Morgunblaðið - 13.02.1923, Qupperneq 1
Stofnandi: Vilh. Finsen. ' LANDSBL AÐ LÖGRJETTA. Ritstjóri: Þorst. GíslasóW.
10. árg. 83. tölubl.
þrlðiudaainn 13. febrúar 1923.
mi Gamla Bíó messaa
M gg geiall
Sjónleikur í 5 þáttum frá
U. F. A. Berlin.
Sagan gjörist í Hollandi;
myndin erfalleg og spenn-
andi, efnið er hrífandi.
Aðalhlutverkið leikur:
Loite Geumann og
'Aifons Fryiand.
Hjer í bænum hefur verið prent-
araverkfall frá byrjun ársins og
fram til þessa. Var ósaraið um
kaup prentara í ársbyrjun, og er
samningar skyldu frarn fara eftir
áramótin, náði3t ekki samkomu-
lag.
í sumar, sem leið, var nefnd
kosinn til þess að undirbúa samn-
inga um prentaralaun frá byrjun
þessa árs. í henni voru 3 full-
trúar frá prenturum, 3 frá prent-
smíðjueigendum og 3 frá aðal-
viðskiftamönnum prentsmiðjanna,
kosnir af Blaðamannafjelaginu,
Bóksalafjelaginu og landstjórn-
inni.
Lágmarkskaup prentara fyrir
striðið var 1040 kr. á ári. Nefnd-
armönnum kom saman um, að
það hefði verið of lágt. En þar
sem prentarar höfðu farið fram
á það 1914, að fá kaupið hækk-
að um 33°/0, lagði nefndarhluti
viðskiftamanna það til.að til grund-
vallaryrði lagt 1400 kr. lágmarks-
kaup fyrir árið. Nefndarhl. prent-
Bmiðjueigenda var þessu sam-
þykkur. Frá hálfu prentara var
lögð fram sundurliðuð kostnaðar-
áætlun um framfærslu heimilis
með 5 manna fjölskyldu og hjeldu
þeir fram, að kaupið ætti sam-
kvæmt henni að vera 5413 kr.
96 aur., en það svaraði til 1800 kr.
árskaups fyrir 1914.
Prentsmiðjueigendur hjeldu nú
um áramótin fram 1400 kr. grund-
vellinum, og verður þá lágmarks-
árskaupið 4214 kr. Síðattliðið ár
höíðu prentarar 5200 kr. lág-
markskaup og hjeldu fram, að
það hjeldist óbreytt, en prent-
smiðjueigendur 19% lækkun.
Nokkrar aðrár tillögur um breyt-
ingar á áðurgildandi samningum
komu fram frá báðum aðiljum,
svo sem um niðurfellingu sumar-
leyfis og veikindastyrks, frá hálfu
prentsmiðjueigenda, og um tak-
mörkun á notkun setjaravjela,
20% hækkun á lágmarkskaupi
vjelsetjara, þrenging á lærlinga-
töku og fleira, frá hálfu prentara.
Stóð nú svo fram í febrúar, að
allar prentsmiðjurnar í bænum
voru lokaðar og ekkert prentað.
Dagblöðin komu út vjelrituð og
prentuð i margföldunarvjelum.
En 5. febr. kom Alþúðublaðið út
prentað. Stóð svo á því, að tveir
menn úr Prentarafjelaginu höfðu
leigt gamla prentsmiðju, sem var
einstaks manns eign og staðið
hafði ónotuð, og prentuðu blaðið
þar.
Prentarafjelagið bannaði 2. jan.
