist við, að þeir geti verið búnir að spara svo mikið saman á 3 eða 4 árum, að þeir geti fengið lániS. Þessara hlunninda verða þó ekki aðrir aðnjótandi en þeir, sem vilja búsetja sig til sveita. Er ekki úskað eftir neinni fjölgun í bæj- unum. Þó fá þær konur ferða- styrk, sem vilja ráða sig til hjálp- ar við innanhússtörf. Búist er við að svipaðir samn- ingar fari bráðlega fram milli bresku stjórnarinnar og stjórn- anna í Kanada, Suður-Afríku og Nýja Sjálandi. Aðrir en breskir ríkisborgarar fá ekki þennan «tyrk. Eftirmæli. Hinn 23. apríl s. 1. andaðist að heimili sínu Yalshamri á Skóg- arströnd, merkisbóndinn Jón Jóns- son. Hann var fæddur 12. júní 1858 á Emmubergi þar í hreppi. Hanji hafði mörg trúnaðarstörf hreppsins á' hendi, var hreppstjóri í 20 ár, hreppsnefndaroddviti í 9 ár, safnaðarfulltrúi yfir 20 ár, formaður búnaðarfjelagsins þar í hreppi var hann í 26 ár samfleytt. Jón sál. var giftur Kristínu. Dan- íelsdóttur frá Litla Langadal, sem lifir mann. sinn ásamt 2 sonum, I.úther og Ásgeir. 1 son mistu þau 13 ára, að nafni Daníel. Jón sál. var stakur iSjumaður, gekk aldrei verk úr hendi; hann var og góður smiður, bíeðj á trje og járn. Það sannaðist ekki á lionnm málshátturinn að „smiðir eiga versta spæni“, því það mun vera leitun á jafn snirtilegri um- gengni utan húss og innan eins og þar, enda voru hjónin sam- hent. Jón sál. var einn af þeim mönnum sem ljet ekkert verk frá sjer fara fyr, en að frá' því var svo gengið, sem best mátti verða. Túnið var hann búinn að sljetta og byggja upp öll hús á jörðinni; á öllu var sama fagra og smekklega handbragðið. Jón sáh var ma'Sur gestrisinn og skemtilegur í viðræðum en manna orðvarastur, og lagði jafn- an bestu meiningu í annara orð og verk. — Skógarströnd hefir mist hjer einn sinn mætastabónda og ef íslenska þjóðin ætti slíka bændur yfirleitt, þá væri land- búna.ðinum borgið. S. E. Bólusetning gegn taugaveiki. • Franskir læknar liafa nýlega gefið út skýrslu um árangur tilrauna með nýtt bóluefni gegn taugaveiki og kóleru. Bóluefninu er ekki sprautað inn í líkamann heldur tekið inn eins og hvert annað lyf. 1 hjeraði einu í Frakklandi, þar sem mikil tauga- veiki gekk, veiktust 50 menn af 664 óhólusettum en aðeins tveir af 1236, sem bólusettir höfðu verið. dig. Eins og sjá má á auglýsingu hjer í blaðinu í dag, fara fram kappreiðar á skeiðvelli hesta- mannafjelagsins „Fákur“. Er til þeirra kappreiða vandað svo, að þar munu verða sýndir og reynd- i" fráustu og bestu gæðingarnir, sem hjer eru nærlendis og þó lengra sje leitað. Verða þarna gæðingar alla leið nórSan úr Skagafirði, ofan úr Borgarfirði og austan yfir fjall. Síðan veðreiðarnar fóru fram hjer 9. júlí, hefir mikið verið um þær rætt, m. a. að ýmsu hefði verið ábótavant í sambandi við þær, svo sem skeiðvöllurinn ekki verið 'góður, hætta gæti stað- iö af girðingaleysi og síðast en ekki síst alt moldrykið, sem ætlaði að blinda þá, sem við voru staddir. En úr þessu öllu hefir verið bætt. Forsjónin tók í taum- ana með það síðasta og sendi regn á völlinn, svo nú þarf eng- inn að óttast moldryk. Ennfremur hefir völlurinn ver- iS bættur að mun, svo að þeim, sem þar hafa æft hésta sína und- anfarið, þykir mikill munurávera. Girðingar hafa verið auknar eins og þurfa þykir, svo nú er hvorki lífi nje limum