Morgunblaðið - 27.08.1922, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 27.08.1922, Blaðsíða 1
OBtrcVBLASm Stofnandi: Vilh. Finsen. Landsblað Lögrjetfar Ritstjóri: Þorst. Gíslasoju 9. 244 4bl. Sunnudaginn 27. ágúst 1922. ísafoldarprentsmiðja h.f. Gamla Bió I s. s. s. Sol, Sommer og Stuöiner Palladium gamanleikur stórfyndinn og skemtilegur. Leiðbeinandi: Lau Lauritzen. Aðalhlutverkið leikur: Oscar Sfribolt. Allir þekkja Stribolt og hans óviðjafnanlegu hæfileika til að koma mönnum i gott skap, enda er þessí mynd hreint snildarverk á sinu sviði. Rý uppfundning. Skandiaverksmiðjan i Ly-sekii, sera býr til hina heimsfrægu SKANDiA* mótora, hefir nýlega sent frá sjer nýjan mótorlampa, sem rneð rjettnefni má kalla braðkveikjulampann. 90 Lampi þessi hitar upp hvaða mótor sem er]“á 30 sekúndum, eftir stærð glóðarhaussins. Lampinn hefir verið reyndur hjer, og er til sýnis í notkun þeim sem vilja. Verðið er 150 og 350 ísl. krónur, sem sparast á einu ári í tíma, brennurum og bensini eða olíu, því lampann þarf ekki að hita upp Allar frekari upplýsingar hjá aðalumboðsmönnum t 'verksmiðjunnar á Islandi: Bræöurnir Proppé Simar 479 & 608. fljartans þökk fyrir hluttekninguna við jarðarför drengsins okkar. Velhelmína Halldórsdóttir. Jóhann Gíslason. tandskasningarnar og Alþýðublaðið. Kynlegt þótti mörgum það, hve Alþýðublaðið var fámælt í marga 'daga um kosningaósigur þann, sem Jafnaðarmenn biðu við landskosn- ingarnar. ÞaS sagði aðeins frá úr- slitunum daginn eftir upptalning- una, tilgreindi atkvæðafjölda á listunum og þá sem kosnir vorn. En sneiddi algerlega hjá að minn- ast á ósigur flokks síns. Svo gunn- reifir og sigurvissir höfðu þeir veHð í blaðinu fyrir kosningarnar, að menn urðu gersamlega forviða á þeirri þögn, sem sló yfir blaðið, þegar það sá ósigurinn. En loks 25. þ. m. flytur blaðið grein eftir ritstjórann. Sú grein er hvað hógværð snertir talsvert ólík því, sem sá maður hefir áður skrifað. En þó að hann skrifi langt mál, tekst honum ekki að skýra ósigur jafnaðarmanna meS því rakaleysi, sem hann fær- ir fram. Grein hans er full af fjarstæðum og yfirvarþsrökfærslu til skýringar á þeim snoppungum, sem kjósendur lándsins rjettu að jnfnaðarmannaflokknnm. Ein þeirra fjarstæða er sú, ,,að kvennalistinn hafi fengið fjölda aíkvæða vegna ókunnugleika á jafnaSarstefnunni og vegna æsinga gegn henni“. Það er ekki nema vitleysa ein, að halda því fram, að almenning- ur hjer á landi þekki ekki nú prð ið jafnaðarstefnuna eins og hún er borin fram og pf jedikuð af forkólf vm hennar hjer á landi. Annað væri óeðlilegt. Blað jafnaðarmanna hef ir nú um mörg ár stráð slíkum kenningum út um landið. Porihgj ' ar flokksins hafa haldið fundi hingað ög' þangað og síöast sjálfur ritstjóri blaðsins nú fyrir kosn- ingamar. Um ókunnugleika er því ekki að ræða. En hitt er aug- ljóst, að landsmönnnm hefir ekki ! litist á jafnaðarstefnuna. Kjós- endur landsius hafa ekki gleypt ktnningar jafnaðarmanna jafnört og rannsóknarlaust eins og þeir hafa búist viö. Framkomu jafnaðarmanna sjálfra og stefnu þeirri, sem þeir hafa fylgt, er það að kenna, að þeir urðu nú í minni hluta. Frekja Ólafs Friðrikssonar að fara dæmd ur maður í fyrirlestra- og funda- ferðir kringum landið, hefir ekki aflað samherjum hans fylgis. Með því framferði brennimerkti Ó. Fr. sig og flokk sinn því'marki, sem ekki er líklegt að laði að. Til- tæki Ólafs er það meðal annars að kenna, að flokknr hans kom nú engum að en ekkj þekkingarleysi á jafnaðarmenskunni. Því um liana hefir ekki verið lágt síðustu ár- in. — Olafur Friðriksson er auðsjáan- lega stórreiður kvenfólkinu fyrir sígur þess. . Hann ber