Morgunblaðið - 20.12.1922, Síða 3
Athugið.
Hveiti Gold Medal 0.60 pr. kg.
— ágœt tegund 0.55 — —
Grjón Btór oggóð 0.55 — —
Haframjöl. 0.55 — —
Kartöflumjöl. Sagögrjón.
Þurkaðir ávextir, svo sem:
Epli. Apricots. Rúsínur og Sveskjur.
Hvergi ódýrara.
Alt sem nauðsYnlegt er til bökunar.
Alt sem nauðsynlegt er í góðan
jólamat.
10—15% afsláttur af öllum niðursuðuvörum.
Eingöngu góðar vörur.
l5nngiQ í síma 228 ag uörurnar uaröa sandar hEÍm tafarlaust.
Verslunin Vaðnes.
Sími 228. Sími 228
JJgúsí & Co.
hafa flutt brauðgerðarhús sitt á
Skólavörðusfig 28.
Framleiðum eins og áður allar venjulegar brauð-
legundir. Einnig kökur, tertur, deserta, kex, kon-
fekt, Marzipan og margt fleira. Tekið á móti j áia-
pöntunum i sima 243 og 978.
N.B. Búð okkar í Þingholfssfræti 23 er
opin eins og áður.
stjórnarskiftin í Þýskalandi eigi
dr júgan þátt í stefnubreytingu
Ameríknmanna. Nýji kanslarinn
dr. Cuno, mun hafa verið valinn
til stjórnarformensku með tilliti
til Ameríkumanna fyrst og fremst.
Bnginn Þjóðverjj hefir meiri til-
trú á Bandaríkjunum en hann,
og starfsemi hans í Harrimans-
fjelaginu, sem byggist á samvinnu
Þjóðverja og Ameríkumanna nm
siglingar, hefir orðið til þess að
auka álit hans, eigi aðeins í
Bandaríkjunum heldur einnig í
JBretlandi.
— ' 1 V""*——1
Dagbók
Næturlæknir: Gunnlaugur Einars-
son. Yörður í Rekyjavíkur-apóteki.
Happdrætti. Með hverjum pakka af
litunar- og þvottaduftinu „Rinso“
og „Twink“ fylgir happdrættismiði.
Yerður dregið um vinningana 30. þ.
mánaðar og eru þeir hinir eigu-
legustu, þar á meðal matar-„stellf<
fyrir sex manns. Er hver síðastur
að ná í miða.
Saltskip, er Agnete heitir, kom
nýlega hingað til H. Benediktssonar &
Co. Kom það frá Spáni, og var því
rannsákað ítarlega af lækni, vegna
Svartadauðans þar syðra. En alt
reyndist þar ósjúkt og er skipið nú
komið upp að uppfyllingu og farið
að afferma það.
„Geir“, björgunarskipið, fór norður
til Reykjaf jarðar í þeim erindum
að ná út „Fillefjeld“, er þar strand-
aði fyrir skömmu. Telja menn lík-
legt, að skipið muni haldast óbrotið,
því gott hefir verið í sjóinn.
Kaupmannafjelagið heldur fund í
kvöld kl. 8l/2 í húsi Eimskipafje-
lagsins.
Gullfoss fer hjeðan til útlanda á
morgun kl. 12., en kernur við í
Hafnarfirði og mun ekki fara það-
aii fyr en kl. 7 um kvöldið.
Goðafoss fer frá Kaupmannahöfn
22. þessa mánaðar og á að vera
hjer 4. janúar. Kemur norðan og
vestan um land.
•9" 1 ---
Frá elliheimilinu.
Á morgun flytst hingað 18. kon-
an og er þá heimilið fullskipað með
4 körlum og 18 konum. Fyrst í stað
!var aiimt gamlaf ólkið hikandi við að
sumt gamla fólkið hikandi við að
fara að Grund, en nú fá það
færri en vilja; þrjár báðu t. d.
um síðasta rúmið. Meiri hlutinn
er „Reykjavíkurhúar“, og alt
hefir það dvalið hjer í bæ að
undanförnu nema Sigurður bók-
sali Erlendsson, sem dvalið hefir
í Skagafirði nokkur ár, en hað
um að komast að Grund, jafn-
sbjótt og hann frjetti um heim-
ilið -— og er nú nýkominn að
norðan.
MORGUNBLAÐIÐ
fiangikiötið
okkar mælir meö sjer sjálft. —
Komið og sannrærist.
Versl. jlfaðnes*.
Sími 228. Sími 228
PegsulHMMi
margar íegunöir
nýkomið
Helgi Jónsson
Þar eð mörgnm leikur hugur
á að vita eitthvað nm fólkið og
hvernig því líður, skal þessa get-
ið:
Tvær kqnur eru komnar yfir
nírætt, en hafa báðar ferlivist.