manna hætt. Og eins og auglýsingin ber með sjer, hefir verið aukið við alla stjórn og aðstoð á skeiðvellinum, svo í því efni hefir einnig alt færst tii betra horfs. Stökkhestarnir, sem verðlaun fengu 9. júlí, verða allir reyndir á ný í dag, nr. 11, 15, 19 í kapp- reiðaskránni. En þó þeir hjeldu velli síðast, þá er ekki sýnt, að þeir geri það nú, því eins og fyr er tekið fram, er þátttakan margfalt alménnari í þetta sinn. Má þar til nefna Stíganda, nr. 23 og Sörla nr. 28. Þykja þeir líklegir til þess að verða hinum ekki ófrárri. Eins og menn rekur minni til, þótti mörgum leitt, hvað skeiðið mistókst síðast. Því svo miklir héstamenn eru Islendingar 'enn, að þeim muni þykja skeiðið göf- ugasti og fegursti gangur hests- ins, þegar samæfðir eru gæðing- urinn og reiðmaðurinn. En nú má gera sjer vonir um, að skeiðið fari 'betur, því þrír ágætir skeið- hestar hafa bætst í hópinn, og sá hesturinn, sem „hljóp Upp“ á síðustu kappreiðunum, en allir dáðust að, er nú orðinn fastur £ ganginum. j G-ullfoss fór bjeðan kl. 6' í gær vestur og norður um land til Ak- ureyrar. Farþegar voru: Böggild ; sendiherra Dana, E. Nielsen fram- kvæmdastjóri, Einar Benediktsson skáld, Carl Proppé og frú hans, Hjalti Jónsson skij»stjóri, Einar M. Jónasson sýslumaður og frú hans, M. Berrie stórkaupmaður, Þórður Thoroddsen læknir, V. Stronge stór- kaupmaður, Þork. Þorkelsson forstj., Oskar Clausen kaupmaður, Jóhann Ragúelsson kaupmaður ög frú hans, Jón Ólafsson framkvæmdarstjóri og frú hans, Daníel Kristinsson og frú hans, Walter Sigurðsson, Magnús Seheving bankastjóri, Tage Möller kappmaðnr, frú Unnur Stefánsson (f. Thoroddsen), ungfrú Dóra Magn- úsdóttir, ungfrú Þuríður Sigurðar- dóttir o. m. fl. Um 40 manns höfðu pantað far með skipinu frá ísafirði . til Akureyrar og til baka aftur. — í Verður því óvenjulega margt með Gullfossi, þessa ferð báðar leiðir. Dómur hefir nú verið kveðinn upp í vínsmyglunarmálinu þýska. Er alt áfengið gert upptækt og skipstjór- inn, Neamann, dæmdur í 600 kr. sekt og 1 mánaðar einfalt fangelsi. Dómurinn er kveðinn upp eftir lík- um, því játning liggur engin fyrir frá skipstjórans eða skipshafnarinn- ar hálfu, og engin sönnun hefir feng- ist fyrir því,^n^ hjer hafi þeir ætlað | að selja vínið. En líkumar eru afar- sterkar fyrir því, að svo muni hafa vérið. I 1 Fríkirkjan. 1 dag kl. 2 messar sr. Haraldur Níelsson í fríkirkjunni. -— 'Gleymdist að geta um það í blaðinu í gær, og eru menn beðnir að veita þessu ■ athygli. Útisamkomu hefir Kristniboðsfje- lagið í dag kl. 3 við Suðurpól. Þar tala m. a. Ólafía Jóhannesdóttir. Skemtiför fóru Góðtemplarar inn í Viðey í rnorgun kl. 9. Jarðarför sjera Magnúsar Andrjes- sonar fór fram fyrra laugardag að Gilsbakka og fylgdi honum til grafar rhikíll mannfjöldi. Einar prófastur Pálsson í Reykholti flutti húskveðju, en Stefán Jónsson prófastur á Stað- arhr'auni hjelt líkræðu í kirkjunni. Kveðjuljóð hafði Halldór Helgason ort og flutti hann þau við gröfina. Hestamannafjelagið „Fákur‘ ‘ biður að vekja athygli þeirra, sem ætla að verða við kappreiðarnar í dag, á því, að þeir skuli hafa með sjer Morgunblaðið þangað inn eftir, því í því sje kappreiðaskráin. Ennfrem- ur fæst blaðið keypt við veðreiða- svæðið. Hestamenn hafa íslendingar alla . jafna verið, og ekki hafa þeir' haft