Morgunblaðið - 08.08.1925, Side 4
4
MGRGLNBLAÐIÐ
Kvenreiðfataefni, verð 9 krón-
nr meterinn, víbreiður. Karl-
mannasokkar, kálsbindi, húfnr,
axlabönd, sprotar og margt fleira.
Guðm. B. Vikar, Laugaveg 5.
Amatörar
Nýkomnar aftur allar stærðir af hinum góðu Imper-
ialfilmum — notið þær eingöngu. Verðið lágt!
Einnig nýkominn hinn góði og blæfallegi Imperial-
kopiupappír, glansandi. Allar stærðir.
Amatör-Albúm
Sparið peninga og kaupið efni
í vafninga hjá mjer. Sniðnir ó-
keypis. Sparar yður ca. 50%. —
Guðm. B. Vikar, Laugaveg 5.
Sundmaga kaupir
Hannes Jónsson, Laugaveg 28.
Saltkjöt, Harðfiskur, Glænýtt
*mjör — ódýri sykurinn.
Hannes Jónsson, Laugaveg 28
og Baldursgötu 11, sími 893.
fjölbreytt og sjerlega fallegt úrval af öllum gerðum
og stærðum nýkomin.
Framköllun og Kopiering
er ávalt móttekin. — Vönduð vinna.
Amatörverslunin
Austurstræti 12 — sími 1683.
jPorl. Þorleifsson.
lllllllM Leiga. Illllll
Sölubúð við Vesturgötu óskast
tJ. leigu.
Hannes Jónsson, Laugaveg 28.
ilillllllllllllllllllll! Vinna. J|||l!l||||||||||li
Kaupamaður óskast að Krögg-
ólfsstöðum í Ölfusi. Upplýsingar í
dag í verslun Ólafs Einarssonar,
Laugaveg 44.
fliiffl Tilkym.i„Sa,iniii
Pípumunnstykkin eftirspurðu
eru nú komin í Tóbaksbúsið, Aust-
urstræti 17.
Ódýrastar ferðir ausur í Gríms-
nes og Biskupstungur frá Nýju
Bifreiðastöðinni í Kolasundi. —
Sími 1529.
Flóra íslands
2. útgáfa, fæst á
Afgr. Morgunblaðsins.
HESTAR.
Eftir Dan. Daníelsson og
Einar E. Sæmundsen.
Þessi nýútkomna bók eftir hina
tvo kunnu hestamenn, Daníel
Daníelsson og Einar E. Sæmund-
sen skógfræðing, er fjörlega rituð
og aðgengileg aflestrar.
Hún er engin alfræðibók um
það, sem hestum við kemur og
meðferð þeirra, enda er hún ekki
stór. En þar er tínt til það helsta,
sem höfundum finst að menn fyrst
af öllu þurfi að vita um tamningu
og meðferð reiðhesta. Og þar er
getið um helsta og tilfinnanleg-
asta trassaskapinn og verstu van-
rækslurnar, sem viðgangast hjer
á landi í umgengni manna við
hesta sína.
Er stór furða á því, að eigi
skuli hafa verið ritað meira um
hesta vora en gert hefir verið.
Því svo eru kostir hesta vorra
viðurkendir og marglofaðir í orði,
að meiri umönnunar væri að
vænta en verið hefir.
'Mikill hluti bókarinnar er frá-
sögn af reynslu höfunda, frekar
en þyrkingslegt fróðleikstarf, svo
flestir, sem taka bókina í hönd
og hafa nokkra hugsun á hestum,
lesa hana x einu spjaldanna á
milli.
Tilgangi höfundanna og formi
bókar verður best lýst með því
að tilfæra hið helsta úr inngangi
bókarinnar. Þar er svo komist að
orði:
„Flestar menningarþjóðir, aðrar
en íslendingar, hafa um langt
skeið, unnið kappsamlega að því,
að bæta meðferð hesta í smáu og
stóru, og glæða skilning einstak-
linganna á öllu því, er betur mátti
fara í þessu efni.
Fjölda margar bækur hafa ver-
ið ritaðar hjá flestum þjóðum,
sem eingöngu ræða um kynbætur
hesta og uppeldi þeirra, um hirð-
ÍDgu, tamningu og meðferð þeirra
á allan hátt. Tamningaskólar hafa
verið settir á stofn í flestum lönd-
um, þar sem aðeins lærðir og
þaulæfðir reiðmenn kenna ungum
mönnum að temja hesta, og fara
m.eð þá að öðru leyti. Og svo hefir
alt þetta þótt miklu máli skifta,
að menn hafa ekki í neinn kostn-
að sjeð til þess, að alt mætti verða
sem best og fullkomnast í þessu
efni.
En hvað haia íslendíngar gert ?
Og hvernig hafa þeir búið við
liestinn, síðan er sögur hófust í
þessu landi?
