Morgunblaðið - 15.11.1922, Síða 2
MORGUNBLAÐIÐ
Nvkomið
falSegi úrval af
Enskum húfum.
Hönðum höttum
Linum höttum.
Silkihöttum.
lll.
London 20. okt.
Síðustu dagana hafa merk tíð-
indi gerst og hver viðburður-
inn rekið annan þangað til í gær,
að Lloyd George fór á konungs
fund og beiddist lausnar fyrir
sig og alt ráðuneyti sitt.
Ræða Lloyd George á laugar-
daginn var helsta umræðuefni
manna fyrstu daga þessarar viku.
Gladstone lávarður, sá sem L. G.
hafði mest vegið að í ræðu sinnL
svaraði á þriðjudaginn með óbóta
skammarræðu.Austen Chamherlain
barðist eins og hetja fyrir fram-
haldandi samvinnu milli stjórn-
arflokkanna, en svo daufar voru
undirtektirnar, að ekki þótti ann-
að fært en kalla alla þiiigmenn
íhaldsflokksins á fund til þess að
taka ákvörðiin um, hvort halda
skyldi áfram samvinnu við frjálsl.
flokk'nn eða ekki. Fundur þessi
var haldinn í gær í „The Carl-
ton Club“ og sóttu hann 274
þingmenn íhaldsflokksins, að með-
töldum ráðherrum þeim, sem
flokkurinn átti í stjórninni.
Fundurinn stóð í liðuga tvo
tíma. Töluðu þar með samvinnu
við frjálslynda flokkinn ráðherr-
arnir Chamberlain og Balfour
lávarður, en sjö menn töluðu á
móti, þ. á. m. Bonar Law. Við
atkvæðagreiðsluna urðu úrslitin
þau, að 187 atkv. voru greidd með
því, að samvinnunni yrði slitið
-og íhaldsflokkurinn gengi einn til
næstu kosninga, en 87 atkvæði
voru greidd á móti. Hafði Cham-
berlain þannig beðið mikinn ó-
sigur, og stjómarflokkurinn var
rofinn.
íhaldsmenn áttu 13 fulltrúa í
stjóm L. G., og af þeim voru
10 með því að slíta sambandinu,
en aðeins þrír á móti, nfl. Cham-
berlain, Balfour og Robert Horne
fjármálaráðherra. Undir eins eft- ]
ir fund'nn beiddust allir þessir (
ráðherrar lausnar. Lloyd George
fór þá á fund konungs og baðst (
lausnar fyrir alt ráðuneytið og
Tar hún veitt. Gegnir það þó
störfum áfram þangað til ný
stjórn er mynduð, en það mun
dragast nokkra daga.
Bonar Law var þvínæst kvadd-
ur á fund konungs og beðinn um
að mynda nýja stjóm. Taldi hann
ýms tormerki á því, en varð þó
við beiðn'nni. Verður á mánu
daginn haldinn fundur fyrir alla
þingmenn íhaldsflokksins — úr
báðum málstofum — og að þeim
fundi afstöðnum má búast við,
að nýja stjórnin hlaupi af stokk-
unum.
Fastlega er búist við því, að
Bonar Law muni rjúfa þingið og
efna til nýrra kosninga strax,
og að þær geti orðið um miðjan
nóvember. Síðustu kosningar til
enska þingsins fóru fram í des
ember 1918 og höfðu þá íhalds-
menn og frjálslyndir samvinnu í
kosningahríðinni, ásamt „national-
demokrötum“. Úrslit þeirra kosn-
inga urðu þau, að íhaldsmenn
fengu 338 þingsæti, frjálslyndir
137 en „demokratar“V 10, sv.o að
alls voru það 485 atkvæði, sem
stjórnin studdist við. í andstöðu-
fiokknum voru — þegar frá er
skilinn flokkur Sinn Feina, sem
aldrei hefir notað þingseturjett
sinn, og telur 73 atkvæði, verka-
menn sterkasti flokkurinn, þeir
fengu 59 atkvæði við kosning-
arnar. Alls töldust 222 atkvæði
í mótflokki stjórnarinnar. Þessar
tölur hafa breytst nokkuð síðan,
bæði við aukakosningar og vegna
þess, að þingmenn hafa Korfið úr
einum flokki í annan.