öllum meðlimum sínum að vinna
í prentsmiðjum meðan á verk-
fallinu stæði. Þessir fyrnefndu
tveir menn brutu því það bann
með því að leigja þessa prent-
smiðju. Ennfremur voru samn-
ingar til um það milli prent-
smiðjueigenda og prentarafjelags-
ins, að meðlimir fjelagsins mættu
ekki vinna í prentsmiðjum, sem
stæðu utan við samband það,
sem prentsmiðjueigendur hjer
höfðu stofnað sín í milli. Kröfðust
þá prentsmiðjueigendur að anuað-
hvort yrðu þeesir tveir menn
reknir úr Prentarafjelaginu eða
þá að þeir hættu við fyrirtæki
sitt, og einnig kröfðust þeir að
rekinn væri úr fjelaginu einn
maðurinn úr kaupsamningsnefnd
þess, Hallbjörn Halldórsson, rit-
stjóri Alþýðublaðsins, sem riðinn
væri við þetta tilræði við prent-
smiðjurnar er framið væri meðan
samningstilraunir stæðu yfir.
Landstjórnin hafði þá fyrir
nokkrum dögum tekið að sjer
milligöngu í málinu og höfðu
nefudir frá prentsmiðjueigendum
og Prentarafjelaginu komið sam-
an hjá atvinnumálaráðherra til
þess að reyna að jafna úr ósam-
komulaginu, en þetta tiltæki
nokkurra manna úr Prentarafje-
laginu var til þess, að samnings-
tilraunirnar fjellu niður, með þvi
að Prentarafjelagið varð ekki við
þeim kröfum, að vísa hinum brot-
legu mönnum burt úr fjelaginu,
eða að lýsa vanþóknun sinni á
gerðum stjórnar sinnar fyrir að
hafa gert samning við hina brot-
legu meðlimi sína í stað þess að
refsa þeim, eins og lög stóðu til.
Hefur síðan orðið samkomulag
um það, meðal prentsmiðjueig-
enda, sem svar við útkomu Al-
þýðublaðsins, að drengir þeir,
sem í prentsmiðjunum vinna, en
ekki eru útlærðir og því ekki
meðlimir Prentarfjelagsins, skuli
vinna að því, að koma blöðunum
út, og á þennan hátt getur nú
Mrg.bl. aftur komið út sett og
prentað eins og venja er til.
Nú eru samningatilraunir hjá
atvinnumálaráðherra teknar upp
að nýju og er þess vænst að þær
leiði tíl samkomulags áður langt
pm líður.
j Frásagnir Alþýðublaðsins um
prontaraverkfallið hafa að ýmsu
leyti verið rangar og villandi og
allar miðað í þá átt, að spilla
samkomulagi. En hjer hefur ver-
ið sagt hlutdrægnislaust frá mála-
vöxtum.
Helstu frjettir
sem blrst hafs i i/lorgun-
bl. siðan um áramót.
Nýárssundið, sem fram hef-
ur farið undanfarin ár hvern ný-
ársdag, fór fram 1. jan. s.l. Synt
var 50 metra vegalengd. Þátt-
takendur voru 8. Tveir af kepp-
endum voru jafn fljótir, Jón Páls-
son og Óskar Bergmann. Syntu
þeir vegalengdina á 37 sek.
Bæjarstjórnarkosningar
fóru fram í fjórum kaupstöðum
á landinu rjett eftir áramótin,
á Isafirði, Siglufirði, Akureyri ög
Seyðisfirði. Á ísafirði voru 2
fulltrúar kosnir af verkamanna-
lista, Finnur Jónsson póstm. og
Haraldur Guðmundsson banka-
gjaldkeri, en 1 af borgaralista,
Björn Magnússon símastjóri. Á
Siglufirði höfðu einnig komið
fram 2 listar, annar frá borgur-
um og hinn frá verkamönnum
og hafnarnefnd í sameiningu. Af
borgaralistanum var kosinn sjera
Bjarni Þorsteinsson, en 2 af hin-
um, Helgi Hafliðason kaupm. og
Flóvent Jóhannsson. Rjett er að
geta þess, að Helgi Ilafliðason er
í beinni andstöðu við verkamenn
í öllum aðalmálum, og hafa verk-
amenn þvi ekki komið nema ein-
um fulltrúa að. Á Akureyri voru
6 fulltrúar kosnir, 4 til 6 ára en
2 til 4 ára. Við kosningarnar
til 6 ára komu fram 5 listar.
