Morgunblaðið - 26.09.1922, Blaðsíða 3
MUKGUNBLA®!#
ZSS*
Kvenskór mjög óöýrir fást hjá Hvannbergsbræðrum.
Rúsinur 1.00. Sveskjur 1.00. Epli 0.75. Laukur 0.45. Kartöflur 0.S3. Hveiti, Hris-
grjón, Haframjöl 0.35. Sukkulaði 2.25, 2.50, 2.75, og alt eftir þessu i A. B. C.
óvitran að eiga. Undirstöðuatriði
í slíkum rannsóknum, er að þekkja
stillislögmálið, the law of deter-
minants. Sjá Nýal, kaflann Upp-
götvanasaga önnur. ÞaS verður að
rannsaka vandlega stillisgildi hvers
einstaks fundarmanns, áður en til-
raunir eru gerðar. Eða m. ö o.,
hvemig áhrif hver einstakur fund-
armaður (sitter) hefir á miðilinn,
og munu slíkar rannsóknir fá
hina mestu þýðingu fyrir alt mann-
líf. Sumt hugarfar stillir pss til
sambands við illar verur, en sumt
til sambands við góðar, og þaS
jafnvel svo að guðir mega heita.
En um stillislögmálið mun jeg
rita nokkm nánar í annari grein.
Annað undirstöðuatriði er að
vita, að hver miðilsfundur er til-
raun til sambands við aðra stjömu.
(It must be known that every
séance is an experiment in inter-
stellar communication). Þetta eru!
orðin sem jeg setti í brjefið, og
þarf þó ekki svo mikils með. Því
að það mun alveg nægja, sann-
leikanum til sigurs, að menn hafi
í huga að gæta að því, h v o r t
það sje ekki samband við aðra
stjörnu, sem á miðilsfundinum
fæst. En undan því getur enginn
færst, eftir það sem jeg hefi ,til
lagt í þessu máli, vilji hann beita
nokkurri samviskusemi við slíkar
athuganir, að gæta að því, hvort
þetta sje ekki þannig, sem jeg hefi
sagt.
, X-
IV.
í Ameríku kynni það þó að;
verða sem menn átta sig fyrst á
J>essu aðalmáli. Jeg hefi fengið
samband við merkilegt fjelag þar,
fyrirburðarannsóknafjelagið amer-
Iska (The American Society for
Psychical Research) og brjefin
þaðan eru svo greindarleg, að jeg
hefi ástæðu til að ætla, að tilraun-
ir mínar til að fá rannsóknum
rjett hagað, verði ekki árangurs-
lausar.
En 'það verður mikil gleði „á
himnum“ þegar þær tilraunir fara
að takast, og jörð vor öðlast það j
samband við lífheim, er verður upp
haf að endalokum hörmunganna.
1 Ameríku var reynt að koma á
þessu sambandi, skömmu fyrir
miðja öldina sem leið, en tókst
ekki, og spratt spiritisminn (anda-
trúin) upp af þeim tilraunum.Enn
var reynt, nokkru eftir 1870, og
tókst þá heldur ekki. Guðspekis- j
hreyfingin varð árangur þeirra i
tilrau’na, og trú á hina svonefndu'
meistara í Tíbet.
En að þessu sinni munu tilraun-
irnar takast. Nú nýtur við þeirr-
ar ættar, sem framsæknust hefir
verið á jörðu hjer, og fyrst fann
Ameríku. Vænti jeg málstað þess-
um mikils liðs af ýmsum Islend-
ingum sem vestanhafs em. Mun
það sýna sig, að Ijósið kemur að j
þessu sinni, ekki úr austri, heldur
úr vestri og norðri.
21. sept.
Helgi Pjeturss.
Athugasemd. 1
Lesendur greinarinnar Stjörnu-
samband bið jeg að athuga, að á
eftir orðunum: Eina leiðin, koma
nokkrar línur, sem standa áttu
framan við greinina, en af mis-
gáningi voru settar á rangan stað.
Helgi Pjetúrss.
Skipa-tröll.