Ýmsar breytingar hafa orðið á
stjórn þe'rri, sem nú hefir sagt
at’ sjer, síðan hún var mynduð,
að afstöðnum kosningum 1918. T.
d. var Bonar Law fjármálaráð-
herra hennar og forseti neðri mál-
stofunnar, síðan tók Chamberlain
við fjármálaráðherrastarfinu, en í
marz 1921 hvarf Bonar Law al-
gerlega úr stjórninni vegna heilsu-
brests, en Chamberlain varð for-
seti neðrr málstofunnar og Sir
Robert Home fjármálaráðherra.
Ári eftir ófriðarlokin var ráð-
herrum fækkað að miklum mun,
og alls voru í ráðuneytinu 19 menn
ei það sagði af sjer.
Við kosningar þær, sem nú fara
i hönd, verður aðstaðan alt önn-
ur, en í des. 1918. í fyrsta lagi
breyt'st tala þingmanna neðr't mál-
stofunnar við það, að Suður-
írland er orðið sjálfstætt ríki.
Fækkar þingmönnum um nálægt
100 við þá breytingu. Og í öðru
lagi ganga nú flokkar þeir, er
undanfarið hafa stutt stjórnina,
hvor öðrum andstæðir t:l kosn-
inganna. Verða það því þrír
aðalflokkar, sem éigast við í
hverju kjördæmi: íhaldsmenn,
frjálslyndir og verkamannaflokk-
urinn. Óttast margir, að þrískift-
in<Vin verði vatn á myllu verka-
n'annaflokksins, og það var eitt
af aðalrökum Chamberlains fyrir
framhaldj samvinnunnar millj í-
haldsmanna og frjálslyndra. •
Verkamenn láta digurbarkalega
og þykjast ætla að v:nna mikinn
sigur. Segjast þegar hafa full-
ráðið um frambjóðendaefni í 400
kjördæmum. Konur verða mjög
margar í boði við kosningarnar
og flestar þeirra eru taldar til
verkamannaflokksinns. Um horf-
ur í kosningunum er annars fátt
hægt að segja. Ganga má að vísu,
að einkum verði baráttan milli
íhaldsmanna og verkamanna, en
að frjálsl. flokk. missi allmik'ð af
þeim þingsætum er hann heldur
nú. Sundurlyndi það, sem verið
hefir innan flokksins um nokk
um tíma hefir áreiðanlega veikt
hann að mun. En skyldi svo fara,
að eigi hallaði á hann við þess
ar kosningar, þá er það eingöngu
verk Lloyd George næstu vik
urnar, sem þar ríður baggamun-
inn. Hann er þegar byrjaður í
kosningabaráttunni. í dag fór
hann til Leeds og á að hialda þar
eina af sínum stóru ræðum á
morgun. Á leiðinni þangað talaði
hann á fimm stöðum, aðeins fá-
einar mínútur á hverjum og þóttu
ræður hans á þessu ferðalagi
fyllri af fjörj og fyndni en nokk-
urn tíma áður. „Þeir hafa ljett
af mjer klyfjunum, svo að nú á
jeg hægra með að halda sverð-
inu en áður. Og það skal sjást,
að það verður notað“. Síðasta
stjómarverk hans var að halda
ræðu fyrir prinsinum af Wales
í morgun, á móttökuhátíð, sem
prinsinum var haldin af borgar-
stjórn Lundúnaborgar, til þess
að bjóða hann velkominn heim
úr förinni til Indlands. Var þar
saman komið flest stórmenni, þar
á meðal allir „dumpuðu“ ráð-
herramir, en ekki þótti liggja eins
vel á neinum, og Lloyd George.
Lloyd George
Lloyd George hefir á síðustu
árum tvímælalaust verið voldug-
asti maður heimsins. Hann hefir
verið valdamesti maður stærstu
ríkjasamsteypunnar í heiminum og
hann hefir látið meira til sín taka
um mál Evrópuþjóðanna síðustu
árin en nokkur maður annar.
Æfiferill hans er eftirtektar-
verður. Hann hafði engin arfgeng
völd eða auðæfj að styðjast við,
og það er umkomulaus unglingur,
sem komist hefir til æðstu valda
heimsveldisins bretska. Hann er
fæddur í Manchester 1863 og var
faðir hans skólakennari þar, en
dó skömmu eftir fæðingu L. G.
