Morgunblaðið - 12.09.1925, Page 4

Morgunblaðið - 12.09.1925, Page 4
k.OR€rt> NBI<ABIÐ mBiTSSn íslenskt smjör 2,25% kg. Söltuð öilkalæri 85 aura % kg. Ódýri sykurinn. Hannes Jónsson, Laugaveg 28. Tóbaksvörnr hverju nafni se» nefnast kanpa menn þar sem úr mestu er að velja. Tóbakshúsið, Austurstræti 17. Steinolía, besta tegund 35 aura lítirinn. — Verðlækkun á matvör- nm og sykri. Baldursgötu 11, sími 893. Tækifærisgjafir, sem öílum keaa- nr vel að fá, eru fallegu konfekt- kassarnir úr Tóbakshúsinu, Anst- nnrtræti 17. Maismjöl, maiskorn, bankabygg, bankabyggsmjöl, hveiti, rúgmjöl, haframjöl, hrísgrjón, sykur og kaffi. Alt afaródýrt. Hannes Jónsson, Laugaveg 28. Útsala 1 versluninni „Þörf“, 12 manna matarstell 55 stk., að- eins kr. 65,00, kaffistell 16 stk. frá kr. 20,00. Bollapör stór, 0,50 'o. s. frv. Lítið inn meðan úr nógu er að velja. — Vegna einhverrar miskiíðar innan Stinnes-fjölskyldunnar, eða ólíkra skoðana á reksturs- fyrirkomulagi ýmsra verksmiðja -félagsins, gekk Edmund Stinnes, annar sonur Stinnes gamla, úr félaginu en fekk í sinn hluta af eignum félagsins m. a. bifreiða- byggingarstöð þess, og vinna við hana um 8—10,000 verkamenn: Stinnes hafði fram að þessum tíma ékki þurft að leita til bank- anna með lán til reksturs fyrir- tækisins, og var búixm að lýsa því yfir, svo að þeir vissu, að hann vildi helst vera þeim algerlega óháður. En um iniðjan síðasta mánuð þurfti verksmiðjan á reið- Trikotine nærfatnaður er nýkminn í ✓ llöpuhúsið. um peningum að halda, 100,000 mörkum, og leitaði til bankanna. En þeir neituðu. Gat þá verk- smiðjan ekki borgað verkalaun á tilsettum tíma. Bankarnir báru það fyrir, að þeir vildu ekki lána fyrirtæki, sem Edmund Stinn es ætti meiri hluta í. Þá gerði Stinnes það, sem vera mun eins dæmi í sögu þýska iðnaðarins. Til þess að bankarnir gætu ekki neitað honum um lánið af þeim ástæðum, að hann ætti meiri hlutann í verksmiðjunum, gefur hann helming hluta sinna í félag- inu verkamönnum sínum. Og mun sú upphæð nema 2 milj. marka. Vakti þetta engu minni athygli, en hitt, ef Stinnesfélagið yrði gert gjaldþrota. En þýska blaðið „Vorwárts“, aðalblað jafnaðarmanna þar í landi, tók þetta heldur óstint upp, mótmælti því harðlega, að verká- mennimir tækju við gjöfinni. Og segir minsta kosti nauðsynlegt að rannsaka alla málavöxtu, áður en gjöfin sje þegin. Var málinu ekki lengra komið, er síðast frjett- ist. — DAGBÓK. Jarðarför Jóns Jónatanssonar fvrverandi alþingismanns fór fram í gær, að viðstöddu miklu fjöl- menni. — Húskveðju flutti sjera Kristinn Daníelsson, en í kirkj- unni talaði Friðrik Hallgrímsson. Verkstjórafjelag Reykjavíkur gekk í broddi líkfylgdarinnar undir fána sínum, í kirkju og úr. Botnía kom hingað í fýrrakvöld, seint. Meðah farþega vriru: Jón Ólafsson og frú hans, frú Hav- steen og dóttir hennar, ungfrú Kristín Jónsdóttir, frú Levi, Vetle sen, Bogi Ólafsson, gullsmið- ur, ungfrú Lilli Kragh, Ingv- ar Ólafsson, Jessen vjelstjóri, Hilmar Thors og Tage Möll'er. Prentarafjelagið heldur hluta- veltu í Iðnó á morgun. Verður þar, að sögn, fjöldi eigulegra muna og gagnlegra, auk bókanna, sem altaf einkenna hlutaveltur Prentarafjelagsins. Messur á morgun: í fríkirkj- unni í Hafnarfirði klukkan 2 eftir hádegi, sjera Ólafur Ólafsson. Kl. 5 sjera Haraldur Níelsson í fiíkirkjunni í Rvík. í dómkirkjunni klukkan 11 fyr- ir hádegi, sjera Friðrik Hallgríms- son. í fríkirkjunni á morgun klukk- ar 2 sjera Árni Sigurðsson. í Landakotskirkju: Hámessa kl. 9 fyrir hádegi, klukkan 6 síðdegis guðsþjónusta með prjedikun. Arinbjöm hersir kom af veiðum nýlega með 110 tunnur lifrar. A veiðar fór í gær, Snorri goði. 65 ára verður í dag, Sigurður Briem, -aðalpóstmeistari. Af síldveiðum kom í gær vjel- skipið Hákon. Jón forseti hefir veitt fisk til sölu í bæinn undanfarna daga. — Veiddi hann sæmilega einn dag- inn, en síðustu daga lítið. Um fisk og fiskiveiðar við ís- land, heitir smárit, sem komið er út í Danmörku, eftir þá Pálma Hannesson og Árna Friðriksson. Er ritið eitt af þeim smáritum, sem Dansk-íslenska fjelagið gefur út, og er þetta hið 14. í röðinni. Sumarveður og hiti er enn