Formaður siglingaráðs Banda-
ríkjanna hefir nýlega sagt frá því,
að Bandaríkjamenn hefðu á prjón-
unum fyrirætlanir um stofnun nýs
eimskipafjelags, er eigi að taka
upp samkepni við ensku eim-
skipafjelögin er nú flytja farþega
milli Ameríku og Evrópu. Er
þegar ráðin stofnun fjelags með
30 miljón dollara liöfuðstól og
ætlar það að byggja ski.p til
ferðanna ennþá stærri og betri
en stærstu skipin sem nú eru í
förum yfir Atlantshafið. Er gert
ráð fyrir að þessi skip verði
70,000 smálestir hvert, eða 14
þúsund smáiestum stærri en
stærsta skipið, sem nú er til í
heiminum, „Majestic", White-Star
fjelagsins, skipið sem tekið var af
Þjóðverjum og hjet áður „Bis-
marck'1.
Þessi nýju skip eiga að hafa
farþegarúm fyrir 5,000 manns, og
verða um þúsund feta löng. Er
áætlað að hvert skip kosti 15
miljónir dollara. Eiga þau að
verða fljótari í förum en skip
eru nú.
Mjög hefir verið rætt og ritað
um það, að dagar stóru skip-
anna væru taldir og að eimskipa-
fjelögin mundu hætta þeirri sam-
kepni um stóru skipin, sem mest
bar á árin fyrir stríðið og liáð
var milli Þjóðverja annarsvegar
og Breta hinsvegar. Nú er sam-
kepnin aftur byrjuð, en að þessu
sinni eru það Ameríkumenn, sem
taka upp samkepnina gegn Bretum
í stað Þjóðverja, eins og á mörg-
um öðrum sviðum.
Reynsla eimskipafjelaganna hef-
ir orðið sú, þessi síðustu ár, að
stóru farþegaskipin beri sig a'llra
skipa best og að stórgróði sje
á þeim yfir sumartímann. En þess
ber að gæta að þessi ár, síðan
ófriðnum lauk hafa skemtiferðir
verið óvenju miklar og má búast
við að aftur dragi úr þeim. En
það eru skemtiferðimar, sem eink-
nm halda stórskipunum uppi.
-------o-------
Simamálið.
Morgunblaðið hefir verið beðið
að birta eftirfarandi vottorð:
Að gefnu tilefni, vottast hjer-
með, að meðlimir fjelags íslenskra
símamanna a Akureyri hafa kraf-
ist þess, að ritstjóri Símablaðsins
afturkalli þau ummæli blaösins,
„að þeim finnist veitingin órjett-
lát“ c: veiting Eggerts Stefáns-
sonar, sem stöðvarstjóra á Borð-
eyri.
Akureyri, 25. september 1922.
Umboðsmaður fjelags íslenskra
simamanna á Akureyri.
-------o-------
Gengi erl. myntar.
25. sept.
Kaupmannahöfn:
Sterlingspund............ 21,17
Dollar................... 4,79
Mörk...................... o,37
Sænskar krónu'r..........126,80
Norskar kr.ónur.......... 81,00
Franskir frankar........... 36,85
Svissneskir frankar........ 89,75
Lírur...................... 20,45
Pesetar.................... 73,50
Gyllini....................186,00
Reykjavík:
Sterlingspund.............. 25,60
Danskar kórnur.............121,00
Sænskar krónur.............156,30
Norskar krónur.............100,20
Dollar...................... 5,93
(Frá V erslunarráðinu).
■o-
□ Edda 59229267-1.
A. B.
Skiftimyntin íslenska, sem verið
var að móta erlendis, kom með Botn-
iu í gær, og mun bráðlega koma í
umferð hjer.
f kvöld klnkkan 7y2, fara fram
hljómleikar Eggerts Stefánssonar í
Nýja Bio, þar sem hann snygur ein-
göngu lög eftir Sigvalda Kaldalóns,
en tónskáldið er sjálft við hljóð-
færið. — Allir aðgöngumiðar seldust
upp samdægurs, og fengu færri en
vildu. Hljómleikarnir verða endur-
teknir á fimtudaginn. Aðgöngumiðar
verða seldir í bókaverslunum í dag,
eftir hádegi.
