Morgunblaðið - 03.03.1923, Síða 4

Morgunblaðið - 03.03.1923, Síða 4
MORGUNBLAÐIÐ inu; ■—TJt af þessn {irjefvsamþylíti nefndin að mæía irieð því við Intj- arstjómina, að fylgt yrö i fyrst um sinn sömn reglu í þessu éfni, sem upp var tekin í byrjun þessa skóla- árs, að bæjarsjóöur greiSi hálfan kostnað við stundakenslu í veikinda förföllum kennara, að því tilskyldu, að kennarinn leyfi, aS hinum helm- ingi stundakenslukostnaðarins sje haldið eftir við útborgun launa hans uni næstu mánaðamót, eða hafi greitt hann sjálfur áður. Þetta gildi um veikindaforföll alt aö 3 mán. en sjeu lengri forföll, komi til sjer- stök ákvöröun í livert skifti. Sam- þykti bæjarstjórnin þetta. Innlimun jarffa í Reykjavíkurbœ. í bæjarlaganefndinni hafði borg- arstjóri lagt fram brjef, er íiann haföi sent hreppsnefndum Seltjarn- arness- og Mosfellshrepps, og svar- hrjef frá oddvitum þessara hreppa, viðvíkjandi innlimun jarðanna Árbæjar, Ártúns, Breiðholts, Bú- staða og Eiöis í Keykjavíkurkaup- sfað. Höföu hreppsnefndirnar mót- mælt innlimunirmi, og vildu enga samninga gera um þetta mál. Á nefndarfundinum var frv. frá fyrra ári um að leggja þessar jarð- ir undir lögsagnarumdæmi og bæj- arfjelag Reykjavíkur, samþykt og afgreitt til bæjarstjórnair. 'Skýröi borgarstjóri frá því, að frv. hefði ; veriö lagt fyrir þing í fvrra og farið til allsherjamefndar Nd. En hún hefði fundið það að því, að ekki hefðí verið leitað samkomulags hjá hreppsnefndum Mosfells- og Sel- t jarnarnesshrepps. En nú hefði það ygrið gert, en árangurslaust, Las hann og ennfremur upp brjef, er fárrð hefðu milli hans og oddvita hreppsnefndanna, Kvað borgarstj. nú ekki annað liggja fyrir, en að leggja frv. enn að nýju fyrir þing- ið. Samþykti bæjarstjórnin það. Frumvccrp til reglugerðar fyrir alþýðubóka- safn Reykjavíkur var lagt fyrir fundinn. f stjórn safnsins hafa ver- ið kosnir Páll V. Ólason form., Bogi Óíafsson ritari, Guöm. Ásbjörnsson gjaldkeri og auk þeirra Hjeðinn Yaldimarsson og Ól. Friðriksson. P. H. vildi breyta nafni safnsins og nefna það bæjar-bókasafn í staðinn fyrir Alþýðubókasafn. Varð um það nokkurt karp milli hans og G. Ásbj. og jafnaðarmannanna í bæjar- stjórninni. Var tillaga hans um það feld. Tillaga um áfengisveitingar. Þórður Bjarnason reifði þá til- lögu. Kvað hann bæjarstjórn hafa samþykt það, er „Hótel ísland“ fekk vínveitingaleyfi, að fá breytt ákvæðum reghrgerðarinnar um það efni, að alþingiskjósendur í Rvík fengju að ráða því, hvort vínvéit- ingajíeyfi skyldi fást í bænum. En landsstjórn hefði, eins og kunnugt er, daufheyrst við þessu máli. Væri því ekki um annað að gera fyrir bæjarstjórnina en að sníia sjer til þingsins um rjettarbót í þessu efni. Bar hann því fram tillögu þess. efn- is, að bæjarstjórnin skoraði á þing- ið, að breyta svo ákvæðum. reglu- gerðarinnar um vínveitingarnar, að kjósendum í Reykjavík, á ísafirði, Akureyri og Seyðisfirði yrði leyft að greiða atkvæði um það, hvort vínveiting yrði leyfði í þessum bæj- um. Var hún samþykt. Ennfremur var borin upp tillaga frá II. Hall- dórssyni þess efnis, að bæjarstjórn- ín feldi borgarstjóra að gangast fyr- ir því, að farin væri kröfuganga JDemonstration) til þings og stjórn- ár, þessu máli til stuðnings. Var borgarstjóri tillögunni mótfallinn— taldi aðra leið betri, málinu til fram gangs. En hitt kvað hánn sjálfsagt, að bæjarstjórnin leitaöi rjettar kjós endanna með því, sem feldist í til- lögu Þórðar Bjarnasonar. Sömuleið- is talaði B. Ólafsson á móti þessari kröfugöngutill. II. II. kvaðst bera till. fram til þess að sjá, hvað mikil alvara væri hjá bæjarstjóminni í þessu máli. Ennfremur kvaðst hann vera viss um, að þingmenn ljetu það eins o,g vind um eyrun þjóta, þó samþykt væri tillaga Þóröar