Morgunblaðið - 08.07.1924, Blaðsíða 3
MORGUNBEAfl®
^e*æ&gH
■
MORGUNBLAÐIÐ.
Etofnandi: Vilh. Flnaen.
Otgefandi: FJelag 1 Reykjavik.
Ritstjórar: Jón KJartanason,
Valtýr Stefánsson.
Auglýsingastjóri: K. Hafberg.
Skrlfstofa Austurstrœti 5.
Slmar. Ritstjórn nr. 498.
Afgr. og bókhald nr. 600,
Auglýsingaskrifst. nr. 700.
Helmaslmar: J. KJ. ur-
V. St. nr. 1220.
E. Hafb. nr. 770.
JLskrlftagJald lnnanbæjar og I ná.-
grennl kr. 2,00 á mánuCl,
innanlands fjær kr. 2,60.
f lausasölu 10 aura eint.
Ólíkar stefnur.
pessa dagana er „Alþýðublað-
ið“ að berjast við að skýra það
fyrir mönnum, að í raun og veru
sjeu stefnur jafnaðarmanna og
kommúnista eins. Eitt eintak af
blaðinu var lítið annað en ein
•náttlaus tilraun til þessarar
greinargerðar.
Rökin, sem það teflir fram, eru
»nest sótt í alfræðiorðbækur og
þáðan tekin ýms nöfn, sem verið
‘bafa á jafnaðarstefnunni á bin-
nm og þessum tíma. — Nokkur
mannanöfn eru og nefnd svo sem
til kryddg í vaðlinum. petta og
annað ekki færir blaðið fram því
til stuðnings að stefnurnar sjeu
«ins.
Alt þetta gat blaðið sparað
ejer. ,,pað þýðir ekki .að þylja
Höfnin tóm.“ Stefnurnar sjálfar,
'eins og þær eru framkvæmdar,
®anna best og sýna þvílíkt djúp
®r milli þeirra. Fimbulfamb með
tilvitnanir í fræðisetningar er
gagnslaust. pað er lífið sjálft,
«em talar og sker úr um stefnur
ng mál. Og það hefir skorið úr
'á þann veg, í þessu máli, að að-
hyllast aðra stefnuna en fordæma
hina, því hún er brot á lögmál-
um þess.
:,Alþýðublaðið“ reku sögu só-
-cial smans og bætir svo við eitt-
hvað á þessa leið: Við kommún-
istar höfum engu breytt í stefnu
jafnaðarmanna. Við höfum ekki
hreyft okkur í aðra átt. pað minn-
ir í þessu efni átakanlega á mann-
inn, sem braut dýra 0g fagra
postulínsskál. Afsökun hans var
l>essi: Jeg gerði í raun 0g veru
«kki neitt — færði aðeins til
hægri fótinn, stje fram vinstri fæt_
*num 0g rak olnbogann örlítið í.
®n hann braut skálina, Kommún-j
istar fara eins að. peir sverja og
sárt við leggja að þeir hafi ekki
vikið hársbreidd frá jafnaðar-
stefnunni. En þeir hafa stigið út
fyrir vjebönd hennar, brotið lög
hennar og gert hana að glerbrota-
msli eins og kallinn skálina, sem
getur skorið og blóðgað, ef með
það er farið — og hefir gert það.
Jafnaðarmenn hafa hvergi gert
blóðuga byltingn. Kommúnistar
hafa gert það. Jafnaðarmenn hafa
aldrei skilið eftir í slóð sinni á
leið sinni til valda hrannir af lík-
um. Kommúnistar hafa gert það.
Jafnaðarmenn hafa aldrei sundr-
að heilli þjóð í rústir og skilið
«ftir auðn.Kommúnistar hafa gert
hað. Samt segir „Alþýðublaðið* að
Uiunurinn sje enginn.
Pegar menn dæma um ein-
hverja stefnu og gildi hennar fyr-
ir þjóðirnar, fara menn ekki í
alfræðiorðbækur. Menn líta á þau
áhrif sem hún hefir og það sem
hún framkvæmir og berst fyrir.