á Norðurlandi; var símað frá Akur- eyri í gær, að þar hefði verið brunahiti og sólskin síðustu fjóra daga. Af Akureyri eru nú öll síld- veiðiskip farin. Ymir kom af síldveiðum að norð an í gær. Hann hefir aflað 4500 tunnur. Góð vin hafa góð áhpif sjerstaklega i frá C. N. Kopke & Co. Hwit vín frá Leuis Lanaire & Co. lurguimI'ioo frá Paul Marne & Co. Portvín Sherry Dpekkið Bjór Heildverslun Ásgeirs SigurSssonar. Sími 300. i LAUSAYÍSUR. Mig vill fergja mæða og slys má því kergju bera. Jeg er erginn innvortis, eiri hvergi að vera. Gömul. Gamall orðaleikur: Með þeim Ijá, sem mjer vanst Ijá, mikil ljá var slegin, aflinn sá komst ofan í sá öll þar sáust heyin. Höf. ókunnur. Kveðið um morgun 1923: Geisla-dýfu grundin fær, greinist líf um velli, skýin ýfir utan blær yfir Vífilfelli. Jón frá Hvoli. Kveðið um konu: Hla heldur hagur sjer, — hrokans eldar spilla. Skollafeldur skrúðinn er, skuldir geldur illa Jón frá Hvoli. Austurstræti 17. SI m mvi 24 T«r«linir, 28 Pouhwn, 2T Foasborf. ’Qapparstí*: , Skrúfstykki. A¥CitSIN«AR óskast send&r tásMmlega, SPJTJAKÁOILDRAH klukkustundum of fljótt. Frjettin kemur í kvöld- blöðunum. Það var hringt að nýju og Grisson svaraði.Hann virtist hlusta með athygli á það sem sagt var. Þegar hann hafði lokið samtalinu leit hann á úr sitt og mælti: — Rússneski sendiherrann óskar að tala við mig strax um mjög mikilsvert málefni, og — rússneski flotinn lagði út úr Austursjónnm í dag. XXVH. KAFLI Markgreifafrúin er ókurteis. Markgreifafrúin rjetti Duncombe fingurgómv sína og leit spyrjandi á hann. — George Duncombe, ef mjer missýnist ekki! Jeg ætlaði annars ekki að taka á móti n mum gestum í dag, en þjer sóttuð svo fast á. En var það ekki öllu heldur maðurinn minn en jeg, sem þjer ætluðuð að finna? — Jeg hefði að sjálfsögðu eins getað talað við mann yðar, svaraði Duncombe blátt áfram, en mjer var sagt, að hann væri ekki heima. Erindi mitt er að finna ungfrú Poynton. Það kom gífurlegur undrunarsvipur á frúna. — Það er gersamlega óhugsandi, að það geti látið sig gera, Ungfrúin er svo sorgbitin út af þees- ari hörmulegu frjett í blöðunum. Ef þjer eruð vin- ur ungfrúarinnar, þá ættuð þjer að koma seinna — eftir svo sem fjórtán daga. — Heyrið þjer! Það er afar áríðandi að jeg nái hið bráðasta tali af ungfrú Poynton. Jeg færi henni góðar frjettir. — Ef þjer hafið góðar frjettir að færa, mælti markgreifafrúin, þá er skynsamlegast að ungfrúín fái þær smátt og smátt. Jeg skal koma þeim til hennar. — Viljið þjer ekki leyfa mjer, að tala við ung- frú Poynton? Frúin hristi höfuðið ákveðin. — Ungfrúin er hjer undir minni vernd, mælti hún og horfði eggjandi í augu Duncombe. Mjer er illa við þjóð yðar. — Þjer og maður yðar hvöttu mig bæði til að heimsækja ykkur, þegar jeg kæmi til Parísar. — Vinir mínir og vinir mannsins m!íns eru ekki þeir sömn. Óskammfeilni frúarinnar lamaði Duncombe. — Hann hafði ekkí búist við þessari móttöku. — Jeg verð þá að biðja yður að afsaka, að jeg hefi gert yður ónæði, mælti Duncombe og hneigði sig. Jeg ætla að bíða eftir manni yðar frammi í anddyrinu. Hann var kominn alveg fram að dyrunnm, þeg- ar hún kallaði til hans og bað hann að bíða augna- blik. Hann sneri sjer við. Hún var gersamlega breytt í framkomU. — Komið þjer hjerna og setjist á legubekkinn. Duncombe ljet að orðum hennar, og var hisSa á þessari breytingu. Hún settist hjá honum, hallaðl sjer aftur á bak í svæflana og mælti: — Ungfrú Poynton hefir þekt yður lengi er ekki svo ? . — Jeg þarf minsta kosti nauðsynlega að tala við hana. — Hvers vegna? — Vegna þess, að jeg hygg, að um misskilning sje að ræða nm líkið í Signu, og sem talið er að sje af bróður hennar. — Það er ómögulegt. Vitið þjer, hver gaf þær upplýsingar að líkið væri af Guy Poynton? — jeg veit ekki annað um það, en frjettina í morgun í blöðunum. En jeg hefi verið í líkhúsinu með einnm vini mínnm — Fenguð þjer leyfi til að sjá líkið? — Nei. En við gátnm mútað einum umsjónar- manninum og fengum lýsingu á líkinu. — Og hvað svo? Eftir lýsingunni að dæma, getur þetta ekki ver- ið Gny Poynton. , ■

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.