Listi verkamanna kom að ein-
um manni, Erl. Friðjónssyni,
annar listinn, sem studdur var
bæði af verkamönnum og borg-
urum, kom og að 1, Sveini Sig-
urjónssyni kaupm. Kvennalisti
hafði komið fram og kom engum
að. Sömuleiðis fór um lista
kaupfjelagsmanna Var enginn
kosinn af honum. Borgaralistinn
kom aftur á móti að 2 fulltrúum
Steingrimi Jónssyni sýslum. og
Óskari Sigurgeirss vjelfr. Við
kosningu tveggja fulltrúanna til
4 ára komu fram aðeins 2 listar.
Verkamannal. kom engum að, en
borgaralistinn 2 fulltrúum, Jakob
Karlssyni kaupm. og Kristjáni
Árna»yni kaupm.
Á Seyðisfirði voru kosnir Karl
Finnbogason og Jón Sigurðsson
kennari, sein taldir eru utan
fiokka, og Otto Wattne af borg-
aralistanum.
Bankastjóraskiffti urðu i
íslandsbanka 1. þ. m. Viku þeir
úr banka8tjórniimi H. Tofte og
Hannes Thorsteinsson. Nú mjög
nylega liafa verið settir í stöð-
urnar Jens Waage bankabókari
og Oddur Hermannsson skrif
stofustjóri.
HeiduFsmat'kL 13. desbr.
sæmdi lconungur eftirtalda menn
stórkrossi og riddarakrossi Fálka-
orðunnar: Stórkrossi Kristján
Jónsson dómsstjóra hæstarjettar,
en riddarakrossi Knud Zimsen
borgarstjóra, Þórunni Björnsdótt-
ur ljósm. í Rvík/'O. C. Thoraren-
sen fyrv. lyfsala, E. Nielsen
framkv.stj, E. Laxdal kaupm.,
Stefán Th. Jónsson- kaupm. á
Seyðisfirði, Sæmund Halldórsson
kaupm. í Stykkishólmi, Pjetur
Oddsson kaupm. í Bolungarvik,
llalldór Jónsson umboðsmann i
Vík í Mýrdal, Magnús Benja-
mínsson úrsmið í Rvik, Sölva
Vigfússon hreppstj. á Arnheiðar-
stöðum, Eyjólf Guðmundsson
hreppstj. í Hvammi á Landi,
Magnús Bergmann hreppstj. I
Fuglavík, Árna Þorkelsson hrepp-
etjóra á Geitaskarði, Guðm. A.
Eiríksson hreppstj. á Þorfinns-
stöðum og 'J. P. Hall hreppstj.
á Starmýri.
Skemdir á Reykjavikur-
höfn. IVIanntjón og skips-
skaðar. Aðfaranótt sunnu-
dagsins 14. janúar gerði hjer
sunnanlands eitthvað hið mesta
ofviður á útsunnan, er komið
hefur um langt skeið. Gerði
veðrið hinn mesta usla á hafnar-
virkjunum og skipum, er á höfn-
inni lágu. Hrundi annar garð-
urinn, örfiriseyjargarðurinn, á
löngu svæði. Bryggjur sködduð-
ust og allmikið. Skip, sem á
höfninni lágu, ýmist sukku eða
ráku út af höfninni og strönduðu.
Björgunarskipið »Þór* rak inn á
Kirkjusand. Náði »Geir» honum
út nokkru síðar, ekki mikið
skemdum. 3 eða 4 skip brotnuðu
allmikið. Einn vjelbátur »Óskar»
sökk við nyrðri garðinn. Voru
á lionum 4 menn. Björguðust 2
af þeim, en hina þvoði sjórinn
af hafnargarðinum. Af milli 10
og 20 prömmum, sem voru á
floti fyrir óveðrið, voru aðeins 4
á floti eftir að þvi slotaði. En
þeim hefur flestum verið náð
upp aftur.