Rommúnisminn verður að hlíta
Sama mælikvarða. Spor hans
hræða. pessvegna eru forsvars-
menn hans undanskildir þegar
ræða er um jafnaðarmenn.
„Alþýðublaðið“ ætti, næst þeg-
ar það leitast við að skýra mis-
mun jafnaðarstefnu og kommún-
isma, að nefna orð og verk beggja.
pá sæi það ef til vill sjálft mun-
inn. Aðrir hafa lengi sjeð hann.
■x-
Prá frjettamanni Morgunblaðsins.
Dýrðlegur dagur að kvöldi lið-
inn. „Hvítáin“ rennur niður nöfnu
sína, milli eyra og hólma. Mann-
þröng stafna milli. Pólkið er vel
kátt, þó lúðrasveitin þegi ennþá.
Við erum að koma af Hvítárbakka.
mótinu.
' í gær var haldið úr Reykjavík
með Suðurlandinu. pað rendi fram
hjá Franconiu og út á milli eyja
og upp í Borgarnes. Hálfkalt var
á leiðinni, cn stilt og fagurt veð-
ur.
Samt gat kvenfólkið orðið sjó-
veikt.
Borgarnes finst mjer vera held-
ur leiðinlegt. Margt þekki jeg þó
þar ágætismanna. í Borgarnesi
búa á 4. 'hundrað manna; enginn
er þar þó aðalatvinnuvegur; lifa
íbúarnir aðallega hverir á öðrum.
Drykkjuskapur er nær enginn.
Mun nýi læknirinn eiga sinn þátt
í því.
Jeg gisti hjá Vigfúsi og svaf
vært, enda hafði mter verið lofað
að verða vakinn í býtið á morg-
un, því að með ,,Hvítánni“ ætlaði
jeg upp eftir, en sæta verður sjáv-
arföllum um ferðalög upp Hvítá.
Sólin brendi vangann. Jeg vakn-
aði. Ó, jæja, jeg næ í bíl, hugsaði
jeg. Stiilkan hafði gleymt mjer.
Jeg er ekkert hissa á því og jeg
liefi fyrir löngu fyrirgefið henni.
Með flutningabíl. Sætin eru
bundin á með köðlum. Á miðri
leið liölluðumst við ótrúlega mik-
ið. Ráð við því:_ Herða á köðlun-
um.
Á Hvítárbökkum. Fjöldi fólks:
Reykvíkingar, Borgnesingar og
hjeraðsmenn. Sólskin og hiti. Há-
tíð í lofti og nokkur regnþrungin
hitaský.
Mótið er sett með stuttri ræðu,
°g gerði það form. Hjeraðssam-
bands U. M. Borgarfjarðar, hr.
Jón Guðmundson.
Porgils Guðmundsson íþrótta-
kennari á Hvanneyri flutti snjalt
erindi og hvetjandi. Var það um
líkamsmentun og á'hersla lögð á,
að meta fegurð, breysti og sam-
ræmi meira en kapp.
pá var kappsund þreytt í lygn-
unni, þar sem Norðurá fellur í
Hvítá.
preyttu fyrst fullorðnir úr U.
M. P. Dagrenning, Lundareykja-
dal og U. M. P. Stafholtstnngna.
I. verðlaun hlaut Árni Helga-
son, U. M. P. Stafholtstungna.
pá þreyttu drengir sund (50
metra) og varð hlutskarpastur Jón
Á. Brynjólfsson, U. M. P. Stafh.,
og var 48 sek.
Að loknu sundi var söngur.
Helmingur mótsgesta sat eða stóð
með hatta og húfur á höfðinu á
meðan sungið var: „Ó, guð vors
lands“.
t
Pá mælti Sig. Guðjónsson kenn-
ari nokkur vel valin orð um afrek
Hannesar Hafsteins. Vottaði mann
söfnuðurinn minningu hins látna
merkismanns lotningu sína.
pá var glímt. Kappglíma full-
orðinna: I. verðlaun: Björn Vig-
fússon (U. M. P. Andakílshr.).