Bæjarbruni. Síðastliðna laugardags-
nótt brann bærinn Miðdalur í Laug-
ardal til kaldra kola. Fólki varð
öllu bjargað, en ekki nema einhverju
litlu af innanstokksmununum.
„Svanur“ fór í gærkvöldi til Skóg-
arness, Búða og Stapa.
,,Björgvin“ kom af fiskiveiðum
nýlega með 11000 fiskjar. Skipið
fer ekki út aftur.
Botnia kom í fyrradag frá Kaup-
mannahöfn kringum land. Farþegar
frá útlöndum örfáir, umboðssalarnir
Edvin Grove og Galten frá Kaup-
mannahöfn og Nilsson frá Leith. —
Utan af landi kom mesti sægur far-
þega með skipir.u, þ. á- m. Geir Zoega'
Ir.ndsverkfræðingur, Guðmundur Hlíð-
dal verfræðingur. Alls voru yfir 300
farþegar með skipinu hingað, þar á
meðal margt af námsfólki.
Hjónaefni. Trúlofun sína opinber-
uðu á laugardaginn ungfrú Anna
Jóhannesdóttir bæjarfógeta og Har-
aldur Johannessen kaupmaður.
Nýja Bio sýnir í kvöld í síðasta
sinn tvo fyrstu kafla myndarinnar
„Greifinn af Monte Christo“, sem
gerð er eftir binni heimsfrægu skáld-
sögu Alexandre Dumas.Kannast margir
hjer við þá sögu. Hefir franska fje-
lagið „Paté fréres“ tekið myndina
og vandað sjerstaklega til hennar, að
hún megi vera samboðin sögunni;
enda hefir það tekist vel, að dómi
allra þeirra, sem sjeð hafa. Myndin
er í átta köflum alls, og eru síð-
ustu forvöð fyrir þá, sem vilja fylgj-
ast með frá upphafi myndarinnar til
enda að sjá fyrstu tvo kaflana í
kvöld.
Símaskráin. í smágrein um hana
hjer í blaðinu nýlega var sagt, að
hún yrði gefin út um áramót. Þetta
er ekki rjett. Skráin á að koma út
í lok næsta mánaðar eða um sama
leyti sem miðstöðvarnar verða sam-
einaðar.
Trúlofun sína opinberuðu í fyrra-
dag ungfrú Olga Carstensen og Svend
Juel Henningsen kaupmaður.
Um oiirur:
Strausykur 0,55 pr. J/a
Hveiti besta teg. 0,35 — — —
Hrisgrjón 0.35 — — —
Rúgmjöl 0,25 — — —
Rúsínur steinl. 1,10---—
MI lnfaw
Sími 149. Laugaveg 24.
Ung stúlka, sem skrifar og
reiknar vel, talar vel dönsku og
ritar á ritvjel, er einnig vön
verslun, óskar eftir atvinnu við
búðarstörf í álnavöruverslun eða
á skrifstofu, nú þegar eða frá
1. okt. n.k. A. v. á.
„Haukur* ‘ kom til Kaupmanna-
hafnar í gær frá Stokkhólmi. Leið
öllum vel á skipinu.
Aumleg frammistaða. Mikið skrifa
þeir, Tíma-kumpánarnir um Björn al-
þm. Kristjánsson. En í stað þess alls
hefðu þeir eins getað komist af með
örfá orð svohljóðandi: „Við ernm
ekki menn til að svara riti yðar
um verslunarólagið' ‘.
En hafa þeir ekki lagt út í að
svara nokkru atriði í ritinu með rök-
um, en um höfund þess rekur hver
greinin aðra í Tímanum, hver annari
lúsablesilegri, og verður þar ekki gert
upp á milli þeirra fjelaga, J. J. og
rifetjórans', svo ómensknlegar -■ eru
ritsmíðar heggja.