Bj. Hitt mundi hafa meiri áhrif, ef bæjarbúar söfnuðust saman ogljetu með því vilja sinn í ljósi. Ög þar ætti bæjarstjórnin aö vera í broddi fylkingar. — Var till. Hallbj. Hall- dórssonar feld. ------o------ Erl. símfregnir frá frjettaritara Morgunblaðsins. Khöfn 2. marts 1923. Tyrkir samþykkja. Frá London er símáð, að tyrk- neska stjórnin hafi lagt til við þing- ið í Angora, að það fjellist á Laus- anne-samningana, en þar með er litið svo á sem Austurlandastríðinu svo nefnda sje afstýrt. Bonar Law skammaður. Blaðið „Daily Chronicle“ dæmir hart afskiftaleysi Bonar Law’s af aðförum Frakka, sem gert hafa upp- tæka 13 miljarða marka og halda þeim, af þeim voru 6 ætlaöir til not- kunar ensku stjórninni. Samvinna milli Frakka og ítala. Frá París er símað, að frönsk og ítölsk blöð ræði vingjaralega um ráðagerðir til þess að koma á fransk- ítölsku bandalagi í fjárhagsmálum o.g stjórnmálum. Olympíuleikarnir verða haldnir 5.—27. júlí 1924 í Colomber skamt fyrir norðan og vestan París. ---—o- □agbðk. Messað á morgun í fríkirkjunni í Hafnarfirði kl. 2 síðdegis. Sjera Ólafur Ólafsson. I dómkirkjunni á morgun kl. 11, sjera Friðrik Friðriksson. Kl. 5, sjera Bjarni Jónsson. I fríkirkjunni sjera Árni Sigurðs- son kl. 5 eftir hád. í Landakotskirkju hámessa kl. 9 fyrir hádegi. Kl. 6 guðsþjónusta með prjedikun. pingmaður Mýramanna kom til þings í gærmorgun og varð sam- ferða inn í þinghúsið Morgunblaðinu, sem flutti honum ádrepuna frá kjós- endum hans. ,1 t Stúdentafjelagsfundinum, sem átti að vera í Mensa í kvöld, er frestað fram yfir helgi. Nýja Bíó. Langt er síðan franska leikkonan Gabrielle Robinne hefir -sjest hjer í kvikmynd. Hefir engin mynd er hún hefir leikið í verið sýnd hjer síðan 1916, en þó munu margir Flugl. dagbók Divanar, allar gerðir, bestir og ó- dýrastin, Húsgagnaverslun Reykja- vikur, Laugaveg 3. Nýtt íslenskt smjör fyrir krónur 2.50 y2 kg. og nýtt skyr fyrir 50 aura y2 kg., fæst í Matardeild Slát- urfjelagsins. — Túlípanar alla vega litir, fást hjá Ragnari Ásgeirssyni, Gróðrarstöðinni. Sími 780. — Eitt herhergi óskast handa stúlku, sem kemur með Gullfossi að austan, mætti vera með annari. TTpplýsingar í Ingólfsstræti 18. Nikkelering á alls konar reiðhjóla- og mótorhjóla-hlutum, er ódýrast í FÁLKANUM. r Fjelag Véstux-íslendinga heldur fund í Bárunni næst komandi mánu- dagskvöld kl. 8y2. Húsnæði, sem nota mætti til veit- inga, liggjandi í eða nálægt mið- bænum, óskast nú þegar eða sem fyrst. A. v. á. minnast hennar frá þeim tíma. Var hún í þá daga talin fegursta leik- kona heimsins. 1 mynd sem nú er sýnd í Nýja Bíó og heitir „Skyldu- brautin' * leikur þessi leikkona að- alhlutverkið og fer ágætlega með hlutverk sitt og myndin er fram- úrskarandi falleg og frágangurinn góður. Mynd þessi verður sýnd í fyrsta skifti í kvöld og byrjar sýn- ing ekki fyr en kl. 9, vegna hljóm- leika próf. Sveinbjöms Sveinbjörns- sonar. —• Kirkjuhljómleikar Páls ísólfssonar voru vel sóttir í gærkvöldi, sem áður, og fóru áheyrendur áreiðan- lega heim aftur hrifnir og ánægðir yfir því, sem þeir höfðu heyrt þar. Fátt mun það vera hjer, sem ekki er eitthvað að, og hjer var !það að, að nokkur endir skyldi vera, því flestir áheyrendur hefðu víst óskað að fá að hlusta óendanlega lengi á hin dásamlega fögru og vel æfðu kirkjusöngslög og orgelsólóar, og vist má telja að Hafnfirðingar taki vel á móti svo góðum gestum á sunnu- daginn kemur. Einsdæmi. Tvær bifreiðar frá Nýju bifreiðastöðinni fóru í gærmorgun hjeðan austur á Eyrarbakka. Er það til dæmis um ferðina, að bifreið- arnar voru aðeins 4 tíma a leiðinni austur og stóðu þó við á Kolviðar- hóli. Hefir það aldrei borið við áð- ur síðan bifreiðar fóru að tíðkast hjer, að svo snjólaust hafi verið