Fegurðarglíma, I. verðlaun:
Bjarni Eggertsson (U. M. P. Hauk
ur, Leirársveit).
, Kveðja Norðmanna. Hr. Breids-
voll, meðritstjóri „17. Mai“ í
Kristjaniu, sem er einn meðal
hinna norsku gesta ungmennafje-
laganna, flutti íslandi kveðju sína
og fjelaga sinna. Hann mælti á
nýnorsku. Dáðist hann að fegurð
landsins, þrótti þjóðarinnar og
lireinleik tungunnar.
Hlaup og stökk. I. verðlaun í
100 m. hlaupi hlaut Friðjón Jó-
hannsson, U. M. P. Borgarhrepps,
(13 sek.).
I. verðlaun í 400 m. haupi hlaut
sami piltur (63 sek.).
I. verðlaun í langstökki hlaut
Ari Guðmundsson, U. M. P. Dag-
renning. Stökk hann 5.16 metra.
Veðreiðar (300 m.). Stökk: 2.
verðlaun: Hjörtur Sigm., Deildar-
tungu, 25.2 sek.
3. verðlaun, Björn Vigfússon,
Gullberustöðum, 25,5. (Skilyrði til
I. Verðlauna 24. sek.).
Skeið: 2. verðlaun porst. Vil-
hjálmsson, Efstabæ, 30 sek.
3. verðlaun Kristján porsteins-
son, Fossum, 30 sek. (Skilyrði til
I. verðlauna 25 sek.).
Var svo dansað fram yfir há-
flæði, en með útfallinu fór hljóm-
sveitin og gestirnir, hver heim til
sín. Jeg varð eftir í Borgarnesi,
því að þrátt fyrir alt og alt þykir
mjer vænt um nesið, af sjerstakri
ástæðu.
Mótið fór prýðilega fram; veður
var hið ákjósanlegasta. Pjör og
líf-sgleði ríkti. Lúðrasveitin gerði
sitt til og dró ekki af sjer, þó all-
ir væru lúðraþeytararnir hásir og
þurbrjósta að loknum blæstri. —
Fengu þeir þó kaffi og svo sungu
þeir alla leið til Borgarness, eins
og þeim væri borgað fyrir eftir-
vinnukaup.
Perðalangur.
------o-------
Eymundur Einarssnn
fiðluleikari.
—4----
Hljómleikar lians síðastliðinn
laugardag voru fásóttir, því ver
og miður; þessi nýi og ungi lista-
maður vor átti miklu betra skilið.
Fjögur ár tæp hefir hann dvalið
í Danmörku og Þýskalandi við
nám með mjög góðum árangri.
Hann er orðinn töluvert fimur á
liljóðfæri sitt, svo fimur, að eng-
inn hjer gerir honum það eftir;
tónninn er fastur og hljómgóður,
mjög blæfagur með köflum, boga-
drætfirnir stiltir og öruggir og
hann fer vel með verkefnjn, svo
að leikur hans er hinn áheyranleg-
asti. Nokkuð skortir enn á þroska
og tekniska fullkomnun, en þarna
ér um svo efnilegan fiðluleilcara að
ræða, að jeg vil ráða öllum til að
sa hja hljomleik hans, ef hann verð-
ur endurtekinn; þeir munu geta
haft mikla ánægju af því. Verkefn-
in, sem hann valdi sjer í þetta sinn,'
voru allerfið, sjerstaklega e-moll
konsert Mendelsohn’s. En gaman
var samt, að heyra Eymuud spreyta
sig á honum. D-dúr sonate Hándels
fór vel úr liendi og liin lögin. Hann
ljek einkennilegt, „Perpetuum mo-
bile“ eftir Novaeek, í slafneskum
stíl, ágætlega. Þó þessi nýi fiölu-
leikari vor nái ekki enn hinum á-
gæta leik Nilson’s, sem okkur er í
svo fersku minni, tel jeg vafalítið,
að frekara nám og þroski geti með
tímanum hafið þennan leikara vorn
það hátt í listinni, að ekki verði
þar mikill munur á milli.