Um uppprentanirnar úr Lögrjettu,
10—20 ára gamalli, er það eitt að
segja,' að sje nú svo, að ritstjóri
Lögrjettu hafi einhvern tíma sýnt
B. Kr. ósanngirni í ritdeilum, þá lít-
ur hann svo á, að þyí fremur sje
ástæða til þess fyrir sig, að láta
hann njóta sannmælis nú.
Togararuir. Menja kom frá Eng-
lfindi í gærmorgun og Draupnir fer
til Englands í dag.
„Botnia“ fór til útlanda í gær-
kvöldi. Meðal farþega: Fenger stór-
kaupmaður og frú, Ólafur og Kjartan
Thors, Berrie stórkaupmaður, frú
Schpler, Daugaard-Jensen forstjóri
Grænlandsverslunarinnar, Capt. G. M.
Lloyd, Óskar Thorberg og frú og
Just forstjóri.
,.Island“ kom hingað í gærkvöldi og
lagðist fyrir utan garða vegna rúm-
leysis á höfninni, en farþegar voru
fiuttir í land á bátum. Meðal farþega
voru landshöfðingjafrú Elín Stephen-
sen, konsúlsfrú Sigurðsson, Dreesens1
prestur, frk. Sigríður Briem, frá Guð-
rún Þorkelsdóttir, frk. L. Þorkels-
dóttir, Ove Malmberg, Otto Malm-
herg og frú Malmberg, .sjera Jóhann
Þorkelsson dómkirkjuprestur, ungfrú
Sigríður Björnsdóttir, hr. Heine, hr.
Zesehner, Andersen fulltrúi, H. Zoega,
Mr. Hay, Smith, L. Rasmussen, Þórh.
Árnason, Carlquist. — Alls komu um
90 farþegar með skipinu hingað.
Misprentað yar í síðasta blaði götu-
númer heimilis gömlu brúðhjónanna
á Framnesvegi. Þar stóð 19 en átti
að vera 25.
——-----o---------
Nýkomnip
Járnvörudeild
Jes Zimsen.
Þakkanopð
Hjer in'eö færi jeg mitt innilej-
asta þakklæti öllum þeim, gír
styrktu mig, á einn eða anuaji
hátt, í veikindum mínum síðastj.
sumar, greiddu legukostnað mini
og gáfu mjer auk þess mikla pe*-
inga. Sjerstaklega vil jeg þakkji
hr. Jóni Guðmundssyni, -er gekgjt
fyrir samskotum meðal samverkj»-
fólks míns á Reykjarfirði, ski>-
stjóranum og skipshöfninni á mlfc.
Keflavík færi jeg og mitt bestfc.
þakklæti fyrir góða hjálp. E'nnig
þakka jeg af alhuga frú Magne^
Jensdóttur, Reykjavík, sem tóf:
litlu systur mína af mjer, er jejf
veiktist og hefir alið önn fyrii*
henni síðan. Öllu þessu góða fólkS
bið jeg algóðan guð að laun^
þegar því mest við liggur, af ríM-
dómi sinnar náðar.
Reykjavík 24. sept. 1922.
Guðrún Kristjánsdóttir.
BilEttE-rakujElar,
BillEÍtE-rakuÍElablDð,
ekta.
Já r n vörudeild
Jes Zimsen.
Kýp til sölu
Snemmbæra, miðsvetrarbæra,
og síðbæra; mörgum úr að veija.
Upplýsingar á Hverfisgötu 50.
Guðjón Jónsson.
Kensla.
Tek nokkur börn um 10 áraal**
ur í kenslu.
Guöný Jónsdóftir
frá Galtafelli, Skólavörðustig 17-
Þvottapottar
Balar, fötur
Kolakörfur á 7 kr.
Strákústar
Þvottabalar
Vatnsfötur
Skrúbbur
Sköft
Gólfmottur.
Jðrnvörudeild
Jes Zimsen.
Danskur saumur
frá 8/8” til 5” selur
Vepsl. Bpyrajo.