Morgunblaðið - 05.04.1924, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 05.04.1924, Qupperneq 2
MORGUNBLAÐIÐ Tilbúinn áburður. Eins og að nndanförnu útvegum við frá „Det Danske Oödnings- Kompagni," — Superfosfat, Chilisaltpjetur Ofl pareð áríðandi er að áburðurinn komi í tæka tíð, og að við flytjum ekki inn meira en vissa er fyrir að verði notað, viljum við nwelast til að allir, sem ætla að fá sjer áburð sendi pantanir sínar hið allra fyrsta. Vegna verkbannsing í Noregi er alt útlit fjnrir að okkur takist ekki að útvega Noregs-salpjetur í ár. I. Brynjólfsson & Kvaran. Hæstirjettur. Eftir Jóu Á8björnsaon hæatarjmfl. pegar vjer íslendingar böfðum fengið sjálfstæði vort viðurkent árið 1918, var það eitt af fyrstu verkum þingsins að flytja æðsta dómsvaldið, sem um margar aldir hafði verið bjá erlendri þjóð, aft- ur inn í landið. Hæstirjettur Dana var afnum- inu, sem æðsti dómstóll í ísl. mál- um, en bæstirjettur settur á stofn hjer innanlands. pað fór vel á því, að þetta var ekki látið dragast úr hömlu, því iíla gat það ríki talist sjálfstætt S raun og veru, sem varð að sækja æðsta úrskurð í deilumálum þegna sinna til annarar þjóðar. Auk þess höfðum vjer íslendingar um langt skeið krafist þess, að æðsta valdið væri flutt inn í landið. Hefði því verið óviðeigandi að hrinda því ekki í framkvæmd, þegar við áttum það ekki lengur ■undir bögg að sækja, til Dana. Pjóðfulltrúum vorum var það í upphafi fullkomlega ljóst, að það var eigi einhlítt, að *æðsti dómstóll landsins væri innlendur. pað varð einnig að gera hann svo my % LJEREFT einbreið og tvibreið selur Jfoialdwijl'inúMori úr garði, að hann væri fullkom- lega fær um að leggja æðsta úr- skurð á mál manna, svo að menn gætu öruggir skotið málum ,sín- um til hans og hann gæti aflað sjer trausts, bæði innan lands og utan, þar sem dómum hans kynni af einhverjum ástæðum að verða veitt eftirtekt. pví var svo ákveð- ið. að í Hæstarjetti skyldu sitja 5 dómendur, í stað þess að í yf- irrjettinum sátu einungis 3. pá var og munnleg málfærsla leidd í lög. En hún hefir þótt rcynast fullkomnari en skrifleg málfærsla, auk margra anaara kosta, sem henni þykja fylgja, sjerstaklega hvað málin ljúkast fyr. En þótt þessi breyting væri gerð, þá fór því samt fjarri, að jafnt væri vandað til æðsta dóm- stóls vors, eins og t. d. æðstu dómstóla stórþjóðanna. í Hæsta- rjetti Dana eiga sæti 13 menn, og dæma venjulega 6 hvert mál, 1 Hæstarjetti Norðmanna eiga sæti 17 menn, og dæma að jafnaði 7 . hvert mál. En þegar um sjerlega vandasöm mál er að ræða taka allir dómendur þátt í dómsupp- sögn. par að auki er þess að gæta, rð hjá oss geta dómaraefnin hvergi nærri fengið slíkan undir- búning undir starf sitt, sem hjá nágrannaþjóðunum. Utan Hæsta- r.iettar veitir aðeins eitt embætti í öllu landinu, bæjarfógetaembætt- ið í Reykjavík, verulega æfiugu í dómstörfum. pegar dómararnir setjast í rjettinn, hlýtur þá því oftast nær að skorta dómaraæf- ingu mjög svo tilfinnanlega. En til þess að vera góður dómari, er lagaþekking ein eigi nægjanleg. pað þarf einnig æfingu í að beita þeirri þekkingu víð viðfangseíni daglega lífsins. Að öðrum kosti getur orðið hætt við að lögstirfni gadi í dómunum, og að of lítið tillit sje tekið t.il þess, hvað eru rjettar og sanngjarnar lyktir hvers máls. pegar málin koma til æðstu dómstóla hjá , nágrannaþjóðum vorum hafa þau áður verið kruf- in til mergjar af færurn dómstól- um, sem svipað er vandað til og yfirrjettarins okkar gamla. Fyrir þe'm hafa málin verið