I. Th.
Gengið.
Reykjavík, 7. júlí.
Sterlingspund ... kr. 32.00
Norskar krónnr ... ... — 98.86
Sænskar krónur ... ... — 196.44
Danstar krónur ... ... — 117.35
Dollar ... — 7 41
Fr. frankax ... — 37.55
■U
Hirpr sliórnajússlai.
Samkvæmt skýrslu, sem gefin
var fyrir 1921, samanstóð ráð-
stjórnin rússneska af þessara
þjóða mönnum:
í hermáladeild ráðstjórnarinnar
áttu sæti 8 Lettar, 1 pjóðverji,
34 Gyðingar — og enginn Rússi.
1 innanlandsmáladeildinni voru
2 Rússar, 1 Pólverji, 1 Armeníu-
maður, 2 pjóðverjar, 11 Lettar og
45 Gyðingar.
í f jármáladeildinni sátu 2 Rúss-
ar, 1 Letti, 1 Pólverji og 26 Gyð-
ingar o. s. frv.
Að öllu samanlögðu var Rúss-
landi stjórnað fjárhagslega og
stjórnarfarslega af 15 Rússum,
44 Lettum, pjóðverjum og nokkr-
um Pólverjum og 237 Gyðingum.
Bolsjevikablað eitt hefir gefið
upp þessar tölur um þá, eem Sov-
jétstjómin hefir „rutt úr vegi,“
síðan hún tók við völdum: 28
biskupum, 1,215 prestum, 6,575
prófessorum og kennurum, 8,800
doktorum og aðstoðarmönnum,
54,650 herforingjum, 10,500 lög-
reglumönnum og undirforingjum,
26,000 hermönnum, 12,950 óðals-
bændum, 355,250 embættismönnum
og starfsmönnum ríkisins, 192,350
handiðnamönnum og verkamönn-
um og 815,100 bændum.
(Hjálp,“ sænskt blað.)
-------x;-------
P AKKLÆTI,
Jeg finn mjer bæði skylt og ljúft
að votta þakklæti mitt ungfrú Sig-
urbjörgu Jónsdóttur, nuddlækni, á
Hverfisgötu 18, fyrir þá góðu og ná-
kvæmu læknishjálp, sem hún hefir
látið mjer í tje. Um mörg ár hefi jeg
látt við vanheilsu að stríða, og leitað
margra ráða mjer til heislubótar, og
síðastliðinn vetur gengið til hennar og
þegið þá hjálp alla, sem læknisstofa
hennar hefir fram að bjóða. pakka
jeg þá heilsubót, sem jeg hefi þegar
fengið, hennar góðu og nákvæmu
hjálp, sem auk þess að vera skjót og
fullkomin, er miklum mun ódýrari en
jeg hefi vanist samskonar læknishjálp
áður. par að auki gekk hún daglega
heim til mín um lengri tíma, og veitti
mjer þar hina bestu og alúðarfylstu
hjúkrun, án nokknrs endurgjalds.
Bið jeg góðan guð, að launa henni
þessar velgerðir við mig og blessa
störf hennar.
Rvík, 27. júní.
Ingibjörg Jónsdóttir.
*-—■ —o---------
DAGBÓK.
□ Edda listi i □ Þingr.f.
VeðriS síðd. í gœr. Hiti á Norður-
landi 6—11 st. Á Austurlandi 10—13
ist. Vestlæg átt á Suðurlandi; hæg
norðanátt annarsstaðar. Bjartviðri á
Suður- og Suðvesturlandi; þoka og
isúld víða á Norður- og Austurlandi.