Hitt langflest frá 70 að 90 ára
aldri. Tvær eru alveg rúmfast-
ar og hafa verið lengi, tvær með
hækjur, einn blindur, og margt
af hinu fólkinu með ýmsa ellilas-
leika, t. d. ekki nema 4 eða 5,
sem sjá á hók. Þykir heimilisfólk-
inu því mjög vænt nm þá gesti,
sem lesa „eitthvað fallegt“ fyrir
það. — Konurnar geta allflestar
X>rjónað og sumar spunnið, og
mega þær auðvitað eiga þá vinnu
sína. En oflítið mnnu þær flest-
ar eiga af ull og bandi, og lítið
að kaupa fyrir; ein þeirra kvaðst
ekki hafa eignast „svo mikið sem
tiu aura í peningum“ undanfarin
ár, og ekki gat önnur frímerkt
brjef, sem hún þurfti að senda
norður. Og sumt var æði klæðlítið
er það kom.
En þrátt fyrir erfiðleika fátækt-
ar og elli, er þó hlakkað til jól-
anna á Grund „eins og á hinum
bæjunum't.
Ef einhver, sem þetta les, vildi
hjálpa til að efla jólagleði gamla
fólksins eða hengja eitthvað á
jólatrje þess, er hann vinsamlega
heðinn að snúa sjer til gjaldkera
heimilisins, Haraldar kaupm. Sig-
urðssonar, sem fyrst.
Af því að þess hefir orðið vart,
að sumir bæjarbúar halda að all-
ir fjárhagserfiðleikar heimilisins
hafi horfið, er .bæjarsjóður veitti
því þrjú þúsund kr., þá ér rjett
að geta þess, að heimilið skuldar
enn töluvert á 6. þúsund af stofn-
kostnaðinum (umhætur hússins,
búsáhöld og matvælakaup). —
Því fyr sem hægt er að greiða
þær skuldir, því rneiri afsláttur
fæst á sumum reikningunum. —
Ánægjulegast væri að geta jafnað
alla reikningana fyrir áramót, en
af því að hæjarhúar hafa í svo
mörg horn að líta, þorum vjer
varla að vonast eftir því. En auð-
vitað lagast það alt í vetur, því
að bæjarbúum þykir vænt úm
heimilið.
Það þarf væntanlega ekki að
hæta því við, að alveg eins og
vjer tjáðum hæjarstjórn, að henni
væri heimilt að láta skoða reikn-
inga heimilisms hve nær sem væri,
þá er sama heimild veitt hverj-
um öðrum styrktarmanni heimil-
isins. — Þar gildir alveg sama
regla og um samverjann: við-
skiftahækur og reikningar til sýn-
is öllum stuðningsmönnum.
Ási, 19. des. 1922.
S. Á. Gíslason.
- -———o—---------
Kaffistellin kínversku. Jólaluktirnar. Jólakonfekt-
pokarnir. JólaSöberarnír. Jólatrjesskrautið.
Þetta er alt ó förum i A B C Bazarnum.
Happadrættismiðl i kaupbæti.
Langamma
dansar
af kœti eftir að hafa valið jólagjafir f
Leikfangabúðinnij Aðalstræti 8.
Nýjar úrvalsvörur komu með Gullfossi.
Hraðið kaupum yðar. — Börnin þrá leikföngin úr
Leikfangabúðinni, Aðalstrseti 8«
E.s. Suðurlanö
fer til Borgarness
á morgun kl* 8 árdegis.
þegar kaffið er keypt i
„ÍRMA“.
Hafnarsír. 2 2. Sími 2 23
Diörnsbakan
GLEYMIÐ EKKI
AÐ KAUPA JÓLAMARSIPAN-
IÐ OG KONFEKTSKRAUTÖSKJ-
URNAR ÞANGAÐ TIL Á AÐ-
FANGADAGINN, ÞVÍ ÞÁ GET-
UR ALT VERIÐ UPPSELT.
Komið i dag meðan
nóg úrval er til i
Björnsbakaríi
Vallarstræti 4. Sími 153.
(Tvær línur).
Konfekt
skrautöskjur í heild- ‘og
smásölu, fyltar og ófyltar,
selur ódýrast
Björnsbakarí.
Pistkort
E.s. GULLFOSS
fer hjeðan áleiðis til útlandsj
á morgun (fimtudag 21. desem-
ber) kl. 12 á hádegi.
Skipið fer frá Hafnarfirði sama
dag kl. 7 síðdegis.
Frá Kaupmannahöfn fer skipið
aftur 7. janúar um Leith, til
Reykjavíkur, vestur og norðurtil
útlanda. í
CACHEMIRESJÖL
nokkur stykki komu
með Gullfossi tíl
V. B. K.
Kaupmenn:
Til þess að búast við góðum
árangri af vörusýningu yðar,
þurfa gluggamir að vera vel hrein
ir - utan og innan. Til að halda
gluggunum þurum og hreinum að
innan, þurfið þjer að hafa raf-
magns
gluggaofn.
Aðeins fá stykki eftir.
ódýrust og í rnesta úrvali í
'ii. sueinoi
Rafmiansfjei: li s w
Laugaveg 20B.
Sími 830.