meira yndi af öðru en gæð- ingunum sínum. Og svo mun það enn vera, Mun það sjást í dag„ að enn kunna menn lijer að meta góðan hest. Er vafalítið, að menn fjölmenna mjög inn að veðreiða- svæðinu í dag og mun þá ekki iðra þess. Því fátt er skemtilegra en sjá marga gæðinga reynda. Og þá skemtun fá menn inn við Elliðaárnar. Kunnugur. Er'l. sírnfregnir frá frjettaritara Morgunblaðsin*. Khöfn 19. ágúst. Skaðabótamálið. Frá Berlín er símað, að skaða- bótanefndin hafi sent 2 fulltrúa til þess að tala við þýsku stjórn- ina um gjaldsfrestsbeiSnina. I Hagfræðingaráðstefna er bvrjijð í Hamborg og flytja þar ræður meðal annara Keynes, Krassin og prófessor Cassel. “ DáGBÖK. r Trúlofun. Nýlega hafa opinberað trúlofun sina ungfrú Kristín Einars- dóttir og Gísli Ólafsson bakari. fiEimanmundurinn | „Nei, faðir minn, jeg er alvfg | staðráðinn í að taka ekki við htnni1 ‘. ^ „Og hvers vegna; þú segir þó sjálfur að kjörin sjeu góð V ‘ „Jeg vil ógjarna segja ástæð- una — hún gerir hvorki til nje frá“. „Það þykir mjer mjög einkenni- legt, sjerstaklega af því að þú skrifaðir mjer fyrir nokkrum dög- um að þjer geðjaðist alls ekki aö því starfi sem þú hefðir nú. — -— Hvað er það? Heimsókn? — Jeg hefi sagt þjer að jeg tek alls ekki á móti neinum á þessum tíma. Hinn ungi maður, sem þessi orð voru töluð til, varð mjög vand- ræðalegur á svipinn. „Jeg bið yður mikillega afsök- unar herra doktor. Það er ung síúlka — og liún biður svo inni- lega um að mega tala við yður“. Doktor Ellhofen tók hið litla nafnspjald með svörtu röndinni og leit á það, síðan rjetti hann það þegjandi að syni sínum „Sigríður Breitenbach“, sagði hann hissa. „Er þaö einhver ætt- ingi leyndarráðsins ?“. „Ætli það sje ekki dóttir hans?‘ „Ætlar þú að tala við hana?“ „Jeg hefi enga ástæðu til að trka ekki á móti henni, enda þótt j jeg geti ekki skilið í hvað það I er sem hún getur viljað mjer. En jeg vil helst ekki tala við j hana, án þess að einhver sje við; farðu þarna inn í herbergið, j Valter, og skyldu dyrnar eftir ! opnar' ‘. J Verkfræðingurinn kikaði við að verða við þessum tilmælum. „Finst þjer það rjett, faðir minn — án þess að hún viti af mjer?“ „Ef það skyldi vera eitthvað sem enginn mætti heyra, skal jeg loka hurðinni. Þú þarft þess vegna elckert að kæra þig um það. Jeg hefi gilda ástæðu til aö biðja þig um þetta' ‘. Hinn ungi maður sagði ekki meira, en gekk inn í dimma hlið- arherbergið og skildi eftir opið. Bvo kom unga stúlkan inn, hún tók blæjuna frá andlitinu, ef til vill í þeim tilgangi að geta horft í augu þeim, sem hún talaði við. „Þjer eruð doktor Ellhofen, rit- stjóri Herolds?“ „Já ungfrú“, svaraði yfirrit- stjórinn, kurteislegar en hann var vanur að tala við þá sem komu af heimsækja hann; má jeg bjóða yður sæti?“ „Nei, þakka yöur fyrir — þjer hafið sjeð á nafnspjaldinu hvað jeg heiti —- Breitenback leyndar- r'.ð var faðir minn. Doktoriiv. ] j eigði sig lítið eitt. „Jeg ímyndaði mjer þaö, en má jeg spyrja------“ „Til hvers jeg kem? Það skul- uð þjer nii undir eins fá að heyra! En einni spurningu verð jeg að spvrja yður fyrst: Hafið þjer les- ið greinina í kvöldblaðinu, sem fjallar um heimilisástæður pabba míns sáluga??“ „Jeg hefi ekki einu sinni lesið hana, ungfrú Breitenback, jeg Imfi meira að segja skrifað hæna sjálí- ui“. „Þjer?