flutt af löglærðum mönnum, æfðum í mál fiutningi. Og hafa þau þá oft gengið í gegnum hreinsunareld tveggja dómstóla. Hjer er málum áfrýjað beint til Hæstarjettar frá frmn-dómstiginu, þar sem þau oftast nær hafa verið dæmd af eijium dómara. Og utan Reykja- víkur eru málin þar að auki flutt af ólögfróðum mönnum, sem venju lega skortir alla æfingu í rnál- færslu. En því ver undirbúin sem málin koma til Hæstarjettar, því meiri vandi hvílir á rjettinum sjálfum, og því betur þarf til hans að vanda. Af því sem jeg nú hefi sagt, er það ljóst, að búast má við, að nokkuð skorti einnig á, að Hæsti- rjettur vor standi jafnfætis æðstu dómstólum nágrannaríkjanna, — hvað þá að dómaskipun vor í heild sinni samsvari dómaskipun þeirra. Sú breyting, sem gerð var á yfirrjettinum gamla, um leið og hann var gerður að Hæstarjetti ísiands, hóf hann aðeins upp yfir miðdómstigin hjá nágrönnum vor- um. Og minna mátti heldur ekki vera, þar sem honum var valið svo virðulegt nafn, sem svo mjög er litið upp til hjá öðrum þjóð- um — að ógleymdri rjettarör ygginni í landinu. Munu flestir, sem skyn báru á það mál, hafa vonað, að brátt mundi dómaskip- unin verða endurbætt frekar, t. d með því að setja á stofn mið- dómstig. pá fyr.st var dómaskip- unin hjer fyrst komin í dálítið svipað horf og hjá nágrannaþjóð- unum. 1 En reynslan varð þó önnur. I Undanhald. Pegar á Alþingi 1903, aðeins 4 árum eftir að Hæstarjettarlögin voru samin, kom fram frumvarp úm, að limlesta þennan unga, æðsta dómstól landsins: Fækka dómendum aftur niður í 3; en náði þá eigi fram að ganga. Nú á þessu þingi hefir' það komið fram á ný; og er eigi því að heilsa. að því sjeu samfara neinar ti'l- lögur um stofnun miðdómstigs eða um umbætur á frumdómstiginu. Munu þykja nokkrar líkur á, að frv. þetta nái nú fram að ganga. Gildi margra dómenda. peir munu nú vera t'l, en þó fáir, sem halda því fram, að tryggingin fyrir rjettum málsúr- slitum minki ekkert þótt dómend nni sje fækkað. En þetta er ber- sýnilega rangt. Skal jeg nú benda á nokkur rök, máli því til sönn- unar. Má þá fyrst og fremst benda á það, að gamla orðtækið „Betur sja augu en auga“, gildir njer stm annarsstaðar. Einn getnr sjeð það, sem annar veitir ekki eftir- tckt, og getur haft þekkingn á því, sem annan brestur þekkingu á. pví fjölbreyttara sem viðskifta- lífið verður, því fjölbreyttari og flóknari verða mál þau, sem koma fyrir rjettinn, og því meiri vandi að dæma þau. pess þarf því við, að málin sjeu athuguð sem grand- gæfilegast í öllum greinum. Auk þess verða lög þjóðfjelagslns flókuari og margbreyttari með hverju ári, svo að það er ekki á nckkurs eins manns færi að þekkja þau öll út í æsar. pað er því engan veginn útilokað að dóm stólum geti skotist yfir gildandi lagaákyæði eða skýrt þau rangt. pví fleiri sem athuga hvert mál, því minni líkur eru til að slíkt geti komið fyrir. pað hefir áður verið miust á það, að þegar dómararnir setjast fyrst í Hæstarjett, hlýtur þá oft- ast nær að skorta verulega dóm araæfingu. Hana fá þeir fj-rst í Hæstarjetti. Ennfremur ber að líta á það, að venjulega eru menn orðnir nokkuð rosknir, er þeir setjast í rjettinn, og í Landsyfir- rjettinum gamla drógu dómendur sig einatt ekki til baka. fyr en starfskröftum þeirra og skarpleik var farið að hnigna. Mætti ætla að svo færi og um Hæstarjett. En því fle'ri sem dómendur eru, því meiri trvgging er fyrir því, að ávalt sitji í rjettinum að minsta kosti nokkrir menn, sem bæði hafa fengið talsverða dómaraæf- ingu og eigi eru farnir að gefa sig fyrir aldurs sakir. En það er óv.’