á Hellisheiði í byrjun marsmánaðar að fært hafi verið bifreiðum. Nýja bifreiðastöðin ætlar að halda uppi ferðum austur meðan færðin spill- ist ekki frá því sem nú er. Germanía, fjelag þýskumælandi manna í Reykjavík, heldur aðalfund sinn í kvöld kl. 9 á Skjaldberið. A fundinum flytur þýskur stúdent sem hjer dvelur í vetur, erindi um Rerlin. Sirius fór til útlanda í fyrrinótt, norður um land. Meðal farþega: kaupfjelagsstjórarnir Sigurður Bjark- lind og Sigurður Kristinsson, Ste- fán Stefánsson cand. jur., Ingólfur Gíslason læknir, Jónmundur Hall- grímsson prestur, Valtýr Albertsson, Helgi Hafliðason, Just umboðssali, Steingrímur Einarsson eand. med. — Farþegar alls 70. i Gjaldkeri Morgunblaðsins, er frá fcyrjun þessa mánaðar, Sigfús Jóns- son, áður starfsmaður á Endurskoð- SíldarstöB á Siglufiröi. [Hður Söbstads] með tveimur bryggjum ásamt upplagningsplássi til leigu næst- komandi sumar. Tilboð í stöðina sendist fyrir 20. mars næstkomandi til bæjar- fógetans á Siglufirði. Hjermeð tilkynnist heiðruðura viðskiftavinum okk- ar, að öll þau úr sem legið hafa árlangt eða lengur á vinnustof- um okkar, verða seld fyrir aðgerðakostnaði, eftir 3 mánuði frá birtingu auglýsingar þessarar, sje þeirra ekki vitjað fytir þann tima. Daniel & Þorkell, Laugaveg 55. Garðyrkiufjelasið. Fjelagsmenn geta fengið nokkra skamta af blómfræi ókeypis, ef þeir vitja þess hjá Einari Helgasyni. Til sölu hefir hann matjurtafræ og blómfræ. K. Einarsson 5 Björnssan umbaBs- og heildsala er flutt í Uonarstræti 8. Sigurjón Jónsson Bóka- og ritfangaverslun Laugaveg 19. Sími 504. Þar eru best bókakaup. — ódýrust allskonar ritföng. Heildsala. Smásala. Stulka sem er vel að sjer í bókfærslu og vjelritun, og sem getur lagt sjer til ritvjel, getur fengið sem auka- starf ýmsar skriftir, sem vinna má að heima. Tilboð með launakröfu um tímann, anðkent „Skriftir11, sendist Morgunblaðinu. Hjer með leyfi jeg’ mjer að færa öllum þeim hjartanlegt þakklæti, sem sýndu mjer góð- vildarhug á áttræðisafmæli mínu, bæði stúkusystkynum mínum í „Verðandi“ og öðrum vinum. Ingiríður Brynjólfsdóttir. unarskrifstofunni, og hefir hann tek- ið við stafinu af Gísla í. Finsen, sem gegnt hefir því lengi og vel að und- anförnu, ásamt fleiri störfum við Morgunblaðið, en nú er orðinn með- stofnandi að heildsöluverslun hjer í bænum. Meðlimir í. R., þeir sem vilja vera með í gönguför, mæti kl. 9 fyrir hádegi á morgun hjá Mentaskólanum. írval. Munið fundinn kl. 4 á skrif- stofunni. Erfðafestulönd. Bæjarstjórn hefir verið boðinn forkaupsrjettur aö erfðafestulandinu þvottalaugarbletti ur 13, fyrir 1000 krónur. Landið ei 1. ha. að stærð og er girt og tekið til ræktunar að miklu leyti. Bæjarstjórnin hefir samþykt að hafna forkaupsrjetti. Ennfremur hefir ís- landsbanki boðið forkaupsrjett að erfðafestulandinu Hlíðarhúsabletti, nr. 1, fyrir 20.000 krónur. Hefir bæjarstjórnin frestað að taka ákvörð- un um það mál. ---------o-------- Umboðsmaður: Ingimar Brynjólfsson. I Forkolelsernes Tid og unðer Epiðemier bör man be- skytte sig og holðe Munð og Svælg rene — Et hygiejnisk Beskyt telsesmiddel, ðer virker effektivt og tilintetgör Bakterierne, er ðe pröveðe. Fömmint Tabletter. Anbefales af over 10,000 Lseger. Faas paa alle Apotheker. Pröver og Brochure senðes gratis fra fl/S Sanatogen Co., Afðl. Formamint, Nðrrevolð 15, Köbenhavn K. For Sildesaisonen 1923 slutter vi nu contracter paa le- vering av hele og halve tönder. Kun omhyggeleg forarbeidet em- balage leveres. Landets störste production. Skulde De ikke kjende m ajrket J. Ö. saa spörg herr. O. Thynes, Siglefjord. Johaimes Östensjö & Co., A. S. Haugesund, Norge. H. A. B. 384. Telegramadr. Sjöco.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.