í Hafnarfirði sleit upp tvo
báta og rak þá á land. Brotnaði
annar í spón. í sandgerði rak
einnig tvo báta á land. Annar
ónýttist. í öðrum verstöðum suð-
ur með sjó urðu ekki neinar
skemdir. I Vestmannaeyjum fauk
þak af tveim húsum.
Ýms önnur spell urðu af völd-
um veðursins, svo sem símslit
nálega um land alt og bilun á
Loftskeytastöðinni hér, sem gert
var þó við bráðlega.
Mest manntjón varð á Sandi
á Snæfellsnesi. Hrundi þar brim-
brjótur og rak þá 3 vjelbáta á
land. En við björgun á þeim
druknuðu 5 menn.
Daginn eftir ofviðrið var dreg-
inn inn á Reykjavíkurhöfn ensk-
ur togari reykháfslaus og mjög
skemdur að öðru leyti. Hafði
hann mist 3 menn í fárviðrinu.
Um svipað leyti komst annar
enskur togari inn á Patreksfjörð
mjög mikið laskaður. Hafði hann
mist einn mann.
leikur aðalhlutverkið í þess-
ari mynd, sem er í 3 afar-
spennandi pörtum (12 þættir).
I. kafli:
PHnsessan af Livonia
sýndur í kvöld í síðasta sinn.
Hjer fara saman æfintýri,
rómantik og afburða kraftar.
Þetta er án efa sú langbesta
mynd, sem Maci ste hef-
ur leikið í.
Sýning kl. 9.
Eftir því sem menn vita best,
hefir þetta ofsaveður kostað 11
menn lífið hér við land, 7 íslend-
inga og 4 Englendinga.
Fisksalan. Síðast i fyrra
mánuði hjelt stjórn Landsbankans
fund raeð fiskútflutningsmönnum.
Var þar rædd uppástunga frá
bankanum um að skipuð væri
einskonar nefnd af útgerðar-
mönnum, til þess að hafa eftirlit
með fiskútflutningum og annast
þá. Var nefnd kosin á fund-
inum til þess að íhuga þetta
mikilsverða mál og skipa hana
Olafur Thors, Ásgeir Sigurðsson,
Jón Bergsveinsson, Ágúst Flyg-
enring og Carl Olsen.
Hafis sást í lok janúarmán-
aðar undan vestfjörðum. Rak
jafnvel nokkra jaka inn á firð-
ina. En engin teppa varð af ís
í siglingum með fram fjörðunum.
Brá þá litlu siðar til landáttar,
og hafa engar ísfregnir heyrst
síðan.
Embættispi*óf við háskól-
ann hafa staðið yfir síðan um
raánaðamót. Undir lögfræðispróf
ganga Kristinn Ólafsson og Stefán
Stefánsson frá Fagraskógi, undir
próf í íslenskum fræðum Pjetur
Sigurðsson og Vilhjálmur Þ. Gísla*
son, er það fyrsta prófið í íslensk-
um fræðura sem haldið er við
háskólann. Guðfræðispróf taka
Ingólfur Þorvaldsson, Ragnar
Ófeigsson og Þ. Þormar, og lækna-
próf Valtýr Albertsson Steingr.
Eyfjörð og Skúli V. Guðjónsson.
Embætti. Skrifatofustjóra al-
þingis, Einari Þorkellssyni hefir
verið veitt lausu frá embætti sök-
um heilsubrests. En í stað hans
hefir verið skipaður Jón Sigurðs*
son frá Kaldaöarnesi, sem lengi
hefir verið settur skrifstofustjóri.
Alþjóðalundup vísinda-
manna og kennara verður hald-
inn á vori komanda við Harward
háskóla. Ágúst H. Bjarnason
prófessor hefir verið boðið að
sitja þann fund.