íslenskum konum á brýn pólitiska fáfræði og lieimsku. Þó hafa nú íslenskar konur sýnt mikinn stjórnmála- þroska í því, aö Sameinast um kvennalistann í stað þess að kasta atkvæði sínu á lista uppivöðslu- mannanna. Og vel má jafnaðar- mönnum verða það minnisstætt, að konur, sem koma fram meö sjerlista í fyrsta sinn, , undirbún- ingslaust og án stuðnings, koma að fulltnia, en jafnaðarmenn, sem búnir eru að berjast um á hæl og huakka í mörg ár, bíða algerðan ósigur. Eitthvað hlýtur aö vera að stefnu þeirra. Vinsæl getur hún varla talist í landinu. Og á því furðar engan. Blaðið telur úrslit kosninganna „ósigur, sem verði sigur“. Ósigur eru þær fyrir iafnaðarmenn. Eng- inn n^itar því. En hitt munu menn eiga örðugra með að fallast á, að nokkur sigurvon felist í þeim fyr- ir þá. Miklu líklegra er hitt, aS frekari ósigur fari á eftir. Háværnstu og glannalegustu foringjar jafnaðar- manna hafa nú á síðustu tímum vakið þunga andróðursöldu gegn flokknum. Það kemur greinilega fram í kosningunum. Sennilegt er, aö sú alda fari ekki lækkandi. Alþýða manna hefir opnað augun fyrir því, að foringjar flokksins em pólitiskir refilstigamenn, sem lítil hamingja er að fylgja, hversu fagurlega sem, þeir tala um út- rýmingu fátæktar og hverskyns böls. Ritstjóri Alþýðublaðsiris spáir því, að við næstu almennar kosn ingar ,muni sigurinn verða þeirra megin, og kennir undirbúnings- leysi undir landskosningarnar um að svo fór sem fór. Allir sjá hví- líkt yfirklór þetta er. Það mun enginn flokkur hafa haft eins mörg járn í eldinum til kosninga undirbimings eins og' einmitt jafn aðarmenn. Minsta kosti sendi eng inn mann í hringferð um landið, þó alt kæmi fyrir ekki. En þótt blaðið hvetji til þess, að strax sje farið að vinna að undirbún- ingi undir almennar kosningar, þá bendir alt til þess nú, að för þeirra jafnaðarmanna næst verði litlu frækilegri en nú. Og svo ætti það að vera, ef alþýðan heldur áfram þeirri stefnu, sem hún hefir nú tckið. „Fylkin". 7. hefti 7. árg. hefir útgefandiim sent MorgunhlaSinu. Er þaS líkt a‘ö stærð og frágangi og hin fyrri hefti þessa rits. BfniS svipaS, fjölbreytt og nytsamt og gengur í gegnum þaS sami rauSi þráSurinn og öll hin heft- in: pessi eldheiti áhugi ritstjórans Nýja Bló Kappreiðarnar við Eiliðaárnar 9. júlí og 20 ágúst. Cirkusmærin ljómandi fallegur sjónleikur i 5 þáttum. Aðalhlutverkið leikur hin ágæta ieikkona Gladys Walton. • Sýning kl. 6, 7V2 og 9. Börn fá aögang að sýn- ingunni kl. 6. og ódrepandi þol aS prjedika fyrir: landsmönnum fróSleik um náttúru! landsins og auSæfi, og hvað megi hjer j gera, ef með þaS sem landiS geymir ( í skauti sínu er fariS meS dugnaSi' og skynsemd. • Fyrst í þessu hefti er Hringsjá, almennar útlendar frjettir, dregnar víSa aS, en nokkuS lausar og tínings- legar. Er þó í þessum kafla allítar- legt yfirlit um skuldir stríSsþjóS- anna í Evrópu fyrir heimsófriSinn of áætluS útgjöld þessara þjóSa áriS 1914. Fer höf. nokkrum orðum um neySarástand pýskalands nú og þykir illa hafa veriS meS þáS fariS. Er hann pjóSverjum vinveittur og telur þá ekki eina valda aS heimsstyrjöld- inni eins og' sumir hafa haldiS frarn. | pá kemur næst „Leir og leirsmíSi“. RæSur hann Islendingum frá aS hyggja „íveruhús úr óbrendum leir, nema þá lág úthýsi eSa smiSjur, vel hitaSar og varSar aS utan meS pappa eSa öSru“. Hefir hann rannsakaS ,ísaldar leir“ úr brekkunni fyrir of- m Akureyri. MótaSi hann nokkuS af honum og geymdi yfir veturinn, en þaS eySilagSist og grotnaSi sundur. Helsta ráSiS viS húsnæSiseklunni tel- ur hann vera þaS, aS brenna kalk úr skeljum og nota kalkiS til aS binda blágrýti, grágrýti, móberg og annaS hraungrýti