Alt frá landnámstíð og til okk-
ar daga, er nú lifum, hefir upp-
eldi hesta og öll meðferð þeirra
verið mjög á annan veg en skyldi.
Vetur eftir vetur, hefir, svo að
segja, mest allur hrossafjöldi ís-
lendinga verið settur á Guð og
gaddinn. Stundum hefir það
bjargast þolanlega, þegar vetur
hefir verið mildur og vorað vel.
Þó munu fæstir vetur hafa liðið
svo, að ekki hafi fleiri eða færri
hross horfallið, og fjöldinn allur
þeirra hrossa, er skrimti fram úr
verið máttlaus af fóðurskorti, og
illa haldin langt fram á sumar.
Að vísu mun það ekki jafn alment
nú orðið, að hross falli, eins og
áður var, en þó þekkjum við alt
of margan hestinn, sem ber það
með sjer, að „hann er kvalinnupp
á útigangi“, og hefir orðið sár-
magur vor eftir vor, og nýtur sín
aldrei til fulls. Sama hugsunar-
leysis hefir og gætt í allri annari
meðferð hestsins, þótt vitanlegt
sje, að undantekningar hafi jafn-
an átt sjer stað.
Því undarlegra er þetta, þegar
þess er gætt, að hesturinn hefir
um svo langan aldur verið sá vin-
ur íslendinga, sem í raun reynd-
ist, og aldrei brugðist því trausti,
er til hans var beint.
Hann hefir borið okkur mögl-
unarlaust bæ frá bæ og sveit úr
sveit, og hann hefir stytt fjar-
lægðirnar í landinu og runnið
ótrauður með okkur á baki sjer
yfir fjöll og firnindi. Og oft hefir
svo verið komið fyrir mörgum
manninum, að hann hefir átt líf
sitt undir viti hestsins, ratvísi
hans, snarræði og dugnaði. 1 hríð-
arbyljum og náttmyrkri hefir
hesturinn ótal sinnum bjargað
húsbóndanum heim til bæja. Og í
ám og vötnum og margskonar
hættum hefir hann reynst sannur
stólpagripur.
Landið sjálft með gæðum sínum
og göllum, fegurð sinni og fár-
viðrum, vötnum og vegleysum, —
alt hefir þetta skapað hestinn og
þroskað öld eftir öld, og gert
hann okkur handgengnastan allra
húsdýra.
Og þjóðin hefir sjálf fundið
þetta og viðurkent að nokkru
leyti. Hún hefir haldið á lofti á-
gæti afburðahestanna og kostum
þeirra. Sögur slíkra hesta hafa
verið færðar í letur, og aðrar
lifa í minni manna. Alþýðuskáldin
hafa spreytt sig á að kveða um
gæðingana, Iifandi og dauða. —
Hestavísurnar lifa á vörum þjóð-
arinnar, og eru altaf jafn nýjar
og hlýjar, þó að höfundar þeirra
sjeu ef til vill gleymdir fyrir
hundruðum ára. Og við hestavís-
urnar bætist árlega.
Þegar alls þessa er gætt, hlýt-
ur það margan að furða, hvernig
búið hefir verið við hestinn, og
hvernig öll meðferð hans befir
verib á annan veg en skyldi. Hefir
þar gætt meira skilningsleysis, en
vænta mátti, eins og þeir eru þó
samrýndir, maðurinn . og hestur-
inn, eftir alla þá stund, er þeir
hafa saman sveist, og sama skafl-
inn troðið. Enda mun enginn því
neita, að hesturinn hefir átt sinn
þátt í byggingu þessa lands, engu
síður en maðurinn, og að það er
að nokkru leyti samstarf beggja,
manns og hests, að landið er orðið
það sem það er.
Og enn munu þeir eiga eftir að
sveitast um stund og saman
starfa, maður og hestur, enda vilj-
um við allir, Islendingar, bæta
þetta Iand og fegra, og enginn
okkar efast um, að slíkt megi
takast.
En þá ætti einnig að vera metn-
aður okkar, íslendinga, að búa
sem best við hestinn á alla lund,
og láta okkur lærast að meta kosti
hans og skilja hann, svo að sam-
búðin gæti hjer eftir talist okkur
til sóma.
Og með þeirri von, að slíkt tak-
ist, og að glæða megi skilning
þjóðarinnar á göfgi og snilli
hestsins, eru kaflar þeir ritaðir,
er hjer fara á eftir.
GENGIÐ.
I, Reykjavík í gær.
Sterlingspund............ 26.25
Danskar krónur...........123.24
Norskar krónur...........100.13
Sænskar krónur...........145.42
Dollar................... 5.42
Franskir frankar.......... 25.70
DAGBÓK.
Messað á morgun í dómkirkj-
unni ikl. 11 f. h., sjera Friðrik
Hallgrímsson.
Til Strandarkirkju, áheit: kr.
5,00, frá Elínu.