Kappleikurinn á laugardaginn niilli
K. R. og Vals fór þannig, að jafntefli
varð, 1:1. Má með sanni segja, að
Valsmenn stóðu sig vel, því að þeir
voru aðeins 10 og af þeim voru þrír
II. flokks menn.
Bólusetningin. peir, er bóíusettir
voru síðasttiðinn þriðjudag, komi til
skoðunar í bamaskólann í dag, á sama
tíma og áður.
Esja fór frá Akureyri á laugardags-
ltveld.
Gvllfoss er á leið frá Höfn, beint
hingað.
Goðafoss fór frá Akureyri kl. 12 í
gærkveldi á leið hingað.
Lagarfoss fór til Vestmannaeyja,
Grimsby, Hull og Leith kL 8 í gær-
kveldi.
Veiðibjallan kom frá Englandi í
fyrradag með kol.
Botnía kom í gær kl. 2 frá útlönd-
um. Meðal farþega voru: Einar Jóns-
son myndhöggvari og frú, Gísli John-
sen, Gnðmundur Jensson, David Cope-
land, nngfrú Copeland, N. M. Berrie,
H. Petersen, Zollner og frú, Helgi
Ii elgason og frú, Miss Donaid, Mr. H.
Littte, Pinnbogi Jónsson, Sveinn Sig-
yrðsson, Marteinn Einarsson, frú Ly-
|dersen, Spencer og frú, Alberts hirð-
Ijósmyndari, dr. phil. Niels Nielsen,
iGunnar Gunnarsson, frú Bonnell, Hu-
bert Kreynz, Spann, Borberg, A.
jGook o. fl. Prá Pæreyjum kom Sch.
fHiorsteinsson lyfsali og frú, hr. Stein-
/helt og ungfrúmar A. Jörgensen, Bend
sen og Gregorsen.
Ferðamannaf jelagið „Eekla" biður
þcss getið, að reikningar til þess verði
greiddir í dag á skrifstofu fjelagsins
k'. 12 til 1 og 6 tU 7.
‘Af veiðum em þessir botnvörpung-
p.r nýkomnir: Egill, Otur og Gulltopp-
ur; allir með góðan a-fla.
Signe Liljequist heldur hljómleika í
Nýja Bíó kl. 7y2 í kveld. f þetta skifti
syngur hún aðeins Norðurlanda-vísur.
Sýningamefnd kvenna biður þess
getið, að mnnir af sýningunni verði
afhentir eigendum í dag kl. 1 til 7.
Pólk er beðið að hafa kvittanimar
með sjer.
Stórt uppboð verður haldið á mið-
vikudaginn við húsið á Hverfisgötu
4. Sjá nánar auglýsingn hjer í blað-
inu í dag.
Jón Krabbe sendisveitarfulltrúi kom
hingað með Botnín í gær. Hann fer
innan skamms austur í sveitir og verður
nokkra daga í því ferðalagi. En hjeð-
an fer hann aftur 23. þ. m.
Knattspymumót íslands. Úrslita-
kappleikur var háður i gær miili Fram
og Víkings. pan urðu leikslok, að Vík-
i igur vann leikinn með 4 mörkum gegn
3 og hefir þá nm leið unnið mótið.
Knattspymnbikar fslands er því eign
Víkings þangað til annar keppinantur
skæðari kemur, til þess að vinna grip-
inn. Eftir löglegan leiktíma, 90 mínút-
pr, stóðn flokkamir jafnir og var
leikurinn því framlengdur nm hálf-
tíma. Gerði þá VíkinguT úrslitamarkið.
Kapp var mjög mikið í leiknnm á
báða bóga. Áhorfendur vom með flesta
móti.
Garðyrkjufjel-agið. Aðalfnr.dur pess
verður haldinn í kvöld kl 81/, hjá Ein-
ari Helgasyni garðyrkjnstjóra. Fjelags-
menn eru’ beðnir að f jölmenna stund-
vislega. i
Frá Siglufirði er símað, að í gær
hafi eitt skip þar fengið 130 tnnnnr
af síld í snjrrpinót.