og byggja á þann hátt. pá skrifar ritstj. um „Steina og steinsmíSi“. Vex honum í augum livaS mikiS er flutt af byggingarefni til landsins, og hvetur til aS byggja úr íslensku grjóti. Telur hann hús úr slíku efni jafn þrifaleg og hlý og ódýrari en hús úr erlendu bygging- arefni, og bendir á nokkur hús sem bvgS sjeu úr þvL paS byggingarefni, sem ísland skorti mest, segir hann vera kalk, en telur þó aS fyrst um sinn megi vinna þaS úr þeim kalksteins- námum, sem hjer sjeu til, í Esjunni og viS DjúpafjörS í BarSastranda- sýslu. En jafnframt ætti aS vinna kalk úr skeljasandi og fer hann nokkr- nm orSum um aSferSina til þess og þann útbúnaS, sem þnrfi. Næsta ritgerS heitir ,ísland í stríSi*. Kemur ritstj. þar aS efni, sem hon- um verSur tíSrætt um, og veriS hefir eitt af áhugamálum hans frá því fyrsta — virkjun fallvatna landsins td ljóss, hita og vinnureksturs margs konar. Segir hann, aS væri þaS gert, nmndi „alþýSa manna eigi aSeins læra aS rækta landiS meira og betur, heldur og aS vinna máhna, einknm jarn, hjer og þar á landinu eins og fornmenn gerSu, einnig alnminium úr leir, Kalíum og joS úr þangi, Sadi- uin og Chlorium úr sjávarsalti, bal- sium og fosfor úr beinum og kalk úr kalksteinsæSum", og margt fleira sem hann telur upp aS muitdi verSa aS- hafst hjer á landi, ef rafmagniS yrSí alment. Segir hann í þessari ritgerB, aS alþýSa vinni þrent meS því „aB rota jökulár Islands til húshitunar^ peningasparnaö, betri hýbýli og betri. jarSrækt. Og eru þetta alt iriiklir kostir. pá kemur næst grein um „Lani- búnaSinn“. Fer rítstj. um hann mörg- um oröum. Segir m. a. aS vegrtn snialaeklu og mjaltastúlknaleysis tapi bændur árlega sem svari matarforöa handa, 20 þús. manns árlangt. En ut» þaS hugsi unga fólkiS ekki, sem þyrp- ist til kaupstaöanna. — I þessari 'grein birtir hann og' ýinsar skýrslur, þ. á m. um fjölda búpenings hjer á lartdi á ýmsum árum frá 170IL— 1919, um verShæS helstu útfl. land»- afuröa á árunum 1914—16, skrá yftr veröhæSir útfl. vara á árunum 1901, til 1914. Svo kemur „Verslun Islands á siS- ustu 27 árum“. Er sá kaflinn megfc skýrslur. Kemst höf.' aS þeirri niönr- stöSu, aS kaffineytslan, hafi tvöfaldaafc á 26 árum, sykurneytsla meir en tvö- faldast, ölðrykkja aukist um 70 'fo Segir hann aS sykurneytslan sje dæmft- fá nema í Englandi og Hollandi. Næst er „Fjárhagur íslands“, og þá „Sjávarútvegurmn“, vöxtur hans og vera á 27 árum. Eru þar birtar ýirm- a. skýrslur. pá er „Verslun uppeldi og stjórn“. Eru þaS almennar hug- leiöingar um þessi efni. Um stjórnar- far þjóöanna farast ritstj. svo ' orB, „aS svo nefnd lýSstjórn eSa lýS- veldi, sje hiö valtasta stjórnarfyrir- komulag, þar geti heimsir menn og óhlutvandir, tranaS sjer fram og sótfc um völd og embætti, sem hygnir og ráövandir menn hiröa sjer ekki a5 taka. Fáir eiga aö ráSa, einn aö haf», æöstu völd og haiin sá besti, duglegasti og göfugnsti maSur sem þjóöin á“. Hann telur þá aöferö, aS velja sjer konúnga af bestu aSalsættum og lát» þá hafa æSsta vald, bestá fvrirkonm- ls.g, sem mannkyniS hefir enn fundiB. LýSstjórnina er hann óðnægSur mett. Næsta aSalgreinin er um „Rafhitum íbúSa á íslandi og heilsu“. Víkur hann þar enn máli sínu aö vatnavirkj- uninni og hverjum fyrnum hún mundi koma í framkvæmd til búmrt'gsbótk fyrir landsmenn. Snýst nokkuS af efni þessarar ritgerðar um raforkumál Ak- urevrarbæjar, og hvaS ritstjóranutn licfir boriS á niilli í því efni og bæjarstjom Akureyrar. Auk þessa, sem hjer hefir veriS sagt fra, eru ýmsar minni greinar í heftinu og fróSleiksmolar hingaS og þangaS aö. Víst er um þaS, aö enginn einn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.