“ Röddin skalf af reiði. „Ef jeg væri í yðar spoi’um, mundi jeg þó hafa hikað mjer viö að kannast við það, fyrir dóttur þess manns, sem þjer hafið ekki einu sinni svifist að svívirða í gröf- irni“. „Og því skyldi jeg ekki kann- ast við það? ÞaS er trú mín, að jeg geti varið það sem jeg hefi sagt“. „Ef samviskan ekki ásakar yður neitt, þá öfunda jeg yður sannar- lega ekki af þoirri rjettlætistil- finningu sem yður er gefin; því það sem þjer hafið gert er níð- ingslegt og hverjum manni ósæmi- legt‘ ‘. „Jeg tek tillit til þess, ungfrú góð, að það er kvenmaður sem talar til mín þessum oröum!“ „Ó, bara að þjer tækjuð ekkert tillit til’ þess“ , sagði hún í ákafri geðshræringú. „Það er ilt að jeg skuli vera kvenmaður, ef jeg 'væri karlmað- ur, myndu'ð þjer máske gera grein fyrir breytni yðar! En ungri stúlku er óþarft að sýna svo mik- inn sóma — er ekki svo?“- „Jeg mun aldrei skorast undan að taka afleiðingunum af gerðum mínum, ekki heldur þó kvenmaður eigi í hlut. En þetta er mál, sem ekki er heppilegt að við tölum saman um, því annars gæti komiö fyrir að jeg særði tilfinningar yð- ar aftur, og það vildi jeg ekki þurfa að gera“. „Hvers vegna eruð þjer alt í einu orðinn svo hærgætinn? Mað- ur sem hefir það aumlega hug- rekki til að bera, að geta gefið al- menningsálitinu höggstað á varn- arlausum konum þarf ekki að kveinka sjer við smámunum. — Mjer hefir verið sagt að það sje grein í blaði yðar, sem hafi hrakið föður minn út í dauðann, og jeg mætti vera aum dóttir ef jeg ekki hataði yöur fyrir það af öllum kröftum sálar minnar, meðan jeg dreg andann. En samt sem áður hefi jeg þrátt fyrir hatrið, þangað til í dag, ætlað yður ofmikla sóma- tilfinningu, því jeg hjelt að þjer hefðuð gert þetta í góðu skyni og þættust vinna góðu málefni í hag. En níðgreinin í kvöídblað- inu í gær hefir sýnt mjer alt ann- að. Því það sem þjer segið um óhóf það sem hafi átt sjer stað í húsi föður míns, um veislumar, sem líkari hefðu vefið því sem í æfintýrunum gerðist heldur en í verunni, um skrautvagna hans og reiðhesta dætranna, um tengdason- inn af aðalsættinni, sem hann átti að hafa keypt fyrir heila.miljón — alt er þetta svo gagnsýrt af beisku eitri bakmælginnar, að það hefir fyrst opnað augu mín, svo íeg síe yður eins og þjer eruð. ÞaS var yður ekki nóg að svifta okkur föðVr okkar, dauði hans hefir ekki getað fuHnægt auðvirði- legri hefndargirni yðar!“ Ur dimma hliðarherberginu heyrðist þrusk, eins og einhver hefSi hvatskeytlega þrifið í stól og kipt lionum til; en Sigríður var svo æst,' að hún tók ekkert eftir því; en doktor Ellhofen skifti sjer ekkert af því nema með því að tala hærra og líta til dyranna um leið og liann svaraði: Stærsta skip Þjóðverja. Stærsta skipið, sem nú fer um heimshöfin er þýskt að uppruna, skip íð „Majestic* ‘, sem tekið var her- fangi af þeim með friðarsamning- unum. En sjálfir fengu Þjóðverjar ekki að halda neinum af hinum stótu og fögr.u skipum sínum. Þeir verða að koma upp nýjum flota og virðast vera vel á vegi með iþað. Stærsta skip ic, sem Þjóðverjar hafa smíðað eftir stríðsloin er ,Columbus‘, sem „Nord deutscher Lloyd“ á og hljóp af stokk ur.um í júní.'Columbus er 32.000 smál. og getur flutt yfir 2000 farþega. — Lengdin er 236 metrar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.