Hammerby, sænskt vöruflutn-
ingaskip kom hingað í gærkvöldi
með sementsfarm til H. Benedikts-
son og Co.
Suðurland fór til Borgarness í
gær til þess að sækja norðan og
vestanpóst, og hafði fjölda far-
þega.
Wylfi fór á veiðar í gær.
Gullfoss er væntanlegur hingað
á sunnudagskvöld.
Esja kom til Isafjrrðar í gær.
Eefaræki. Bæjarstjcrnarfundur
3J.mþykti í fyrrakvöld að leigja
ó’afi Friðrikssyni svæði á Melun-
u:u neðanvert við Suðurgötu, til
reíaræktur. Hefir Ólafur 50 yrð-
linga hjer og hefir í hyggju að
ikoma upp refarækt. Á dögunum
voru tveir yrðlingar á hlaupum
um Austurvöll, og þótti mönnum
gaman að horfa á þá.
»
Laust embætti. Embætti annars
bókavarðar við Landsbókasafnið
er auglýst laust frá 1. okt. n. k.
Byrjunarlaun 2000 kr.; — umsókn
arfrestur til 15. sept.
Björgunarfjelag Vesitmannaeyja
auglýsir í síðasta Lögbirtingablaði
að aðalfundur fjelagsins verði
haldinn 2. okt. n. k. Meðal annara
mála sem þar verða rædd, er til-
laga um að selja ríkinu björgun-
ar- og eftirlitsskipið „Þór.“
Úr Hafnarfirði. Þar er mikil at-
vinna um þessar mundir. Tvær
stórar byggingar er verið að reisa
þar, hafskipabryggju og sjúkra-
hús. Flestir togarar Hellyer’s eru
nú að byrja saltfisksveiðar.
Síldveiðin hjer í Flóanum til
beitu, hefir gengið treglega. Eru
slæmar horfur með það, að nægi-
leg síld fáist til beitu fyrir Suð-
urland, því bátar þeir, sem veiða
síld fyrir íshúsin afla mjög lítið.
Treg síldveiði er nú fyrir Norð-
ui-Iandi. Er hæstur afli um 2000
to. á skip, en mörg skip hafa sára-
lítinn afla fengið ennþá.
Steypiregn gerði hjer seinni-
partinn í gær, og á eftir varð
glaðasólskin. Er vonandi að þarna
Notid eingKngu
peTTe
aúkkulaði og kakao
Þetta vöramerki hefir á
ekömmum tima rutt sjer til
rúms hjer á landi, og þeir, sem
eitt sinn reyna þaö, hiðja aldrei
am annað.
Fæst { heildsölu hjá
ilisson s KvaraiL
Simar: 890 & 949
SI m m i*i
24 ▼eralmnin,
23 PouImh, $
27 PoMborf.
Klapparstíg 29,
Málning.
Fyrirliggjandi i
Trawl-virar,
Trawl-garn,
Manllla,
Bindigarn.
Siml 720.
híifi þerriskúrin komið, og að nú
komi þurkurinn fyrir alvöru.
Aukadýrtíðaruppbót til fastra
starfsmanna bæjarins var samþ.
á bæjarstjórnarfundi í fyrrakvöld.
Var það tillaga fjárhagsnefndar,
100 kr. fyrir hvert barn innan 16
ára, er samþykt var.
Álafosshlaupið verður væntan-
Iega á morgun og hefst kl. 2 e. h.
frá Klæðaverksm. Álafoss í Mos-
fellssveit; hlaupið endar á gamla
íþróttavellinum á Melunum og
þangað erxx allir velkomnir. Að-
gangur er ókeypis. Keppendur
verða frá Ármann og K. R. Hand-
hafi bikarsins er Magnús Guð-
björnsson úr K. R. — Best er fyr-
ir áhorfendur að koma út á 1-
þróttavöll laust fyrir kl. 3, þareS
um það leyti munu hlaupararnir
koma.
Knattspyrnufjelag Reykjavíkur
(K. R.) hefir í hyggju að fara til
Vestmannaeyja í næstu viku. Ætla
þcir að keppa við Eyjarskeggja
i ýmsum íþróttum á þjóðhátíð
þeirra, sem verður þar um sama
leytið. K. R.-menn verða gestir
íþróttafjel. í Vestmannaeyjum á
meðan þeir dvelja þar.
Sundskálinn í Örfirisey verður
vigður á morgun kl. 7 síðdegis.
Þegar víxluathöfninni er lokið
verður sundsýning, og er búist við
að taka þátt í henni um 50 piltar
og stúlkur. Aðgangur kostar 50
aura fyrir fullorðna, en ókeypis
fyrir börn. Þar sem langt er síðan
að snndsýning hefir verið hjer, má
búast við fjölmenni, og er því
rjett fyrir menn að kaupa að-
göngumiða sem verða seldir á göt-
unum.
íþróttablaðið kemur ixt á morg-
un. Sjá augl. hjer í blaðinu í dag.