Var hann þá tekinn til fósturs af
föðurbróður sínum, Richard Lloyd
sem átti heima í þorpinu Llamyst-
umdwy í Wales. Var hann sko-
smiður og átti við fátækt að búa,
svo mikla að Lloyd George svalt
oft heilu hungri í ungdæmj sínu.
Samt gat L. G. aflað sjer tölu-
verðrar mentunar og varð hann
lÖgmaður. Hann 1 jet brátt til sín
taka um stjórnmál, og árið 1890
bauð hann sig fram til þings í
kjördæminu Carnarvon, aðeins 27
ára gamall, og náði kosningu með
aðeins 18 atkvæða meiri hluta.
Hefir hann ávalt verið þingmaður
þess kjördæmis síðan.
Eigi bar neitt á L. G. í þinginu
fyrsta kastið. En þegar frjálsr
lvndi flokkurinn komst til yalda
árið 1892, hafði Asqu:th lagt fyrir
þingið frumvarp, sem sjerstak-
lega varðaði hagsmuni Wales, en
L. G. líkaði það ekki og gerðist
talsmaður fyrir breytingum. Var
það í fyrsta sk'fti sem nafns hans
gætti nokkuð í þingsögunni, Eftir
það gætti hans jafnan mikið, og
þegar stjórnarskiftin urðu árið
1905 og Campbell Bannermann
myndaði stjórn, varð Lloyd Ge-
orge verslunarmálaráðherra og
þótti reynast með afbrigðum vel
j embættinu.
Þegar C. B. Ijet af embætti
1908 og Asquith myndaði ráðu-
ceyti sitt, varð L. G. fjármála-
ráðherra. Hið merkasta af verkum
h&ns frá því tímabili eru lögin
um almennan lífeyri, frá 1911. —
1
Hann var fjármálaráðherra þar t:l,
fyrsta samsteypuráðuneytið var!
i
myndað 1915, en þá tók hann við
hergagnaráðuneytinu, sem þá var
nýstofnað. En í júlí 1916 varð
hann hermálaráðherra. Þá um
haustið, í desember mánuði varð
Asquith að láta af völdum og
konungur bað þá Bonar Law að
mynda nýja stjórn. Hann vísaði
frá sjer og til L. G. Og úrslitin
urðu þau, að Lloyd George mynd-
aði annað samsteypuráðuneytið, og
síðan, eftir kosningarnar 1918, hið
þriðja. Hefir hann þannig verið
forsætisráðherra Breta í nærfelt 6
ár, gegnt hinum vandasömustu
störfum að kalla má öll ófriðar-
ár:n, og átt sæti í bretsku stjóm-
inni síðan 1905.
Þegar saga undanfarandi ára,
mestu erfiðleikaáranna, sem heim-
urfnn hefir þekt, verður rituð,
mun þar e:gi minst annara manna
meira en L. G. Eigi hafa meiri
nje erfiðari viðfangsefni fallið í
hlut nokkurs manns en hans. Og
hann er sá e’ni, sem sætt hefir
verið af stjórnmálaforkólfum stór-
þjóðanna þangað til nú. Hann sat
við stjórnvöl Breta þegar mest
reyndi á í ófriðnum, hann sat á
friðarfundinum í Versailles og
hann hefir síðan haft það vanda-
sama hlutverk að milda dóm:nn
frá Versailles og verja Þýska-
land hruni. Samtímis þessu hefir
honum — vonandi — tekist að
leiða til lykta mesta vandamál
Englendinga, og koma á sættum
m:lli þeirra og íra.
Eftirtektarverðir em dómar út-
lendu blaðanna um L. G. í tilefni
af fráf'ör hans. Þýsku blöðin lofa
hann fyrir síðustu tveggja ára
framkomu hans, en hafa þó margt
að honum að finna. Poincaré for-
sætisráðherra Frakka hefir farið
mjög lofsamlegum orðum um L.
G. og hrósað honum fyrir frá-
bæra stjórnvitsku. En frönsku
blöðin hafa að kalla má öll rekið
upp gleðióp, yfir því að Lloyd
George skuli vera farinn frá. —
H'ns vegar telja blöð Ameríku-
manna það mikið mein, að hann
skuli hafa mist völd, og telja
vandfenginn mann í hans stað, og
úr lýðríkjum Breta berst mikið af
saknaðarkveðjum.