íðunandi, ef rjetturinn hefir ekki ávalt góðum starfskröftum á að skipa. pessa, sem nú hefir verið bent á, gætir enn. meira, ef einhverjir dómenda þurfa að víkja sæti í einstökum málum. Má þá búast vio, að í stað þeirra verði að taka lítt vana menn dómarastörfum. Gæti þá farið svo, í mjög fá- mennum rjetti, að allir dómendur í þeim málum væru lítt vanir dómarastörfum, og er slíkt óhæfa um þann dómstól, sem á að leggja æðsta úrskurð á málin. Óþarft er að telja fleira því til stuðnings, að meiri trygging sje fyrir rjettlátum dómsúrslitum, ef 5 eru dómendur í Hæstarjetti, enda munu flestir viðurkenna það. Dómaskipun landsins hlýtur því að verða allmiklu ófullkomnari, ef breyting þessi nær fram að ganga. Er slíkt með öllu óviðun- andi, þegar þess er gætt, hversu frumdómstiginu er ábótavant víða í landinu, svo sem eðlilegt er, þar sem dómstörfin eru alger auka- verk hjá flestum sýslumönnum, en málin flutt af ólögfróðum mönn- um. Til sönnunar máli mínu skal bpnt á, að af 39 dómum utan af lan.di, sem Hæstirjettur hefir lagt dóm á tvö síðustu árin, hafa 19 verið ómerktir eða snúið alger lega við, 10 hreytt að meira eða 91 EIMSKIPAFJELAG ÍSLAND5 REÝKJAVÍK Jjf Gullfossc< fer hjeðan á þr’ðjudag 8. apríl klukkan 8 árdegis til Hafnar- fjarðar og Vestfjarða. .VÖrur afhendist í dag, eða íyr- ir hádegi á mánudag. Skipið fer t'l útlanda, Bergen, og Kaupmannahafnar 17. apríl. 99Lagapfosscc fer hjeðan til Bretlands, væntan- lega 17- april. Ný tegund aff liriillrnlii fæst í veralunin Vaðnes og fajá Símoni Jónsayni Grettisgötu 28. Reynið þau! minna leyti, en einungis 10 stað- festir að niðurstöðu til. Hæstirjettur enginn leiksoppur. Auk þessa hnekkis, sem Hæsti- rjettur hlýtiir að bíða við hina fyrirhuguðu breytingu, verour flcki gengið þegjandi framlijá því, hversu óviðeigandi það er, að gera stórbreytingar á æðsta dóm- stól landsins á fárra ára fresti. Fjölga og' fækka dómendum á víxl, eftir því hvað vænlega horí'ir með tekjur rikisins, eða gera aðr- ar verulegar breytingar á fyrir- kcmulagi í-jettarins. Hæstirjettur á ekki að vera neinn leiksoppur í höndum pólitíkusa vorra. Skipu- lf.g hans á að vera fast, ekki eit.t í dág og annað á morgun. Væri í raun og veru full ástæða til að jafnstraiigar reglur giltu um breytingar^ á skipulagi Hæsta rjettar eins og um breytingar á stjórnskipunarlögum landsins. pá má einnig minnast á það, hversu óviðkunnanlegt það er út, á við, gagnvart Dönum, að draga svo fljótt saman seglin með þær stofnanir, sem nátengdastar eru sjáifstæði voru, svo sem er tun Hæstarjett. Gæti virst svo, að vjer hefðum verið helst til óðfúslr á að heimta sjálfstæði vort og flytja æðsta dómsvaldið inn í landið, þegar ekki eru 5 ár liðin þegar tillögur koma fram um að kippa Hæstarjetti aftur í sama horf og yfirrjetturinn var í, áður en vjer öðluðumst, sjálfstæði vort. Hið sama má segja um ýmsar aðrar tiilögur, sem fram hafa komið á þessu þingi, en um það skal ekkí rætt hjer frekar. Framii- --------o-------- stjópnapsKiffi i UnouepjalaDdi. Horthy, ríkisstjóri Ungverja er, að því er segir í úllendnm blöðum, vsil?' ur af krabbameini í maganum, °% talinn eiga skamt eftir ólifað- E‘r sagt, að forsætisráðheiTann sje undirbúa kosningu ríkisstjóra e^a konungs, og helst búist við að A breeht erkihertogi hljóti hnossið.Be ir hann verið í heimsókn við b’r * ýmsra rík.ja, að sögn, til þess samþykki þeirra til að gerast ungur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.