Bonar Law.
Þegar hann sagði af sjer ráð-
herraembætti fyr:r rúmu ári,
bjuggust flestir við, að hann
mundi aldrei riðinn við opinber
mál framar. Heilsa hans var þá
orð'n mjög veil. Hann er fimm
árum eldri en L. G., eða 64 ára.
Er hann prestssonur og fæddur í
New Brunsvick í Canada, en fór
til Skotlands 16 ára gamall og
gerðist verslunarmaður. Rak hann
síðan kaupsýslu í fjelagi við
frænda sinn í Glasgow og auðg-
aðist. En árið 1900 byrjaði hann
að gefa sig við stjómmálum. —
Hann var kosinn á þing það ár,
sem fulltrúi íhaldsmanna fyrir eitt
af kjördæmum Glasgow og fyrsta
ræða hans varð til þess að vekja
athygli á honum. Var ræðan svar
til Lloyd George. Hann varð versl-
unarráðherra í stjórn Balfour ár-
ið 1902 og hjelt því embætti þang-
að t' lráðuneytið sagði af sjer 1905
Næstur verslunarmálaráðherra eft-
ir hann varð Lloyd George. Bonar
Law misti þingsæti sitt í Glas-
gow við næstu kosningar, árið
1906, en varð þingmaður v:ð auka-
kosningar í ‘ öðru kjördæmi
skömmu Súðar. Við kosningarnar
1910 fjell hann einnig, en árið
eftir náði hann aftur þmgsæti.
HSSðKBRj
qtp
f konungl. hirðsall.
Vallarstræti 4. S í m i 1 5 3
(tvær línur).
Nýjar braudtegundir:
Birkisbrauð,
Rúsinubrauð,
Súrbrauð (kringlótt),
Smjörbirkis.
Reynið þessar nýju tegundir.
Vienerbrauð,
Rúndstykki,
Kruður,
kl. 8. á hverjum morgni.
Bragðbest með
morgunkaffinu.
Borðið innlenda
Kexið
raikið ódýrara, en þ ið útlenda,
og ávalt ferskt
Reynið blandaða Konfektið.
Bæjarins ódýrasta KO ÆEKT
s e 1 u r
Björnsbakarí
Árið 1911 var misklíð mikil
innan íhaldsflokksins um það,
hvort kjósa skyldi Walther Log
(nú lávarð) eða Austen Chambér-
lain fyrir foringja flokksins. En
því varð afstýrt og urðu flokks-
brotin bæði sammála ,um að velja
Bonar Law til foringja. Þótti
hann síðar ágætlega vaxinn starfi
sínu og vinsælli foringja hefir
íhaldsflokkurinn tæplega átt nokk-
urn tíma. Þegar ofriðurinn hófst
rjeði hann og foringi íhaldsmanna
í efri málstofunni, Landsdowne lá-
varður því, að íhaldsflokkamir
ákváðu að styðja stjórn Asquith og
urðu þeir báð'r meðlimir í fyrstu
samsteypustjórninni. Bonar LaW
varð einnig ráðherra í öðru sam-
steypuráðuneytinu og hlóðust þá
mörg störf og mikilvæg á herðar
hans. Hann var einn af fulltrú-
um Breta á friðarfundinum í
Versailles og mörg fleiri trúnað-
arstörf voru honum falin. Var
hann talinn meiri önnum hlaðinQ
en flestir ef ekki allir ráðherr-
ar Bretlands og Lloyd George
taldi hann einn þeirra manna,
sem síst mætti missast. f fyrra-
vor þegar hann sagði af sjer
ráðheraembætti og ljet jafnfraint
af foringjastörfum fyrir íhalds-
fiokkinn, fjekk hann einlægari
kveðjur þings og stjórnar, en tí^
er við slík tækifæri.
Síðan þá hefir íhaldsflokkuriu11
i rauninni verið höfuðlaus her of
enginn hefir verið kjörinn fof'
ingi hans. Á mánudag'nn kemur
heldur flokkurinn fund og þá
að kjósa formlega foringjann, e£
gefa honum umboð til þess a
mynda, stjórn. Foringjaefnið ef
sami maðurinn 'sem sagði af sjef
starfinu í fyrravor vegnn þesS
að hann væri þrotinn að heiF11
— Bonar Law. Nýi forsætii^